Morgunblaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 23
Sunnudagur 1. nóv. 1959
MORGUNBLAÐIÐ
23
— Krúsjeff
Framh. af bls. 1.
og 40 mínútur — og einkenndist
öðru fremur af því, hve hann
virtist forðast að ræða viðkvæm
deilumál austurs og vesturs. Til
dæmis minntist hann aðeins lítil
lega á þýzku vandamálin — lét
sér nægja að láta í ljós þá von,
að þau yrðu farsællega leyst á
fundi æðstu manna, sem haldinn
yrði fyrr en seinna. Hann beindi
heldur ekki neinum skörpum
skeytum að vestrænum stjórn-
málamönnum — og forðaðist að
minnast á svo stjórnmálalega
„viðkvæm" svæði sem Afríku og
Suður-Ameríku. — Megináherzlu
lagði hann á nauðsyn friðsam-
legra sambúðar austurs og vest-
urs. — Fréttaritarar virðast yf-
irleitt sammála um það, að
Krúsjeff hafí í þessari ræðu sinni
gert sér far um að varðveita og
Styrkja „andan í Camp David“,
sem hann nefndi svo — þ. e. a. s.
þann hógværa anda, sem virtist
ríkja í viðræðum þeirra Eisen-
howers forseta á dögunum.
9 Grundvallaratriði
Krúsjeff lagði áherzlu á það,
að allar þjóðir yrðu að vinna af
alefli að „réttlátum friði í heim-
inum“ — slíkt væri skilyrði þess,
að styrjöld yrði endanlega úti-
lokuð, og bætti við, að spenna
í alþjóðamálum hefði greinilega
minnkað verulega undanfarið og
friðarhorfur mjög batnað. í sam-
bandi við þetta lagði forsætis-
ráðherrann áherzlu á tvö grund-
vallaratriði í stefnu Sovétríkj-
anna: I fyrsta lagi, að. þau héldu
fast við hugsjónafræði Marx og
Lenins — og í öðru lagi væru
þau andvíg hernaðarbandalögum
vestrænna þjóða.
Það vakti athygli, að um leið
og Krúsjeff lýsti enn yfir stuðn-
ingi við „Rsmða-Kína“, harmaði
hann árekstrana á landamærum
Kína og Indlands — án þess þó
að ræða nokkuð um það, hvor
aðilinn ætti þar meiri sök. Hann
sagði: „Þessir atburðir hryggja
okkur mjög, og það mundi vera
sérstakt gleðiefni, ef deilurnar
yrðu leystar í vinsemd, á friðsam
legan hátt“.
'• Gromyko
Á eftir Krúsjeff talaði
Gromyko utanríkisráðherra.
Hann sagði m. a., að viðræðurnar
við Eisenhower hefðu markað
upphaf nýs tíma. „Hér hefir ver-
ið lagður grundvöllur, sem við
getum byggt á varanlegan frið“,
sagði hann. — Hann ræddi af-
vopnunartillögur Sovétríkjanna
og kvað þar m. a. vera gert ráð
fyrir ströngu eftirliti með því,
að samningar yrðu haldnir. —
Hins vegar talaði hann um, að
koma upp njósnaneti í sósíalísku
— Tyrkland
Framhald af bls. 8.
á sinn sérkennilega hátt upp á
hringlaga „útisvið" og hófu að
leika og syngja stríðssöngva frá
15. og 16. öld á alls kyns undar-
leg blásturshljóðfæri, margs
konar trommur, flautur, bjöllur
o. s. frv. Músikin varð sífellt
villtari og henni lauk með bæn.
„Láti Allah sverð ykkar verða
sem beittast“, hrópaði stjórnand-
inn og allir tóku undir. „Já,
Allah".
Þegar hér var komið, var ég
orðin sannfærð um að næst yrðu
allir vantrúarmenn brytjaðir nið-
ur. En vígalegu hermennirnir
stigu bara upp í hermannatrukk
og stjómandinn kom til að svara
spurningum okkar. Hann hefur
nýlega komið upp þessari ná-
kvæmu eftirlíkingu a£ fyrstu
hljómsveit tyrkneska hersins á
16. öld, sem þeir fullyrða að sé
fyrsta herhljómsveitin í heimin-
um. En þau urðu örlög fyrir-
myndarinnar á sinum tíma, að
á 19. öld, þegar herhljómsveit-
in var orðin of voldug og óþæg
við soldáninn, lét einn þeirra
umkringja herskála hennar og
skjóta alla hljómlistamennina.
