Morgunblaðið - 25.11.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ
Skýjað, úrkomulítið, vaxandi
austanátt.
JMmngiittliIgiibifr
263. tbl. — Miðvikudagur 25. nóvember 1959
Úti í geimnum
Sjá bls. 12.
Qður maðut í
Landsbankanum
MORGUNBLAÐIÐ frétti í
gær, að maður nokkur hefði
farið inn í Landsbankann í
gærmorgun og gengið þar um
með hótunum. Það fylgdi
fréttinni, að einn af dyravörð-
um bankans, Björn Vigfús-
son, hefði sett manninn út. —
Blaðið sneri sér því til Björns
og spurði hann frétta af þess-
um atburði og sagðist honum
svo frá:
— Rétt fyrir klukkan hálf
ellefu var ég staddur á gangin-
um á annarri hæð bankahússins.
Bankastjórar viðskiptabankans
höfðu verið á fundi á næstu hæð
fyrir ofan, þar sem Seðlabankinn
er til húsa, og voru ekki byrjáðir
að taka á móti viðskiptavinum.
Þegar þeir komu niður á aðra
hæð, var margt manna á gangin-
um, því margir eiga erindi um
ganga bankans um þetta leyti
dags. Ég tek eftir þvi, að maður
nokkur kemur inn um vestur-
dymar. Sé ég, að hann er allund-
arlegur og fer með nokkrum ó-
látum og þykist ég sjá, að hann
sé annað hvort geggjaður eða öl-
óður. Bjóst ég samt við, að hann
myndi ganga gegnum ganginn og
fara út hinumegin, þ. e. Pósthús-
strætismegin, en þegar minnst
varir ryðst hann fram hjá fólk-
inu á ganginum og ætlar inn í
eitt af bankastjóraherbergjunum,
en þar sem mér hafði fundizt
maðurinn alleinkennilegur, fylgd
ist ég vel með ferðum hans, og
um leið og hann ætlaði inn í
bankastjóraherbergið, tók ég ut-
an um hann og báða handleggi
hans og fór með hann niður. eins
og hvern annan pakka. Eitthvað
tautaði hann á leiðinni, en ekki
heyrði ég hvað það var. Skildi
ég svo við hann í Pósthússtræt-
„Dýr
myndi
Haflidi
allur
44
í GÆRKVÖLDI var nokkrum
kössum snarað inn í verzlun
Silla & Valda í Aðalstræti.
Þeir létu ekki mikið yfir sér.
Eigi að síður höfðu þeir inni,
aS halda heimsþekkta vöru:
Ósvikinn rússneskan kavíar.
Er kavíarinn á litlum glær-
um glösum, sem vega 113 gr.
— Kavíar! sagði einn við-
sbiptavinanna, við Sigurjón)
Þóroddson verzlunarstjóra. —
Já, ekkert nema kavíar. —
Maðurinn spurði nú um leið
og hann hafði orð á því, að
það kæmi vatn í munninn á
sér við tilhugsunina:
— Hvað kostar glasið, Sigur
jón?
— Litlar 178 krónur maður |
minn. Islenzkur kavíar kost-1
ar níu og áttatíu, — ef þú
villt.
Maðurinn deplaði augunuml
sneri sér frá borðinu, um leið
og hann sagði:
— Dýr myndi Hafliði allur.
inu og segi við hann um leið og
ég sleppi honum: — Þú kemur
ekki upp aftur. — Nei, svaraði
hann. Þegar ég kom aftur upp
á ganginn á annarri hæðinni,
voru þar fyrir þrír lögregluþjón-
ar. Einn þeirra sagði við mig:
— Vár maðurinn ekki með hníf?
— Nei, ég varð ekki var við það,
sagði ég. — Var hann þá ekki
með skammbyssu? spurði ein-
hver. Ég sagðist ekki hafa orðið
var við, að hann hefði verið
vopnaður. Var mér þá sagt frá
því, hvað gerzt hafði, áður en
maðurinn kom upp á ganginn.
Hann hafið komið inn um
vesturdyr bankans og var þar
þá fyrir Anton Halldórsson,
húsvörður, og fleira fólk.
