Morgunblaðið - 28.01.1960, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐ1Ð
Fimmtutfagur 28. Jan. 1960
Vonin um björgun námumannanna dvínar dag frá degi, en
örvæntingarfullir ættingjar bíða samt enn við námuopið.
Kjœrböl
víttur
KAUPMANNAHOFN, 27. jan. —
Einkaskeyti til Mbl. — Þingið
felldi í dag með 85 atkvæðum
gegn 73, tillögu stjórnarandstöð-
unnar um að Kjærböl-málið yrði
tekið fyrir ríkisrétt. Fimm rót-
tækir einn vinstrimaður sátu
hjá. Að frumkvæði stjórnarinn
ar voru samþykktar vítur á
Kjærböl vegna ummæla bans
um álit Grænlandsskipstjóranna
og ófullnægjandi skýringar á
því. Einnig var samþykkt álykt-
un um að stjórninni bæri að
hraða samningu sérstaks laga-
frumvarps um ábyrgð ráðherra
Frá Heimdalli
HRAÐSKÁKMÓT Heimdallar
fór fram í Valhöll, sunnudaginn
24. janúar. Þátttaka var góð.
Hraðskákmeistari félagsins varð
Daði Guðmundsson, hlaut hann
12% vinning af 14 mögulegum.
A mánudag hófst svo tvímenn-
ingskeppni í bridge, og var þá
spiluð fyrsta umferð af þremur.
Þátttakendur eru margir í keppn
inni, eða 14 pör.
Að lokinni fyrstu umferð var
röð keppenda þessi:
1. Asgeir og Hreinn 98,5
2. Gunnar og Gunnar J 86
3—4_ Gunnl. og Jóhann 82
3—4. Kristján og Friðjón 82
5. Bjarni og Þröstur 81
6. Bernharður og Torfi 79
7. Hámundur og Jónas 78.5
8. Óskar og Halldór 78,5
9. Sigurður og ólöf 77
10—11. Ólafur og Grétar 75
10—11. Iris og Anna 75
12. Magnús og Einar 70,5
13. Elías og Gunnar .. 66
14. Skúli og Valur 63
önnur umferð verður spiluð
n.k. mánudag kl. 20 í Valhöll.
Dagskrá Alþingis
BOÐAÐUR er fundur í samein-
uðu þingi, er hefst kl. 1,30. —
Sex mál eru á dagskrá:
1. Hafnarstæði við Héraðsflóa,
þáltill. — Hvernig ræða skuli.
2. Veðdeild Búnaðarbankans,
þáltill. — Hvernig ræða skuli.
3. Siglufjarðarvegur, þáltilL —
Hvernig ræða skuli.
4. Samstarfsnefndir launþega og
vinnuveitenda, þáltill. —
Hvernig ræða skuli.
5. Hagnýting farskipaflotans,
þáltill. — Ein umr.
6. Vinnsla sjávarafurða á Siglu-
firði, þáltilL — Ein umr.
Nýr borhaus frá
New York
COALBROOK, Suður-Afríku, 27.
jan. — Enn er allt í óvissu um
björgun námuverkamannanna
435, sem hafa nú verið lokaðir
inni í vikutíma, og menn gera
sér orðið litlar sem engar vonir
um að enn séu á lífi. Síðustu
daga hefur verið borað með
stærsta demantsbor hér í landi,
en verkið hefur gengið seint,
vegna ýmiss konar erfiðleika,
sm við er að stríða.
BjöHutegundin
algeng hér
í TILEFNI fréttar um skaðlegar
bjöllur í haframjöli, sem birtist
í einu dagblaðanna í gær, sneri
fréttamaður blaðsins sér til borg
arlæknis, Dr. Jóns Sigurðssonar,
og spurði hann álits um mál
þetta. Kvaðst borgarlæknir ekki
hafa fengið fleiri en eina kvört-
un um skordýr í þessu hafra-
mjöli. Fleiri sýnishorn voru tek-
in til athugunar en ekkert at-
hugavert fannst í þeim. Bjöllu-
tegund sú, sem hér um ræðir er
algeng bæði hér og erlendis og
ekki skaðleg. •
Haframjöl þetta var pakkað í
Pökkunarverksmiðjunni Kötlu.
