Morgunblaðið - 23.03.1960, Page 2

Morgunblaðið - 23.03.1960, Page 2
2 MORCVTSBLAÐ1Ð Miðviikudagur 23. marz 1960 — Genf Frh. af bls. 1. reglu, sagði Tunkin — og sama er að segja um sex mílurnar. Á j síðustu ráðstefnu lögðu Rússar til, að sérhvert ríki ákvæði land helgi sína sjálft frá þremur til i tólf mílur með hliðsjón af eig- in öryggi, efnahagslegu sjálf- stæði og öðrum hagsmunum. — Mörg ríki töldu þessi rök strand- ríkjanna óljós og þess vegna er gerður greinarmunur á lögsögu- landhelgi og fiskveiðitakmörkum í nýju tillögunni. Skerðir ekki siglingafrelsi Við leggjum sérstaka áherzlu ' á öryggi, sagði Rússinn, því dæmi eru til þess, að sjóveldi hafi siglt skipum sínum með hótun- um upp að ströndum annarra ríkja — og flogið flugvélum sín- um á sama hátt óhæfilega ná- lægt öðrum löndum. Tunkin neitaði því, að 12 mílna landhelgi ógnaði siglinga- frelsinu, því flutningaskip og flugvélar hefðu almenna heim- ild til frjálsra ferða innan land- helginnar. A hinn bóginn væru ferðir flugvéla ákveðnar í milli- ríkjasamningum. Síðustu áratugina hefði verið greinileg þróun í þá átt, að land- helgin yrði færð út. Þetta væri eðlileg þróun, sagði Rússinn, sem stafaði af örum breytingum í al- þjóðamálum, hraðri tækniþró- un bæði viðvíkjandi öryggismál- um og fiskveiðum. Þessi þróun endurspeglar lög félagslegrar þróunar og samræmist sjálfs- ákvörðunarrétti þjóðanna og rétti þeirra til óhindraðrar nýt- ingar eigin auðlinda. Þrenns konar landhelgi Tillaga Mexico var löng og í mörgum liðum. Meginefni hennar var það, að sérhvert riki hefði rétt til 12 mílna lögsögúlandhelgi. En til þess að koma til móts við óskir þeirra ríkja, sem telja 12 mílna landhelgi ógna siglinga- frelsinu — og draga úr ótta þeirra, er gert ráð fyrir því í mexikönsku tillögunni, að þeim mun minni lögsögulandhelgi, sem ríki taki sér, þeim mun stærri fiskveiðilandhelgi eigi það rétt á. Er á þann hátt reynt að samræma óskir þeirra þjóða, sem vilja stóra lögsögulandhelgi, og þeirra, sem vilja víðáttumikla fiskveiðiland- helgi. Þannig er gert ráð fyrir, að: 1. ef landhelgin er 3—6 mílur geti fiskveðilögsaga verið allt að 18 mílur frá grunnlinu. Dagskrá Alþingís í DAG er boðaður fundur í sam- einuðu Alþingi kl. 1,30 og að hon- um Ioknum er boðaður fundur í neðri deild. Á dagskrá sameinaðs þings eru 15 mál: 1. Rannsókn kjörbréfs. 2. Fyrirspurn: Niðurgreiðsla fóð- urbætis. — Ein umr. 3. Krabbameinsvarnir, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 4. Símtöl og simagjöld bæjar- sima Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 5. Allsherjarafvopnun, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 6. Klak- og eldistöðvar fyrir lax og silung, þálitill. — Hvernig ræða skuli. 7. Utanríkisráðuneyti íslands og fulltrúar þess erlendis, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 8. Virkjun Jökulsár á Fjöllum, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 9. Dvalarheimili í heimavistar- skólum, þáltill. — Ein umr. 10. Síldariðnaður á Vestfjörðum, þáltill. — Ein umr. 11. Kaup seðlabankans á víxlum iðnaðarins, þáltill. — Ein umr. 12. Hagnýting síldaraflans, þáltill. — Ein umr. 13. Tónlistarfræðsla, þáltill. — Ein umr. 14. Endurskoðun laga um