Morgunblaðið - 23.03.1960, Síða 12

Morgunblaðið - 23.03.1960, Síða 12
12 MORGUNBLAÐ1Ð MiðviKudagur 23. marz 1960 Utg.: H.f Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 40,00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. MIKIÐ ÁFALL rr?v y ÆR aukakosningar, sem nýlega hafa farið fram í Bretlandi, hafa sýnt að fylgi Verkamannaflokksins fer stöð hluti brezku þjóðarinnar er andvígur frekari ríkisrekstri og þjóðnýtingu. Almenningur í Bretlandi álítur að allt aðr- Tylcf i hnettir Jlarda J60.000*™' -------------:^2_oo0» 160°° km- 'frjin'vorburX. yjfr\nwðt*r X. Tratn Gerfihnettir ugt hrakandi. Annað þessara kjördæma vann íhaldsflokk- urinn af Verkamannaflokkn- um, sem hafði haldið því um áratugaskeið. í hinu bættu Íhaldsmenn mjög aðstöðu sína. En frambjóðandi Verka- mannaflokksins fékk þar nú færri atkvæði en frambjóð- andi Frjálslynda flokksins. í þingkosningunum á sl. ári tapaði Verkamannaflokkur- inn eins og kunnugt er veru- lega fylgi. íhaldsmenn fengu 100 þingsæta meiri hluta fram yfir alla aðra flokka. Þeir unnu auk þess kosningar í þriðja skipti í röð. En það er mjög fátítt í Bretlandi. Var hér um að ræða mikið áfall fyrir brezka jafnaðarmenn. Þetta gerðist þrátt fyrir það, að stjórn íhaldsmanna hafði stigið stórfelld víxlspor á þessu síðasta kjörtímabili sínu. Súez-ævintýrið og fall Sir Anthony Edens hafði í för með sér mikinn álits- hnekki fyrir brezka íhalds- flokkinn. Aðfarir stjórnar hans gagnvart íslendingum voru heldur ekki til þess falln ar að auka traust eða álit stjórnar hans, a. m. k. ekki út í frá. En forysta Verkamanna- flokksins var þess ekki megn- ug að auka traust sitt meðal brezku þjóðarinnar, þrátt fyr- ir þessi mistök íhaldsstjórnar- innar. Macmillan tókst með seiglu og lagni að endur- vekja tráust hennar á stjórn sinni. Deilur innan Y erkamannaf lokksins Það sem líklegast er að orðið hafi Verkamanna- flokknum þyngst í skauti %ru deilurnar, sem verið hafa uppi innan vébanda hans. — Segja má að síðustu árin hafi geisað stöðugt stríð innan hans milli hinna róttækari sósíalista og hinna frjálslynd- ari afla flokksins. Svo er nú komið innan þessa forystu- flokks jafnaðarmanna í heim- inum að mikill meiri hluti hans hefur snúizt gegn aðal- kennisetningu sósíalismans. Þjóðnýtingin er þar á hröðu undanhaldi. Gaitskell og sam- starfsmenn hans hafa gert sér ljóst að yfirgnæfandi meiri- ar og skynsamlegri leiðir sé hægt að fara til þess að jafna lífskjörin, en að þjóðnýta framleiðslutækin. Reynslan af þjóðnýtingunni hefur held- ur ekki verið góð. Allt þetta hefur leitt til þess að Verkamannaflokkur- inn hefur nú eftir miklar deilur breytt stefnuskrá sinni og tekið upp í hana sam- kvæmt tillögu Gaitskells svo- hljóðandi stefnuyfirlýsingu: „V erkamannaf lokkurinn viðurkennir, að rúm sé fyrir bæði ríkis- og einkafyrirtæki í efnahagskerfi landsins og telur, að það, hve mikið af atvinnurekstrinum ríkið tek- ur í sínar hendur — og á hvern hátt það er gert — verði að ákveðast af aðstæð- um á hverjum tíma. Verður þar að taka tillit til þess, hvað hagkvæmast verður tal- ið fyrir verkamenn og neyt- endur, sem slíkar fram- kvæmdir hafa bein áhrif á“. Rykfallin fræðikenning Með þessari stefnuyfirlýs- ingu hefur forystuflokkur jafnaðarmanna í heiminum, í raun og veru viðurkennt, að ein af grundvallarkennisetn- ingum sósíalismans sé ryk- fallin fræðikenning, sem þýð- ingarlaust sé að ríghalda sér í. Nú verði að „taka tillit til þess, hvað hagkvæmast verði talið fyrir verkamenn og neytendur“, en láta af fast- heldni við gamlar og úreltar kreddur. Kemur ekki á óvart Þetta er það, sem þessi stefnuyfirlýsing Verkamanna flokksins í raun og veru þýð- ir. í raun og veru þarf þessi viðurkenning brezkra jafnað- armanna ekki að koma nein- um á óvart. Jafnaðarmenn í Vestur- Þýzkalandi og á Norður- löndum hafa áður lýst því yfir, að þjóðnýtingarkenn- ingin sé orðin úrelt og stór- hættuleg framtíðarfylgi og trausti jafnaðarmanna- flokka Evrópu. Aðrar og raunhæfari leiðir verði að fara til þess að jafna lífs- kjörin og skapa félagslegt öryggi í löndunum. TVÖ og hálft ár eru liðin frá því að geimrannsóknir hófust fyrir alvöru með því að fyrsta gerfi- hnettinum, Spútnik I., var skot- ið á braut umhverfis jörðu. I'ramfarirnar á þessum tíma hafa verið