Morgunblaðið - 25.11.1959, Side 17

Morgunblaðið - 25.11.1959, Side 17
Miðvik'udagur 25. nðv. 1959 m o n n ji y n r. 4 ð 1 ð 17 Fimmtugur 1 dag: Tryggvi Pétursson deildarstjóri. ÞESSUM vini mínum kynntist ég fyrst fyrir 45 árum. Leiðir okkar skildu að vísu í bili, en ekki liðu mörg ár, þar til við hitt umst. Og nú í hartnær 30 ár, höfum við af og til deilt geði. Tel ég mér bæði ljúft og skylt að minnast Tryggva Péturssonar með fáum orðum á þessum áfanga stað ævi hans, þó ekki væri til annars en þakka samfygldina og árna honum heilla með næsta áfanga, en haldið verður áfram sem horfir. tamt að skynja fegurð lífsins víð- ar en í bókum og fcgrum fræðum. í raunsæju starfi ornar hann sér við þann arineld sem bezt brenn- ur, án þess að ganga draum- sjónum á vald. Hann veit og skil- ur að „sá heltist úr lest, sem er hugsi og dreyminn". í anda heimspekilegrar félagshyggju, sem á sterk ítök í Tr. P., er hon- um eiginlegt að miðla samferða- manninum af örlátum hug, þeim verðmætum, er hvorki verða Tryggvi Pétursson hefur verið starfsmaður Búnaðarbankans frá stofnun hans, ávallt gegnt trún- aðarstarfi, mörg undanfarin ár verið deildarstjóri. Kvenstúdentafélagið veitir námsfyrki Styður einnig Barnahjálparsjóðinn og flóttakonur AÐALFUNDUR Kvenstúdentafé- lags fslands var haldinn í Þjóð- leikhúskjallaranum hinn 10. nóv. sl. Formaður félagsins, frú Ragn- heiður Guðmundsdóttir, læknir, setti fundinn, en síðan tók frk. Rannveig Þorsteinsdóttir, hrl. við fundarstjórn. Formaður flutti skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Fundir voru haldn ir reglulega á árinu. Félagið sá um útvarpsdagskrá eitt kvöld sl. vetur í tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Félagið hefur, eins og að undanförnu, stutt erlendar landflótta menntakonur og er sennilega eina félagið hér á landi, sem um árabil hefur reglulega haldið uppi hjálp við flóttafólk, þótt í smáum stíl sé. Sl. vor auglýsti félagið styrk að upphæð 12500,00 kr., sem veita skyldi ísl. kvenstúdent við erlendan háskóla, sem ætti eftir 1—2 ár af námi. Níu umsóknir bárust, þar af frá fjórum, sem uppfylltu sett skilyrði. Stjórn fé- lagsins samþykkti samhljóða að veita Gústu I. Sigurðardóttur, Reykjavík, sem leggur stund á frönskunám í Frakklandi, styrk- inn, en þar sem Gústa hlaut um likt leyti styrk frá franska rík- inu, afsalaði hún sér isl. styrkn- um. Ákvað stjórnin þá, að skipta honum að jöfnu milli Maju Sig- urðar, Akureyri, sem stundar nám í heimspeki og lífeðlisfræði í Oxford, og Guðrúnar T. Sig- urðardóttur, Reykjavík, sem Stundar nám í sálar- og uppeldis- fræði í Kaupmannahöfn. Þá gat formaður þess, að félagið hefði hug á að veita á næsta ári einn eða tvo styrki til náms við Há- skóla íslands. Fjár til styrkjanna hafa félagskonur aflað með kaffi sölu og útvarpskvöldi og hyggj- ast halda söfnun áfram næsta starfsár. Þá gat formaður þess, að fé- lagið hefði, eins og að undan- förnu, séð um sölu á jólakortum fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Hefur sala kortanna farið vaxandi með hverju ári, og er ísland næsthæsta söluland í heimi miðað við fólksfjölda. Kort in eru til sölu í bókaverzlunum um land allt. Síðan las gjaldkeri frú Ólafía Einarsdóttir, Hofi, upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir. Er hagur félags ins nú mjög góður. Síðan fór fram stjórnarkjör. Formaður var endurkosinn frú Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir. Aðrar í stjórn eru: Ingi- björg Guðmundsdóttir, Erla El- íasdóttir, Ólafía Einarsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Svava Pétursdóttir, Ólöf Benediktsdótt ir, og til vara Elsa Guðjónsson, Brynhildur Kjartansdóttir og Sigríður Erlendsdóttir. Skattstjórafélag stofnsett SÍÐASTLIÐINN laugardag var formlega stofnað Skattstjórafé- lag íslands. Stofnfundinn sátu allir skattstjórar landsins, en þeir eru 10 talsins. Tilgangur hins