Morgunblaðið - 18.02.1960, Page 1
20 síður
Washington, 17. febrúar.
— (Reuter) —
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkj-
anna synjaði í dag síðustu
beiðni Caryl Chessmans um,
að leitað yrði nýrra sönnunar-
gagna í máli hans. — Lög-
fræðingur Chessmans afhenti
hæstaréttardómaranum Felix
Frankfurter beiðnina í gær,
og lagði hann hana fram í
réttinum í dag. Þetta var 15.
beiðnin sama efnis, sem Chess
man hefur sent hæstarétti.
í tilkynningu réttarins er
aðeins sagt, að framkominni
beiðni hafi verið hafnað — án
nokkurra athugasemda.
Chessman
Öllu
lokið?
Mislesfur á hœðarmœli
orsök SAS-slyssins?
Sœnskt flugblað telur hœbarmœla
Caravelle-þotanna ,,hœftulega44
í kvöld voru 40 blaðamenn
vitni að því, er Chessman
greip síðasta hálmstráið.
Hann samdi stutt símskeyti
til Brown, ríkisstjóra Kali-
forníu — bað hann að gera
það í málinu, sem samvizkan
byði honum. — Hvað sjálfum
mér viðvíkur, skrifaði Chess-
man, býður samvizkan mér
að halda fast við það, sem ég
hef margsagt — að ég er ekki
glæpamaðurinn „Ri uða lugt-
in“, enda þótt sú fullyrðing
muni kosta mig lífið.
Brown ríkisstjóri er 'eini
maðurinn, sem vald hefur til
þess að náða fangann. Geri
hann það ekki á Chessman
aðeins fáeinar klukkustundir
ólifaðar.
(Sjá frásögn á bls. 19)
„Flensan64 veldur
erfiðleikum
Vínarborg, 17. febr. (Reuter)
VFIR 1200 af lögregluþjónum
Vínarborgar lágu í dag sjúkir af
inflúenzu, og varð að kalla til
varalið að sinna umferðastjórn
og öðrum daglegum lögreglustörf
um.
Það eru auðvitað ekki lögreglu
mennirnir einir, sem verða fyrir
barðinu á flenzunni. Leikhúsinog
óperan hafa átt í erfiðleikum af
hennar völdum, og margs konar
starfsemi er hálf-lömuð vegna
fjarvista starfsfólks.
ÁLASUNDI, 17. febr. (NTB) —
Norski síldveiðiflotinn hefir veitt
vel í dag. Um kl. 7 í kvöld (ísl.
tími) höfðu borizt á land sam-
tals um 150 þús. hektólítrar síld-
ar frá því í morgun — og búizt
var við því, að um miðnætti yrði
Kaupmannahöfn, 17. febrúar.
—- (Einkaskeyti til Mbl.) —
BLAÐIÐ „Flygposten“, sem
er málgagn sænska flugmála-
félagsins, hefur lýst yfir
þeirri skoðun, að hæðarmæl-
ar þeir, sem notaðir eru í
Caravelle-þoturnar frönsku,
séu þannig gerðir, að hætta
sé á, að lesið sé skakkt af
þeim. Gefur blaðið í skyn, að
ekki sé ólíklegt, að slíkur mis-
lestur hafi verið orsök flug-
slyssins mikla við Ankara
fyrir skemmstu, er Caravelle-
þota frá SAS rakst á hæðar-
drag og yfir 40 manns fórust.
★ Mislesið 6 sinnum
Blaðið skýrir frá því, að það
hafi sex sinnum komið fyrir við
prófun í „æfinga-stjórnklefa“ á
Brommaflugvellinum, að mis-
lesið hefur verið um 1000 fet á
þessa umræddu hæðarmæla. —
Venja er að fljúga yfir hæðar-
sú tala komin upp í 200 þús. hl.
Heildaraflinn á síldarvertíð-
inni, að meðtöldum afla dagsins
í dag, er orðinn 1,1 millj. hl. —
og nemur verðmæti hans um
27,5 millj. norskra króna. — Veð-
ur er ágætt meðfram allri strönd
inni og veiðihorfur góðar.
dragið, sem Caravelle-þotan
fórst á við Ankara, í 1000 feta
hæð.
