Morgunblaðið - 15.03.1960, Qupperneq 6
6
MORCIINBLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. marz 1960
Söluskatturinn rýrir
ekki kjör almennings
Stjórnarandstaðan leggur fæð
á efnahagssérfræðinga
Úr rœðu Ólafs Björnssonar
SÖLUSKATTSFRUMVARP ríkisstjórnarinnar var tekið til 2. nm-
ræðu í efri deild í gær. Fjárhagsnefnd deildarinnar klofnaði um
málið. Meirihlutinn Ólafur Björnsson, Jón Þorsteinsson og Magnús
Jónsson lögðu til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt, en 1. og 2.
minnihluti Karl Kristjánsson og Björn Jónsson lögðu til að það
yrði fellt.
Ólafur Björnsson hafði framsögu í málinu af hálfu meirihlut-
ans. 1 framsöguræðu sinni komst hann m. a. þannig að orði:
. — Stjórnarandstæðingar
virðast halda því fram, að hér
sé um að ræða nýjar álögur
til viðbótar þeim álögum, sem
ákveðnar voru með löggjöf-
inni um efnahagsmál. Eiga
þær að vera þannig til komn-
ar, að hagfræðingar þeir, sem
undirbjuggu efnahagsmála-
frumvarpið hafi týnt 100
milljónum. Er ríkisstjórnin
uppgötvaði þétta skarð í múr-
inn, lét hún sér ekki nægja að
leggja á þær 100 millj., sem
þurfti til að fylla í skarðið,
heldur allt að því 400 millj.,
ef sú tala á ekki enn eftir að
hækka í meðferð málgagna
st j ómarandstöðunnar.
Ekki nýjar álögur
Auðvitað er það alger fjar-
stæða, að hér sé um að ræða nýj-
ar álögur, eins og fjármálaráð-
herra sýndi með Ijósum rökum
fram á við 1. umr. málsins. Gert
er ráð fyrir, að söluskatturinn
gefi 280 millj. á ári í ríkissjóð,
eða nákvæmlega það sama og
ríkissjóður missir við niðurfell-
ingu eða lækkun tveggja ann-
arra tekjustofna, 9% söluskatts-
ins og tekjuskattsins, að viðbætt-
um þeim 56 millj., sem gert er
ráð fyrir að bæjar- og sveitarfé-
lögin fái.
Álit sérfræðinga óhagstætt
stjórnarandstöðunni
Þessu næst fór Ölafur Björns-
son nokkrum orðum um þann
furðulega málflutning stjórnar-
andstöðunnar í sambandi við
meintar reikningsskekkjur hag-
fræðinganna og sagði, að ekki
væri um nema um eina skýringu
að ræða á þeim málflutningi.
Stjórnarandstaðan virtist með
sjálfri sér hafa komizt að þeirri
niðurstöðu, að henni væri óhag-
stætt það sem sérfræðingar á
sviði efnahagsmála hefðu til mál
anna að leggja. Þess vegna legðu
þeir megináherzlu að skapa þá
trú hjá almenningi, að allt væri
vitleysa, sem sérfræðingar segðu
um þessi mál. Ræðumaður fór
nokKrum orðum um þá skatta,
sem skv. frumvarpinu verða iagð
ir niður, sagði síðan:
Ekki auknar skattabyrðar
— Þá tel ég rétt að síðustu, að
fara um það nokkrum orðum,
hver áhnf þær ráðstafanir, sem
hér liggja fyrir, hafi á kjör þjóð-
arinnar og einstakra stétta. Það
ieiðir auðvitað af því, sem sagt
hefur verið, að þar sem hér er ein
göngu um það að ræða að inn-
heimta á annan hátt en áður til-
tekna skattaupphæð, þá getur
ekki verið um að ræða auknar
skattabyrðar á þjóðina í heild.
Það er því úr lausu lofti gripið,
að hér sé verið að rýra kjör al-
mennings umfram það, sem efna
hagsmálalöggjöfin gerir ráð fyr-
ir.
Vísitöluhækkun, ef . . .
Um áhrif þessara ráðstafana á
verðlagið, er rétt að upplýsa það,
sem fram kom við meðferð máls-
ins í nefnd, að vísitala fram-
færslukostnaðar mun hækka um
3% vegna þessara ráðstafana, og
yfir það skal engin fjöður dregin,
að þessi hækkun er umfram þær
verðhækkanir, sem gert var ráð
fyrir í efnahagsmálafrumvarpinu,
en auðvitað þýðir þetta ekki að
um sé að ræða 3% kjaraskerðingu
umfram það, sem þar var gert ráð
fyrir. Það sem skeður er, að inn-
heimtar eru 165 millj. í söluskatt
en tekjusköttum og útsvörum er
létt af sem þeirri upphæð nemur.
Sú lækkun kemur að visu ekki
fram í visitölunni ef hún er reikn-
uð á þann hátt, sem nú er gert.
En mikið álitamál er, hvort svo
bæri ekki að gera. Núverandi
vísitölugrundvöllur var sem
kunnugt er tekinn upp með lög-
gjöf þeirri um efnahagsmál, sem
sett var 1 jan. 1959.
