Morgunblaðið - 15.03.1960, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. marz 1960
TTtg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
ÍÍUstiórar: Vaitýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
\
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 40,00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið
VERZLUNAR-
BANKI
AÐALFUNDI Verzlunar-
sparisjóðsins er nýlega
lokið. Af skýrslum þeim, sem
þar voru gefnar um hag hans,
hans, er augljóst, að spari-
sjóðurinn er vel rekinn og
þróttmikil stofnun, sem eflist
með ári hverju.
í árslok 1956, þegar sjóður-
inn hafði starfað í aðeins 3
mánuði, voru innstæður í
honum orðnar 23,4 millj. kr.
í árslok 1957 námu innstæð-
urnar 76,8 millj. kr. í árslok
1958 voru þær 115,7 millj. kr.
og í árslok 1959 námu inn-
stæðurnar 153,5 millj. kr.
Af innstæðunum í árslok
1959 voru 113,5 millj. kr. al-
mennar sparisjóðsinnstæður.
Höfðu innstæður aukizt um
37,8 millj. kr. á árinu, þar af
25,4 millj. kr. í sparisjóðs-
reikningum.
Verzlunarsparisjóðurinn
er nú orðinn langsamlega
stærsti sparisjóður lands-
ins. Er óhætt að fullyrða að
hann hafi orðið verzlun og
margs konar viðskiptum í
landinu að miklu gagni á
þeim stutta tíma, sem hann
hefur starfað.
Víkkað starfssvið
A síðasta aðalfundi spari-
sjóðsins hmn 5. marz sl. var
samþykkt tillaga, þar sem
stjórn sjóðsins var falið að
vinna markvisst áfram að
stofnun Verzlunarbanka.
í sambandi við samþykkt
þessarar tillögu, er ástæða til
þess að benda á það, að með
henni fer sparisjóðurinn ekki
fram á nein fríðindi hjá ríkis-
sjóði. Hann biður hvorki um
stofnfjárframlag frá opinber-
um aðilum né heldur ríkis-
ábyrgðir. Það sem fyrir for-
ystumönnum Verzlunarspari-
sjóðsins vakir er fyrst og
fremst að bæta aðstöðu sjóðs-
ins og víkka starfssvið hans.
Ef sjóðnum yrði breytt í
banka, gæti hann t. d. stofn-
að útibú víðar út um land og
ef til vill fengið aðstöðu til
gj aldeyrisviðskipta.
í öllum löndum eru verzl-
unarbankar starfandi og er
síður en svo óeðlilegt að slíkri
stofnun verði komið hér á fót.
V erzlunarsparis j óðurinn
hefur farið vel af stað. Hon-
um hefur á örskömmum tíma
vaxið svo fiskur um hrygg,
að allt bendir til þess að hann
geti nú þegar eða innan
skamms tíma rækt hlutverk
verzlunarbanka, sem væri
ekki aðeins mikilvæg stoð
fyrir verzlun og viðskipti í
landinu heldur og fyrir at-
hafnalíf þjóðarinnar í heild.
KORNRÆKT
T ÚTVARPSÞÆTTI síðastl.
■*- sunnudagskvöld bar mögu
leika til kornræktar hér- á
landi nokkuð á góma. Var því
þar haldið fram, að hún ætti
hér svo erfitt uppdráttar, að
varla kæmi til mála að rækta
hér korn.
Það er að sjálfsögðu rétt, að
legu íslands skapar meiri
vandkvæði á kornyrkju hér
á landi en t. d. í flestum ná-
grannalöndum okkar. En það
breytir ekki þeirri staðreynd,
að hér er hægt að rækta viss-
ar korntegundir með sæmi-
lega árvissum árangri. Það
sýna þær tilraunir, sem
Klemenz á Sámstöðum hefur
gert á þessu sviði í áratugi,
og kornrækt Sveins á Egils-
stöðum og fleiri dugmikilla
bænda bæði á Suður-, Aust-
ur- og Norðurlandi.
Þjóðhagslega hagkvæmt
Um það þarf þess vegna
ekki að fara í neinar grafgöt-
ur, að það væri þjóðhagslega;
mjög hagkvæmt fyrir okkur
íslendinga, ef við gætum til
dæmis ræktað allt það fóður-
korn, sem við þurfum á að
halda. Og það eigum við að
geta með góðu móti.
Vitanlega er það engin
sönnun þess, að við eigurn
ekki að snerta við kornrækt
á íslandi, að aðstaða til henn-
ar hér sé erfiðari en í mörg-
um öðrum löndum. Ef fylgja
ætti þeirri röksemdarfærslu
væri það bláber heimska að
vera t. d. að fást hér við
kartöflurækt. Allir vita, að
fjölmörg önnur lönd eru bet-
ur fallin til kartöfluræktar en
Island. Fáum heilvita mönn-
um mun þó koma til hugar að
íslendingar eigi að leggja nið-
ur kartöflurækt sína, sem orð-
in er hér árviss framleiðslu-
grein.
Leonard Warren lézf á
sviðinu í Metropolitan
HINN heimskunni bandaríski
söngvari Leonard Warren, sem
álitinn er einn mesti bariton-
söngvari sem uppi hefur verið,
lézt skyndilega á sviði Metro-
politan-óperunnar í New York
laugardaginn 5. þ.m. Fékk
hann heilablóðfall, er hann
hafði lokið við að syngja arí-
una „Urna fatale del mio dest-
Leonard Warren — lék sér að
„háa c-inu“ . . .
ino“ í óperunni Vald örlag-
anna eftir Verdi.
Dánarstund Warrens var
mjög áhrifamikil og mun hinn
dásamlegi söngur hans þetta
kvöld verða öllum ógleyman-
legur, sem þarna voru við-
staddir.
