Morgunblaðið - 23.03.1960, Síða 21
Miðvikudagur 23. marz 1960
MORr.Tnvnr aoið
21
Hermann Benediktsson
Minningarorð
HANN dó í Vestmannaeyj um 7.
desember 1959 eftir margra ára
legu á sjúkrahúsinu þar.
Fæddur var hann 12. febrúar
1887 að Borgareyri við Mjóafjörð
eystra og því tæpra 73 ára.
Heimili hans í Vestmannaeyjum
var að Vestmannabraut 67.
Foreldrar. Frú Margrét Hjálm-
arsdóttir, hreppstjóra að Brekku,
Mj íaíirði og Benedikt Sveinsson,
bóndi og útgerðarmaður, gætti
einnig pósts og síma um langt
skeið.
Börnin voru 13. Sveinn (eldri,
dáinn), Hjálmar (dáinn), Vil-
hjálmur, Sigríður (dáin), Frið-
jón, Sveinn (yngri), Maríus,
Ragnhildur, María (dáin), Her-
mann (dáinn), Benedikt. Jó-
hanna og Ragnar yngstur. —-
Fimm eru dáin.
Þetta var fríður hópur. Öll
voru þau söngvin mjög og minn-
ist ég þess, að oft ómaði söngur
þe-rra hár og fagur, með orgel-
tónum undir. Þetta var þá ekki
á hverju heimili. Fáir metrar
voru til kirkjunnar og þá var þar
enginn skortur á söngkröftum.
Mikið var unnið á landi, sjór sótt
ur af kappi. Nú stendur húsið
autt og hljótt. Minningar einar
eftir.
„Allt er í heiminum hverfult“.
Hermann var karlmenni til sál-
ar og líkama, meðan heilsu naut,
og þótti mér raunalegt að sjá
hinn sterka, djarfa og drengilega
vin minn og frænda verða sem
blaktandi strá svo lengi, en orr-
ustan við dauðann var svo löng
og hörð. Lengst ævinnar, meðan
heilsu naut, var Hermann verk-
stjóri, enda vel til forustu fallinn
og mun hafa notið virðingu og
vinsælda allra góðra manna.
Hann flutti til Vestmannaeyja
um 1920 og var þar, til dauða-
dags. Giftist þar eftirlifandi konu
sinni frú Helgu Benediktsdóttur,
sem ættuð er úr Skagafirði, og
áttu þau 3 dætur. Helga skrifaði
mér línur og minntist á hið langa
sjúkdómsstríð eiginmannsins, og
segir. „Eins og þú veizt, var hann
búinn að líða mikið öll þessi ár,
en samt voru allir hissa á dugn-
aði hans. Alltaf reyndi hann að
fara framúr. Var þó búið að gera
á honum þrjá skurði á rúmu ári,
og alltaf fór hann framúr daginn
eftir, og það hjálparlaust, enda
vissi hann, að það sem hann
þurfti. var að hreyfa sig. Hann
hafði sterkt hjarta og gott blóð,
sagði læknirinn mér, og það hélt
honum svo lengi uppi, þó varla
sé hægt að kalla þetta líf, eins og
það var orðið, enda fann hann
það og þráði að það tæki enda“.
Ég tek mér leyfi til þess að
birta orð eiginkonunnar, sem
einnig háði sitt stríð og sameig-
inlegt stríð mæðgnanna, með still
ingu, sem máske aðeins konum
er gefið í andstreymi.
Hermann var ljóðelskur og dáð
ist mikið að Einari Benedikts-
syni og Þorsteini Erlingssyni, svo
ólík sem þau þó máske voru
skáldin. Hann las mikið rit dr.
Helga Pjeturss og Einars H. Kvar
ans. Ekki efaðist Hermann um
líf að hérvist lokinni. Hann hugs-
aði mikið og djúpt um mannsæf-
ina.
Þjáning hans var löng og með
honum þjáðust ástvinir hans,
konan og dæturnar þrjár, einnig
bræður og systur, vinir hans og
frændur.
Þess vegna er ekki allur sann-
leikur sagður, þegar ég og við
öll, sem unnum honum, segjum:
Við samh.'yggjumst við fráfall
hans. Hann var þó ef til vill hug
stæðastur mér, minna vina, sem
ég sakna og hafði lengi saknað,
ásamt vinahópi gamalla sveit-
ung. Lengi hefur verið vík milli
vina og fjörður milli frænda, þar
sem eru Mjófirðingar vítt dreifð
ir, en ólust upp saman og eiga
sameign, sem er þeim kær, æsku-
stcðvar og minningar. Atvik og
ör’ög urðu þess valdandi að blóm
leg byggð, sem áður var, meðan
fleiri gátu borið þarfir samfé-
lagsins, var svipt afkomumögu-
leikum, er betri mega teljast, í
það minnsta um skeið, svo sveit-
ungar, vinir og vandamenn dreifð
ust vítt um heim.
Ef til vill, svo hjáróma sem
það þó virðist vera að gleðjast,
samgleðjast hinum látna vini.
Hann þráði og kaus hvíld. Við er
um þess fullviss, treystum því að
hann skoði nú og njóti þeirra upp
heima, sem hann trúði á.
Ég kveð vin minn og frænda
með ósegj anlegri þökk fyrir allt
hið drengilega og góða á alllangri
samleið á æskustöðvum og síðar.
Félagslíl
Valur — Stúlkur
Handknattleiksæfing fyrir 2.
og 3. fl. stúlkna (12—16 ára) í
kvöld kl. 6,50 að Hlíðarenda. —
Nýtízku
eldhúsborð
Fyrirliggjandi á gamla verð-
inu. Einnig fyrirliggjandi drag
ljós í eldhús.
Lárus Ingimarsson
Umboðs- & heildverzlun.
Sími 16205.
Nýir félagar velkomnir.
Handknattleiksdeildin.
Náttúrulækningafél Rvíkur
heldur fund n.k. fimmtudag kl.
8,30 stundvíslega í Guðspekifé-
lagshúsinu, Ingólfsstræti 22. —
Grétar Fells talar um Yoga og
mataræði. Guðmundur Guðjóns
syngur. Ennfremur verður kynn-
ing á hollum matvælum, jurta-
te og heilhveitikökur verða á
boðstólum. Utanfélagsfólk vel-
komið. — Stjúrnin.
Samkomur
Almenn samkoma
Boðun Fagnaðarerindisins
Hörgshlíð 12, Reykjavík, í
kvöld, miðvikudag kl. 8.
KristniboðssambandiS
Almenn samkoma í kvöld kl.
8,30 í Kristniboðshúsinu Betaníu,
Laufásvegi 13. Felix Ólafsson
kristniboði segir nýjustu fréttir
frá Konso. Allir hjartanlega vel-
komnir. —
Fíladelfía
Unglingasamkoma kl. 8,30. —
Almenn samkoma að Herjólfs-
götu 8 í Hafnarfirði.
Fagnaðarerindið boðað á dönsku
Allir eru velkomnir, fimmtu-
dagskvöld, 8,30 í Betaníu, Lauf-
ásvegi 13. — Helmut L. Rasmus
P. B. —
I. O. G. T.
St. Mínerva
heldur fund í kvöld kl. 8^30, á
Fríkirkjuvegi 11. — Gæzlum.
St. Einingin nr. 14
Fundur í kvöld kl. 8,30. