Morgunblaðið - 18.02.1960, Side 6
6
MORCTiypr 4 fílfí
Fimmtudagur 18. febr. 1960
Springur
Vesuvius?
NAPOLI, 16. febrúar. (Reuter).
Ýmis teikn og merki eru um þaff,
aff eldfjallið Vesuvius muni fara
aff gjósa innan skamms. Menn
óttast aff næsta gos kunni aff
verffa mjög mikiff vegna þess aff
nú er fremur langt liðið frá síð-
asta gosL
Vesuvius gýs yfirleitt á 14 til
17 ára fresti. Hefur þaff veriff
venjan, aff ef aðeins líða 14 ár á
milli, þá reyndist gosiff lítið, en
ef kyrrstöðutíminn kemst upp í
17 ár getur gosið orðiff mjög mik-
ið, stundum sem stórkostleg
sprenging. Nú í vor verffa liffin 16
ár frá síðasta gosi. Þaff varff 1944
nokkru eftir að Bandamenn stigu
á land. á Ítalíu.
Eldfjallafræffingar sem eru
margir fastráffnir til aff fylgjast
meff Vesuviusi segja aff ýmis ein-
kenni séu farin aff koma er sýni,
að fjallið mun gjósa innan
skamms. Ferðamenn er klífa upp
á tind þess sjá þó ekkert óvenju-
legt í hinum 100 metra djúpa gíg.
Þar er að vísu stöðugt sterk
brennisteinsfýla en enga hreyf-
ingu að sjá á hrauninu.
Garnaveiki í
Skagaiirði
" Höfðaströnd, 16. febr.
VIB rannsókn á fé hér í A,-
Skagafirffi kom upp garna-
veiki í tveimur kindum á
Þverá. Grunur er um aS
fleiri kindur séu sjúkar.
Niðurskurður var fram-
kvæmdur vegna garnaveiki
fyrir 5 árum og voru menn
að vona að hún mundi ekki
koma upp aftur. Síðan er
farið að bólusetja við veik-
inni, og von m'i.n til að
það stöðvi hana. — Björn.
Fiskiþing vill leyfa
dragnótaveiðar
innan íiskveiðilandhelginnar
FISKIÞINGINU lauk í dag. Það
hélt alls 15 fundi og afgreiddi 34
mál. 1 dag sátu fulltrúar hádeg-
isboð fiskimálastjóra í Tjarnar-
café.
1 þinglok kom fram svohljóð-
andi tillaga frá Arngr. Fr.
Bjarnasyni og Hólmsteini Helga-
syni.
25. Fiskiþing 1960 beinir því til
háttv. ríkisstjórnar og Alþingis
að gera allt sem unnt er til und-
irbúnings málsstað Islendinga á
alþjóðaráðstefnu þeirri, sem á-
kvörðun er ætlað að taka um
landhelgi og fiskveiðilögsögu,
og hefjast skal í næsta mánuði.
Tillaga þessi var samþykkt af
öllum viðstöddum fulltrúum.
Stofnlán sjávarútvegsins
Fiskiþingið telur nauðsynlegt,
að stofnlán til kaupa á nýjum
fiskiskipum hækki í 90%, úr 75%
miðað við skip smíðuð innan-
lands og í 85 %, úr 67 % miðað við
skip smíðuð erlendis, og skorar
á ríkisstjóm og Alþingi að sjá
Fiskveiðasjóði fyrir nægu fjár-
magni.
Fiskiþingið ítrekar einnig nauð
syn þess, að Fiskveiðasjóði verði
sér fyrir fjármagni til stofnlána
vegna fiskvinnslustöðva.
Fiskiþingið skorar á Alþingi og
ríkisstjórn að hlutast til um við
bankana að veita rífleg lán til
kaupa á nýjum síldarnótum og
nótabátum eða kraftblökkum, er
endurgreiðist t. d. á þremur eða
fjórum árum.
Heimfur
úr helju
Varðskipin skiptast á um að
líta eftir fiskibátunum við
Vestmannaeyjar og vera þeim
til aðstoðar, ef á þarf að
halda. Hér ’.t Albert draga
Auðbjörgu inn til eyja, en
hún hafði fengið línu í skrúf-
una. Báturinn var mjög
grunnt, þegar þetta gerðist og
dró annar bátur hann út, en
síða tók Albert við og dró
hann til hafnar. — Ljósm.:
Sigurgeir Jónasson.
skrifar úr
daglegq hfinu
* Hefur þig dreymt?
Velvakandi var fyrir nokkru
í samkvæmi þar sem margt
uppbyggilegt bar á góma og
m. a. barst talið að draumum.
Skýrðu sumir viðstaddra frá
merkilegri reynslu sinni í þess
um efnum og sögðu frá draum
um, sem þá hafði dreymt, er
fram höfðu komið. Höfðu
draui.iarmr flestir komið fram
næsta dag eða menn hafði
„dreymt fyrir daglátum", eins
og það er nefnt.
Það er alkunna, að margir
hlutir ganga svo eftir sem
menn sjá fyrir í draumum. Er
það raunar ekki ný speki, en
hefur verið þekkt og haft til
hliðsjónar hér á landi allt frá
því sögur hófust og sjálfur
Sókrates kunni einmg á þessu
glögg skil.