★ FÉLL ÖRENDUR í
FAGNAÐARSÖNGNUM
Þetta kvöld var mikil hátíð
í Metropolitan óperunni. Menn
voru að bjóða velkomna aft-
ur úr Evrópu-för hina heims-
frægu ítölsku söngkonu Ren-
ata Tebaldi og var söngleik-
urinn Vald örlaganna fluttur
af því tilefni. Fór Leon-
ard Warren með hlutverk
Don Carlos. Hann söng
hinn fræga dúett „Solenne
in quest’ora“ með ameríska
tenórnum Riohard Tucker.
Fannst áheyrendum, að þeir
hefðu aldrei heyrt þennan
dúett fluttan með eins miklum
glæsibrag. •
Skömmu síðar stóð Waren
einn á sviðinu og söng um
mikilleika dauðans, „recitativ
ið“ „Morir! .... Tremenda
cosa!“ — en vinur hans og
vopnabróðir er mikið særður
og vart hugað líf — og síðan
aríuna „Urna fatale del mio
destino", (sem þýðir nánast:
— Bannvænn bikar örlaga
minna). Hana flutti hann
einnig með óvenjulegum glæsi
brag. Var honum því fagnað
með sérlega löngu og hjart-
anlegu lófataki.
Skurðlæknirinn í söngleikn-
um kom nú hlaupandi inn og
tilkynnti Don Carlo, að lífi
félaga hans væri bjargað. —■
Svaraði Warren því með því
að syngja fagnaðarsönginn
„Oh gioia, oh gioia“, og
hélt uppi mynd af Leonoru
(Renata Tebaldi). En allt í
einu missti Warren myndina
úr höndum sínum og rétt í
sama mund féll hann niður og
lá sem líflaus.
★ EIN HRYGGILEGASTA
STUND í SÖGU METRO-
POLITAN
Thomas Shippers hljóm-
sveitarstjóri stöðvaði hljóm-
sveitina og var tjaldið fellt,
en um leið og það var dregið
fyrir, kom tenórinn Tucker,
sem staðið hafði að tjaldabaki
hlaupandi fram á sviðið og
hrópaði: „Lennie, Lennie, hvað
er að? Rístu á fætur!“ —
Rétt í sama mund hafði
hann sagt við konu Warrens
og Rudolf Bing framkvæmda-
stjóra óperunnar, sem stóðu
hjá honum og voru einnig að
hlusta á sönginn: „Hvílík
dýrðarrödd!" —
Varð nú alllangt hlé, um
hálftíma, en Rudolf Bing kom
loks fram og tilkynnti eftir-
farandi:
„Þetta er einhver hryggileg-
asta stund í sögu Metropolitan
óperunnar“.
Það heyrðist hrópað í saln-
um: „Nei, það getur ekki ver-
ið!“
En Rudolf Bing hélt áfram:
„Má ég biðja viðstadda að
rísa úr sætum sínum“. Áhorf-
endur stóðu sem þrumu lostn-
ir og konur í salnum fóru að
gróta og ekka setti að mörg-
um karlmanninum.
Bing hélt áfram: Vér minn-
umst eins glæsilegasta söngv—
ara okkar, sem dó hér mitt á
meðal vor í miðjum einum
glæsilegasta flutningi sínum.
— Ég veit, að hann hefði ekki
kosið að skilja við á nokkurn
annan hátt fremur".
Og enn sagði hann, eftir
nokkra þögn:
„Ég er viss um, að þér eruð
mér sammála um, að það er
ekki mögulegt að halda áfram
flutningi verksins í kvöld“.
A RÖDD, SEM ÁTTI FÁA
SÍNA LlKA
Leonard Warren fæddist í
New York árið 1911, sonur
rússnesks innflytjanda, sem
stundaði loðskinnasölu. —
Hann hóf söngnám þegar sem
drengur — en þegar hann var
19 ára, hóf hami námið fyrst
fyrir alvöru.
Árið 1938 veðjaði hann um
það við einn kunningja sinna
að hann gæti komizt að við
Metropolitan-óperuna. Hann
söng þar til reynslu — og þeg-
ar hljómsveitarstjórinn Wil-
fred Pelletier heyrði rödd
hins unga og óþekkta söngv-
ara, hélt hann að brögð væru
í tafli — að einhver hefði
laumazt til þess að spila hljóm
plöti# með frægum bariton-
söngvara og ungi maðurinn að
eins „leikið“. En það fór ekki
milli mála — þetta var rödd
hins unga Leonards Warrens,
rödd, sem síðan átti eftir að
hljóma rúm 20 ár frá sviði
Metropolitan — rödd, sem hef
ir átt fáa sína líka. — Frum-
raun sína á sviðinu þreytti
Warren í hinu litla hlutverki
Paolo Albianis í óperunni
Simon Boccanegra eftir Verdi.
Næstsíðasta hlutverkið, sem
hann söng, var titilhlutverkið
í sömu óperu, þar sem hann
þótti vinna mikið listafrek.
★ NÁKVÆMUR OG
KRÖFUHARÐUR
Warren eyddi alltaf miklum
tíma í að læra og móta hlut-
verk sín — og t.d. var haft eft-
ir honum nú fyrir skemmstu,
að honum hafi þá loks farið að
þykja sem hann væri að kom-
ast til botns í hlutverki Rigo-
Framhald á bls. 12.
fi
......
Á þessum myndum sést Leonard Warren í nokkrum þeirra
hlutverka, sem hann varð frægastur fyrir. — Að ofan: í „Valdi
örlaganna" og „I Pagliacci“. — Að neðan: „Simon Boccanegra"
og „Rigoletto“.