Morgunblaðið - 22.01.1960, Qupperneq 20
VEDRID
Sjá veðurkort á bls. 2.
Oil’!0lTOl»laí)íít>
17. tbl. — Föstudagur 22. janúar 1960
Kjarnorkuver
er á bls. 11.
Allslaus flóttakona
fæðir barn í Keflavík
Var i hópi berklaveikra flóttamanna
á leið til Kanada
KEFLAVÍKUBFLUGVELLI, 21.
jan. — Kl. 2 sl. nótt kom til
Keflavíkurflugvallar Cloudmast-
erflugvél frá Canadian Pacific
flugfélaginu, á leið frá Amster-
dam til Montreal í Kanada. Með
henni voru 72 farþegar, flótta-
fólk úr flóttamannabúðum í Aust
urríki, flestir frá Júgóslavíu.
Voru þetta fjölskyldur, og einn
eða fleiri í hverri fjölskyldu
berklaveikur.
Júgóslavneskir flóttamenn
Er fólk þetta innflytjendur til
Kanada, sem Kanadastjórn hefur
lofað Alþjóðaflóttamannastofnun
inni að taka við síkum sjúkling-
um. Fkigvélin hafði aðeins dvalið
skamma stund á Keflavíkurflug-
veili, þegar í ljós kom að kona
ein meðal farþeganna, frú Ang-
ela Benkovic, hafði tekið létta-
sóttina.
Starfsmenn flugmálastjórnar-
innar brugðu þegar við og
hringdu á sjúkrahúsið í Kefla-
vík. Svo vel vildi til að tveir lög-
regluþjónar úr Keflavík voru
staddir á flugvallarhótelinu, er
Fjórða
flugslysið
KINGSTON, Jamaica, 21. janúar.
(Beuter-NTB): — Farþegaflug-
vél af gerðinni Superconstella-
tion, sem var á leið frá New York
til Bogota í Colombíu, fórst í
lendingu á Montego Bay flug-
vellinum hér í dag. Fórust 37
manns í slysi þessu, en fimm af
áhöfn vélarinnar og fjórir far-
þegar komust lífs af. — Þetta er
fjórða flugslysið, sem orðið hefir
nú á örfáum dögum, en samtals
hafa látizt í þeim um 130 manns.
Sprenging varð í hreyfli flug-
vélarinnar, er hún var að koma
inn til lendingar, en talsmaður
Pan-American flugfélagsins, sem
átti vélina, taldi þó, að sú hefði
varla verið orsök slyssins, nema
því aðeins, að flugmaðurinn hefði
einhverra hluta vegna misst
stjórn á vélinni, þegar hreyfill-
inn bilaai.
Þorvaldur
Ga.'ðar
þetta skeði. Brugðu þeir skjótt
við, sóttu sjúkrabifreið og fluttu
konuna á sjúkrahúsið í Keflavík.
Með flugvélinni voru læknir
og hjúkrunarkona og fylgdist
hinn kanadíski læknir með frú
Benkovic á sjúkrahúsið. Þar tók
við konunni sjúkrahúslæknirinn,
Jón Jóhannesson, ásamt Ijósmóð-
ur spítalans.
Fáeinum mínútum eftir að
frú Benkovic kom á spítalann
í Keflavík, varð hún léttari,
og ól 12 marka sveinbarn.
Gekk fæðingin ágætlega og
líður móður og syni vel.
Hinn kanadíski læknir hafði
orð á því, er hann kom til baka
á Flugvallarhótelið, hversu að-
búnaður á sjúkrahúsinu í Kefla-
vík hefði verið til fyrirmyndar
og Jón læknir og ljósmóðirin
fær í starfi sínu.
Maður og sonur héldu áfram
Maður frú Benkovic, sem er
berklasjúklingur, og tveggja ára
sonur þeirra hjóna, héldu áfram
til Kanada með flugvélinni í nótt.
Frú Benkovic er landflótta
Júgóslavi um tvítugt. Mun hún
hafa komizt í flugvélina, með því
að segja flugfélaginu að hún
væri aðeins komin 7 mán. á leið,
en flugfélög taka ekki flugfar-
þega, sem gengið hafa lengur
með. Kona þessi er allslaus, á
ekki eina einustu flík á barn sitt.