Menn hafa lagt sig fram um
að ráða drauma, sem ekki
voru Ijósir, eða ekki virtust
liggja í augum uppi hvað tákn
uðu. í Þjóðháttum Jónasar er
vikið að þessum draumaráðn-
ingum og segir svo:
„Draumabækur hafa hitzt
á íslandi, en allar hygg ég þær
séu af útlendum rótum runn-
ar, og ekki hef ég orðið var
við, að menn hafi haft margt
úr þeim til að byggja á
draumaráðningar sínar. Flest-
ar draumaráðningar manna á
meðal munu vera arfgengar
íslenzkar og sumar af þeim
jafnvel aðeins sveitlægar eða
jafnvel bundnar aðeins við
einstaka menn“.
Hvernig sem draumar eru
lagðir úe eða ráðnir mun það
staðreynd að þeir eru ekki
hégómi einn. Skáldið hef-
ur skotið nærri markinu, er
það kvað:
„Hefur þig dreymt? spyrja
menn.
Því hef ég gleymt, svara menn.
Oft þó svo er, að draumur ber,
sannleik í sér.
• Börnin og strætis-
vagnarnir
f tvennu tilliti ber barn
vitni heimilinu, sem það er
frá. Er þar annars vegar um
að ræða ytri búnað, föt og
snyrtingu alla, en hinsvegar
kúrteisi í framkomu. Á þeim
velsældartímum, sem við höf-
um lifað undanfarið hefur
mikil áharzla verið lögð á
fyrra atriðið, en hafa flestir
foreldrar, sem betur fer, haft
efni á að sjá börnum sínum
fyrir sómasamlegum ígangs-
klæðum. Hitt virðist öllu
meira vanrækt að innræta
börnunum sanna kurteisi og
góðar umgengnisvenjur. Ætti
þó ekki að þurfa að vera hörg-
ull á þessum ágætu dyggðum.
Ofanritað er Velvakanda í
huga vegna atviks, sem kom
fyrir í gær og sem því miður
hefur komið fyrir áður. Fólk
beið strætisvagns í úthverfi.
Norðangjóstur var á og mjög
kalt eins og menn minnast.
Þegar vagninn rann inn á bið-
stöðina, tóku sex vel búin og
hraustleg börn sig út úr hópn-
um og fylgdust með dyrum
vagnsnns unz hann staðnæmd-
ist. Tróðu þau sér þá inn í
ofboði, en skjálfandi konur
urðu að gera sér að góðu að
bíða á meðan. Þegar inn kom,
höfðu börnin troðið sér í sæti,
en hvert sæti vagnsins var
skipað. Velvakandi kom að
máli við þrjá drengi, sem sátu,
og benti þeim á að láta eldra
fólkinu eftir sæti sín. Tóku
þeir því mjög vel og stóðu
upp þegar. Virðist því ekki
vera um illan ásetning að
ræða hjá blessuðum börnun-
um, en fremur því að kenna,
að kurteisi og rétt umgengni
er ekki brýnd nóg fyrir þeim.
Dragnótaveiffar
Fiskiþingið mælir með því, að
takmarkaðar dragnótaveiðar inn
an fiskveiðilandhelginnar verði
leyfðar að nýju.
Fiskiþingið treystir því, að
stjórn Fiskifélagsins og fiskifræð
ingarnir fylgist með því, að lög
og reglugerðir um dragnótaveið-
ar verði þannig úr garði gerð, að
tryggt sé, að ekki verði gengið
um of á fiskistofnana eða upp-
eldisstöðvum þeirra spillt.
Verði rækilega fylgzt með veið
unum frá upphafi og áhrifum
þeirra á fiskistofnana, þannig að
hægt sé að gera nauðsynlegar
varúðarráðstafanir í tæka tíð, ef
nauðsyn ber til.
Fiskiþingið vill sérstaklega
benda á eftirfarandi:
1. Dragnótaveiðar skulu háðar
leyfisveitingum.
2. Veiðileyfi skulu, fyrst um
sinn, aðeins veitt bátum, sem
ekki eru yfir 45 smál. að stærð.
3. Veiðitíminn skal takmarkað-
ur og ekki vera yfir 3 mánuði ár
hvert.
4. Strangar reglur séu settar
um möskvastærð og gerð drag-
nótarinnar.
Skal strangt eftirlit haft með
því að þeim reglum sé fylgt og
varðar misnotkun sviptingu veiði
leyfis og háum sektum.
5. Dragnótaveiði á þröngum
fjörðum og 1—2 sjómílur frá
landi skal óheimil.
Jafnframt sé heimild í lögum
að friða uppeldisstöðvar nytja-
fiska lengra út, ef þurfa þykir, að
áliti fiskifræðinga.
6. Settar séu reglur um með-
ferð aflans í bátunum og í landi,
er tryggi að varpan verði eftir-
sótt á erlendum markaðL
• SKÁK •
HAFNARFJÖRÐUR
ABCilEFGH
ABCDEFGH
KEFLAVÍK
Hafnarfjarffarleikur barst ekki
★
KEFLAVÍK
ABCDEFGH
AKRANES
14. g4—g5