Morgunblaðið - 28.01.1960, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.01.1960, Qupperneq 15
Fimmtudagur 28. jan. 1960 MORCVNTtLAÐIÐ 15 Bílar i niítið, fortíð og framtíð. Vinnuteikningar að húsgögnum og auð- smíðuðum munum. Nýjar flugvélar! Frásagnir af flugafrekum! (JtyÉt ctStmHHt' fHcínaáaAAétut*t 7tý/a i&j&t,/f&yvéébti oy uflpfiwi 'utpti Margir halda að tækni sé eitthvert ákaflega torskilið við. fangsefni, sem eingöngu sérfróðir menn geti haft áhuga fvrir. Erlendis koma út hundruð tímarita, sem kynna almenningi tækni og tæknilegar nýjungar á auðskilinn hátt, og þessu nýja timariti er einmitt ætlað það hlutverk hér. Tæknin er æsileg- asta ævintýrið, sem gerzt hefur og gerist — hví skyldi ekki mega segja það þannig, að það vekti almennan áhuga. hrifn- ingu og eftirvæntingu, eins og önnur ævintýri? Fjöldi mynda og frá- sagna af uppfinning- um á öllum sviðum.. 4 LESBÓK BARNANNA Njúlsbrenna og hefrtd Kára 4 99. Húsfreyja spurði þá tíð- inda og fagnaði þeim vel. Björn svaraði: „Aukist hafa heldur vandræðin, kerling“. Hún svarar fáu og hrosti að. Hún mælti þá: „Hversu gafst Björn þér, Kári?“ Kári svarar: „Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi, og gafst Björn mér vel. Hann vann á þremur mönnum, en er þó sár sjálfur, og var hann mér hinn hallkvæmasti í öllu því, sem hann mátti“. I*ar voru þeir þrjár nætur. • 100. Síðan riðu þeir í Holt til Þorgeirs. Kári kvaðst vilja biðja Þorgeir bænar. „Það vil eg, að mann þenn- an, er Björn heitir, takir þú til þín, er að vígum hefir ver- ið með mér, og haldir svo hendi yfir honum, að engri hefnd sé til hans snúið, og er þér það sjálfrátt fyrir sak- ir höfðingsskapar þíns“. „Svo skal vera“, segir Þor- geir. Þorgeir sættist á öll mál fyrir Björn og gerði hann al- sáttum sáttan við þá. Þótti Björn nú miklu heldri maður en áður fyrir sér. 101. Kári vildi nú fara ut- an á eftir þeim brennumönn- um, sem útlægir voru gerðir — „og sitja svo að þeim og drepa þá, ef eg fæ náð þeim“. Reið hann ofan á Eyrar og tók sér fari með Kolbeini svarta. Hann var orkneyskur maður og aldavinur Kára og hinn vaskasti maður. Hann tók við Kára báðum höndum og hvað eitt skyldi yfir þá ganga báða. • 102. Flosi lét nú í haf með menn sína. Þeir höfðu langa útivist og brutu skip sitt við Orkneyjar í Hrossey. Menn björguðust á land. „Fá máttum vér betri land- töku“, segir Flosi, „því að Hclgi Njálsson var liirðmaður Sigurðar jarls Hlöðvissonar, er eg vá“. Flosi mælti til sinna manna: „Vér skulum allir ganga á vald jarlsins, því að oss gerir ekki annað, því að jarl hefur að líkum líf vort, ef hann vill eftir leita“. Segðu mér sogu: Veiðiför ÞAÐ var einn sunnudag i í sumar, að við krakk- arnir, Guðmundur, Una og ég, ákváðum að fara að veiða upp í svokölluð- um silungalæk, sem renn ur hérna um engjarnar. Fyrst fengum við dollu hjá mömmu til að tína ánamaðka í. Við gáð- um undir öllum steinum, þar var nóg af möðkum og við fylltum dolluna. Síðan náðum við í bamb- usstengur með girni og öngli á. Hjá mömmu feng um við nesti í poka og lögðum af stað upp engj- ar með bambusstengurnar og maðkadósina í hend- inni. Þegar við komum upp að hól, sem er rétt við lækinn, settumst við niður og fórum að beita. Það gekk nú hálf illa þvi að ánamaðkarnir sprikl- uðu svo mikið í höndun- um á okkur en þó tókst það á endanum. Þegar við vorum búin að því, löbbuðum við upp að stíflu og renndum fær- unum. Við biðum dálitla stund þar til kippt var í mitt færi. Ég dró upp og þá er smásilungur á sem ég losaði af önglinum og beitti svo aftur. Eftir litla stund var kippt fast í. Mér dauð- brá, en ég dró samt upp af öllum kröftum og sá þá stóran silung. Ég var nú hetdur en ekki ánægð *n ekki tókst mér að veiða fleiri. Ég varð ekki vör eftir að ég veiddi stóra iil

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.