Morgunblaðið - 25.11.1959, Side 23
Miðvik'udagur 25. nóv. 1959
MORGXJTSBLAÐÍÐ
23
Nýjung í kirkjulegu starfi
SL. SUNNUDAG hófst kirkju-
vika í Skálholti, þeim stað, sem
á dögum Páls biskup var nefnd-
ur: „æðstur staður og dýrðlegast-
ur á fslandi".
Komu mér þau orð í huga, þeg
ar ég sá þar kirkjusýningu þá,
sem efnt er til á staðnum í
tengslum við kírkjuvikuna. Með
sýningunni er stefnt að því að
auka þekkingu fólks á búnaði
kirkna, én honum er víða áfátt
hér eins og kunnugt er.
Sýningin er í þremur deildum.
Fyrst er Skálholtssýning. Þar
eru sýndir fornir og nýir mun-
ir Skálholtskirkju, sem þjóð-
menjavörður hefir af góðfýsi
sinni og víðsýni lánað til sýn-
ingarinnar. Þá er almenn kirkju-
sýning með gömlum og nýjum
kirkjumunum og skrúðum, sem
sumir eru lánaðir frá þjóðminja-
safninu og aðrir frá ýmsum
kirkjum í tveimur prófastsdæm-
um. Þar eru og nokkrar kirkju-
teikningar, kirkjulíkön og kirkju
myndir. Loks er kristniboðssýn-
ing með fjölda muna frá
þeim þjóðum, sem íslending-
ar hafa boðað kristni. Eru þar
margir munir s.s. vopn, töfra-
gripir, skrautgripir kvenna,
fatnaður og fleira. Má margt af
sýningunni læra. Er sá kostur við
hana, sem aðrar sýningar, að þar
má á skammri stundu læra
margt, sem kosta mundi langan
lestur að læra af bókum, ef til
væru. Sérstaklega er það mikil-
vægt við síðastnefnda deild sýn-
ingarinnar, að hún veitir ágæta
fræðslu um hina íslenzku kirkju
nýlendu í Konsó, sem Felix Ól-
afsson og kona hans ásamt hinni
ágætu hjúkrunarkonu Ingunni
Gísladóttur báru gæfu til að
stofna. Sýningunni er komið fyr-
ír í tveimur beztu stofum hins
nýja húss, og þannig að makleg-
leikum gert hátt undir höfði. Þó
hefði verið æskilegt að húsrými
hefði verið enn meira einkum
þegar mannmargt er. Annars er
sýningunni mjög haganlega og
smekklega fyrir komið. Spjöld
eru þar til skýringar og sum jafn
vel skrautrituð af hinum lag-
henta sóknarpresti sjálfum. Guð-
jón Arngrímsson yfirsmiður í
Skálholti hefir veitt ómetanlega
aðstoð við uppsetningu sýning-
Á KVÖLDVÖKU hjá Ferðafélagi
íslands n.k. föstudagskvöld verð
ur frumsýnd litkvikmyndin „Vor
ið er komið“, sem Ósvaldur
Knudsen hefur tekið, en hann
hefur mjög oft leyft Ferðafélag-
inu að frumsýna myndir sínar.
Einnig verður þá myndagetraun
og síðan dansað til kl. 1.
Ósvaldur Knudsen hefur áður
gert margar fagrar kvikmyndir
úr íslenzkri náttúru og um gamla
siði og vinnuaðferðir á íslandi,
og eiga seinni tíma menn áreiðan
lega eftir að kunna að meta það,
hve hann hefur fest á léreftið
margt af því gamla sem nú er
að hverfa, og forðað því þar
með frá gleymsku. Ferðafélagið
hefur áður frumsýnt Heklukvik
mynd hans frá 1947, Laxaþætti
frá 1948, Hrognkelsaveiðar við
Skerjafjörð frá 1948, Tjöld í
skógi frá 1949, Þjórsárdal frá
1950, Ullarband og jurtalitun og
Frá Soginu 1953, Hrognkelsa-
myndina frá 1956, Skálholtshátíð
ina, og kvikmyndir um þá Ás-
grím Jónsson og sr. Friðrik
Friðriksson.