gífurlegar. Mesta fjarlægð Spútnik I. frá jörðinni var 946 kílómetrar, og braut hans umhverfis jörðu var um 45.000 kílómetra löng. Frumherji V., nýjasta- gerfi- plánetan, mun ganga umhverfis sólu og komast í um 300 milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu. Braut hans umhverfis sólu er nærri 850 milljón kílómetra löng og tekur hringferðin 311 daga. Næst kemst Frumherji V. í 120 miiijón kíiómetra fjarlægð frá sólu og 12 miilj. km. frá Venusi. Frumherji V. Frum'herji V. hóf ferð sína frá Canavéral höfða í Florida kl. 8,02 (bandarískur tími) að morgni föstudagsins 11. marz sl. Var hon um komið fyrir fremst í eldflaug af gerðinni Thor Able IV. Innan fárra mínútna hafði hann náð rúmlega 40 þúsund kílómetra hraða á klst., en á miðnætti var hann kominn 160 þúsund kílóm. frá jörðu. Tuttugu og sjö minút- um eftir að Frumherji V. hóf för sína var hann kominn í 8.000 km. íjarlægð frá jörðu. Sendu þá vísindamenn á Jodrell Bank stöðinni í Bretlandi honum merki sem orsakaði það að hann losn- aði frá eldflauginni og hélt einn áfram ferð sinni út í geiminn. Stuttu seinna var honum sent annað merk’, sem setti minni sendiscöð hnattarins á stað, og er hún látin senda upplýsingar öðru hvoru. En í Frumherja V. eru tvær sendistöðvar, önnur 5 vatta, hin 150 vatta. Minni sendi- tækið verður notað meðan til þess heyrist, en síðan tekur stærri sendistöðin við. Er vonazt til að unnt verði að heyra í henni þar til Frumherji V. er kominn i um 80 milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu, en það verður í ágúst- mánuði n.k. Eftir það mun ekki heyrast til hans fyrr en hann nálgast aftur braut jarðar árið 1963. Þrjár gerfiplánetur Tvær aðrar gerfiplánetur ganga um sólu, en þær eru Lunik I. og Frumherji IV. Sendistöðvar þeirra eru þó löngu þa^haðar og heyrist ekkert frá þeim eftir’að þær komust í um 640 þúsund km. fjarlægð frá jörðu. Frumherji V. mun fara með um 113 þús. km. hraða á klst. á braut sinni umhverfis sólu, en jörðin fer með 105 þús. km. hraða. Liggur braut hans nær sólu en braut jarðar og mun hann, eins og fyrr segir, ljúka hringferð á 311 dögum, sem tekur jörðina 365 daga. Til samanburð- ar má geta þess að brautir hinna tveggja gerfiplánetanna liggja fjær sólu og er Lunik I., sem hóf göngu sína 2. jan. 1959, 444 daga í hringferð, og fer með um 101 þús. km. hraða, en Frumherji IV., sem skotið var á loft 3. marz 1959, er 395 daga í hringferð og fer með um 104 þús. km. hraða. Ómetanlegar upplýsingar Hlutverk hinna nýju gerfi- plánetu er að safna ýmiskonar upplýsingum úr himingeimnum og nota hina öflugu sendistöð til að koma þeim til jarðar. Þeir gerfihnettir og plánetur sem áð- ur hafa verið sendar á loft, hafa uppgötvað geysimikil segulbelti umhverfis jörðina, sem kölluð eru Van Allen beltin. Þá hafa einxiig fengizt ómetanlegar upp- lýsingar um lögun jarðar, segul- svið jarðar og samsetningu, þétt- leika og víðáttu andrúmslofts- ins. Frumherji V. mun safna upp- lýsingum um stjörnugeiminn. 1 honum eru sérstök tæki til að mæla fjarlægðir milli plánetanna og reikna út stöðu þeirra í him- ingeimnum. En þessi vísindi eru nú svo litt kunn, að til dæmis er ekki unnt að staðsetja Venus nákvæmar en svo að munað get- ur allt að 80.000 kílómetrum. Þá eru í Frumherja V. tæki til að mæla geislun, sérstaklega þá geislun, sem orsakast af spreng- ingum á sólinni. Sömuleiðis munu tækin mæla heildargeislun, sem verður á braut gerfiplánett- unnar, þéttleika geimryksins og víðáttu segulsviða. Með því að senda þessar skýrslur til jarðar, gefur Frumherji V. mikilvægar upplýsingar um þær hættur, sem mæta munu manninum, þegar hann leggur leið sína út í geim- inn. Stærra senditækið eyðir það rnikilli orku, að það getur að- eins sent í fimm mínútur á klst. fresti. Þess á milli verða rafgeym arnir hlaðnir orku, sem unnin er úr sólargeislunum. En meðan hleðslan stendur yfir, safna „heilar“ í Frumherja V. öllum upplýsingum og geyma þær þar til sending hefst aftur. Kapphlaup Og hver er svo staða Banda- ríkjanna í- kapphlaupinu um geiminn, nú þegar Frumherji V. er kominn á braut sína? Rússar hafa skotið á loft miklu stærri gerfihnöttum en Banda- Framh. á bls. 23. Fy/gihneftir &ófar Sraut FírumherjaFÍ. og plánetur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.