Anton spurði manninn, að
hverju hann væri að leita, en
þá kippti hann upp úr vasa
sínum annaðhvort skamm-
hann nokkrum sinnum hér í
bænum.
Þetta var frásögn Björns Vig-
fússonar, dyravarðar í Lands-
bankanum. Aðspurður sagðist
hann hafa unnið í Landsbankan-
um í 15 ár og hefði lítið borið
til tíðinda þann tíma. Það væri
einna helzt nú upp á síðkastið,
sem þar væri eitthvað um að
vera — því þetta er þriðji mað-
urinn, sem ég hef orðið að fjar-
lægja úr bankanum síðan í vor,
sagði hann. Hinir tveir voru
báðir ölvaðir og gengu um bank-
ann með hótunum.
Björn Vigfússon er fyrrum lög-
regluþjónn. Hann er rmkill mafS-
ur að vallarsýn og sterkur, eins
og sést ú myndinni, sem frétt
þessari fylgir. Hann er frá Gull-
berastöðum í Borgarfjarðarsýslu.
í GÆR flaug Björn Páls-
son með 7 ára telpu, sem
nóttina áður hafði verið
mjög þjáð af kíghósta, upp
Batnaði
í 14000 feta hæð í sjúkra-
flugvél sinni, var uppi í
hinu þunna lofti í um hálf-
tíma og eftir því sem bezt
varð séð hafði telpunni
batnað hóstinn þar uppi, a.
m. k. hóstaði hún ekkert
það sem eftir var dagsins
í gær.
Telpan heitir Guðrún Guðna
dóttir, fósturdóttir hjónanna
Bjarna Tómassonar málara og
Elísu konu hans. Hún var bú-
in að vera með slæman kíg-
hósta síðan 19. okt., og tvisvar
sinnum fengið sterk meðul
og helzt haft þau ráð að láta
hana hanga út um glugga, þar
eð henni létti helzt við það. I
gærmorgun var hringt til
læknisins, sem ekki kunni
fleiri ráð.
Sagðist frú Elísa hafa heyrt
um það úti í Þýzkalandi,
þegar kíghósti gengi hér og
hefði börnum oft batnað við
það. Þetta væri þó í fyrsta
skipti á þessu hausti, sem
hann hefði verið beðinn um
að fara slíka ferð. Sagðist
Björn sérstaklega muna eftir
einum föður, sem hefði komið
kíghóstinn i 14000 feta hæð
hjá heimilislækninum, þar
eð hún fékk alltaf slæm ekka-
sog á nóttunni. Fimm ár voru
liðin síðan hún hafði verið
bólusett gegn kighósta. — I
fyrrinótt fékk hiin svo slæm
köst að hún blánaði upp og
náði ekki andanum í krampa-
sogunum. Kvaðst móðir henn-
ar hafa óttazt um líf hennar,
Björn Vigfússon,
sýndi snarræði.
dyravörður.
byssu eða hníf, og beindi að
Antoni og sagði: — Ég skal
drepa ykkur! Þá flýttu við-
staddir sér allt hvað af tók og
komust naumlega undan, en
Anton skauzt inn í kompu og
hringdi á lögregluna. Meðan
á þessu stóð hljóp maðurinn
upp stigann og komst upp á
ganginn.
— Síðar frétti ég, hélt Björn
Vigfússon áfram, að maður þessi
hefði farið upp í Arnarhvol eða
stjórnarráð og verið handtekinn
þar, en ekki veit ég á því neinar
sönnur. Maður þessi var á að
gizka um þrítugt, en ekki veit ég
á honum meiri deili, hef þó séð
Aðalfundur Nor-
ræna félagsins
AÐALFUNDUR Norræna félags-
ins verður haldinn í Þjóðleik-
húskjallaranum föstudaginn 27.
nóv. n.k. Fundurinn hefst kl.,
20.30. Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa verður rætt um breyt-
ingar á skipulagi félagsins og
lagabreytingar.
Að aðalfundi loknum verður
efnt til kvöldvöku.