lands- dóm, þáltill. — Ein umr. 15. Virkjun Smyrlabjargaár, þál- till. — Ein umr. Eitt mál er á dagskrá neðri deildar: Almannatryggingar, frv. NA /5 hnúfar ^ SV50hnúfar X Snjókoma 9 06 i wm \7 Slrúrír K Þrtimur iS KuMotkil Hihtki! H L Lcefi i—rr: f ^ \ LÆGÐIN suður af Grænlands rigning. Hins vegar er 8 stiga odda hefur þokazt hægt norð- frost í Gander og 17 stiga frost vestur eftir síðasta sólarhring og er tekin að grynnast. Hita- skil og mjótt regnsvæði ligg- ur í boga yfir Grænlandshafið og beygir út Reykjanes suður í haf. í sambandi við hitaskil- in hefur verið A-stormur hér við suðurströndina (8-10 vind- í Goose Bay. í New York er 7 stigum kaldara en í Reykja- vík. Veðurhorfur kl. 22 í gærkvöldi SV-land, Faxaflói, SV-mið og Faxaflóamið: Allhvass SA fram eftir nótt, en S-stæðari og lygnari með morgninum, AKUREYRI, 22. marz: — Vegna hinna tíðu truflana, sem orðið hafa í Laxá á veturna, sam- þykkti stjórn Laxárvirkjunnar á fundi sínum í desember síðast- iðnum, að fela tæknilegum ráðu- naut sínum, Eiríki Briem, raf- stig í Vestmannaeyjum). Þeg- rigning með köflum. Breiða- ar skilin eru komin norður fjörður, V-firðir, Breiðafjarða fyrir landið mun vindur verða mið og V-fjarðamið: SA-kaldi, simnanstæðari og lygnari. Jafn þíðviðri. N-land, NA-land, N- framt mun hlýna nokkuð í mið og NA-mið: S-gola, þíð- veðri. Hiti er 10 stig á veður- viðri, víðast úrkomulaust. A- skipinu India en 6 stig í firðir, SA-land, SA-fjarðamið Reykjavík. Á suðausturströnd og SA-mið: SA-kaldi, þoku- Grænlands er 3 stiga hiti og loft og rigning eða úði. 2. ef landhelgin er 7—9 mílur geti fiskveiðilögsaga verið 15 mílur. 3. ef landhelgin er 10—12 mílur geti fiskveiðilögsaga aðeins orðið 12 mílur. Sagði mexikanski fulltrúinn, að þetta fyrirkomulag yrði til þess að þjóðirnar hugsuðu sig tvisvar um áður en þær færðu lögsögu- landhelgina lengra út en góðu hófi gegndi. Méxikó telur, að 12 milur eigi að verða meginregla, en í tillög- unni er gert ráð fyrir því, að engu riki verði heimilt að færa landhelgi sína út samkvæmt þess ari tillögu, ef samþykkt verður, fyrr en eftir 5 ár frá samþykkt- inni — og beri viðkomandi ríki þá fyrst að tilkynna Sameinuðu þjóð unum útfærsluna. Sögulegur réttur skal vírtur Fulltrúi Kúbustjórnar tók einn- ig til máls í dag. Hann er Garcia Amador, sá sami og var fulltrúi stjórnar Batista á fyrri Genfar- ráðstefnunni — og furða menn sig yfirleitt á því, að Castro skuli senda sama mann. Amador sagði í sinni ræðu, að á fyrri ráðstefnunni hefði meiri- hlutinn verið fylgjandi a.m.k. 6 mílna lögsögulandhelgi, en næg- ur meirihluti, tveir þriðju hlutar, hefðu ekki fengizt. Sagðist full- trúinn telja ástandið svipað núna og tilskilinn meirihluti mundi ekki fást. Þess vegna væri megin- verkefni ráðstefnunnar núna að ræða fiskveiðilandhelgina utan við sex mílumar. Hann var and- vígur því, að' strandríki fengju einkarétt til fiskveiða í fiskveiði- landhelginni, en vildi setja reglur um forréttindi strandrikja. Þann- ig yrði tekið tillit til annarra ríkja sem ættu efnahagslega mik- ið undir fiskveiðum. Og réttindi þeirra ríkja, sem hefðu söguleg- an rétt til veiða við strendur ann- arra ríkja, yrði að virða. Bætti hann því við, að jafnvel