Við þær umr, sem þar fóru
fram, var á það bent, af 3. þm.
Reykv., Einari Olgeirss., að rétt
væri í visitölunni að taka tillit
til útsvars og skatta og tel ég,
að hann hafi þar haft mjög mikið
til síns máls.
* Vítamínát
í umræðunum hér í dálk-
unum um ölgerð í síðustu
viku, minntist einn bréfritar-
inn á hve hollt gerið væri og
hve mikið B-vítamín væri í
þvi. í þessu sambandi minn-
ist ég skýrslu frá Kópaskeri
um vítamínát í Heilbrigðis-
skýrslum frá 1956, þar sem
er að finna greinargerðir hér-
aðslækna um ýmisglet varð-
andi starf þeirra.
Þar segir:
„Á þessu 114 ári, sem ég
hef stundað lækningar, hef ég
aðeins rekizt á einn dreng
Skattar með í vísitölunni
Fram til 1939 voru skattar með
í vísitölunni.
Sú vísitala, sem þá var tekin
upp og var í gildi þangað til á
sl. ári var eingöngu verðiagsvísi-
tala, þannig, að ekki var tekið
tillit tij skatta og heldur ekki til
fjölskyldubóta eða þess háttar.
Með því að taka tillit til fjöl-
skyldubóta svo sem ger’t er í nú-
verandi vísitölu, er því horfið frá
því að vísitalan sé eingöngu
verðlagsvísitala, hún gerð að
einskonar lífskjaravísitölu. En þá
virðist líka eðlilegt, að taka til-
lit til skatta í vísitölunni og hlýt
ur það mál að verða til athugun-
ar meðan þetta þing situr. En
hvort sem tekið er tillit til skatta
lækkunarinnar í vísitölunni eða
ekki, þá er Ijóst, að til hennar
ber að taka tillit, er meta skal
áhrif þeirra efnahagsráðstafana,
sem gerðar verða' á þessu þingi
á lífskjör almennings.
Áhrif á útgjöld
meðalf jölskyldu
Það lætur nærri, að áhrif sölu-
skattsins, sem nú er til umr,
muni auka meðalútgjöld, þeirrar
fjölskyldu, sem vísitöluútreikn-
inguririn er miðaður við, um 1800
kr. á ári. Hvort kjör hverrar ein-
stakrar fjölskyldu versna eða
batna eða standa í stað verður
svo auðvitað komið undir því,
hve mikið tekjuskattur og útsvar
fjölskyldu lækkar, sem auðvitað
er komið undir tekjum, barna-
fjölda og öðrum aðstæðum.
Meginrök okkar, sem styðjum
þær breytingar á skattheimtunni,
sem hér er verið að gera, fyrir
því að þær verði til bóta, er í
fyrsta lagi þau, að hinir háu
tekjuskattar, sem nú eru á lagð-
ir, dragi svo úr starfsvilja manna,
að líklegt er, að þjóðartekjurnar
með greinlegan vítamínskort
(skyrbjúg), sem batnaði strax
við C-vítamíngjöf. En það eru
ógrynnin öll af fólki, sem ósk-
ar eftir vítamíntöflum og
sprautum og segir, að sér
batni slen og ýmis önnur ó-
þægindi, svo sem gigtarverk-
ur við það. Ég hef frá því
fy.rsta verið tortrygginn gagn
vart öllum þessum vítamín-
gjöfum, enda sögðu kennarar
mínir í Svíþjóð, að það væri
fjarstæðukennt að gefa víta-
mín, nema finna einhver
greinileg merki um avítamín-
osis.
* Hlær næsta
kynslóð?^^
Nú er dálítill munur á
viðurværi hér og á Norður-
löndum, og auk þess segjast
reyndir collegar mínir sjá ó-
tvíræðan bata af vítamínum
við gigtarverk og sleni. En
máttur sefjunarinnar er mik-
ill, og efnin heita „bæti- eða
fjörefni". Ég er alltaf hrædd-
ur við að næsta kynslóð hlæi
dátt að vítamínaustrinum í
okkur, svipað og við að brenni
vínslækningum forfeðra okk-
ar. Alla vega væri þörf á hlut
lausum leiðbeiningum um
Ólafur Björnsson
muni aukast að öðru óbreyttu, sé
þeim létt af, en það mundi verða
fleirum til hagsbóta en þeim
MBL fregnaði í gær, að Loftleið-
um mundi ekki. verða fært að
láta Cloudmaster-vélar sínar
fljúga til Hamborgar í sumar,
eins og ráðgert hafði verið. Aætl-
að var, að þær færu tvær viku-
legar ferðir þangað með við-
komu í Amsterdam, en þýzk yf-
irvöld munu hafa lagzt gegn því.
Mun því ráðgert, að önnur
þessara ferða verði til Luxem-
burgar um Amsterdam, en hinni
er óráðstafað. Áður hafði verið
ákveðið að fella Luxemburg nið-
ur úr áætlun Loftleiða.