Hið kanadíska flugfélag mun að-
eins borga sjúkrahúsleguna í
Keflavík. — B. Þ.
Brennisfeinslykt
afSkeiöaráíRvík
SKEIÐABÁ hækkar jafnt og
þétt og var talið fyrir austan að
þrefalt til fjórfalt sumarvatn
Uppboð á Vetti
UM þessar mundir ríkir mikil
óvissa um örlög togaraútgerð-
ar þeirrar sem hófst austur á
fjörðum hér á árunum, til
atvinnuaukningar þar. Voru
það þrír kauptúnahreppar
sem að útgerðinni stóðu og
réðust þeir í að kaupa tvo
togara, Vött og Austfirðing.
Nú er svo komið að útgerð
Mállundanámskeið
í Firðinum
HAFNABFIBÐI. — Um þessar
mundir eru að hefjast málfunda
námskeið hjá Stefni, fél. ungra
Sjálfstæðismanna, og er í ráði
að þau verði
hálfsmánaðar-
lega, á föstu-
dagskvöldum kl.
8,30. Hefst hið
fyrsta í kvöld,
og flytur Þor-
valdur Garðar
Kristjánsson lög
fræðingur, er-
indi um ræðu-
mcnnsku, en að
því loknu verða
almennar umræður. — Eru
Stefnis-félagar og aðrir ungir
Hafnfirðingar, sem hug hafa á
að taka þátt í námskeiðinu, hvatt
ir til að fjölmenna í kvöld.
Á námskeiðinu munu verða
almennir umræðufundir, en jafn
framt fá "játttakendur leiðbein-
ingar í ræðumennsku. — G.E.
K0> 0-0.0>*00 0. 0>00,00 0,
Rœtt um 72
mílna
landhelgi
KAUPMANNAHÖFN, 21.
jan. (Einkaskeyti til Mbl):
Blaðið Dagens Nyheder seg
ir frá því, að danska stjórn-
in sé nú að gera athugun á
því, hvaða áhrif tólf mílna
fiskveiðilandhelgi muni
hafa fyrir Dani. - Ekki hef-
ir þó enn verið ákveðið,
hvort Danir bera fram til-
lögu um 12 mílna fiskveiði-
takmörk á alþjóðlegu sjó-
réttarráðstefnunni.
Þá segir blaðið, að sænski
þingmaðurinn Hedin, sem
er hægri maður, muni bera
fram fyrirspurn til Undens
utanríkisráðherra Svía um
það, hvort sænska stjórnin
hyggist gera sérstakar ráð-
stafanir í sambandi við
væntanlega víkkun land-
helgi Danmerkur og Noregs
— en sænskir fiskimenn eru
uggandi um sinn hag, ef af
því verður.
togaranna hefur algjörlega
stöðvazt vegna fjárhagsvand-
ræða. —
Hafa báðir togararnir legið
hér í Reykjavík frá því i haust,
en báðum hlekktist á, öðrum í
Færeyjum, en hinum í Ný-
fundnalandi.
Eins og stendur er Vöttur í
umsjá stofnlánadeildar Lánds-
bankans, en Austfirðingur mun
vera í umsjón fjármálaráðu-
neytisins. Ofan á hina miklu
fjálhagsöðrugleika útgerðarinn-
ar bætist það svo, að nú verður
fram að fara hin lögskipaða
flokkunarviðgerð á báðum skip-
unum. Vöttur er orðinn 12 ára
og Austfirðingur átta ára. Hefur
verið talið að viðgerðin á Vetti
myndi kosta upp undir 900,000
krónur, en á Austfirðingi um
700,000 krónur.
Maður, sem kunnugur er mál-
um þessarar útgerðar, sagði Mbl
í gær, að það myndi taka nokk-1
urn tíma að grafa upp allar þær
milljónaskuldir, sem á skipunum
hvíla.
Á Erfið útgerð
Meðan útgerð þeirra var í
gangi gekk erfiðlega að reka
skipin, m. a. af því að frystihús-
in á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og
Reyðarfirði gátu ekki tekið við
svo stórum fiskförmum, án þess
að komast í hreinustu vandræði.
Sjálfa togarana átti að manna
með áhöfnum heimamanna, en
það tókst ekki heldur. Var öll að-
staða togaraútgerðarinnar svo
erfið, að það var ógerningur að
reka skipin nokkuð í líkingu við
það sem gert er t. d. í Reykjavík.