nýstofnaða fé- lags er að gæta hagsmuna, sem fyrst og fremst beinast að bætt- um vinnuskilyrðum. Stjórn íélagsins skipa: Jón Eiríksson, Vestmannaeyjum, for- maður og meðstjórnendur þeir Eiríkur Pálsson, Hafnarfirði og Guttormur Sigurbjörnsson, Kópa- vogi. %£í BLAÐINU í gær var skýrt i frá nýrri strætisvagnaleið.j „Austurhverfi“. Merkt er inn, á kortið, sem hér birtist, umj ^hvaða götiur ekið er og við-' komustaðir. ^ Akstur hefst við Laugarás-' skýiið, sem er á gatnamótum'* Laugarásvegar og Sundlaugar« vegar. Ekið verður á hálftíma^ fresti, 15 mín. fyrir og yfir' heilan tíma, um Dalbraut,, Kleppsveg, Lauganesveg, Borg' artún, Nóatún, Lönguhlíð,1' Miklubraut, Grensásveg, Soga, veg, Tunguveg, Suðurlands- braut, Langholtsveg og Laug- arásveg. Öðrum fremur hefur hann bví verið í þjóðbraut, ef svo mætti segja, eins og þeir aðrir, sem starfsins vegna hljóta að ræða vandamál við gest og gangandi. Ekki tel ég neina tilviljun að þetta hefur einmitt fallið í hlut Tryggva. Hitt myndi réttara, að þéim mönnum bæri nokkurt hrós fyrir góða glöggskyggni, er kjör- ið hafa hann til ábyrgðarmikilla starfa. Dómgreind Tryggva, gjör hygli og mannþekking dylst ekki þeim, er bezt þekkja hann. Líklegt tel ég, að mikill fjöldi manna víðs vegar að af land- inu sendi Tr. P. kveðju og þakkir fyrir holl og góð ráð. f leit sinni eftir fyllra og feg- urra lífi kemur Tr. P., löngum auga á margar leiðir. Honum er Nýtt bindi af Ferðabók Þ. Thoroddsen komið út ÚT ER KOMIÐ 3. bindi af Ferðabók Þorvalds Thoroddsen. Það er Snæbjörn Jónsson og Co., sem gefur bókina út í nyrri útgáfu, en 1. bindið kom út haustið 1958 og 2. bindið sl. vor. — f þessu 3. bindi segir m. a. frá hinum stórmerku rannsóknum höfundar á Eldgjá, Lakagígum og byggðum Austur-Skaftafellssýslu. Þorvaldur Thoroddsen ferðað- ist um fsland á árunum 1882—’98 og rannsakaði þá landslag þess, jarðmyndanir og þjóðhætti. Um rannsóknir sínar ritaði hann margar bækur. þar á meðal lýs- ingu íslands og Ferðabókina. Ferðabókin var fyrst prentuð í Kaupmannahöfn 1913—1914. Hún er í 4. bindum alls 1400 bls. Þessi fyrsta útgáfa Ferðabókar- innar hefur um langt skeið verið torfengin og rándýr og er talið, að aðeins um 300 eintök af henni séu til, því hafa færri getað eign- azt bókina en vildu, en úr þessu hefur nú verið bætt með hinni nýju, myndarlegu útgáfu á þessu merkilega verki. vegin né mæld. Til gamans skal þess getið, að Tryggvi Pétursson heitir nafni Tryggva Gunnarssonar banka- stjóra. Svo mikils mat faðir Tryggva, Pétur Guðmundsson, skólastjóri, sá merki maður, Tryggva Gunnarsson, en 'þeir voru miklir vinir. Sveinninn Tryggvi var vatni ausinn 1 þann mund, er Tryggva Gunnarssyni var vikið úr Landsbankanum. — Ótvíræðar lætur vart nokkur skoðun sína í ljós á manni og málefni. Fyrstu kynni mín af Tr. P., er ég drap á í upphafi eru tengd minningunni um samskipti hans við lítinn sveinstaula, nokkru yngri honum. Varfærni sú og næmleiki hins eídra, en þó unga drengs hefir aldrei liðið mér úr minni. i Eins konar mynd bregður fyrir í huga mínum frá löngu liðnuru dögum — mynd, sem er táknræn að minni hyggju. „Hvað hraðast líður, það lengst af bíður og gleymist síður úr sinni og hug“. Helgi Hallgrímsson. líviJ r * 9 i I* - • ■ • • 4 liill imi ■«• ■ ■ vll mmm ■ • • • • • •■ Wum Bók sem fjallar fyrst og fremst um bókmenntir innlendar og erlendar. Eftir Sigurb A. Magnússon y Þessi nýja bók Sigurðar A. Magnússonar er f jölbreytt að efni og líkleg til að vekja umræður, því hér er fjallað um ýmis þau I ■Á-.-Í mál, sem mestum flokkadráttum valda manna á meðal. ■ • ■ ■ a NÝJU FÖTI N KEISARÁNS m ’UilnTiI 'MP-* • ma • • «gn • • • nn • i • nnn'M Wg1 “ " WK1 ■ • • • • KHm ■ 9 • • • • mP • ° 'hBS* • • • • 253as Bókin er 290 bls. — Verð kr. 175.00. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR ÍST • • nwr • • •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.