Morgunblaðið - 19.12.1959, Page 24
dagar
til jóla
284. tbl. — Laugardagur 19. desember 1959
Fjögurra mánaða
i
12 þúsund feta hæð
í GÆR komu hjón með 4
mánaða gamalt barn akandi
til Reykjavíkur frá Stóra-
Lambhaga í Borgarfjarðar-
sýslu. Hefur barnið verið með
kíghósta um þriggja vikna
skeið, það slæman að foreldr-
ar þess voru orðin hrædd um
það. Björn Pálsson flaug síð-
an með litla sjúklinginn upp
í 12.500 feta hæð á sjöunda
tímanum í gærkvöldi.
Barninu leið hið bezta, er það
lagði aftur upp í ferðina heim
að Stóra-Lambhaga í bíl í gær
kvöldi, en of fljótt er að segja
um hvort lækningatilraunin
hefur heppnazt.
Blaðið spurðist fyrir um það
hjá Birni í gærkvöldi, hvort mik-
ið væri um flug með slíka sjúk-
linga. Kvaðst hann hafa að und-
anförnu flogið með mörg kíg-
hótaibörn upp í loftið. Hefði
öllum batnað eitthvað, sumum
alveg og öðrum að miklu leyti,
þannig að foreldrarnir teldu yf-
irleitt að tilraunin hefði borgað
sig.
Talsvert um sjúkraflutnirfga.
Talsvert hefur verið, um al-
menna sjúkraflutninga að und-
anförnu, ýmist sóttir sjúklingar
út á land eða fluttir heim af
sjúkrahúsum, ef þeir treystu sér
illa til að ferðast öðru vísi. í
gær var gömul kona sótt til Ól~
£%torga»Madsmj
Jóla-Lesbók verður borin út
með blaðinu í dag. í henni er
meðal annars Jólahugleiðing eft-
ir Sigurbjörn Einarsson, biskup.
Grein er eftir Guðmund B. Ein-
arsson, er nefnist Farið með
sjúkling til Kaupmannahafnar og
önnur eftir Hákon Bjarnason,
skógræktarstjóra um Haukadal
í Biskupstungum. Þá er bréf frá
Jóhanni skáldi Sigurjónssyni og
þýdd frásögn af Hellahandritum
hjá Dauðahafi. Ásthildur Thor-
steinsson ritar um séra Jakob
Guðmundsson og kveðskap hans.
Þá er smásagan Heimsókn álft-
anna, eftir Selmu Lagerlöf og
ljóð eru eftir þá Helga Valtýs-
son, Bjöm Braga, Þormóð
Sveinsson, Árna G. Eylands og
Knút Þorsteinsson frá Úlfsstöð-
um.
Þá er hin vinsæla verðlauna-
myndagáta, jólakrossgáta og
margt fleira.
VABÐARKAFFI
verður ekki í dag. —
Verður næst laugar-
daginn 9. jan. n.k.
afsvíkur. Einnig flaug Björn til
Reykhóla, . í Múlanes á Barða-
strönd, Melanes við Gufunes og
síðan aðra ferð að Gjögri á
Ströndum og einnig sendi hann
flugvél til Grundarfj arðar og Ól-
afsvíkur. Var þar ýmist um
sjúkraflutninga að ræða eða ai-
menna farþegaflutninga.
FRÍMERK JAFRÉTTARITARI
Morgunblaðsins fregnaði, að
einn hinna ungu ferðalanga,
sem nú gista ísland í boði Flug
félags íslands og eru hér
einnig til að ná fundi jóla-
sveinsins á íslandi, væri frí-
merkjasafnari og fór því og
hitti Julian Potter í herbergi
hans á Hótel Borg og afheirti
honum að gjöf frá frímerkja-
síðu blaðsins safn íslenzkra
frímerkja og fyrstadagsbréfa. eiga neitt
Ennfremur var ferðafélagi
Julians með honum og upp-
lýstist það, að hann safnar
einnig frímerkjum og voru
honum gefin íslenzk frímerki
í safn sitt.
