Morgunblaðið - 23.03.1960, Qupperneq 1
24 síður
Tvær tillögur í Genf:
Rússar vil ja 12
Mexikó allt að 18 mílur
Genf, 22. marz. — Frá frétta-
ritara Morgunblaðsins. —■
FYKSTU tvær tillögurnar
um lögsögu-landhelgi og
fiskveiðirétt strandríkja
komu fram á ráðstefnunni í
dag. Rússar lögðu til, að sér-
hverju ríki yrði heimilt að
ákveða breidd landhelginnar
að 12 mílum. Hin tillagan,
sem Mexícó ber fram, er líka
hyggð á 12 mílum, en felur
það í sér, að þeim mun minni
landhelgi, sem strandríki taki
sér, þeim mun stærri fisk-
veiðilandhelgi geti það á-
kveðið.
12 mílur hámark
Rússneska tillagan var á þá
lund, að strandríkjum yrði heim-
Kosið í Alsír
PARÍS, 22. marz. — Franska
stjórnin hefur ákveðið, að kosið
skuli í bæjar- og sveitarstjórnir
1 Alsir þann 29. maí í vor. Það
er upplýst, að Frakkar búsettir
í Alsír eiga að hljóta þriðjung
sæta þeirra, sem kjörið verður í.
ilt að ákvarða lögsögulandhelgi
sína allt að 12 mílur. Ef ríki
ákvæði landhelgina minni en 12
mílur, mætti það hafa sérstök
fiskveiðitakmörk utan við land-
helgislínuna, en breidd landhelg-
innar og hinnar aukalegu fisk-
veiðilandhelgi skyldi þó ekki
vera meiri en 12 mílur saman-
lagt. Samkvæmt rússnesku til-
lögunni á viðkomandi strandríki
að hafa sama rétt til fiskveiða og
nýtingu auðlinda innan fiskveiði
takmarkanna og það hefur inn-
an landhelginnar, enda þótt land
helgin sé innan við 12 mílur.
Ekki andsíætt alþjóðalögum
Tunkin, fulltrúi Rússa, fylgdi
tillögunni úr hlaði með hólfrar
stundar ræðu. Sagði hann, að
sögulegar rannsóknir leiddu í
ljós, að strandríkin hefðu sjálf
ákveðið breidd landhelginnar
eftir eigin hagsmunum. Það
væri ekki verkefni þessarar ráð-
stefnu að ákveða breidd land-
helginnar, heldur hámark. Benti
hann á, að laganefndin hefði úr-
skurðað, að 12 mílna landhelgi
bryti ekki í báða við alþjóða-
lög.
Á síðustu ráðstefnu var því
hafnað ,að gengið yrði út frá
þremur mílum sem grundvallar-
Framh. á bls. 2.
Loftid /æv/ blandió
Mannfall enn í gær
HÖFÐABORG, 22. marz. — Þrír
blökkumenn féllu í dag, er Jög-
I sviss-
neska
úfvarpinu
) GENF, 22. marz. Einkaskeyti)
) til Morgunblaðsins.
Helmuth Gottschalk, fyrir-(j
' lesari svissneska útvarpsins, (
átti í kvöld útvarps-samtal við /
' Jón Jónsson, fiskifræðing. —/
) Skýrði Jón á skemmtilegan)
)hátt í stuttu máli þörf íslandsj
\fyrir útfærslu fiskiveiðiland-(
, helginnar. íslendingar hefðu(
1937 og 1947 reynt að ná sam-
' komuagi við Breta um friðun,/
1 en mistekizt. ísland hefði því)
) fært fiskiveiðitakmörkin ein-)
) hliða út í 12 mílur til að(
vtryggja fiskveiðar sínar, þvíC
rannsóknir hefðu leitt í ljós(
ofveiði eftir stríðið. Hann/
)sagði, að margir íslendingar/
I teldu þörf fyrir 17 mílna fisk-
) veiðilögsögu, eða allt landA
i grunnið. Síðan lýsti Gott-
. schalk valdbeitingu Breta, (
veiðum þeirra undir herskipa- (
vernd síðasta árið.
regla var kvödd á vettvang til
þess að drcifa hópi blökkumanna
sem létu ófriðlega. Þetta er ann-
ar dagurinn í röð, sem blóðsút-
hellingar verða í Suður-Afriku
vegna átaka þeirra, sem nú eiga
sér stað milli stjórnarinnar og
blökkumanna.
69 hafa fallið.
Hafa blökkumenn verið skyld-
aðir til að bera vegabréf, en þeir
mtómæla og hefur deilan magn-
azt dag frá degi. Allt var með
kyrrum kjörum í landinu í
kvöld, en loftið lævi blandið að
er fréttaritarar sögðu.
í gær féllu 66 þeldökkir og 186
særðust. Varalið lögreglu hefur
hvarvetna verið kvatt á vettvang
og óku lögreglumenn í brynvörð
um vögnum um mestu ófriðar
svæðin. Aðalátakasvæðið í gær
var í Sharpeville, skammt utan
við Jóhannesarborg.
Gegu Kassem
BEIRUT, 22. marz. — Sex féllu
og 20 særðust, er hermenn hófu
skothríð á andstæðinga stjórnar-
innar, sem létu ófriðlega í Bagdad
í gærkvöldi, sagði eitt Beirut-
blaðanna í dag. Fregnir berast um
átök annars staðar í landinu. Á
einum stað eru 15 sagðir hafa
fallið fyrir byssukúlum her-
manna.