Sagði borgarlæknir, að samkv.
eftirliti, sem fram hefði farið með
því fyrirtæki, bæði fyrir og eftir
þennan atburð, hefði þrifnaður
þar ávallt verið í góðu lagi og síð
ur en svo ástæða til umkvartana.
31 tróðst imdir
TOKYO, 27. jan. — Allóvenju-
legt slys varð í gær í Seoul,
höfuðborg Kóreu. Vildi það til
með þeim hætti, að fólk var að
hraða sér í járnbrautarlest og
hugðist skreppa út úr borginni,
því að þá var almennur frídagur,
og mikil þröng á stöðinni. Allhált
var, og er talið að einhver hafi
hrasað í hálkunni, en síðan hafi
menn dottið hver um annan. —
Varð það til þess að 31 maður
tróðst undir og beið bana, og 50
meiddust.
f dag var tilkynnt, að nú væi i
á leiðinni frá New York nýr
borhaus til að komast niður til
mannanna, og á hann að taaa
við af demantsbornum, sem nú
hefur borað nær hálfa leið nið-
ur. Vonast menn til að þessi nýi
bor komizt á leiðarenda á föstu-
dag, 29.
Verður nú allt gert til þess að
ganga úr skugga um hvort nokk-
ur er enn á lífi, og í þeim til-
gangi notuð ýmis næm tæki, sem
bera hið minnsta hljóð eða högg
upp á yfirborðið. Ef ekkert slíkt
kemur í ljós, verður örlítil kvik-
myndavél látin renna niður I
gegnum borinn, þegar hann er
kominn alla leið niður, og á hún
að mynda umhverfið þar niðri.
Tízkukóng-
ur í
feluleik
PARÍS, 27. janúar. — Kven-
fólkið starði af undrun og
hrifningu, þegar St. Laurent
sýndi í dag nýjustu tízkusköp
un sína. En sennilega verða
ekki allir jafnhrifnir, því það
er ekki nóg með að St.
Laurent hafi tekið ermarnar
og kragana af kjólunum, held
ur hefur hann líka klætt
brjóstin og mjaðmirnar af
kvenfólkinu. Reuter var
a.m.k. svo djarfur að kalla
þetta „feluleiks-tízku",
Pokakjóllinn er sem sagt
aftur í tízkunni. aukinn og
endurbættur. Pilsfaldurinn á
að hylja hnéskelina, en á síð-
degiskjólum verður faldurinn
síðari að aftan. Hið svonefnda
„prinsessusnið“ verður alls-
ráðandi á kvöldklæðnaði og
talið er, að tízkusmíði St.
Laurent hafi að miklu leyti
mótazt af kjólunum, sem hann
saumaði fyrir Farah Dibu
áður en hún giftist Persakeis-
ara.
Ný lægb við Nýfundnaland
LÆGÐIN, sem hefur lónað
yfir Grænlandshafi undan-
farna daga, var í gær orðin
grunn og meinleysisleg. Var
loftvog í lægðarmiðju komin
upp í 1000 mb. úr 790 mb. —
Hæðin yfir Grænlandi var aft-
ur á móti orðin mikil, 1042
mb. þrýstingur í Meistaravík.
Hér á landi var gott veður,
austlæg átt, frostlaust og smá-
skúrir við ströndina. Hlýjast
var í Hornafirði, 6 stig, en
kaldast á Blönduósi, 4 stiga
frost. —
Á kortinu sér á nýja lægð
NA af Nýfundnalandi. Er ekki
ólíklegt að hún láti til sin
taka hér við land í dag eða
á morgun.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöidi:
SV-mið: Hvass austan, rign-
ing. SV-land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið og Breiðafjarðar-
mið: Austan og norðaustan
stinningskaldi, víða úrkomu-
laust. Vestfirðir, Vestfjarða-
mið til NA-miða: Hvass norð-
austan, rigning og síðan snjó-
koma. Norðurland og NA-
land: Norðaustan eða austan
kaldi, slydda á annesjum. —
Austfirðir, SA-land, Aust-
fjarðamið og SA-mið: All-
hvass austan, skúrir.