E. Pá.
löndunum — og þá fyrst og
fremst í Sovétríkjunum.
• Ályktun æðsta ráðsins
Æðsta ráðið samþykkti í dag
ályktun, þar sem skorað er á lög-
gjafarþing allra þjóða að stuðla
að allsherjarafvopnun, sem sé
eina leiðin til að koma í veg fyr-
ir þriðju heimsstyrjöldina. Sovét
ríkin vilja, segir í ályktuninni,
gera allt, sem þau megna, til þess
að leysa afvopnunarspursmálið
og vona_ að löggjafarþing ann-
arra þjóða stuðh að því eftir
megni. — Það er framkvæman-
legt að leggja allar vígvélar end-
anlega til hliðar.
— Hallveig
Fródadóttir
Framh. af bls. 1.
miðum, er neitað um læknishjálp
i íslenzkum höfnum, ef slys ber
að höndum, höfðu i gærkvöldi í
hótunum að neita enn að af-
greiða islenzka togarann. — í
framhaldi af þessu segir síðan:
★
En fyrr í gær, á meðan verka-
mennimir voru að bræða það með
sér og deila um, hvað þeir ættu að
gera, gekk áhöfn togarans — 31
maður — í land til þess að verzla.
— íslendingarnir, með skipstjór-
ann, Sigurð Þórarinsson í broddi
fylkingar, höfðu 1.100 pundum úr
að spila.
Sigurður skipstjóri var auð-
vitað „bezt stæður“ hafði 45
pund í vasanum. En jafnvel
yngsti pilturinn um borð, Hilmar
Skúlason, sem er 16 ára, hafði
ráð á að eyða 35 pundum. Um-
boðsmenn skipsins höfðu greitt
áhöfninni þessa peninga fyrir
fram — út á væntanlega sölu.
Skipstjórinn hélt beinustu leið
í fataverzlun. Það eru nú 18 mán-
uðir, síðan hann hefir stigið fæti
á brezka grund. — Er við hittum
hann í gær, brosti hann og sagði:
„Það er eins og að koma heim
eftir langa fjarveru. Mér finnst
ég vera meðal gamalla vina“.
★
Og hann bætti við: „Allur fisk-
urinn, sem við veiddum og kom-
um með hingað, er tekinn langt
fyrir utan 12 mílna takmörkin.
'Satt að segja veiddum við hami
30—40 mílur undan ströndum“. —
Loks klykkir blaðið út með eft-
irfarandi klausu:
Orsökin til þess, að „fiskstríð-
ið“ heldur áfram er sú, að íslend-
ingar krefjast þess, að allir tog-
arar, nema þcirra eigin, stundi
veiðar sínar utan 12 mílna frá
landi.
— Skipstrand
Framh. af bls. 1.
Skipið tók fljótlega að hallast,
og var þá ákveðið, að farþegar
og áhöfnin, 6 menn, skyldu hverfa
frá borði. Landtakan tókst vel,
og bjó hið skipreika fólk um
sig á ströndinni eftir föngum —
notaði gúmbj örgunarbátana sem
„tjöld“. Fimm tímum síðar kom
skipstjórinn einnig í land.
Á fimmtudagskvöld var send
hjálp bæði frá „Sykurtoppnum“
og Kangamiut — og um kl. 18
þann dag kom skútan „Finnhval“
á vettvang og flutti fólkið til
byggða. Hið strandaða skip stend
ur nú að mestu á þurru og er
ekki talið mikið skemmt.
★
Það má heppni kallast, að ekki
varð þarna meiri háttar slys.
Engin næturvakt er í loftskeyta-
stöðvunum í „Sykurtoppnum“
eða Kangamiut — og gat þvi
Godthaab ekki náð sambandi
þaugað fyrr en kl. 8 á fimmtudags
morgun. Er það skoðun manna, j
að ef skipbrotsmenn hefðu blotn-
að og ekki verið tiltölulega hlýtt
í veðri, hefði sú töf, sem af þessu |
stafaði jafnvel getað kostað þái
iífið. Hefir þetta ástand, sem erj
ekkert einsdæmi á ströndum!
Grænlands, mjög verið gagnrýntj
í sambandi við þennan atburð.
FRÚ Liney Jónsdóttir skírir skipið. — Hjá henni standa þeir
Helgi Bergsson, formaður félagsstjórnar og eigandi skipa-smiða-
stöðvarinnar Max Kremer.