Þá nýjustu, Vorið er komið,
hefur Ósvaldur gert á undanförn
um árum. Hann hefur ferðazt
víða um og safnað efni og geng-
ið svo frá henni í haust. Er þetta
undurfalleg litmynd af vorinu í
íslenzkum sveitum og ungvið-
inu sem þá er hvarvetna að
stíga sín fyrstu spor í veröldinni.
arinnar. Kvenfélag sveitarinnar
selur þar kaffi og sér þannig
með ágætum fyrir þeirri nauð-
syn sýningargesta.
Geysileg vinna liggur að baki
þessu fyrirtæki og væri gaman
að vita hve mörg himdruð kíló-
metra prestur hefir ekið til að
draga allt þetta saman, en þess-
háttar forvitni vísar prestur á
bug með yfirlætislausu brosi og
víkur frá sér. Eigi að síður ber
að þakka framtakssemi hans og
fórnfýsi, sem hér kemur fram.
Skálholt er langt inni í landi
f VIKUNNI sem nú er að ljúka
voru togararnir ýmist á heima-
miðum eða við Nýfundnaland.
Lönduðu 9 togarar fiski í Reykja
vík og fór aflinn í frystihús og
eitthvað smáræði í herzlu.
Á mánudaginn landaði Marz
202 lestum, sem hann hafði feng
ið á heimamiðum, Askur kom
daginn eftir af Nýfundnalands-
miðum með 284 tonn. Á miðviku
dag landaði Skúli Magnússon 175
lestum, Hallveig Fróðadóttir 120
Á ALÞINGI í gær var kosið í
fastanefndir sameinaðs þings. f
fjárveitinganefnd voru kjörnir:
Magnús Jónsson, Jónas G. Rafn-
ar, Guðlaugur Gíslason, Jón
Árnason, Birgir Finnsson, Hall-
dór Ásgrímsson, Halldór E. Sig-
urðsson, Garðar Halldórsson og
Karl Guðjónsson.
í ulanríkismálanefnd voru
kjörnir: Jóhann Hafstein, Gísli
Jónsson, Birgir Kjaran, Emil
Jónsson, Hermann Jónasson, Þór-
arinn Þórarinsson og Finnbogi
Rútur Valdemarsson. Varamenn
voru kjörnir: Ólafur Thors,
Bjarni Benediktsson, Gunnar
Er einkum sýnt mikið úrval af
fuglum, og sennilega hafa aldrei
sézt svo margar íslenzkar fugla-
tegundir í einni kvikmynd áður.
Þarf óendanlega þolinmæði til að
ná slíkum myndum, og segir Ós-
valdur að sér hafi gengið einna
verst með spóann, sem var svo
var um sig og var þotinn um
leið og heyrðist í vélinni. Einnig
er góður kafli um fjallarefinn og
börnin hans, um tvílemdu ána
að koma lömbum sínum í heim-
inn o.m.fl.
Kristján Eldjárn hefur samið
textann við myndina og talar
inn á hana. Allan og Ingibjörg
Blöndal Stenning sjá um flautu-
leik og söng með nemendum
Barnamúsikskólans og Guðrún
Sveinsdóttir leikur á norskt lang
spil. Sýningartími er 35 mín.
og þó er það miðdepill fimm
stórra sveita, sem í eru fjórtán
kirkjusóknir og hátt á annað
þúsund manns búa þar. Er sýn-
ingin því svo vel sett sem orðið
getur í sveit. Gott er til þess að
vita, að allt þetta fólk fær tæki-
færi til að njóta þessarar ein-
stæðu sýnikennslu.
Hið ófullgerða hús hefir hér
orðið til þess að hinn forni dýrð-
arstaður hefir getað tekið for-
ystuhlutverk í þessu efni. Hvað
mun þegar kirkjan verður full-
gerð? Skálholt mun ekki eiga
minna hlutverk eftir en lokið er.
Þakklátur Skálholtsgestur.
lestum og Geir 117 lestum á
fimmtudag. Voru síðasttöldu
skipin þrjú á heimamiðum.
Föstudaginn 20. kom Úranus
frá Nýfundnalandsmiðum með
235 lestir og Þorsteinn Ingólfs-
son af heimamiðum með 184 lest-
ir. í gær var svo verið að landa
úr Þormóði goða um 400 lestum
af fiski af Nýfundnalandsmiðum
og Steingrímur trölli hafði komið
inn vegna bilunar með slatta 15
—20 lestir.
