Morgunblaðið - 23.03.1960, Side 9
Miðvikudagur 23. marz 1960
MORC.liynr 4 mrt
9
Kventéiagió hiiít á isatiroi 50 ára:
Hefur a&allega helgaö starf
sitt líknar- og mannúðarmálum
ALMENNU kvenfélögin á ísa-
firði eru tvö, Hlíf og Ósk. Ósk
er eldri systir, stofnuð fyrir for-
göngu frú Camillu Bjarnason.
Hlíf er yngri systir, stofnuð af
27 konum, sem starfað höfðu
flestar saman að þremur gamal-
mennasamsætum með frjálsum
samtökum. Stofndagur Hlífar er
6. marz 1910. Sá dagur var
einnig 50. afmælisdagurinn.
Fyrstu stjórn Hlífar skipuðu
þessar konur:
Sigríður Lúðvíksdóttir, for-
maður, Rebekka Jónsdóttir, vara-
formaður, Guðríður Árnadóttir,
Margrét Sveinsdóttir og Hólm-
fríður Árnadóttir.
Hin þjóðkunna hannyrðakona,
frú Þórdís Egilsdóttir, var ein af
stofnendum Hlífar, og hefur jafn-
an starfað mikið í félaginu. Frú
Þórdís stofnaði 6. marz 1950 sjóð
innan félagsins, sem heitir Hús-
munasjóður Þórdísar Egilsdótt-
ur, og hefur hún eflt hann með
góðum gjöfum siðan, nú síðast
með höfðinglegri afmæ-lisgjöf.
Aðalverkefni sjóðsins er að prýða
og snyrta Elliheimili bæjarins.
Hefur það lengi verið áhugamál
frú Þórdísar, að á ísafirði rísi
nýtt og fallegt elliheimili, sem
sé staðarprýði jafnt úti sem inni.
Núverandi stjórn Hlífar skipa:
frú Unnur Gísladóttir, formaður;
frú Ragnhildur Helgadóttir, vara
formaður; frú Halla Einarsdótt-
ir; frú Sigríður Sörensen og frú
Martha Sveinbjarnardóttir.
Hlíf hefur verið athafnasamt
félag. Auk líknar- og menningar-
mála hefur það lagt lið sitt öllum
nauðsynja- og velferðarmálum
bæjarins. Atti t. d. mikinn þátt
í að koma upp fullkomnum
barnaleikvelli, og lagði fram
mikið fé.
Hlíf hefur átt eigin söngkór
frá upphafi, Hlífarkórinn. Jónas
Tómásson hefur alla tíð annazt
æfingar kórsins og stjórnað hon-
um. Núverandi formaður kórsins
er frú Bjarney Ólafsdóttir.
Fyrir sjö árum keypti mæðra-
styrksnefnd Hlífar sumarbústað
í Dagverðardal, og hefur síðan
rekið þar mæðraheimili. Er kon-
um gefinn kostur á, að dveljast
þar hálfan mánuð með fjölskyld-
ur sínar, og sumrinu skipt þann-
ig, að sem flestar konur geti not-
ið þessa.
Kvenréttindanefnd starfaði í
Hlíf í mörg ár, og sá oft um að
minnast 19. júní á einn eða ann-
an hátt. Nú síðustu árin hafa fé-
lagskonur heiðrað 19. júní með
því að fara inn í Tunguskóg og
gróðursetja þar trjáplöntur, með
leiðsögn kunnáttumanns.
Allt frá 1938 hefur Hlíf haldið
uppi saumanámskeiðum fyrir fé-
lagskonur. Aðalforstöðu . og
kennslu á námskeiðum þessum
hefur frú Ragnhildur Helgadótt-
ir annazt. Eiga ísfirzkar og vest-
firzkar konur frú Ragnhildi
mikla þakkarskuld að gjalda fyr-
ir prýðilegt og óeigingjarnt starf.