fjarlæg ríki gætu átt meiri rétt til veiða en strandríkið sjálft, ef þau hefðu t.d. fundið fiskimiðin og stundað þar lengi veiðar áður en strandríkið byrjaði að veiða á sömu miðum. Stundum hagaði Kúbumaður- inn máli sínu þannig, að það skað aði strandríkið ekkert' þótt aðr- ar þjóðir veiddu við strendur þess — og strandríkið ætti þar engra hagsmuna að gæta. Kúbumenn hafa fiskað upp að 9 mílna landhelgi Mexikó og vilja sennilega ekki missa þann rétt sinn. Á síðustu ráðstefnunni fylgdu þeir þriggja mílna regl- Nælonverksmiðja Hafnarfirði i HAFNARFIRÐI. — A bæjar- stjórnarfundi í gær var sam- þykkt að veita nýstofnuðu hluta- félagi 10 þúsund fermetra lóð við Reykjavíkurveg undir fyrir- hugað verksmiðjuhús, þar sem framleiddar verða ýmiss konar vörur úr næloni, svo sem sokkar. Eru aðilar þeir, sem hér eiga hlut að máli, úr Reykjavík. Er í ráði að bygging þessi verði allstór eða um 12 þúsund rúmmetrar, og má því búast við að hér sé á ferðinni allmikið fyr- irtæki. — Heyrzt hefir, að vélar verði fengnar frá Þýzkalandi og vestur þýzkir sérfræðingar hafi unnið að ýmiss konar undirbún- ingi undanfarið, en að öðru leyti er lítið vitað um framkvæmdir. Þá hefir sá orðrómur gengið, að aðilar þeir, sem að verksmiðju- byggingu þessari standa, hafi far ið fram á bæjarábyrgð fyrir ein- hverjum hluta af stofnkostnað- inum. En um þetta atriði hefir bæjarstjórn Hafnarfjarðar ekki látið neitt uppskátt enn sem kom ið er. — G.E. Gerir Flugfélagið heild- arsamning við Námu- félagið? AÐ UNDANFÖRNU hafa staðið yfir í Kaupmannahöfn samninga- viðræður milli fulltrúa Fbugfé- lags íslands og Norræna námu- félagsins, sem annast námu- vinnsluna í Meislaravík a Græn- landi. Standa vonir til að samn- Verður vara-rafstöð reist við Akureyri? Aukin flugumferð LONDON, 22. marz. — Trans World Airlines eykur nú enn Atl- antshafsflugið með þotum. Frá 19. maí verða tvær daglegar þotu- ferðir milli New York og London. Ferðum milli New York og París- ar verður og fjölgað og þotur munu í vor fljúga án viðkomu milli New York og Rómaborgar. Engar viðræður án Hastings Banda n —4 KLANTYRE, Njassalandi, 22. marz. — Einn af leiðtogum Njassa manna hefur sent brezka nýlendu málaráðherranum, Ian Macleod, skeyti þar sem segir, að Njassa- menn muni ekki taka þátt í nein- um viðræðum við brezku stjórn- ina um framtíð Njassalands nema Hastings Banda verði leystur úr haldi. Brezki nýlendumálaráð- herrann ráðgerir ferð til Njassa- lands til viðræðna við innfædda leiðtoga, en Njassamenn halda fast við að Hastings Banda eigi að hafa orð fyrir þeim. Að öðrum kosti verði engar raunhæfar við- ræður. Gefið nnfn LONDON, 22. marz. —• í dag var hinu nýfædda barni Elisabetar drottning- ar gefið nafn eða réttara sagt nöfn, því drengurinn heitir Andrew Albert Christian Edward. Fyrsta nafnið er eftir föður Phil- ips hertoga, manns drottn- ingar. Christian er í höfuð- ið á Kristjáni IX Dana- konungi, sem var í tengsl- um við brezku konungsfjöl- skylduna. að við kw yrði magnsveitustjóra ríkisins, gera áætlun um kostnað byggingu og rekstur 2000 dieselrafstöðvar, sem reist við Akureyri. Rafveitustjórninni mun nú hafa borizt tilboð frá brezku fyrirtæki, sem býður 2000 kw diesel-rafstöð fyrir samtals 