Thoroddsen, Gylfi Þ. Gíslason,
Eysteinn Jónsson, Gísli Guð-
mundsson og Einar Olgeirsson.
í Allsherjarnefnd: Gísli Jóns-
son, séra Gunnar Gíslason, Pétur
Sigurðsson, Benedikt Gröndal,
Gísli Guðmundsson, Björn Páls-
son og Hannibal Valdemarsson.
I Þingfararkaupsnefnd: Kjart-
an J. Jóhannsson, Einar Ingi-
mundarson, Eggert G. Þorsteins-
son, Halldór Ásgrímsson og Gunn
ar Jóhannsson.
— „Spilarar"
Framh. af bls. 1.
nú krafizt þess að fá til rann-
sóknar bókhald ellefu annarra
hlj ómplötuf irma.
Hljómplötufirmað Kings Re-
cord hefur kært stjórnendur fjöl-
margra hljómplötuþátta. Hefur
þetta fyrirtæki svo árum skiptir
greitt stórfjárhæðir til allra
hluta Bandaríkjanna, til manna,
sem kynna nýjar hljómplötur
fyrir almenningi. Fyrirtækið hef-
ur greitt í tékkum og hefur því í
fórum sínum víðtækar sannanir
fyrir greiðslum og kvittun mót-
töku. En í öðrum tilfellum er
ekki nóg með það að stjórnendur
þáttanna hafi tekið við beinum
fjárgreiðslum, heldur hafa þeir
heimtað hlutabréf í hljómplötu-
fyrirtækjunum, svo að þeir höfðu
sjálfir beinan hagnað af sölu
hl j ómplatanna.
Meðal þeirra, sem hér eiga sök
að máli, er einn frægasti hljóm-
plötuleikari Bandaríkjanna, Alan
Freed, við ABC-sjónvarpsstöðina.
Hann hefur nú verið rekinn frá
fyrirtækinu af því að það þykir
sannað að hann hafi tekið við
mútum.
Ný verzlun
Opnum spegla- og snyrtivöruverzlun að
Skólavöðustíg 22A.
Komið og reynið viðskiptin.
Gleriðjan s.f.
Sími 11386.
r
Vormynd eftir Osvnld Knudsen
frumsýnd ú hvöldvöku F.Í.
Togararnir lönduÖu 1737
lestum í Reykjavík
Nefndakjör í sam-
einuðu þingi
PlllSSnenskur CaVÍar (styrkjuhrogn)
Nú er sjaldgæft tækifæri til að bragða
hinn heimsfræga, gómsæta, rússneska
caiiar.
Fæst á 1. flokks veitingastöðum, einnig
í Síld og Fisk og hjá SiIIa og Valda.
Elding Trading Company hf.
Öllum þeim, fjær og nær sem glöddu mig á sjötugs-
afmæli mínu, þakka ég af alhug.
Guðrún Árnadóttir frá Vogi.
Hjartanlegustu þakkir sendi ég til allra, sem heiðruðu
mig á áttræðis afmæli mínu þann 18. nóv. sl. með heim-
sóknum, gjöfum og heillaskeytum.
Guð blessi ykkur öll. Lifið heil.
Kolbeinn Þorsteinsson, skipstjóri.
Eiginkona mín
INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR
er lézt 20. þessa mánaðar verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 26. nóvember. Athöfnin hefst að
heimili hennar Hverfisgötu 55 kl. 10,15 árdegis.
Gunnar Brynjólfsson.
Maðurinn minn
PÁLL KR. JÓNSSON
Njálsgötu 2,
sem lézt 20. þ.m. verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
föstud. 27. þ.m. kl. 2 e.h.
Katrín Kjartansdóttir.
Móðir mín,
HREFNA JÖHANNESDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
26. nóv. kl. 2 e.h.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minn-
ast hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna, Tjarnar-
götu 10.
Fyrir hönd ættingja:
Hólmfríður Árnadóttir
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við fráfall og jarðarför eiginmanns míns og föður
SIGURÐAR GUÐNASONAR
skipstjóra.
Sigríður Ólafsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir.
Alúðar þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
DAVlÐS STEFÁNSSONAR
Ásláksstöðum.
Vilborg Jónsdóttir og synir.