Morgunblaðið - 25.11.1959, Side 1

Morgunblaðið - 25.11.1959, Side 1
24 síðuv 263. tbl. — Miðvikudagur 25. nóvember 195S Prentsmiðja Morgimblaðsins Rússar bannfæra einstakar ■BHHEEgHBMHaBnBHHaBCSanBMHBnHnBEaMHHBMaaHBri bækur á brezkri sýningu MOSKVU, 24. nóv. (Reuter): — Um helgina var opnuð í Moskvu brezk bókasýning. Eru á henni yfir 4000 bækur, sem eiga að sýna þverskurð af brezkri útgófu á vorum tímum. Fyrirfram var þó þeirri reglu fylgt, samkvæmt skilyrðum Rússa, að ekki skyldu vera á sýningunni bækur um trúmál, efnahagsmál og stjórn- xnál. Þrótt fyrir þessa takmörkun, eru rússnesk yfirvöld ekki ánægð með sýninguna og kröfðust þau þess áður en hún hófst, að all- xnargar bækur yrðu teknar af sýningunni vegna þess, að þær féllu þeim ekki í geð. Vekur þessi krafa furðu og undrun í Bretlandi. Meðal bókanna, sem Rússar banna er hið kunna uppsláttar- verk „Keesings Contemporary Archives“. Er það lausblaðarit, þar sem smásam'an er safnað upp lýsingum um alla helztu heims- viðburði. Er ritið þekkt um heim allan fyrir nákvæmni í upplýs- ingum. í>á féllu Rússum illa þrjár bæk- ur um Hitler, sem þó eru viður- kenndar merkar sagnfræðilegar heimildir. Það eru bækurnar „Hitler the Tyrant and his Tyranný“ eftir Allan Bullock, „The last days of Hitler“ eftir Hugh Trevor-Ropre og bók eftir Aldous Huxley. Bannið við Hitl- er-bókunum vekur þeim mun meiri undrun, þar sem það er upplýst, að yfirmaður rússnesku ríkisbókaútgáfunnar hefur ný- lega fengið leyfi til að þýða bók Trevor Ropers á rússnesku. Þá bannfæra Rússar nokkur brezk tímarit og eru þeirra á meðal þjóðþekkt tímarit eins og Economist, Encounter og Time and Tide. Slík bókabannfæring þykir með öllu ósæmileg og sýnir vest- rænum mönnum svo ekki verður um hvílíkt ástand ríkir í andlegum málum í Rússlandi. Hafa nokkrir brezkir rithöfundar sem bækur eiga á sýningunni, skorað á British Council, er ann ast sýninguna, að loka henni og flytja bækurnar aftur tafarlaust til Bretlands. Ekki sé rétt að halda bókasýningunni áfram eft- ir framkomu hinna rússnesku yfirvalda. Tollalækkanii STRASSBORG, 24 nóv. (NTB). Ráð Evrópumarkaðarins kom í dag saman til fundar í Strass- borg og var ákveðið þar að láta ýmsar af tolllækkunum Evrópu- markaðarins gilda almennt fyrir allar þjóðir sem þátt taka í GATT-tollasáttmálanum og al- þjóða gjaldeyrissjóðnum. Einnig var tilkynnt á eftir fundinn, að samþykkt hefði verið að gefa Grikklandi kost á því að ganga í Evrópumarkaðinn. Er aðeins eftir að ljúka samningum við Grikki um það. Líklegt er, að Tyrkjum verði síðan boðin aðild að Evrópumarkaðnum. Flugvél rakst d íbúðarhús J Mikojon hvílir sig í Miami NEW YORK, 24. nóv. (NTB): — Bandaríska vikuritið Newsweek skýrir frá því, að Anastas Mikoj- an varaforsætisráðherra Rúss- lands, sem nú er staddur í Mexí- kó hafði fengið sérstakt leyfi hjá bandarískum yfirvöldum til að dveljast í nokkra daga í Miami í Flórída og hvíla sig. Frú Þórdís Haraldsdóttir segir: Það varð að áhrínsorðum KONUNNI, sem fæddi þrí- burana í Fæðingardeild Land- spítalans sl. föstudag,heilsast Chicago, 24. nóv. (NTB) AÐ MINNSTA KOSTI sjö manns fórust og margir særð- ust í flugslysi við Midway- flugstöðina hjá Chicago. — Þetta var fjögurra hreyfla flugvél af tegundinni Con- stellation. Hún flaug í gegn- um húsaröð við útjaðar flug stöðvarsvæðisins. Ýrðist henz ín frá henni yfir 10 hús, sem öll stóðu innan stundar í björtu báli. í kvöld höfðu 1 lík fundizt í rústunum, en ótt- azt er að fleira fólk, íbúar húsanna hafi farizt. Sextán manns er saknað úr þessum húsum. Meðal þeirra sem létu lífið var þriggja manna áhöfn flug vélarinnar. Engir farþegar voru í vélinni sem notuð