2600 pund, fob, en þessar vélar munu vera eitthvað notaðar. Talið er, að uppkomin rafstöð, hús og vélar muni kosta 8—9 milljónir króna, en vegna fjár- skorts, verður ekki byrjað á þess um framkvæmdum í ár. — M. B. Ráðizt á farþega- flugvél AMMAN, 22. marz. — Orrustu- þota frá Israel réðist í gærkvöldi á jórdanska farþegavél og hóf vélbyssuskothríð yfir Akaba-flóa. Var vélin á leið frá Amman til Kairo og var með 19 farþega. — Komst jórdanska vélin undan án þess að manntjón yrði, og sneri aftur til Amman. ingar takist um að Flugfélagið fari allmargar ferðir miili Kaup- mannahafnar og Meistaravikur i vor og sumar með fólk og ýmsan útbúnað. Flugfélagið hefur á undanföm- um árum annazt töluverða fiutn- inga fyrir Námufélagið og í vor hefur það farið fáeinar ferðir til Meistaravíkur. Danska flugfélag- ið „Flying Enterprise" hefur einnig flogið þangað í vor. Mbl. snéri sér til Sveins Sæ- mundssonar, blaðafulltrúa Flug- félagsins, í gær og innti nánari frétta af samningagerðinni. Sagði Sveinn, að enn væri ekki að fullu gengið frá málunum, en sam- kvæmt því, er hann vissi bezt, væri hér um að ræða samnings- tilboð um allt flug á vegum Námu félagsins í sumar. Undanfarið hefur Námufélagið boðið út eina og tvær flugferðir í senn. Amiar dagur Sæluvikunnar SAUÐARKRÖKI, 22. marz: — Sá háttur hefur verið upp tekinn hér að helga annan dag Sælu- vikunnar, mánudaginn, börnum og unglingum. í gær var kvikmyndasýning fyrir börn, kabarett á vegum Ung mennafélagsins og síðan barna- dansleikur.. Kennarar og skóla- stjórar komu víðs vegar að úr héraðinu með börn sín, og var geysifjölmennt. Veður er dásamlegt, hvítalogn og hiti. Norðlendingur Togarinn Norðlendingur kom hingað í fyrrakvöld og er áð leggja út á veiðar í dag. Hann er mannaður Færeyingum að veru- legu leyti. — Guðjón. Rit arkitektafélagsins komið í breyttu formi TlMARIT Arkitektafélags Is- lands, Byggingarlistin, er komið út í breyttu formi, en nokkurt hlé hefur orðið á útgáfu þess. Er ætlunin að gefa ritið hér eftir út tvisvar á ári í stað einu sinni áður. Er ritið hið vandaðasta og sérlega vandað til uppsetningar. í ritinu eru myndskreyttar greinar um Keldur á Rangár- völlum og Neskirkju eftir Hörð Agústsson en hann sér um út- gáfu ritsins fyrir Arkitektafé- lagið. Grein er eftir þýzka arki- tektinn Walter Gropius, sem hef- ur haft mikil áhrif á arkitektúr síðustu áratuga, en hann hefur venð prófessor við Harvardhá- skóla í Bandaríkjunum síðan 1937. Skrifar hann um tildrögin að hugmynd sinni um Bauhaus- skólann. Skúli Norðdal skrifar um notkun starfsheitisins arki- tekt, minnzt er látinna félaga, en af 30 meðlimum félagsins létust þrír á árinu, þeir Sigurður Péturs son, byggingarfulltrúi, Gunnar Ölafsson, skipulagsstjóri Reykja- víkurbæjar og Sigurður Guð- mundsson arkitekt, og greinar eru um íslenzka listiðn, innrétt- ingu á heildsölufyrirtækinu Kemikalia h.f. og byggingu Nest- is h.f., með stórum skýringar- myndum. Loks eru fréttir um málefni varðandi byggingarlist. • • V OKU-skemmt un enn frestað SKEMMTUN Vöku, sem verða átti í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld er frestað um óákveðinn tíma. Stjórn Vöku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.