Morgunblaðið - 23.03.1960, Page 3
Miðvikudagur 23. marz 1960
MORGVN BL AÐIÐ
3
Með skásett
Erlingur Pálsson
formaður Lögreglufélagsins
Komist
á eftiríaun
55 ára
FYRIR nokkru var haldinn aðal-
fundur Lögreglufélags Reykja-
víkur. Ýmis hagsmunamál lög-
reglumanna voru tekin fyrir til
umræðu. Meðal þeirra er hér um
ræðir, er réttur lögregluþjóna til
lífeyris. Kom fram á fundinum
sú skoðun að taka verði tillit til
sérstöðu þeirrar er lögreglumenn
búa við starfs síns vegna. Ar-
angurinn af þessu varð sá, að
stjórn lögreglufélagsins mun
vinna að því að réttur lögregiu-
manna sem vaktavinnu stundar,
og annast götuvörzlu til launa
úr lífeyrissjóði miðist við 55 ár
og 25 ára starfsaldur. Um lög-
reglumenn er vinna ekki í vökt-
um skal miðað við 60 ár.
Erlingur Pálsson, formaður fé-
lagsins sagði í stuttu samtali við
Mbl. í gær, um þessa ályktun
Lögreglufélagsins, að hér væri
um að ræða mál sem ekki væri
aðeins hagsmunamál lögregiu-
manna, heldur borgarbúa sjálfra.
í>að er nauðsynlegt að í lögreglu-
liði borgarinnar séu menn á þeim
aldri, að þeir geti leyst af hendi
hin oft margþættu störf lögreglu
manna. Reynzla okkar er, að
þegar menn eru búnir að vera
í götulögreglunni áratugum sam
an, þola þeir mjög illa nætur-
vaktir, þegar komið er yfir
fimmtugt, sem ekki er heldur
undarlegt. Því teljum við að miða
beri hámarksaldur götulögreglu-
manna við 55 ár.
Fleiri hagsmunamál voru rædd
t. d. slysatryggingar, en í þeim
efnum má enn gera ýmsar lag-
færingar. Lögreglumannsstarfið
er hættulegt og meiðsl á mönnum
alltíð. Er því nauðsynlegt að
koma tryggingamálum lögregl-
unnar í fastar skorður. í þessum
efnum hafa lögreglumenn notið
velvilja opinberra aðila og vænt-
um við þess að svo verði enn.
í stjórn Lögreglufélags Reykja
vikur voru kjörnir ásamt Erlingi
Pálssyni yfirlögregluþjóni, þeir
Óskar Ólason, Þórður Kárason,
Bogi Jóhann Bjarnason og Páll
Eiríksson.
I
KEFL A VÍ KURFLU G VELLI,
22. marz. — í dag kom til
Keflavíkurflugvallar Con-
stellation farþegaflugvél frá
flugfélaginu Air France á leið
inni frá Tokyo til Parísar.
Hingað flaug vélin í einum
áfanga frá Anchorage í Alaska
eða hina svokölluðu Polar-
flugleið.
Farþegarnir sem stigu út úr
flugvélinni komu flugvallar-
starfsmönnum ókunnuglega
fyrir sjónir, japanskar blóma-
rósir í litríkum kímonóum
með hrafnsvart hár og skásett
augu tifuðu léttfættar á opn-
augu
um sandölum niður stigann og
eftir þeim komu lágvaxnir
karlmenn í svörtum sloppum,
bæði ungir og gamlir, grannir
og þéttvaxnir. Það spurðist
fljótlega að hér væri japansk-
ur leikflokkur á ferðinni.
Skemmta á Rauðu myllunni
Tíðindamaður Mbl. náði
snöggvast tali af fararstjóran-
um, sem tjáði honum að hér
værí á ferðinni leikflokkur, er
nefndi sig La Revue de Japon
og væri ráðinn til að skemmta
á þeim fræga stað Moulin
Rouge um eins árs skeið. Þetta
væru 33 stúlkur og jafnmarg-
ir piltar. í flokknum væru
söngvarar, dansarar, töfra-
menn, akrobatar, leikarar og
íslenzkur tollvörður, Egill Þórarinsson, og tvær japanskar.
og í litríkum kímondum
fjöllistamenn. Að lokinni eins
árs dvöl í París væri ferðinni
heitið til London og Banda-
ríkjanna. Moulin Rouge hefði
vilja gera 2ja ára samning við
leikflokkinn, en þeir japönsku
teldu að ekki væri gott að
vera of lengi á sama stað. í
vetur hefði flokkur þessi sýnt
í Honolulu og áður á ýmsum
stöðum í Asíu.
Ferðuðust frá þriðjudegi
til þriðjudags
Fararstjórinn var hrifinn af
hraðanum í ferðalögum nú-
timans. Hópurinn lagði af stað
frá Japan í gærkvöldi, á þriðju
degi, og kæmi til Parísar í dag,
á þriðjudegi.