er til flutninga. Flugvélin var frá Trans World Airways. Hún hafði verið að taka sig til flugs þegar kviknaði í henni. Flugstjórinn tilkynnti flugvallarstjórninni að hann í yrði að snúa við og nauð- í lenda. En í aðfluginu missti 1 flMgvélin hæð og rakst á hús- in. íbúar húsanna voru flest- ir í fastasvefni þegar þetta gerðist. Nýtt sjónvarpshneyksli Plötu„spilarar" þiggja stórfelldar mútur WASHINGTON, fJt. nóv. N Ý J A K uppljóstranir og hneyksli eru stöðugt að koma upp um þessar mundir í sam- bandi við rekstur útvarps- og sjónvarpsstöðva í Bandaríkj- unum. Það vakti mikla at- hygli fyrir nokkru, þegar það varð ljóst af rannsóknum þingnefndar, að spurninga- þættirnir í sjónvarpi Banda- ríkjanna hefðu verið falsaðir og að stórverðlaun hefðu verið greidd út á svindl. Nýtt mál, sem nú er að koma upp, mun einnig þykja athyglis- vert. Það er nú upplýst, að stjórnendur hljómplötuþátta við sjónvarpsstöðvarnar hafa þegið stórfelldar mútur fyrir „að gera grammófónplötur vinsælar”, þ. e. að leika þær í hljómplötuþáttum sínum. Eitt af stærstu hljómplötu- firmum Bandaríkjanna hefur kært þetta fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings. í beinu fram- haldi af því hefur þingnefndin Framh. á bls. 23. vel — og litlu angarnir henn- ar voru hinir sprækustu í gær, þegar Ijósmyndari Mbl. tók myndir af þeim — að minnsta kosti létu þeir óspart til sín heyra. Blaðamaður Morgunblaðsins og konan, Þórfríður Haraldsdóttir, spjölluðu lítilsháttar saman. — Það er verst að ég hef ekk- ert að segja, sagði konan, ég er svo vönkuð að ég veit varla hvað ég heiti sjálf. — Ertu kannski ekki búin að átta þig á þessu ennþá? — Jú, ég er nú búin að átta mig, en við bjuggumst ekki við nema tveimur. Ég verð í vand- ræðum með nöfn á strákana tvo, en það verður allt í lagi með nafn á stúlkuna. Við vorum und ir hana búin. Mohr-Dan lögmoður íhngor þútttöku í Fríverzlunarsvæðinu KAUPMANNAHOFN, 24. nóv. (Frá Páli Jónssyni) — Peter Mohr-Dam lögmaður Færeyja kom í gær til Danmerkur. Hann sagði við komuna að hann hygð- ist ræða við dönsku stjórnina um það hvaða þýðingu stofnun Frí- verzlunarsvæðisins hefði fyrir Færeyjar. En sem kunnugt er hafa Danir gerzt aðilar að Frí- verzlunarsvæðinu en Færeyjar eru þó ekki teknar með í það. Mohr-Dan sagði, að Færeying- um stæði til boða að ganga í Frí- verzlunarsvæðið. Þeim hefði ver- ið gefinn nokkur umhugsunar- frestur og áður en þeir ganga í það vilja þeir fá vissar trygging- ar fyrir sölu á fiskafurðum sín- um. — Það eru til margar skrítlur, um viðbrögð karlmanna undir svona kringumstæðum — hvern- ig fannst þér nú maðurinn þinn bera sig? — Hann bar sig prýðilega — ég sé enga breytingu á honum. Og börnin eru öll spræk og virð- ast ekki vera veikburða. Það er fyrir mestu. — Hvað eruð þið hjónin búin að vera gift lengi? — Við kynntumst fyrir 6 árum, en erum búin að vara gift í 4 ár. Okkur datt nú ekki í hug neitt svona þá. — Hvernig líður þér sjálfri? — Mér líður vel og lízt vel á hópinn okkar. En það getur orð- ið erfitt að ala þau öH saman — svo eru hin svo ung líka, Þriggja ára og hinn strákurinn varð tveggja ára í gær. —Hvernig heldurðu að þeim verði við, þegar þið komið öll saman? — Það verður gaman að sjá. Einhver heima var búinn að segja eldri stráknum, að ég ætl- aði suður til að kaupa stelpu, en þá sagði hann: — Ég vil bara eina stelpu, en marga stráka. Og það varð að áhrínsorðum. ★ Samkvæmt upplýsingum Pét- urs Jakobssonar, yfirlæknis Fæð ingardeildar Landsspítalans, eru þessir þríburar þeir einu, sem fæðzt hafa á fæðingardeild spít- alans frá því starfsemi hennar hófst 1931.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.