Drengimir urðu mjög þakk-
söfnum sínum. Þeir báðu
fyrir beztu þakkir til blaðsins
og kveðju til íslenzkra frí-
merkjasafnara á þeirra aldri
hér á landi, en þeir eru 10
og 12 ára,
Myndin sýnir Jónas Hall-
látir fyrir þessar frímerkja- grímsson afhenda frímerkja-
gjafir, því þeir sögðust ekki gjöfina til drengjanna.
Hótel í Vatnsmýrinni
Faxnrnir flugu í allar dltir í gœr
Gljdfaxi flaug með oxul til Skotlands
DOUGLASFLUGVÉL frá Flugfé-
lagi íslands fór kl. 16.35 í gær af
stað til Skotlands með öxulinn í
togarann Kaldbak, sem sagt var
Nýi
r vélbátur
til Keflavíkur
KEFLAVÍK, 18. des.: — Nýr vél-
bátur kom í dag, kl. rúml. 3 til
Keflavíkur. Hann heitir Arni
Geir eftir gömlum þekktum sjó-
sóknara í Keflavík. Báturinn er
75 tonn að stærð, byggður úr eik
og búinn öllum nýjustu og beztu
tækjum.
Báturinn er byggður í Minin-
dorf í V-Þýzkalandi eftir teikn-
ingu Egils Þorsteinssonar. Er
hann með 480 ha. Mannheim
dieselvél og var ganghraði í
reynsluför 11 mílur, en mun
verða 10 mílur í almennri notk-
un. Bátúrinn var 6 sólarhringa og
4 klst. frá Þýzkalandi til Kefla-
víkur og hrepþti einn sólarhrihg
á leiðinni mjög slæmt veður, en
reyndist sérlega vel í sjó.
Eigendur bátsins eru bræðurn-
ir Sigurþór og Guðmundur Guð-
finnssynir. Skipstjóri á heimleið
var Andrés Finnbogason. Bátur-
inn mun nú hefja undirbúning
að vertíðarveiðum og verður
Guðmundur Guðfinnsson skips-
stjóri. — Helgi S.
Hver á bók nr. 5312
HVEB Á BÓK NR. 5312?
Dregið var í gær í happdrætti því, sem efnt var til, með
KJÓSENDAHANDBÓK SJÁLFSTÆÐISMANNA fyrir
kosningarnar í haust. Upp kom nr. 5312.
Hinn heppni getur vitjað vinningsins, sem er ferð fyrir
tvo með Gullfossi til Kaupmannahafnar og heim aftur, á
skrifstofu Heimdallar í Valhöll, Suðurgötu 39. Skrifstofan
er opin alla virka daga kl. 3—7.
Til leiðbeiningar má geta þess að númerið er að finna á
2. kápusíðu bókarinnar.
frá í blaðinu í gær. Atti hann að
lenda í Glasgow kl. 20.50 og
koma heim aftur í nótt.
Mikið er að gera hjá Flugfé-
laginu um þessar mundir
bæði við fólksflutninga og vöru-
flutninga nú fyrir jólin. Undan-
farið hefur gefið misjafnlega, en
í gær var flogið í allar áttir. T.d.
flaug Catalinaflugvélin á alla
Vestfirðina, til Isafjarðar, Þing-
eyrar, Flateyrar, Bíldudals og Pat
reksfjarðar, Viscountflugvélin
fór tvær ferðir til Akureyrar og
áfram til Egilsstaða úr þeirri
seinni. Var jafnvel búizt við að
hægt yrði að fljúga þriðju ferð-
ina með vörur til Akureyrar í
gærkvöldi. Þá voru farnar tvær
ferðir á Hornafjörð, ein á Fagur-
hólsmýri, ein á Hellissand og
tvær til Vestmannaeyja.
Sólfaxi hefur verið í stanzlausu
leiguflugi. Hann fór á fimmtudag
til Narssarssuak og þaðan næstu
nótt beint til Kaupmannahafnar.
1 nótt var hann svo væntanlegur
þaðan og átti að halda áfram til
Thule. Leiguflugið til Grænlands
hefur gengið vel og á því að ljúka
á mánudag, og kemur Sólfaxi þá
í innanlandsflugið fyrir jólin.
