Morgunblaðið - 22.09.1959, Síða 21
Þriðjudagur 22. sept. 1959
MORGVNBLAÐIÐ
21
— Ivar
Framh. af bls. 13.
sjóði þessum eru veitt, og hlaut
Orgland þau sem viðurkenningu
fyrir þýðingar hans á íslenzkum
ljóðum yfir á nýnorsku. Hin bók-
menntaverðlaunin voru honum
veitt úr svonefndum Gjelsvik-
sjóði. Eru það verðlaun, sem sjóð
urinn veitir fyrir bók á nýnorsku
sem þykir skara fram úr í mál-
búningi og að efni til. Var það
þýðing Orglands á ljóðum Stef-
áns frá Hvítadal, sem hann hlaut
slíka viðurkenningu fyrir. Sú
bók heitir á nýnorsku „Frá lidne
dagar“, en hún kom út 1958.
Qrgland skýrði frá því, að hin
norska þýðing hans á ljóðum
Tómasar væri komin til lands-
ins og fengist í flestum bóka-
búðum.
Þá skýrði hann frá því, að
Fonna-bókaútgáfan ráðgerði frek
ari útgáfu á íslenzkum ljóðum.
Kvaðst Orgland telja víst að
næsta bók yrði þýðing á ljóðum
Steins Steinárr. Þá þýðingu mun
Orgland einnig annast.
— Er áhugi fyrir norsku hér
á landi?
Ivar Orgland svaraði þessari
spurningu svo, að sér þætti
áhugi norrænu deildar stúdenta
fyrir fyrirlestrum um bókmennt-
ir og menningarmál, sem sendi-
kennararnir halda, ótrúlega lítill.
Þetta á við okkur alla sendi-
kennaran við háskólann. En
áhugi almennings fyrir norsku
og norskum bókmenntum er
mikill. Mun ég hefja kennslu í
byrjun næsta mánaðar og til gam
ans má geta þess að framhalds-
flokkur minn, mun í vetur m. a.
lesa þrjú leikrit Ibsens. Hlakka
ég til þess að hitta aftur þessa
nemendur mína og nýja að sjálf-
sögðu líka, sagði Orgland.
SVEliVBJÖRIN DAGFININSSON
EINAR VIÐAR
Málflutningsskrifstofa
Hafnarstræti 11. — Sími 19406.
Zig-Zag SADMAVÉLIN
T 132
Tösku
saumavélin
Zig
Zagar
stoppar í
býr til hnappagöt
festir tölur
skrautsaumur
(handstýrður)
Ábyrgð
í 6 mánuði
Söluumboð í Reykjavík:
Viiberg & Þorsteinn
Laugaveg 72 — Sími 10259.
Einkaumboð á íslandi:
nni
y
F
Það er kraftur og heilbrigði
Innihalda kalk, Járn,
fosfór, B-vítamín og
hið Iffsnauðsynlega
eggjahvítuefni.
GRJONUM
Aðalsafnaðarfundur
Hafnarfjarðarkirkju
verður haldinn í kirkjunni í kvöld kl. 20 30.
D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Rædd verður og borin undir atkvæði ósk
um stofnum sérstakrar sóknar fyrir
Þjóðkirkjumenn í Garðahreppi.
3. Onnur mál.
SÖKNARNEFNDIN
VÉLSAGIR
Viljum kaupa meðalstóra Bandsög og stóra Bútasög
Uppl. í síma 15228 á venjulegum skrifstofutíma.
Garant eigendur
Þessa viku verður sérfróður maður frá verksmiðj-
unni til viðtals og Ieiðbeiningar daglega frá kl.
13—17 á verkstæði H. Jónssonar & Co.
Þeir Garant eigendur, sem hafa áhuga á að ná
tali af honum, snúi sér til verkstjórans.
Verkfræðingur oskast
Staða bæjarverkfræðings á ísafirði er hér
með auglýst til umsóknar.
Upplýsingar um nám og störf og krafa um
launakjör fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.. Stað-
an veitist frá næstu áramótum, eða eftir
samkomulagi.
ísafirði, 17. sept. 1959
* BÆJARSTJÓRI
Kennsla í talmáli
Langar ykkur að ná valdi á talmáli erlendra þjóða?
Ef svo er, komið þá upp í Kennaraskóla eða hringið
og látið innrita ykkur.
Kennt er í fámennum flokkum, því að reynslan hefur
sýnt okkur að talæfingar koma að hverfandi litlu
gagni í stórum flokkum Kennsla hefst þegar í fyrsta
tíma í byrjendaflokki með einföldustu spurningum,
sem svo smá þyngjast þegar fram í sækir. 1 fram-
haldsflokkum er reynt að fá nemendur til að segja
frá í samfelldu máli og liðka málbein þeirra, sem
hafa flest, ef ekki allt, á bók lært.
Auk helztu heimsmálanna kennum við líka útlend-
ingum íslenzku.
Innritun frá kl. 5—7 alla virka daga í Kennaraskól-
anum og í síma: 1-32-71.