Hinir svonefndu „tromlu“-
hæðarmælar í þoturr. þessum
hafa tvo talnaskala (annar sýnir
hæðina í þúsundum feta, en
hinn sýnir einingarnar — tugi og
hundruð) — og eru þeir þannig
gerðir, að hætta getur verið á
mislestri, þegar hæðartalan ligg-
ur mjög nærri heilu þúsundi —
að lesið sé t. d. 2000 í stað 1000
o. s. frv.
A Gagnrýnir rannsóknina
Þá gagnrýnir blaðið það einn-
• •
Oflugar
eldflaugar
LONDON, 17. febr. (Reuter)
— Hinar stóru, margþrepa eld
flaugar Rússa eru nægilega
aflmiklar til þess að flytja
stórar, sjálfvirkar rannsóknar
stöðvar út í geiminn, að því
er sovézki eldflaugasérfræð-
ingurinn Anatoly Blagonra-
vov segir í viðtali við tíma-
ritið „Nýi' tíminn“. — Tass-
fréttastofan skýrði frá þessu
í dag.
Blagonravov sagði, að þetta
væri nú fullljóst eftir eld.
flaugatilraunirnar, sem Rúss-
ar gerðu á Kyrrahafi í janúar.
Binnig væri nú staðfest, að
skjóta mætti þessum öflugu
eldflaugum til annarra reiki-
stjarna í sólkerfinu.
ig, að fulltrúar framleiðenda
skyldu vera látnir rannsaka vél-
arflakið — það hefðu óvilhallir
sérfræðingar átt að gera. —
í dag verða VHI. Vetrar-
olympíuleikarnir settir. Allt
er til reiðu í Squaw Valley
og veður ákjósanlegt. Hér
sést hin glæsilega stökk-
braut, þar sem stökkmennirn
ir hafa stokkið allt að 94 m.
Á miðri mynd er „minnis-
merkið“ með skjaldarmerkj-
um þátttökuríkjanna og fram
an við það er eldstæðið, þar
sem Olympíueldurinn verður
tendraður í dag.
Hvar/ grein um
Krabbe úr Politiken?
MORGUNBLAÐIÐ frétti i
gær af Íslendingi, sem var ný-
kominn frá Kaupmannahöfn
með allfáséð eintak af Poli-
tiken, að því er hann taldi.
Þegar blaðið leitaði til hans,
sagðist honum svo frá, að
hann hefði keypt eintak af
sunnudagsblaði Politiken á
aðaljárnbrautarstöðinni í
Khöfn kl. 11,30 á laugardags-
kvöld. Og hefði hann á sjöttu
síðu blaðsins séð stóra mynd-
skreytta grein um æviminn-
ingar Jóns Krabbe, „Frá
Hafnarstjórn til lýðveldis“,
undir þriggja dálka fyrirsögn:
„Islandsk angreb paa kong
Christian X“. — Blað þetta
geymdi hann og kom með
heim til íslands.
Það, sem merkilegast er i
þessu sambandi ,er að daginn
eftir (þ. e. sunnudag), kvaðst
hann hafa litið í önnur eintök
af sunnudagsblaði Politikens,
og þá hafi greinin verið horf-
in úr blaðinu. Eftir þessu að
dæma, hefur greinin aðeins
birzt í fyrstu eintökum Poli-
tikens, sem seld voru á laug-
ardagskvöld, en síðan verið
kippt út úr pressunni, svo að
hún birtist ekki í síðari ein-
tökum blaðsins. — Mbl. er
kunnugt um, að fleiri eintök
af Politiken með greininni
hafi borizt til íslands.
1 greininni, sem er eftir Jó-
hannes Lindskov Hansen, er fjall
að um þessa gagnrýni Krabbe
án þess að veitzt sé að honum eða
bók hans á nokkurn hátt.
□---------------------------□
Fimmtudagur 18. febrúar
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Gitta litla.
— 6: Fiskiþing vill dragnótaveiðax
innan fiskveiðilandhelginnar.
— 8: Spyrjið ekki meðan aðrir heyra
— 9: Við túngarðinn.
— 10: Forustugreinin: „Ömurlegt hlut
skipti Framsóknar“.
Fólk til sölu (Utan úr heimi).
— 11: Geislavirkni hér hraðminnk-
andi.
— 12: Einstætt afrek.
— 13: Æskan og framtíðin.
— 18: íþróttir.
□---------------------------D
Síldveiðin við Noreg
200 Jbiis. hl. i gœr