Eftirtaldar konur, sem voru
stofnendur Hlífar, eru enn á lífi:
Þórdís Egilsdóttir, Hrannar-
götu, Isaf., Ingileif Stefánsdóttir,
Brunngötu, Isaf., Jóhanna Oi-
geirsson, Þórsgötu 28, Rvik, Ólína
Þorsteinsdóttir, Sjafnargötu 12,
Rvík, og Þórunn Jóhannsdóttir,
Reynimel 31, Rvík.
Alls eru félagskonur Hlífar
rúmlega 100. Fundir eru vel sótt-
ir og áhugi mikill.
Afmælishóf Hlífar var hið
glæsilegasta. Afmælisstjóri var
frú Ragnhildur Helgadóttir. —
Fjölda gesta var boðið og fagn-
aður hinn bezti. Frú Unnur
Gísladóttir, formaður Hlífar,
hélt aðalræðuna. Halldór Ólafs-
son, bókavörður og ritstjóri,
flutti þakkir fyrir hönd bæjar-
stjórnar. Þessar konur fluttu
heillaóskir og þakkir: Ásta Egg-
ertsdóttir, María Gunnarsdóttir,
Hallfríður Finnbogadóttir, Ólöf
Jónsdóttir og Þórey Alberts-
dóttir. Heiðursfélagar voru þess-
ar konur kjörnar: Ingileif Stef-
ánsdóttir, Gróa Árnadóttir, Guð-
rún Kristjánsdóttir og Helga
Jakobsdóttir.
Eldri heiðursfélagar Hlifar eru:
Sigþrúður Guðmundsdóttir, Rvík,
Thyra Juul, Rvík, Unnur Guð-
mundsdóttir, Rvík, og Þórdís
Egilsdóttir, ísafirði.
Hlíf barst fjöldi fagurra af-
mælisgjafa. 45 gamlar Hlífar-
konur í Reykjavík gáfu tvo
kertastjaka úr silfri og fundar-
bjöllu úr silfri. Kvenfélagið Ósk
gaf fagran fundarhamar og blóm.
Frú Þórey Albertsdóttir gaf pen-
inga til kaupa á ljósastjökum.
Frú Bjargey Pétursdóttir flutti
Hlíf frumsamið kvæði frá eigin-
manni sínum. Sigmundi Guðna-
syni.
Það var bjart yfir afmælishófi
Hlífar. Þar voru allir vonglaðir
og þakklátir. Áfram skal unnið
og fórnað í kærleiksanda í þörf
þessa málefnis eða hins, eftir
atvikum og ástæðum; fyrir
blessaðan bæinn sinn og blessað
landið sitt. Hér skal ekki gengið
hikandi til verks. Við viljum all-
ar ísfirzku konurnar leggja gull
í lófa framtíðarinnar hvort sem
það kallast Hlífarfylking eða
Óskarsveit. Við erum reiðubún-
ar til starfa og fórnar þegar
þörf og skyldan kallar.
Sameiginlega þakka ísfirðing-
ar Hlíf hálfrar aldar starfið.
Margt hefur verið unnið og vel
unnið. Kærleikur til þeirra öldr-
uðu eða sjúku hefur verið leiðar-
og heillastjarna göfugs félags-
starfs. Til hamingju, Hlíf.
Arngr. Fr. Bjarnason.
I\iýi: bílar
Fiat Station ’60
Opel Caravan ’60
Volkswagen ’60
Bí/oso/on
Klapparstíg 37, sími 19032
Til sýnis í dag
Ford 1959
vel uppgerð taxabifreið. —
Skipti æskileg á nýlegum
4ra—5 manna bíl.
Chevrolet 1955
í mjög góðu standi. Bifreið
in hefur alltaf verifi einka-
vagn. Skipti á ódýrari bíl
koma til greina.
Ford Station 1955
Skipti koma til greina á
ódýrari bíl.
Clievrolet 1957
Skipti á minni bil æskileg.
Chrysler 1949
Skipti á eldri bíl koma til
greina. —-
Bnick 1947, 2ja dyra
fæst með góðum greiðslu-
skilmálum.
Opel Caravan 1955
Skipti á nýjum Opel æski-
leg. —
Renault 4ra manna 1947
í fyrsta flokks standi.