Hópur danskra sjóliða, á
leið til Grænlands, var stadd-
ur á hótelinu, er Japanirnir
voru hér á ferð, og notuðu
Danirnir tækifærið og kvik-
mynduðu hinar austurlenzku
blómarósir óspart. Japanirnir
tóku einng margar myndir af
hinum forvitnu áhorfendum,
og tvær japanskar dansmeyj-
ar létu ljósmynda sig við hlið-
ina á föngulegum, íslenzkum
tollverði. — B.Þ.
Tvær dansmeyjar í fríhöfninni.
(Ljósm. Þ. S.)
Kjónabandssæla í Færeyjum
ÞÓRSHÖFN 22. marz: — í lönd-
um mótmælenda eru hjónaskiln-
aðir sennilega einna fátíðastir i
Færeyjum. Nýjustu skýrslur sýna
að einungis 3% hjónabanda þar
enda með skilnaði og eitt af hverj
um fjórum hjónum á fjögur börn
eða fleiri.
I Danmörku er skilnaðartalan
helmingi hærri.
Tilgátur eru um að hjónabands
hamingjan í Færeyum eigi rætur
að rekja til þess, að kvenfólk
er þar mun farra en karlmenn og
einn af hverjum tuttugu verður
að leita út fyrir landsteinana til
þess að finna sér kvonfang.
■—Reuter.
8TAKSTEIÍAR
Byltingin, sei 1 ekkert
uarð úr
Það fór eins og vænta mátti á
12. flokksþingi „Sameiningar-
flokks alþýðu Sósíalistaflokks-
ins“. Ekkert varð úr byltingunni,
sem hægri kommúnistar höfðu
undirbúið. Niðurstaðan varð sú,
að Einar Olgeirsson, Brynjólfur
Bjarnason og Lúðvík Jósefsson
halda áfram um stjórnartaum-
ana. Tengsl þeirra við Moskvu
eru traust og varanleg. A þeim
hefur ekki slaknað hið allra
minnsta.
Auðvitað mun svo „Alþýðu-
bandalagið" halda áfram að
vera til. Því er ætlað að vera tál-
beitan fyrir hina „nytsömu sak-
leysingja“.!
Víðtækur undirbúningur
Alþýðublaðið lýsir í gær hin-
um víðtæka undirbúningi bylt-
ingarinnar, sem ekkert varð úr.
Kemst blaðið þar m.a. að orði
á þessa leið:
„Byltingin, sem átti að gerast
á þinginu, hafði verið mjög vand
lega undirbúin. Klíkufundir
höfðu um langt skeið verið
haldnir, menn sendir í áróðurs-
erindium út um land og smalað af
miklum krafti á fundi, þar sem
fulltrúar voru kjörnir. Ætlun
hægri manna var að binda endi
á hina algeru Moskvuþjónustu
flokksins og Þjóðviljans. Átti
þetta fyrst og fremst að gerast
með því að bola Brynjólfi Bjarna
syni út úr miðstjórn flokksins, ef
til vill Einari líka, ef hann ekki
gengi í lið hægri manna og ná
haldi á eignum flokksins". .
Þetta sagði Alþýðublaðið i
gær.
En úr þessu höggi, sem svo hátt
var reitt, varð sem sagt ekkert.
Moskvumennirnir í „Sameining-
arflokki alþýðu, Sósíalistaflokkn
um“, héldu sínum föstu tökum.
Þeir marka áfram stefnu komm-
únistaflokksins á íslandi.
Fjárlög og raunsæi
Kommúnistar og Framsóknar-
| menn fluttm við 2. umr. fjárlaga
| mikinn fjölda af breytingartillög
um, sem allar höfðu í för með
sér stórfelldar hækkanir á út-
gjöldum ríkisins. Allar þessar
tillögur voru felldar eða teknar
aftur af flutningsmönnum sjálf-
um. En nú keppast Framsóknar-
menn og kommúnistar við að
halda því fram, að andstaða
stjórnarflokltana gegn þessum
gífurlegu hækkunartillögum
stjórnarandstöðunnar hafi sýnt
f jandskap þeirra við velflest hags
muna- og framfaramál þjóðar-
innar!
Vitanlega sér allur greindari
hluti þjóðarinnar gegnum þenn-
an málflutning. Það er hlmtverk
ríkisstjórnar Iandsins á hverjum
tíma að miða útgjöld ríkissjóðs
við fjárhagslegt bolmagn þjóðar
innar. Það er ekki nú frekar en
endranær hægt að gera allt í
einu, fá fjárveitingar til allra
þeirra nauðsynlegu framkvæmda
sem að kalla víðsvegar um land
allt. Það gerir allur almenningur
sér áreiðanlega ljóst.
Yfiuboðstillögur
Kommúnistar og Framsóknar-
menn munu því ekki öðlast auk-
ið traust með flutningi yfirboðs-
tillagna um stórhækkuð framlög
til opinberra framkvæmda. Sjálf
ir hafa þessir flokkar ráðizt með
hinu mesta offorsi á ríkisstjórn-
ina fyrir það, hve há fjárlögin
séu. Nú flytja þeir tillögur um
að hækka þau um allt að lvundr
að millj .kr.! Þannig er samræm-
ið í orðum og athöfnum hjá
flokkum stjórnarandstöðunnar í
dag.