Morgunblaðið - 25.11.1959, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 25.11.1959, Qupperneq 22
22 MORcrnvnr.AfíiÐ Miðvikudagur 25. nóv. 1959 Aðeins Danir hafa enn tryggt sér rétt til úrslita keppninnar í Róm Undankeppni Olympíuleikanna í knaff- spyrnu víða sfuft á veg komin mikla möguleika og þeir. Svo bjartsýnir eru Danir, sem í sumar „mörðu“ íslendinga 1:1. í FYRSTA sinn tóku íslend- ingar nú þátt í knattspyrnu- keppni Ólympíuleikanna. — í»eir lentu í 1. riðli Evrópu- deildar undankeppninnar og þrátt fyrir óvænta frammi- stöðu er þátttöku íslenzkra knattspyrnumanna í Ólym- píuleikunum 1960 lokið. Undankeppninni var hagað svo, að þátttökuríkjunum var skipt í 15 riðla og á sigurveg- ari í hverjum þeirra rétt á þátttöku í úrslitaumferð á Ítalíu 1960. Auk þess eru Italir með sem gestgjafar án þátttöku í undankeppninni. Fram til þessa er aðeins vitað um tvö þau lönd, sem tryggt hafa sér rétt til úrslita- keppninnar, það er Danmörk og gestgjafarnir ítalir. Fróðlegt er að líta á hvernig staðan nú er í einstökum grein- um og hvaða 14 lönd eru líkleg til úrslitakeppninnar auk Dana og ítala. Danmörk sigraði með nokkrum yfirburðum í 1. riðli Evrópudeilc - arinnar. Hlutu Danir 7 stig, Is- land 3 og Norðmenn 2 stig. Búizt er við sigri Póllands í öðrum riðli. Aðeins er lokið þremur leikjum: Finnland — Pól- land 1:3, Pólland — Finnland 6:2 og Þýzkaland — Finnland 2:1. Einna mestur spenningur ríkir í 3. riðli. Þar eru úrslit þannig til þessa. Rússland — Búlgaria 1:1, Rússland — Rúm enía 2:0, Rúmenia — Rússland 0:0, Búlgaria — Rússland 2:1, Rúmenía — Búlgaría 1:0. Rúss ar hafa sem sagt 4 stig, en hvort hinna landanna 3 stig. Eftir er einn leikur þeirra á milli. Vinnist sigur, fer sigur- vegarinn til Rómar, verði jafn tefli eru öll löndin 3 jöfn að stigum. Rússar hafa hins vegar hagstæðasta markatölu. í 4. riðli keppa ísrael, Júgó- slavía og Grikkand. Tveirr. leikjum er þar lokið. Júgóslavía — Grikkland 4:0, ísrael — Júgó- slavía 2:2. í 5. riðli er aðeins einum leik lokið: Holland og írland 0:0. í þessum riðli leikur og áhuga- mannálið Englands. í 6. riðli er einnig aðeins ein- um leik lokið. Frakkland og Luxemborg hafa leikið og unnu Frakkar 1:0. Sviss á einnig að leika í þessum riðli. Sömu sögu er að segja í 7. riðli, aðeins einn leikur. Austurríki hef ur leikið gegn Tékkóslóvakíu 0'0. Þriðja þátttökuríkið kemur senni lega til með að sigra, en það er Ungverjaland. Eins og áður segir fer sigur- vegari í hverjum þessara Evrópu- riðla til úrslitakeppninnar í Rom. A Ameríkulið Frá Ameríku koma þrjú lið til úrslitakeppninnar. Þar hafa verið settir upp 5 „smáriðlar" en í hverjum eru lið tveggja ríkja. Það líður því á löngu áður en vitað er hverjir hljóta hnossið — Ítalíuförina. Aðeins nokkrum leikjanna í „smáriðlunum" er lokið, en þeir eru þessir: Mexico: Bandaríkin 2:0, Hollenzku V- Indíur — Guyana 2:2. Önnur ríki sem þátt taka í undankeppninni á þessu svæði eru Brasilía — Columbía, Argentína — Chile, og Uruguay — Peru. Hér bíða menn með spenn- ingi eftir því að sjá hvort þessi lönd, svo og lönd í fjarlægari Austurlöndum sendi fram hrein áhugamannalið. Verði svo óttast Evrópuríkin ekki sigur Suður-Ameríkuliðanna, en geti þau sniðgengið regl- urnar þá má búast við marg- fallt sterkari liðum þeirra. ★ Tvö Afríkulið Frá Afríku eiga tvö lið að koma til úrslitakeppninnar. Þar eru þrír riðlar í gangi. í einum þeirra hefur Malta leikið á heima velli gegn tveim ríkjum 0:0 gegn Túnis og 2:2 móti Marokko. í 2. riðli í Afríku eru Nigeria, Ghana og Egyptaland. Úrslit þar hafa orðið Nigeria — Ghana 3:1, Ghana — Nigeria 4:1. í 3. riðli Afríkudeildarinnar eru Eþíópía, Sudan og Uganda. Leikir eru ekki hafnir. Sem