— Óðinn
Framh. af bls. 1.
Bergsteinsson frá Landhelgis-
gæzlunni, Gústav A. Jónasson
ráðuneytisstjóri, Baldur Möller
deildarstjóri, kona Péturs Sig-
urðssonar forstjóra og skipaskoð
unarstjóri, Hjálmar Bárðarson.
Voru þeir við landganginn Eirík-
ur skipherra og Pétur Sigurðs-
son. — Var þegar gengið upp i
brú. —
Ávarp dómsmálaráðhemu
A stjórnpalli ávarpaði dóms-
málaráðherra skipshöfn Óðins og
komst ráðherrann þannig að
orði:
„Ég veit ég mæli í nafni
allra íslendinga, þegar ég
býð ykkur velkomna til
landsins. Margir ágætir
menn hafa frá upphafi starf-
að að íslenzku landhelgis-
gæzlunni. Aldrei hefur meira
reynt á en hin síðustu miss-
eri. Aldrei hefur heldur bet-
ur til tckizt.
Við fögnum því, að nú
hefur bætzt í hinn litla flota
gæzluskipanna nýtt skip,
sem samboðið er hinum
vösku mönnum, er sækja sjó-
inn til að gæta þar þeirra
lífshagsmuna þjóðarinnar,
sem við Iandhelgina eru
tengdir.
Hugur almennings lýsir sér
í því, að í morgun afhentu
fulltrúar fjáröflunarnefndar
Iandhelgismerkisins mér 14
milljón króna, er varið skal,
að svo miklu leyti sem til
hrekkur, til kaupa á þyril-
vængju, en henni er ein-
mitt ætlaður staður á þessu
nýja skipi. Með þessari fjár-
söfnun sannaði þjóðin ein-
hug sinn i landhclgismálinu
vott vottaði gæzlumönnum
þakklæti sitt.
Ég endurtek árnaðarorð
mín til allrar skipshafnar
Óðins og lýsi sérstakri
ánægju yfir, að Óðinn skuli
nú í fyrsta sinn koma í ís-
lenzka höfn undir stjórn
Eiríks skipherra Kristófers-
sonar og að með skipinu
skuli einnig vera Pétur Sig-
urðsson, forstjóri landhelgis-
gæzlunnar, svo verðugir full-
trúar allra landhelgismanna
sem þeir báðir eru.
Gifta fylgi hinum nýja,
glæsta Óðni og megi hann
koma rammefldur og heill á
húfi úr hverri raun“.
Lauk ráðherrann máli sínu.
með því að biðja mannfjöldann
að taka undir þessi orð sín með
ferföldu húrrahrópi, er kvað við
hátt og snjallt.
Skipið skoðað
Á eftir var ráðherra og öðrum
gestum sýnt skipið stafna á milli.
Brátt streymdu um borð nánir
ættingjar og vinir varðskips-
manna og einnig yfirmenn varð-
skipanna Þórs og Alberts. — A
bryggjunni stóðu menn álengdar
og ræddu um skipið eins og vera
ber og mátti þar t. d. sjá hinn
gamla skipstjóra, Halldór í Há-
teigi. — Niður á bryggjuna kom
einn af starfsmönnum brezka
sendiráðsins, því sjón er sögu
ríkari.
Hið nýja varðskip íslendinga
var komið í höfn um það bil
fjórum árum eftir að Bjarni
Benediktsson dómsmálaráðherra.
bar fram á Alþingi ályktun um
smíði nýs varðskips fyrir íslend-
inga.
27 manna skipshöfn er á Óðni.
Eiríkur Kristófersson er skip-
herra, Garðar Pálsson yfirstýri-
maður og Kristján Sigurjónsson,
yfirvélstjóri.
GENF, 27. janúar. — Fulltrúi
Ráðstjórnarinnar á fundin-
um um eftirlit með banni um
kjarnorkutilraunir sagði í
dag, að Rússar mundu aldrei
fallast á að undanþága yrði
veitt um neðanjarðartilraunir
með litlar sprengjur. Sagði
hann, að bannið yrði að vera
algert. I