Austin 16 1946
Allur ný standsettur. Fæst
með góðum greiðsluskilmál
um. —
Vauxhall 1950
i góðu lagi. —
Verzlið þar sem úrvalið
er mest og' þjónustan bezt
Laugavegi 92.
Sími 10650 og 13146.
SKEMMTIFUND HEUDUK
FcskiúSs!irðingoíé!agið
í Tjarnarcafé föstudaginn 25. marz kl. 20,30.
Skemmtiatriði — Dansað til kl, 2. — Mætum öll vel
og stundvíslega.
Skemmtinefndin
Núverandi stjórn Hlífar. Frá vinstri, standandi: Sigríður
Sörensen og Marta Sveinbjörnsdóttir. Sitjandi: Ragnhildur
Heigadóttir, Unnur Gísladóttir og Halla Einarsdóítir.
Viljum kaupa eða leigja bát,
3 tonn eða stærri. Upplýsing-
ar í herb. 6, Hótel Vík, kl. 7—
9 í kvöld.
T ækifæriskaup
Stór Hanovia ultraviolet ljósa
lampi, prescription model, er
til sölu að Ásvallagötu 54, kl.
5—7 í dag. Verð kr. 4000,00.
Keflavik
Hinar vinsælu herra-blússur
meðprjónastroffi, fallegir lit-
ir, fimm stærðir, fást í:
Klæðaverzlun B. J.
Hafnarg. 15. Sími 1888.
Bæjarins mesta og bezta úrval
allrar snyrtivöru, á gamla
verðinu. —
Varalitir, tízkulitir.
Naglalökk
Make-up
Steinpúður
Handáburður
Shampoo
Pcrmanent
Hárlagningavökvi
o. m. m. fleira.
Fjölbreytt úrval gjafasetta
fyrir fermingardrengi og
stúlkur.
^pnmnio
Bankastræti 7.
Nýkomið:
/ baðherbergi
Baðhillur
Handklæðaslár
Snagabretti
Snagar
Glasastativ
W.C. pappirsstativ
Sápuskálár
W.C. burstahylki
Helgi Magnússon & Co.
Hafnarstræti 19.
Símar: 1-3184 og 1-7227.
B i I a s a I a n
Klapparstíg 37. — Sími 19032
Chevrolet Impaia ‘59
glæsilegur bíll. Sjálfskiptur
með vökvastýri úr lituðu
gleri. Skipti á ódýrari bíl
koma til greina.
Bi IasaIan
Klapparstíg 37. — Sími 19032
Ford jeppi ‘42
til sölu. Upplýsingar að
Freyjugötu 10A, sími 23971
Bíll — Skuldabréf
Oldsmobile ’57, 2ja dyra, mjög
glæsilegur bill. Bílinn má
greiða með skuldabréfi eða
vel tryggðum víxlum.
Bííamiðstöðin M
Amtmannsstíg 2C.
Sími 16289 og 23757.
Plymoth ‘47
einkabíll. Gangverk í mjög
góðu lagi, en þarf boddy-við-
gerðar. Bíllinn hefur alltaf
verið í einkaeign. Til sýnis og
sölu í dag.
Bílamiðstöðin VAGRI
Amtmannsstíg 2C.
Sími 16289 og 23757.
Sendiferðabifreið
Chevroiet ’55, mjög lítið ek-
inn, nýkomin frá Bandaríkj-
unum, til sölu og sýnis í dag.
0 i freiðasalan
Njálsgöiu 40. — Sími 11420.
Cila- og búvélasalan
Athugiá
Höfum land til sölu í ná-
grenni bæjarins, þar sem
byggja má heilan bæ.
Bíla- og búvélasalan
Baldursgötu 8. Simi 23136.
Cíia- og biivélasalan
Hofum kaupanda
að landi i Selás eða næsta
nágrenni bæjarins.
Bíia- oij biívéiasalan
i
Baldursgötu 8.
Sími 13136.
Muniö
Bda- og búvéhsiana
Baldursgötu 8. Sími 13136.