fyrr segir koma aðeins 2 Afríkuríki til Ítalíu. Sigurvegar- ar í riðlunum 3 munu bítast um þau tvö sæti. ic Aðrir heimshlutar senda 3 lið Loks koma 3 lið til úrslitanna frá öðrum heimshlutum. Einn riðillinn samanstendur af Tyrk- landi, írak og Libanon. Leikir eru ekki hafnir Svo eru Asía — Ástralía með eftirfarandi lið sem leika eiga saman: Kórea — Japan (hafa enn ekki leikið) Ástralía hefur tapað fyrir Indonesíu án kappleiks (mætti ekki) Þá leika saman Thailand og Kína (þjóð- ernissinnar) Úrslit hafa orðið Thailand — Kína 1:3, Kína — Thailand 3:1 (Semsagt jafntefli og leika verður aftur). Loks er „riðill“ Afganistans og Indlands þar sem úrslit hafa orðið: Afgan- istan — Indland 2:5 og Afganist- an gaf leikinn sem fram átti að fara á indverskum velli. Það er því barizt í 5 riðlum á Asíu — Ástralíusvæðinu. Sigur- vegarar í þeim berjast síðan um 3 sæti sem laus er þeim til handa í úrslitum. Úrslitkeppnin Ríkjunum 16 sem mynda úr- slitakeppnina eftir þessa um- fangsmiklu undankeppni verður skipt í 4 riðla og verða 4 lið í hverjum. í hverjum riðli leikur eitt lið við öll og öll við eitt. Sigurvegarar í þeim riðlum mæt- ast síðan til undanúrslita. Danir horfa mjög bjartsýnir til úrsiitakeppninnar. Eitt dönsku blaðanna hefur það eftir lands- þjálfaranum danska, Arne Sör- ensen að mjög velti á því hvern- ig dragast muni í riðla úrslita- keppninnar. — Við (Danir) höfum varla nokkurn sigurmöguleika móti Búlgaríu, Júgóslavíu og Ung- verjalandi, sem ég tel líklega sigurvegara í riðlum Evrópu- keppninnar. Sama er að segja um ítali og Beztu S-Ameríku- liðin t. d. Brasilíu. En móti öll- um hinum — ellefu talsins — eigum við að minni hyggju að standa jafnfætis og höfum jafn í blaðinu í gær var sagt frá vígslu félagsheimilisins Þjórsárvers. Hér kemur mynd af byggingarnefndinni: Haraldur Einarsson, Urriðafossi, Árni Magnússon, Vatnsenda, Eiríkui Eíríksson, Gafli, og Bjartmar Guðmundsson, Önundarholti. Burnley—N.Forest 8:0 18. UMFERÐ ensku deildarkeppn innar fór fram í gær og urðu úrslit leikjanna þessi: 1. deild Birmingham — Blackpool ........ 2:1 Burnley — N. Forest ........... 8:0 Chelsea — Arsenal .............. 1:3 Leeds — Sheffield W............. 1:3 Leicester — Fulham ............. 0:1 Manchester U. — Luton ......... 4:1 Newcastle — Blackburn ...... 3:1 Preston — Bolton ............... 1:0 Tottenham — Everton ............ 3:0 W.B.A. — Manchester City ....... 2:0 West Ham — Wolverhampton ....... 3:2 2. deild Bristol City — Aston Villa .... 0:5 Cardiff — Stoke .............. 4:4 Ríkharður Jónsson ----------------------------------- Rikharður kominn heim: Charlton — Lincoln ............. 2:2 Derby — Ipswich ................ 3:0 Hull — Brighton ................ 3:1 Liverpool — Leyton Orient ...... 4:3 Middlesborough — Bristol Bovers 5:1 Plymouth — Huddersfield ........ 1:3 Rotherham — Portsmouth ......... 2:1 Scunthorpe — Sunderland ........ 3:1 Sheffield U. — Swansea ......... 3:3 Mikla athygli vakti sigur West Ham yfir Wolverhampton. Leik- urinn var vel leikinn en harður. Fyrir West Ham skoruðu Dick og Aubrey tvö. Fyrir Wolverhamp- ton skoruðu Mason og Murray. Preston hafði yfirburði yfir Bolton en leikmenn Preston voru ekki á skotskónum. Mayers tryggði þeim sigurinn seint í síð- ari hálfleik með mjög góðu skoti. Joe Hawerty, vinstri útherji Arsenal, vakti mikla hrifningu í leik við Chelsea. Fyrir utan að hann setti sjálfur tvö mörk þá komu öll hættulegustu upphlaup- in frá honum. Bloomfield setti Vona oð adrir njóti árangursms Ijka RÍKHARÐUR JÓNSSON, knattspyrnukappi, er kominn heim fyrir nokkrum dögum úr dvöl sinni hjá Arsenal í Lundúnum. í gær, er ; blaðið hafði stutt tal við hann, lét hann hið bezta yfir Englands- dvölinni og komst svo að orði að engin för sem hann hefði farið, hefði reynzt jafnlærdómsrík. Q Meiðsli I rannsókn Ríkharður kvaðst hafa komið heim fyrr en ætlað hafi verið vegna meiðsla er hann kenndi í vinstri fæti. Var hann undir lækn ishendi ytra en fann að hann myndi ekki ná sér á strik fyrir mánaðamótin nóv.