Morgunblaðið - 18.03.1960, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 18. marz 1960
— Landhelgis-
rábsietnan
Framh. af bls. 1
fjölda erlendra fiskiskipa, eða
hámarksveiði að þunga.
Stavropoulos sagði, að helzt
væri von um, að lögiegt sam-
þykki fengist fyrir 6 mílna land-
helgi og 6 mílna fiskveiðitak-
mörkum til viðbótar — í ein-
hverju formi. Hugsanleg væru
afbrigði frá þeim tillögum, sem
nú væri vitað um — svo sem
varðandi ákvæði um varðveizlu
sögulegra réttinda. — Til dæmis
talaði hann um þann möguleika,
að samþykkt yrði 6 mílna lög-
saga, að viðbættum þrem mílum,
þar sem strandríki hefði einka-
rétt til veiða — en á milli níu og
tólf mílna yrði tekið tillit til
sögulegra réttinda, þ. e. að er-
Iendar þjóðir, sem þar . hefðu
stundað veiðar um svo og svo
langan tíma, nytu þeirra réttinda
áfram í einhverri mynd.
* HEILSAÐI ÍSLEND-
INGUM VIRÐULEGA
Eins og fyrr segir, voru full-
trúar 84 þjóða mættir til fundar
89 þjóðum hafði verið boðið, eða
þremur fleiri en á ráðstefnuna
1958, þ. e. Eþíópíu, Súdan og
Gíneu. Tvær þjóðir afþökkuðu,
Afganistan og Nepal, en ókomnir
eru fulltrúar Haiti, Jórdaníu og
Nikaragúa. Langflestar sendi-
nefndirnar eru skipaðar sömu
fulltrúum og síðast — og stóðu
menn lengi í hópum á salargólfi
áður en fundur hófst og endur-
nýjuðu gömul kynni.
Það vakti athygli, að brezki
ráðherrann gekk til íslenzku
sendinefndarinnar áður en ráð-
stefnan hófst og heilsaði virðu-
lega. Virðist svo sem Bretar leggi
áherzlu á að vinna sér álit hér.
— Viðstaddir voru sex fulltrúar
íslendinga.
★ TRÚI, AÐ LAUSN
FINNIST
Kl. 3 setti svo Stavropoulos
ráðstefnuna, en fyrsti ræðumað-
ur var Georges Palthey, fram-
kvæmdastjóri Evrópuskrifstofu
Sameinuðu þjóðanna, sem mun
verða einskonar framkvæmda-
stjóri ráðstefnunnar.Kvaðst hann
mundu gera allt, sem hann mætti,
til að auðvelda störfin. — Þá
flutti Stavropoulos, sem er for-
maður laganefndar S. þ., ávarp —
en hann gegndi einnig þessu hlut
verki á ráðstefnunni 1958. —
Kvað hann árangur þsirra funda
hafa orðið mikinn — m. a. hefðu
verið gerðir fjórir sáttmálar og
afgreiddar níu ályktanir.
Hins vegar, sagði Stavropoulos,
varð ekkert samkomulag um þau
atriði, sem þessi ráðstefna fjallar
um — breidd landhelgi og fisk-
veiðasvæðis. Hann kvaðst ekki
vilja vanmeta stjórnmálaleg og
efnahagsleg vandamál í þessu
sambandi; þau væru flókin — en
þó taldi hann þau alls ekki óleys-
anleg. — Ég trúi því, að lausn
finnist, sem þjóni alþjóðlegum
hagsmunum, sagði hann. — Loks
færði hann ráðstefnunni kveðjur
frá Hammarskjöld, framkvstj.
S. þ.
+ DRUN GALEGUR
SVIPUR
Þá tilkynnti hann kosningu for
seta, en áður en til kosninga væri
gengið, reis Tukin frá Rússlandi
upp og talaði. — Kvað hann ekki
sæmandi, að „Rauða Kína“ væri
ekki þátttakandi í ráðstefnunni.
Arthur Dean frá Bandaríkjunum
svaraði og benti á ályktun Sam-
einuðu þjóðanna um að bjóða
meðlimaríkjum sínum og þátt-
tökuríkjum í stofnunum S. Þ.
