Morgunblaðið - 19.12.1959, Blaðsíða 23
Laugardagur 19. des. 1959
MORCUNBLAÐIÐ
23
Ný ljóðabók eftir Sigíús Doðason
— Æðstu menn
Framh. af bls. 1.
I kvöld voru Maemillan og
Adenauer einrtig komnir til
Parísar. Viðræður leiðtoganna
fjögurra miða fyrst og fremst að
því að undirbúa ráðstefnu æðstu
manna austurs og vesturs, sem
haldin verður í vor.
Macmillan bjartsýnn
Macmillan forsætisráðherra
Breta k°m til Parísar eftir hádegi
í dag með flugvél frá London, og
nokkru síðar lenti Adenauer
kanzlari Vestur-Þýzkalands í
París með flugvél frá Bonn.
Macmillan sagði við fréttamenn
að fundur æðstu mánna Vestur-
veldanna væri mjög mikilvægur
með tilliti til breyttra viðhorfa
í alþjóðamálum. Hann kvað fram
tíðarhorfurnar mun bjartari nú
en þær voru fyrir heimsókn hans
til Moskvu í fyrravor. Michel
Debré forsætisráðherra Frakka
sagði við Macmillan, að Frakkar
mundu verða vinsamlegir og
opinskáir á væntanlegri ráð-
stefnu fjórveldanna.
Sömu markmið og vandamál
Adenauer lét svo ummælt við
komuna til Parísar, að Vestur-
veldin fjögur hefðu sömu mark-
mið og stæðu andspáenis sömu
vandamálum. Hann, sagði að við-
ræðurnar sem í hönd færu
mundu snúast um alvarlég og
mjög mikilvæg vandamál, en
hann kvaðst vera þess fullviss,
að árangurinn yrði jákvæður,
því markmiðið væri að vernda
frelsið og varðveita friðinn í
þágu alls mannkyns.
NATOráðið vill 3 Vesturveldi
Samkvæmt góðum heimildum
í París hefur fastaráð Atlants-
hafsbandalagsins látið í ljós þá
skoðun, að einungis vestrænu
stórveldin þrjú, Bandaríkin, Bret
land og Frakkland, eigi að taka
þátt x ráðstefnu æðstu manna
austurs og vesturs. Samkvæmt
þessu mundu hvorki Ítalía né
Kanada koma til greina, en bæði
löndin hafa látið uppi óskir um
að fá aðild að ráðstefnunni,
Kanada í sambandi við umræð-
urnar um afvopnun. Fastaráðið
tók enga formlega ákvörðun um
málið, en af umræðunum var aug
ljóst, að fulltrúarnir voru yfir-
leitt á einu máli um þetta atriði.
Þá mundu sem sé sömu ríki taka
þátt í ráðstefnu æðstu manna
austurs og vesturs og þau sem
tóku þátt í sams konar ráðstefnu
árið 1955 .
Ágreiningur um Berlín
Það er haft eftir góðum heim-
ildum, að meðal leiðtoga fjór-
veldanna sé ágreiningur um það,
hvernig fara skuli með Berlínar-
vandamálið á fundi æðstu manna
austurs og vesturs. Er sagt að
Frakkar standi með Vestur-Þjóð-
verjum, en Bandaríkjamenn og
Bretar hafi aðra skoðun á málinu.
Ekki er talið líklegt að samkomu-
lag náist á fundinum, sem hefst
á morgun, og er því talið senni-
legt að utanríkisráðherrum Vest-
urveldanna verði falið að finna
lausn á málinu.
Það er mál manna að fundur-
inn sem hefst á morgun sé mikil-
vægasta ráðstefna vestrænna leið
toga síðan Bermúda-ráðstefnan
var haldin árið 1953.
Kveikt á jólatré
HAFNARFIRÐl — í dag kl. 5
verður kveikt á jólatré því, sem
vinabær Hafnarfjarðar, Frede-
riksberg, hefir gefið bænum, en
það hefir hann gert nokkur und-
anfarin ár. Eins og fyrr er það
á Thors-planinu og verður af-
hent af sendifulltrúa Dana hér á
landi, Jens Ege. Þá flytur bæjar-
stjórinn, Stefán Gunnlaugsson,
stutt ávarp, og einnig séra Garð-
ar Þorsteinsson prófastur. —
Lúðrasveit drengja leikur, en á
trénu kveikir dönsk kona, sem
verið hefir búsett hér í bænum
um fjölda ára, frú Sigrid Krist-
ensen. — G. E. '
— Bráðabirgða-
samkomulag
Framhald af bls. 1.
reyndu að útkljá deilumál sín
með því að breyta alþjóðalögum
upp á sitt eindæmi.
Skeyti sem blaðinu barst frá
norsku fréttastofunni NTB er svo
til samhljóða einkaskeytinu hér
að framan, en þar er því bætt
við, að Guðmundur í. Guðmunds
son hafi einnig lagt íslenzku til-
löguna ,sem hann bar upp við
Lloyd persónulega, fyrir ráð-
herrafund Atlantshafsbandalags-
ins.