Yfirmenn á tog-
urunum boða
til verkfalls
YFIRMENN á íslenzka togara-
flotanum boðuðu til verkfalls í
gærkvöldi, sem hefjast á að mið-
nætti 29. þ. m., ef samningar hafa
ekki tekizt fyrir þann tíma.
Samningsaðilar, sem eru ann-
ars vegar Félag ísl. botnvörpu-
skipaeigenda og hins vegar Skip-
stjóra- og stýrimannafélagið Ald-
an, Skipstjórafélagið Ægir, Vél-
I
S-Afríku
stjórafélag Islands, Félag ísl.
loftskeytamanna, öll í Reykjavík,
og Skipstjóra- og stýrimannafél.
Kári, Hafnarfirði — hafa marga
undanfarna mánuði haft lausa
samninga.
Samningsviðræður hafa farið
fram síðan uppsögn átti sér stað,
lengst af fyrir milligöngu sátta-
semjara, og var hann síðast á
fundi með aðilum í gærdag og
í gærkvöldi. Lauk þeim fundi kl
tæplega 21, með því, eins og fyrr
segir, að yfirmennirnir boðuðu til
verkfalls.
í dag kemur Krúsjeff, for-
sætisráðherra Sovétríkj-
anna, til Parísar til við-
ræðna við de Gaulle forseta.
— Krúsjeff mun ferðast
nokkuð um Frakkland á
meðan hann dvelst þar. Af
öryggisástæðum mun fjöldi
lögreglumanna á mótorhjól
um alltaf verða í fylgd með
honum — verða þeir sam-
tals um 120, og munu um-
kringja bifreið forsætisráð-
herrans á ökuferðunum. .
Þessi mynd var tekin um
daginn, er lögreglumennirn-
ir voru að æfa sig fyrir hið
ábyrgðarmikla hlutverk sitt
að gæta Iífs og lima sovézka
forsætisráðherrans. — Krú-
sjeff verður í bíl sínum inni
í miðjum hópnum — þar
sem K-ið er á myndinni.
10 þúsund
Ekki vantraust, segir Ver-
woerd.
Stjórnarandstaðan hefur kraf-
izt þess, að Verwoerd, forsætis-
ráðherra, segi af sér, en hana
lýsti því yfir í dag, að hann teldi
atburði þessa ekki vantraust á
stjórn sína. Stjórnandstaðan
krafðizt þess ennfremur, að
gengið yrði til móts við kröfur
blökkumanna og þeim veitt rétt-
arbót. Það væri að berja höfð-
inu við steininn að ætla að halda
í almenn réttindi við blökku-
menn. Friður kæmist aldrei á
í landinu fyrr en tekið hefði ver-
ið fyrir allar viðsjár með kyn-
flokkunum.
| Jafntefli
| í Moskvu
|MOSKVU, 22. marz: — Fjórða
.skák þeirra Botvinninks og
Tals varð jafntefli. í miðri1
skák átti Botvinnik allmikla
Ivinningsmöguleika, en hann
Ivar þá kominn í talsverða
)tímaþröng. Tal tókst að jafna
skákina með sérlega glæsi-
iegri taflmennsku, og varð1
Botvinnik að láta sér nægjal
Ijafntefli eftir 43 leiki. |
i Tal er nú með 214 vinning,
{en Botvinnik 114.
lömuðust
RABAT, 22. marz. — Einhvem
næstu daga verða 27 kaupmenn.
í Marokko dregnir fyrir dóm-
stóla fundnir sekir um að hafa
selt heilsuspillandi matvöru. —
Blönduðu þeir matarolíu með
vélaolíu til drýginda og seldu um
allt landið. Um 10 þús. manns
veiktust af þessum sökum og
hlutu flestir meiri eða minni löm-
un. Alþjóða heilbrigðismálastofn
unin kom til hjálpar og fjölmennt
lækna og hjúkrunarlið var sent
á vettvang. Telja læknar, að ein-
ungis 20% hinna sýktu muni ná
sér til fullnustu.
Söluskattslögin staðfest í gær
Öðlast þegar gildi
SÖLU SK ATTSFRUM-
VARPIÐ var afgreitt sem
lög frá Alþingi í gær og voru
lögin staðfest í gærkvöldi og
hafa þar með tekið gildi.
Helztu ákvæði laganna eru,
eins og áður hefur verið skýrt
frá, að greiða skal 3% sölu-
skatt af andvirði seldrar vöru
og verðmæta og endurgjaldi
fyrir hvers konar starfsemi
og þjónu^.u, eit.r því sem
nánar er ákveðið í lögunum.
Þá er bráðabirgðaákvæði í
lögunum þess efnis, að til árs-
loka skuli til viðbótar 7%
söluskatti af tollverði inn-
fluttrar vöru greiða 8% að
viðbættum aðflutningsgjöld-
um og áætlaðri 10% álagn-
ingu. Fimmti hluti hvors
þessa skatts rennur til Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga.
í lögunum segir, að þau öðlist
þegar gildi og ennfremur segií
á þessa leið í bráðabirgðaákvæði;
— Hafi verið gerður samningur
um sölu, vöru, vinnu eða þjón-
ust fyrir gildistöku laga þessara,
en afhending hins selda og
greiðsla skyldi fara fram eftir
gildistöku þeirra, og sala eða af-
hending sams konar vöru, vinnu
eða þjónustu verður skattskyld
samkvæmt lögum þessum, þá
skal kaupandi greiða viðbót við
samningsgreiðsluna sem svarar
söluskalunum, nema sannað sé,
að skatturinn hafi verið talinn
með í kaupverðinu við ákvörðun
þess.