Fullskipað
í jólaferðina
SÍÐDEGIS í dag siglir Gullfoss
sína venjulegu jólaferð vestur og
norður, með viðkomu á ísafirði
og Siglufirði, en endahöfn er Ak-
ureyri. í gær högðu allar kojur
skipsins verið pantaðar, en svefn-
pláss er fyrir 170 manns. Búizt
var við að fleiri myndu bætast
við í dag. Flestir farþeganna fara
til ísafjarðar. Ekki verður lagt að
bryggju þar, og fólkið flutt í bát
frá skipinu að bryggju. Sama
máli gegnir um Siglufjörð, að
skipið leggst ekki að bryggju. Á
Akureyri verður snúið við og fer
j Gullfoss þaðan á mánudagskvöld-
iið.
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI sl.
fimmtudag var tekin til umræðu
og afgreiðslu fundargerð bæjar-
ráðs frá 4. des. sl. 13. liður þeirrar
fundargerðar er á þessa leið:
„Bæjarráð fellst á tillögu sam-
vinnunefndar um skipulagsmál,
dags. 2. þ.m., um staðsetningu
hótels 1 Aldamótagörðum. Lóðar-
stærð verður ákveðin síðar“.
Alfreð Gíslason kvaðst mjög
hissa á þessari afgreiðslu og telja
hana fyrir neðan allar hellur. Fór
hann fram á að afgreiðslu máls
þessa yrði frestað.
Þórður Björnsson kvaðst vilja
taka undir það, sem Alfreð hefði
sagt, því mikið mannvirki, flug-
Hörður Þórhalls-
son látinn
HÖRÐUR ÞÓRHALLSSON, við-
skiptafræðingur, lézt í fyrradag
í Landsspítalanum, að undan-
gengnum uppskurði. Hann hefur
átt við vanheilsu að stríða um
árabil.
Hörður hefur verið formaður
Sjálfstæðisfélags Kópavogs síðast
liðin þrjú ár.
völlur Reykjavíkur, væri í ná-
grenni væntanlegs hótels. Spurði
Þórður, hvort þetta mál hefði
verið borið undir yfirmenn flug-
mála.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
kvað sjálfsagt að verða við þeim
óskum, sem fram hefðu komið
um að fresta afgreiðslu málsins
til næsta fundar. Enda ætti sú
frestun ekki að skipta neinu máli
varðandi framkvæmdir.
Var samþykkt með samhljóða
atkvæðum að fresta afgreiðslu
málsins.
Kveikt á Oslóar-
trénu á sunnudag
SÍÐDEGIS í gær var byrjað að
koma fyrir ljósaskreytingu á hinu
veglega jólatré sem Reykjavík
barst frá Ósló á dögunum.
Kveikt verður á trénu á sunnu-
daginn kl. 4 síðd. Að venju er það
gert með dálítilli viðhöfn. Sendi
herra Norðmanna Bjarne Börde
mun flytja bæjarbúum jólaóskir
í nafni Óslóarbúa og afhenda
Reykvíkingum jólagjöfina. Sung-
in verða jólalög og lúðrasveit
mun leika.
Erfiðleikar Austfjarðatogara
Eru þeir Ólafi Thors
að kenna?
ÞJÓÐVILJINN skýrir frá því í gær að þrír Austfjarða-
togarar eigi við mikla erfiðleika að etja. Hafi tveir þeirra
nú verið bundnir við bryggju en sá þriðji sé að vísu í
rekstri en leggi afla sinn ekki upp á Austfjörðum.
Við þessa sögu, sem vissulega er hin dapurlegasta, bætir
kommúnistablaðið svo því, að allt sé þetta Óiafl Thors for-
sætisráðherra að kenna. Strax og hann komist til valda sé
togurunum lagt!!
SKOTIÐ YFIR MARKIÐ
Enn sem fyrr skýtur Þjóðviljinn yfir mark sitt. Það var
formaður Sjálfstæðisflokksins, núverandi forsætisráðherra
Ólafur Thors, sem hafði forystu um það að íslenzki togara-
flotinn var endurnýjaður að styrjöldinni Iokinni. Það voru
hins vegar kommúnistar, sem höfðu forgöngu um það að
sökkva útgerð þeirra á bólakaf hallareksturs og vandræða.
Þess vegna eiga, því miður, bæði Austfjarðatogararnir og
margir aðrir togarar í mikium erfiðleikum í dag.