Laxá, nýju skipi Haf-
skips, hleypt af stokkum
ÞANN 20. okt. sl. var hinu nýja
vöruflutningaskipi hlutafélagsins
Hafskip hleypt af stokkunum.
Er skipið 750 smálestir að stærð,
knúið Deutz-dieselvéL Lestarmál
skipsins er áætlað 53 þús. rúmfet.
Skipið var skýrt 19. sept. sl.
að viðstöddum 30 manns og hlaut
það nafnið Laxá. Var upphaflega
gert ráð fyrir að skipinu yrði
hlevpt af stokkunum um leið og
það var skýrt, en vegna óvenju-
legrar þurrkatíðar varð að fresta
sjósetmngu. Afhendingu skipsins
mun þó ekki seinka svo neinu
nemi og verður það afhent eig-
endum um miðjan desember, og
gert er ráð fyrir að það komi til
landsins um áramót.
Þakka innilega vinsemd og gjafir á 65 ára afmæli
minu
Ingibjörg Ingvarsdóttir,
Reykjavíkurvegi 31.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim mörgu er sýndu
mér hlýjan hug á sextugsafmæli mínu 26. okt sl. Hinum
fjölmennu samtökum granna minna um veglega gjöf til
mín mun ég seint gleyma.
Stefán J. Guðmunðsson, Hveragerði
Skipstjóri á skipinu verður
Steinar Kristjánsson hafnsögu-
maður, vélstjóri Þórir Konráðs-
son og 1. stýrimaður Páll Ragn-
arsson, sjómælingamaður.
Framkvæmdastjóri Hafskips er
Sigurður Njálsson.
S S
| inn í land- j
i helgi i
SIGLUFIRÐI, 31. okt. — Um kl.
7.20 í gærkvöldi tók varðskipið
Albert vélskipið Braga SI-44 frá
Siglufirði, að veiðum 0,5—0,7 míl-
ur fyrir innan nýju fiskveiðitak-
mörkin á Grímseyjarsundi út af
Skjálfanda, að því er kipherrann
á Albert telur. Skipstjórinn á
Braga taldi sig hafa verið fyrir
utan fiskveiðitakmörkin, en reng-
ir hins vegar ekki mælingar varð
skipsins.
Skipið var með lítinn sem eng-
an afla, og Albert kom með hann
inn til Siglufjarðar í nótt. Réttar-
rannsókn er ekki lokið í málinu.
— Stefán.
„MOHAIR“
Kápuefni
komin. Einnig ullarefni í
kápur og dragtir, fallegir
litir. —
Saumastofa
Guðfinnu Magnúsdóttur
Barmahlíð 51. Sími 18928.
Við kaupum
Gull
JönSipniunÖGson
Síiörlpripoverííun
Laugavegi 8.
Faðir okkar
VILHJÁLMUR GlSLASON
Ásbergi, Eyrarbakka
andaðist að heimili dóttur sinnar Vestmannaeyjum 3L
október.
Börnln
Móðir okkar
DAGMAR SIGGEIRSDÓTTIR
lézt að Vífilstöðum föstudaginn 30. okt. Jarðarförin
ákveðin síðar.
Börn hinnar látnu
Jarðarför dóttur minnar
ÁSDlSAR JÓHANNSDÓTTUR
fer fram frá Hveragerði miðvikudag. 4 nóv. og hefst
með húskveðju frá heimili mínu Friðarstöðum kl. 13,30
Jarðsett verður að Kotströnd. Bílferð frá Bifreiðastöð
íslands kl. 12 sama dag.
Jónína Benediktsdóttir
Innilegustu þakkir til allra, sem auðsýndu samúð og
vináttu við andlát og jarðarför móður minnar,
ÞÓRU JÓNSDÓTTUR
Fyrir hönd mína og annara vandamanna.
Jón Hafliðason
Hjartans þakkir til allra nær og fjær, sem sýndu
okkur vináttu og samúð, við andlát og jarðarför föður
okkar, tengdaföður og afa,
GUÐVARÐS Þ. JAKOBSSONAR
Miðstræti 5
Börn, tengdabörn og bamabörn
Hjartanlega þökkum við öllum, er sýndu okkur sam-
úð og hluttekningu við andlát og jarðarför eiginmanns
míns og fósturföður okkar,
ÁRNA JÓNSSONAR
Hverfisgötu 57, Hafnarfirði
Júlía Jónsdóttir og fósturböm