/' NAIShnútar S V 50 hnúiar ¥ Snjó/coma > 06,i \7 Skúrir IC Þrumur Kufdaski/ Hitaski! H HatÍ L Latqi
ísbeltið v/ð Grænland á kortinu
ÍSBELTIÐ við Grænland er
teiknað á kortið í dag. Upp-
lýsingar þessar eru samkvæmt
hafiskönnun Dana á Græn-
.andi. Svæðið við Hvarf var
athugað 14. þ.m., en nyrðra
svæðið 10 þ. m. Var ísinn víða
gisinn yzt, en hafþök nær
landi. Stórar vakir voru aust-
ast, eða þar sem ísröndin sveig
ir til suðausturs í áttina til
íslands. Talsvert var um borg-
arís miðja vegu milli Angmasa
lik og Aputiteq.
Lægðin á kortinu er um
750 sjómílur SV af Islandi.
Hún þokast N eða NA og mun
ásamt hæðinni yfir Norður-
löndum halda áfram að beina s
hlýju lofti hingað til lands úr s
suðaustri í nokkur dægur enn. ■
Veðurspáin kl.
kvöldi:
10 í gær- j
SV-mið: Allhvass austan og \
SA, stormur austan til í nótt, S
skýjað en úrkomulítið.
SV-land, Faxaflói og Faxa- ;
flóamið: A-kaldi og síðar stinn S
ingskaldi, skýjað með köflum. |
Breiðafj. til Austfjarða og;
Breiðarfj.mið til NA-miða: s
SA-gola, léttskýjað. i
SA-land, Austfj.mið og SA- \
mið: A-kaldi, skýjað en úr-s
komulaust að mestu. S
S
Misrœmi í skattlagningu
Ur ræðu Magnúsar Jónssonar
I FRAMSÖGURÆÐU sinni
fyrir nefndaráliti meiri hluta
fiárveitinganefndar drap
Magnús Jónsson á misræmi
það sem nú er í skattlagningu
benzínbifreiða og dieselbif-
reiða. Komst hann þannig að
orði:
—f sambandi við benzínskatt-
inn er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir því, að dieselbifreið-
um fjölgar stöðugt, og þeim mun
fjölga því meir sem misræmi
verður meira í skattálagningu á
benzínbifreiðar og dieselbifreið-
ar. Rúmlega 10 af hundraði allra
vörubifreiða voru um síðustu
áramót með dieselvélum eða alls
615 bifreiðar. Skattar og tollar af
benzíni mun nú vera 1,91 af
hverjum benzínlítra, en allur
skattur á hráolíur kr. 3,17 a
hverja þúsund lítra, samkvæmt
upplýsingum, sem vegamála-
stjóri hefir tekið saman fyrir fjár
veitinganefnd. Skattur á benzíni
er því liðlega 600-falt hærri en
á hráolíu. Diesel-bifreiðar greiða
að vísu allmikla hærri þungá-
skatt en benzínbifreiðar, en þeg-
ar fimm tonna benzínbifreið hef-
ur ekið 30 þús. km. hefir hún
greitt þrefalt meira í skatt af
Dagskrá Alb’mgis
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis. Eitt mál er
á dagskrá efri deildar: Síldarút-
vegsnefnd o. fl., frv. — 1. umr.
Á dagskrá neðri deildar ar eitt
mál: Jarðræktarlöv. fry — 3.
umr.
Þessi ráðstefna hefði ekki umboð
til þess að fjalla frekar um þetta
mál. — Urðu nú alllangar um-
ræður, sem settu drungalegan
svip á ráðstefnuna — endurtekn-
ing þess, sem gerist á flestum
alþjóðaráðstefnum, að því er
varðar Kína. Engin atkvæða-
greiðsla fór fram, þar sem Rúss-
inn bar ekki fram neina tillögu.
* WAN PRINS FORSETI
ÖÐRU SINNI
Næst stóð upp fulltrúi Ind-
lands, Asak Sen, og stakk upp á
Wan prins frá Síam sem forseta
ráðstefnunnar. Hann var einnig
forseti ráðstefnunnar 1958 og
reyndist íslendingum heldur óvin
samlegur. Ekki kom fram önnur
tillaga um forseta og var Wan
prins því kosinn. — Hann þakk-
aði og tók við fundarstjórn. Futti
hann 10 mínútna ræðu og skor-
aði á fulltrúa að beita allri vizku
sinni, hæfileikum, þolinmæði —
og sáttavilja, til þess að ná rétt-
látu og sanngjörnu samkomulagi,
sem uppfyllti kröfur tímans.