-des., en þá var heimför hans ráðgerð, svo hann flýtti heimförinni. Hefur hann verið hér undir læknis- hendi og er enn. Eftir þeim rann sóknum sem gerðar hafa verið, virðist sem taug í vinstra læri hafi lamazt. Er ennþá óráðið hvaða læknisaðferðum verður beitt. Q Árangursrík för Ríkharður lét sem fyrr seg- ir mjög vel yfir dvölinni ytra. Hann sagði m. a. að furðulegt væri að sér skyldi ekkl hafa verið Ijóst eftir margra ára æfingar og knattspyrnuiðkun margt það sem hann nú sá í fyrsta sinn. Var það bæði að því er varðar leikaðferðir (taktik) og eins og ekki síður æfingaaðferðir ,einkum æf- ingar manna sem lítilsháttar eru meiddir og þola ekki sömu æfingar og aðrir. Sagði Rík- harður að hann hyggði gott til starfa, sem þjálfari á Akra- nesi og kvaðst vona að lær- dómur sinn í þessari för, kæmi ekki síður öðrum til góðs. Ríkharður lagði sig og fram um að kynnast uppbyggingu æf- inga og uppbyggingu félaganna. Sat hann fræðslufundi með færustu sérfræðingum og kunn- um leikmönnum þar. Rætt var um leikaðferðir og fleira. Rómaði hann mjög slíka fundi og kvað þá hafa orðið mjög gagnmikla. Var meira rætt um þessi mál nú í Englandi en oft áður vegna deilna um landsliðið enska og deilna um leikaðferðir og upp- byggingu þess. Suma af fundum þetta varðandi, gat Ríkharður setið sér til mikils gagns, sem áður segir. Eins og áður segir er allt í óvissu með framtíðina vegna meiðslanna, en Ríkharður hyggst sem fyrst taka upp æfingar. Q Mundu Albert Ríkharður rómaði mjög alla vist hjá Arsenal, æfingaskilyrði og annað. Hann er annar íslend- ingurinn sem með Arsenal dvel- ur. Aðeins Albert Guðmundsson hefur með þeim verið og lék margoft með 1. liði félagsins. Ríkharður sagði að enginn þeirra manna, sem Albert hefði leikið með, léku enn með félaginu, en meðal forráðamanna þess og starfsmanna, væru enn menn sem léku með Albert. Nefndi Ríkharð ur m. a. framkvæmdastjóra fé- lagsins Swinden, sem þá var í marki hjá Arsenal og lækni fé- lagsins o. fl. Sagði Ríkharður að þessum mönnum hefði orðið tíð- rætt um Albert og beðið fyrir beztu kveðjur til hans. þriðja mark Arsenal, en Gibbs skoraði fyrir Chelsea. Að 18. um'ferðum loknum er staðan þessi: 1. deild (efstu og neðstu West Ham 18 10 5 3 liðin) 37:23 25 Preston 18 11 3 4 37:28 25 Tottenham 18 9 6 3 39:20 24 Burnley 18 10 3 5 44:31 23 Birmingham 18 4 5 9 23:34 13 Leeds 18 4 5 9 27:42 13 Leicester 18 4 5 9 26:42 13 Luton 18 3 5 10 15:33 11 2. deild (efstu og neðstu Aston Villa 19 12 5 2 liðin) 45:16 29 Cardiff 18 10 7 1 39:26 27 Rotherham 18 10 6 2 36:24 26 Plymouth 18 4 4 10 25:41 12 Hull 18 4 4 10 18:41 12 Bristol City 17 5 1 11 24:35 11 Portsmouth 18 3 4 11 22:35 10 Nýtt met í kuiuvurpi MOSKVA, 24. nóv. (NTB): — Armeníumaðurinn Vartan Ovsep- ian setti í dag nýtt Rússlandsmet í kúluvarpi á íþróttamóti, sem haldið var í Jerevan höfuðborg rússnesku Armeníu. Hann varp- aði kúlunni 18,01 metra. Fyrra metið átti Litháingurinn Adolfus Varanausas. Sterkt skákmót KAUPMANNAHÖFN: — Skýrt hefir verið hér frá því, að Bent Larsen hafi þegið boð um að taka þátt í skákmóti, sem haldið verður í Lettlandi í byrjun næsta mánaðar. Taka 14 stórmeistarar þátt í keppni þessari, svo sem Tal, Keres og Tolus frá Rúss- landi. en auk þeirra munu pólsk- ir, norskir og austur-þýzkir senda sína beztu skákmenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.