Þá segir og í norska skeytinu,
að Samband brezkra togaraeig-
enda í Grimsby hafi í kvöld vís-
að á bug tillögu íslendinga um
bráðabirgðasamkomulag. Forseti
sambandsins, sir Farndale Phil-
ips, lýsti yfir því, að tilboð Is-
lendinga væri ekki nein mála-
miðlun eða bráðabirgðalausn. —
Hann kvað brezka togara stunda
veiðar alveg upp að fjögra mílna
mörkunum til að halda fast við
grundvallaratriði og til að styðja'
stefnu brezku stjórnarinnar. —
Þangað til alþjóðaráðstefnunni
xxm réttarreglur á hafinu væri
lokið, væri eina rétta leiðin að
halda fast við þær reglur sem
voru í gildi, unz ísland færði út
fiskveiðitakmörk sín, sagði sir
Farndale.
Fer milli mála
Eins og skeytin hér að
framan bera með sér, fer eitt-
hvað milli mála. Blaðið
hringdi því til Emils Jóns-
sonar, félagsmálaráðherra,
sem nú fer með utanríkismál
í fjarveru Guðmundar í.
Guðmundssonar og spurði
hann um mál þetta. Ráðherr-
ann sagði, að utanríkisráðu-
neytinu hefðu ekki enn bor-
izt nein skeyti um þetta, en
Guðmundur í. Guðmundsson
kæmi heim í dag (laugardag)
og þá yrði málið upplýst.
ÚT er komin hjá Heimskringlu
ný Ijóðabók eftir Sigfús Daðason,
og nefnist hún „Hendur og orð“.
Bókin er 72 bls. og í henni eru
32 ljóð, sem skiptast í tvo kafla:
„Hendur og orð“ og „Borgir og
strendur“. Eru þrettán ljóð í
fyrri kaflanum. Bókin er prentuð
á góðan pappír og mjög smekk-
lega útgefin.
Sigfús Daðason er þegar þekkt
Ijóðskáld, og hefur áður komið
út eftir hann ein bók, ,,Ljóð“ árið
1951. Hann hefur dvalizt við
nám í París á undanförnum ár-
um og hefur nýlega lokið prófi
í latínu og frönsku við Sorbonne-
háskólann. Hefur hann verið ráð
inn ritstjóri við „Tímarit Máls
og menningar“.
Peysur —
í miklu úrvali
Peysur
Haffabúð Reykjavikur
Laugavegi 10
Frá Dansskóla Hermanns Ragnars
Þeir, sem ekki hafa fengið
miða á jólafagnað skólans,
geta sótt þá, gegn fram-
vísun skírteina í Skáta-
heimilið við Snorrabraut
í dag frá kl. 3—5 e.h.
STARFANDI FÓLK
velur hinn
r it - m i ú ka
W!
met i-Hall
endingargóða
Hagsýnn maður! Hann veit að
skriftin verður að vera jöfn
og áferðarfalleg. Þessvegna
notar hann hinn frábæra
Parker T-Ball . . . þann gæða-
penna sem skrifar jafnt og
áferðarfallega. Gefur strax
og honum er beitt. Rispar
ekki.
Pourous kúla einkaleyfi PARKERS
Blekið streymir um kúluna og matar
hina fjölmörgu blekholur . . . Þetta
tryggír að blekið er alltaf skrifhæft
í oddinum.
Parker -\^Sl kúlupenni
A PRODUCT OF
THE PARKEfLQÍMiUátó'A.v
Mínar innilegustu hjartans þakkir séndi ég sonum
mínum og tengdadætrum, frændum og vinum, sem glöddu
mig með heimsóknum og rausnarlegum gjöfum og heilla-
skeytum á sjötugsafmæli mínu.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Guð blessi ykkur öll
Hólmfríður Þorgilsdóttir frá Kambi
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu mér vinsemd
sendu mér hlýjar kveðjur á áttatíu og fimm ára afmæli
mínu, 8. des. sl. Óska ykkur öllum gleðilegra jóla í
drottins nafni.
Sigurlaug Þórðardóttir, Sólbakka, Höfnum.
White 7 tonna vörubifreið
árgangur 1952, til sýnis og sölu að Ármúla 22.
Sími 35065
Einbýlishús til leigu
Einbýlishús sunnan í öskjuhlíðinni, sem er 5 herb.
eldhús, bað og þvottahús, er til leigu nú þegar.
Uppl. í Síma 19991, aðeins á milli kl. 2—4 í dag og á
morgun.
LOKAÐ
vegna jarðarfarar í dag frá
kl. 10—12 á hádegi.
Verzlun Halla Þórarins, Hverfisgötu 39
Eiginmaður minn
HÖRÐUR ÞÓRHALLSSON
viðskiptafræðingur, Kópavogsbraut 4
lézt í Landspítalanum 17. þ.m.
Guðrún Þór
Okkar eiskaða systir,
MARlA BALBlNA
andaðist 18. des. 1959. Jarðarförin fer fram mánudag.
21. þ.m. Hefst með sálumessu í Krists konungskirkju,
Landakoti, kl. 10 árdegis.
St.Jósepssystumar
Móðir okkar og tengdamóðir
KRISTlN JÓNSDÓTTIR
Fálkagötu 13
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudag. 21. des. kl.
1,30 e.h.
Þeim, er vildu minnast hinnar látnu, er góðfúslega
bent á líknarstofnanir.
Böm og tengdaböra
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jjarðarför föður okkar
DAVÍÐS SIGURÐSSONAR
og sérstaklega þökkum við Hrefnu Guðmundsdóttur
Hagamel 24 Rvk, fyrir gjafir og vinsamlegar heimsóknir
til hans.
Börn hins látna.