Samkv. ráðagerðum félagsins
fara Cloudmaster-vélarnar fimm
vikulegar ferðir til Evrópu í
sumar. Ein verður til Helsingfors
með viðkomu í Osló og hafa þeg-
ar tekizt samningar milli Is-
lands og Finnlands um flugið til
Helsingfors.
Samkvæmt samningi við Breta
fer Cloudmaster eina ferð til
London og í annarri ferð verður
viðkoma í Glasgow á flugleið-
inni til Stafangurs. Fjórða Cloud
master-ferðin verður sennilega
til Amsterdam og Luxemburgar
eins og fyrr greinir, en óvíst
vandamálið, því að það eru
gífurlegar upphæðir, sem
sjúklingar og sjúkrasamlög
eyða í vítamín á hverju ári,
sérstaklega í sprautur og þessa
„atombelgi", sem mest eru í
tízku núna“.
m Skautasvellin
Maður nokkur kom að máli
við Velvakanda. Finnst hon-
um hin mesta ósanngirni að
vera að amast við því, að
skautasvelli sé haldið við á
íþróttavelliftum, þegar hægt
sé að nota svellið á Tjörninni
með minni tilkosnaði, en sú
skoðun hefur komið fram í
blöðum. Sagðist hann vera
alveg óhræddur um að hafa
telpuna sína á íþróttavellinum
á skautum, þar sem væri gott
eftirlit og engin hætta af vök-
um eða öðru. Þess misskiln-
ings gætti sjá sumum að börn-
in yrðu fyrir fjárútlátum af
þessu, en svo væri ekki. Það
kostaði ekkert að vera á í-
þróttavellinum. Um annan
kostnað væri það að segja að
3—4 menn gætu haldið svell-
inu í góðu lagi á íþróttavell-
inum, þessa daga sem frost
væri, en tjarnarsvellið þyrfti
einnig að hreinsa og laga, og
lýsa það upp, ef nota ætti það.
einum, sem skattalækkunarinnar
njóta beinlínis.
í öðru lagi er það vitað, að
hinir háu tekjuskattar skapa
þjóðfélagslegt ranglæti vegna
þess, að f jölmennar starfsstétt
ir í þjóðfélaginu hafa þá að-
stöðu, að ekki er kleift að hafa
neitt eftirlit, er að gagni má
verða, með því, að tekjur
þeirra séai rétt taldar fram,
þannig að þeir, sem þessum
stéttum tilheyra, geta í raun
inni ákveðið skatta sína sjálf-
ir. En þar sem þessi hlið máls-
ins mun verða nánar rædd,
þegar tekjuskattsfrv. kemur
fyrir þessa hv. deild þá sé ég
ekki ástæðu til þess að ræða
hana nánar að svo stöddu, en
af þeim ástæðum, sem hér
hafa verið greindar, þá mælir
meirihluti f járhagsnefndar
með samþ. þessa frumvarps.
hvernig fimmtu ferðinni verður
ráðstafað.
Mun ætlunin að Skymaster-vél
ar annist ferðir til Hamborgar
með viðkomu á Norðurlöndum,
eins og verið hefur að undan-
förnu. Bendir því allt til, að
Skymaster-vélar verði áfram í
förum á leiðum félagsins til Sví-
þjóðar, Danmerkur og Þýzka-
lands.
Ólafsvíkingar
fá nýjan bát
ÓLAFSVÍK, 14. marz. — Hingað
kom nýr bátur, Valfell, á sunnu-
dag. Þetta er 70 lesta bátur, eign
Jónasar Guðmundssonar, sem er
skipstjóri á honum, og Kaup-
félagsins Dagsbrúnar.
Báturinn er smíðaður í Nyköb-
ing í Danmörku. I honum eru
tvær 240 ha. General Motors vél-
ar, ásamt 20 ha. ljósavél. Bátur-
inn hefur rafknúið vökvastýri og
sjálfvirkan stýrisútbúnað. Einnig
er hann búinn öllum nýjustu
siglingatækjum, svo sem radar,
dýptarmæli, fisksjá og síldarleit-
artækjum. Ganghraði í reynslu-
ferð var 12 mílur, en á leið til
íslands til jafnaðar 10 mílur á
klst.
Valfell kom til Ólafsvíkur á
sunnudagsmorgun og hélt á veið-
ar 6 klukkustundum síðar.
Góður afli
Afli hefur verið góður að und-
anförnu og eru sumir bátar bún-
ir að fá helmingi meira en á
sama tíma í fyrra. Heldur fisk-
aðist minna undir helgina síð-
ustu, en samt var ágætis afli.
— Fréttaritari.
• SKÁK •
KEFLAVÍK
ABCD EFGH
AKRANF.S
Keflvíkingar gefa skákina
— og þeir senda Akurnesing-
um árnaðaróskir og þakka
þeim fyrir skemmtilega skák.
skrifar ur
daglegq lifirui
)
Þjóðverjar segja NEI
Cloudmaster ekki
til Hamborgar