Fullvissaði hann fundarmenn
um, að hann mundi gera það, sem
í hans valdi stæði, til þess að
árangur næðist.
— ★ —
Correo frá Ekvador var í einu
hljóði kosinn formaður heildar-
nefndar, sem er eina starfandi
nefndin. A hún að sitja á fundum
alla næstu viku.
Fundir hennar geta kallazt alls
herjarfundir, eru 'opnir fyrir al-
menning. Hugsazt getur, að und-
irnefndir verði stofnaðar. — A
morgun verður áfram allsherj-
arfundur, kosningar og almenn-
ar umræður. — Wan prins skor-
aði á sendinefndir að skila til-
lögum sem fyrst. Búizt er við
kanadisku tillögunni strax, en
Bandaríkjamenn draga sennilega
eitthvað að leggja sínar tillögur
fram formlega.
Hlutavelta
Sjálfsbjargar
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra í
Reykjavík, efnir til hlutaveltu í
MÍR-salnum, Þingholtsstræti 27,
þann 20. marz n.k.
Einna efst á baugi hjá félaginu
er að bæta úr húsnæðiserfiðleik-
um þeim, sem margir fatlaðir
hafa við að búa, og verður hluta-
veltan skref í áttina til fjárhags-
grundvallar að byggingu sambýl-
ishúss fatlaðra.
Ágreíningur um neðan-
iarðarsprengju
Genf, 11. marz — (Reuter) —
FULLTRUI Sovétríkjanna á
fundi stórveldanna Um bann
við kjamorkuvopnatilraun-
um, Tsarapkin, gagnrýndi á
fundinum í dag þá fyrirætlun
Bandaríkjanna að sprengja
„kjarnahleðslu“ neðanjarðar
í janúar næsta ár. Kvaðst
hann harma þessar fréttir. —
Fréttaritarar tóku þó fram, að
Tsarapkin hefði verið hógvær
í orðum, miðað við ýmsar
fyrri árásir hans á Banda-
ríkin.
Eden varar við
bjartsýni
JLONDON, 17. marz (Reuter
Anthony Eden, fyrrverandi
forsætisráðherra, sem kom
til Lundúna í dag frá Vest-
ur-Indíum, varaðí menn við
of miKilli bjartsým á árang
ur af afvopnunarráðstefn-
unni í Genf — heims-
vandamálin væru síður en
svo auðveldari viðfangs en
áður, miklu fremur gerðust
þau nú erfiðari á ýmsum
sviðum.
— Agreiningur
Framh af bls. 1
lcgur andi hafi ríkt á ráðstefn-
unni í dag.
-Jé Gagnrýni í Moskvu
Moskvuútvarpið gagnrýndi til-
lögur vestrænu ríkjanna all-
ha.rðlega í dag. Sagði það,
að þær endurspegluðu kröf-
ur „Pentagon-hershöfðingjanna"
bandarísku, eins og það var orð-
að, um áframhaldandi vígbúnað
og tilraunir með kjarnorkuvopn.
Þá sagði útvarpið, að í tillögun-
um væru á engan hátt „túlkaðar
skoðanir almennings í heimin-
um“. Þá hafði útvarpið það eftir
stjórnarblaðinu „Izvestia", að til-
gangurinn með tillögunum væri
að „koma á eftirliti með vopna-
bu. . , ekki afvopnun!
•fa „Óheppileg áhrif“
Sovétfulltrúinn lét svo um
mælt, að tilkynningin um þessa
fyrirhuguðu sprengingu hlyti að
hafa „óheppileg áhrif“ á starf
ráðstefnunnar. Sagði hann, að
ekkert samkomulag hefði enn
náðst um þá grein væntanlegs
samnings, sem kveða skyldi á um
kjarnasprengingar, sem fram-
kvæmdar væru í friðsamlegum
tilgangi. Kvaðst hann vona, að
austur og vestur hefðu náð
heildarsamkomulagi um þessi
mál, áður en til þess kæmi, að
Bandaríkjamenn framkvæmdu
umrædda sprengingu.