Leikararnir Valur Gíslason og
Klemenz Jónsson flytja skemmti
þátt á kvöldvökunni, einnig verð
ur dansað.
Félagar sýni skírteini við inn-
ganginn. Félagsmenn eru hvattir
til að fjölmenna. Heimilt er að
taka með sér gesti á kvöldvök-
una.
heimalandi sínu, að kíghósti
læknaðist stundum ef sjúkl-
ingnum væri komið hátt upp
í þunnt loft. Hún sagði manni
sínum frá því, og hringdi
hann til Björns Pálssonar
flugmanns. Kl. 2.15 í gær hóf
flugvélin sig til flugs með
þær mæðgurnar innanborðs,
báðar í sinni fyrstu flugferð.
Telpan hóstaði aðeins Iítillega
tvisvar þennan hálftíma sem
flugið tók, og í gærkvöldi
kvaðst móðirin ekki geta
annað séð en að hóstinn væri
horfinn.
Mbl. spurðist fyrir um það
hjá Birni Pálssyni, hvort
hann gerði mikið að því að
fljúga með kíghóstasjúklinga.
Kvaðst hann hafa gert það
til sín nokkrum dögum eftir
að hann fór með strákinn hans
upp í háloftin í flugvél, siðast
þegar kíghóstinn gekk hér.
Maðurinn hafði ljómað af
ánægju og sagt að drengnum
hefði snarbatnað mjög slæm-
ur kíghósti við flugferðina.
Björn sagðist venjulega
fljúga í 12000—13000 feta hæð
með sjúklingana og gæfist það
ráð óft vel, þegar hóstinn
væri farinn að keyra úr hófi.
Kíghósti hefur gengið hér
í bænum um skeið. I vikunni
9.—15. nóv. hafa verið skráð
100 tilfelli frá 40 læknum hér
í Reykjavík. Ekki er kíghósta-
faraldurinn talinn slæmur i
þetta skipti, enda meiri hluti
barna bólusett gegn honum.
Stjórnarskipfin rœdd
á fundi í Keflavík
F L O K K S RÁÐ Sjálfstæðisflokksins í Gullbringusýslu boðar til
fundar að VÍK í Keflavík fimmtudaginn 26. nóvember kl. 8.30 síðd.
Ólafur Thors, forsætisráðherra, flytur ræðu um stjórnarskiptin
og viðhorfið í þjóðmálunum.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til að fjölmenna stundvíslega á fundinn.
Furóulega háar fisk-
sölur i Bretlandi
HIÐ brezka ,,Fishing News“ segir
frá fiskilöndunum íslendinga í
Bretlandi og getur þess, að þær
komi sér vel vegna þess að mjög
mikill hörgull sé á fiski þar í
landi.
Blaðið getur um þessar fiski-
sölur:
Jón forseti seldi 3259 kit í Hull
fyrir 12,464 pund, og Ólafur Jó-
hannesson seldi í sömu borg 2722
kit fyrir 15,244 sterlingspund.
Bjarni Ólafsson seldi í Grimsby
2677 kit fyrir 15,074 pund og Brim
nes 2701 kit fyrir 13,208 pund. Þá
var þess getið að tveir togarar til
viðbótar Sléttbakur og Margrét
ætluðu að selja í Grimsby. Slétt-
bakur hafði 220 kit og átti eftir
löndun að fara í slipp í Grimsby.
Fishing News segir, að allar
þessar sölur íslenzku togaranna
hafi verið óvenjulega háar. Staf-
ar það af hinum almenna fiski-
skorti í Bretlandi. Getur blaðið
sérstaklega ummæla Mr. Ian
Class forseta fiskikaupmannafé-
lags Hull, þar sem hann lýsir fisk
skortinum. Segir hann að fisk-
skortur sé ekki venjulega kom-
inn svo snemma vetrar í Bret-
landi og sé söluverðið furðulega
hátt (fabulous) fyrir þennan árs
tíma. Hann segist vera að velta
því fyrir sér hvernig ástandið
verði síðar í vetur á þeim tíma,
þegar fiskiskortur er venjulega
verstur í Bretlandi.