Næsta skref í málinu mun
vera það, hvað togaranum Vetti
viðvíkur, að á honum mun fara
fram uppboð í byrjun marz.
væri komið í hana. Var áin far-
in að raska simastaurum á sand
inum, en símasamband hafði
ekki rofnað síðast þegar fréttist.
Má nú búast við að áin fari að
brjóta úr jöklinum og flytja jaka
niður á sandinn.
Um hádegi í fyrradag fannst
brennisteinslykt í Beykjavík að
því er Jón Eyþórsson tjáði Mbl.
í gærkvöldi, og um hádegisbilið
var tilkynnt frá Hellu, að þar
væri brennisteinslykt. Einnig
fannst brennisteinslykt á
Klaustri og í Vík í Mýrdal þá
um morguninn. Berst lyktin af
jökulvatninu alla þessa leið í
austanáttinni. Þess má geta að
1934 barzt brennisteinslykt frá
ánni alla leið til Önundarf jarðar.
Áríðandi lundur í
Málf.fél. Óðinn
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn
heldur mjög áríðandi fulltrúa-
ráðsfund í Valhöll við Suður-
götu í kvöld klukkan 8,30.
Árshátíð Sjálf-
stæðisfélaganna
á Akureyri
ÁBSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélag-
anna á Akureyri verður hald-
in að Hótel KEA n.k. laugar-
dag (23. þ.m.) og hefst kl.
9.00. e.h.
Aðgöngumiðar verða seldif
á skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins, Hafnarstræti 101, simi
1578 á föstudag frá kl. 4—7
og á laugardag frá kl. 3—6.
Borð verða tekin frá um leið
og miðar verða afhentir.
I GÆRDAG var ljósmynd
ari Mbl. í leit að eir.hverju
góðu efni niðri við höfn.
Þegar hann kom niður und
ir stóru skemmur Eimskipa
félagsins sá hann menn
halla sér f ram yf ir
bryggjubrúnina. Skyldi
einhver hafa farið í sjóinn?
Það fór ekki milli mála, að
það hafði eitthvað farið í
sjóinn, því brátt sá hann
menn með langan krók-
stjaka, sem rennt var í sjó-
inn.
Björgunin gekk allgreið-
lega og brátt var dreginn
upp úr köldum sjónum, —
ekki maður eins og margir
höfðu spurt, er leið áttu
hjá, heldur kaðalkefli, sem
fara á til Vestmannaeyja.
Segir myndin hér og á bls.
2frá þessu björgunarstarfi
og þurfa ékki frekari skýr-
inga við.
Rannsókn
hafin
HIN boðaða réttarrannsókn í svo
nefndu frímerkjamáli, er nú haí-
in hjá sakadómaraembættinu.
Þar hefur rannsókn málsins með
höndum Þórður Björnsson. í
fyrradag byrjuðu réttarhöldin.
Ekkert vildi Þórður segja um
réttarrannsóknina í gær, annað
en það að svo gæti farið að fjöldi
fólks yrði kallaður fyrir rétt til
yfirheyrzlu.
í sambandi við þetta mál og
verð það á hinum gömlu frí-
merkjum sem rannsóknin snýst
um, 40 aura merkin frá 1898, hef-
ur Mbl. aflað sér upplýsinga.
Verðlagningu þeirra er að finna
í verðlista sem ísafold gefur út.
Þar segir að örk af þessum frí-
merkjum, þ. e. a. s. 100 merkja
örk sé 420.000 króna virði. Þetta
verð kemur ekki á neinn hátt
heim við verðlagningu sömu
frímerkja í alþjóðlegum fri-
merkjaverðlistum, t. d. Scott’s og
Michel’s frá 1959 og ’60. Þar er
frímerkisins getið að sjálfsögðu,
en þar er ekki tilgreint neitt
verð. Munu þir sem ábyrgð bera
á útgáfu þessara viðurkenndu
verðlista, ekki treysta sér til þess
að ákvarða verðgildi þessara
margnefndu frímerkja, af hvaða
ástæðum sem það kann að vera.
Ekki er vitað hver verðlagt hef
ur þetta frímerki svo háu verði
sem ísafoldar-verðlistinn segir,
en þann verðlista tók saman Sig-
urður Þorsteinsson hankaritari.