ir Wadsworth mótmælti
Wadsworth, fulltrúi Banda-
ríkjanna, svaraði Tsarapkin og
sagði, að þar sem þegar lægi fyr-
ix samkomulag í grundvallaratrið
um um það, að í væntanlegum
heildarsamningi yrði ákvæði,
sem leyfði slíkar „friðsamlegar"
sprengingar, sæi hann ekki, að
neitt gæti mælt gegn því, að
Bandaríkin héldu fast við þessa
áætlun sína.
benzíninu en nemur þungaskatti
dieselbifreiðarinnar. Ef ekki verð
ur breyting á þessu hlutfalli, má
ótvírætt gera ráð fyrir, að tekjur
af benzínskatti fari á næstunni
minnkandi. Er því nauðsynlegt
að taka málið í heild til endur-
skoðunar. Eðlilegt er að umferð-
in beri að verulegu leyti uppi
kostnað við vegakerfið, og þótt
vafalaust sé þjóðhagslega skyn-
samlegt að örva notkun diesel-
bifreiða, þá má ekki hafa mis-
mun álagnanna of mikinn. Ber
í því sambandi að geta þess, að
dieselbifreiðarnar eru yfirleitt
stórar og þungar og fara því verr
með vegina en benzínbifreiðarn-
ar.
Syngman Rhee f or-
seti í fjórða sinn
SEUL, Suður-Kóreu, 17. marz.
Reuter: — í forsetakosningunum
í Suður-Kóreu á þriðjudaginn
var Syngman Rhee endurkjör-
inn forseti í fjórða skipti í röð
— hlaut hann 92% greiddra at-
kvæða, eða rúmlega 9,6 milljón-
ir. Rhee er nú 84 ára að aldri.
Flokksbróðir hans, Lee Ki
Poong, var kjörinn varaforseti
með yfirgnæfandi meirihluta, eða
78% greiddra atkvæða. — Stjórn
arandsíöðuflokkurinn, demókrat-
ar, hefir lýst því yfir, að kosn-
ingarnar séu ólöglegar, þar sem
margs konar rangindi og hlut-
drægni hafi verið viðhöfð t. d. við
talningu atkvæða — og muni
flokkurinn kæra til æðsta dóm-
stóls landsins til þess að fá kosn-
ingarnar ógiltar.
Kosningabaráttan var mjög
hörð, og í uppþotum, sem urðu
í Masan á kosningadaginn, biðu
14 manns bana, en 39 særðust
Litli priiisiiui
ljósmyndaður
LONDON, 16. marz. (Reuter):—
Tvennt gerðist merkilegt í kon-
ungsgarði — eða réttara sagt
„drottningargarði“ — í dag. — I
fyrsta lagi veitti Elísabet drottn-
ing formlegt samþykki sitt við
ráðahag þeirra Margrétar prins-
essu óg ljósmyndarans Arm-
strong-Jones. Var þetta forms-
atriði, samkvæmt lögum. Hjóna-
vígslan á að fara fram 6. maí n.k.
í Westminster Abbey.
I öðru lagi voru teknar fyrstu
myndirnar til opinberrar birt-
ingar af hinum nýfædda prinsi —
ásamt foreldrum og systkinum.
Myndirnar tók hinn kunni ljós-
myndari Cecil Beaton.
Ný
pund
Sýnishom
af nýju
punds-
seðlunum
NÝIR pundsseðlar voru teknir í
notkun í Bretlandi í gær og eru
bankagjaldkerar, þeir sem ekki
eru örfhentir, öskuvondir.
Englandsbanki hefur nefnilega
látið prenta númer seðlanna efst
vinstra megin og neðst hægra
megin, en það er alveg öfugt við
það sem verið hefur undanfarnar
aldir.
Edgar Bell, formaður samtaka
bankastarfsmanna, segir að hinir
nýju seðlar muni tvöfalda Vuuu
gjaldkeranna.
„Annað hvort verða þeir að
nota vinstri höndina, sem er ó-
þægilegt, eða þeir verða að taka
upp hvern seðil fyrir sig“.
Gjaldkerar bankanna eru van-
ir því að athuga númerin á nýj-
um peningaseðlum sem þeir fá,
tii að ganga úr skugga um að
ekkert vanti í pakkana. Fletta
þeir þá seðlunum á efra horni
hægra megin með miklum hraða.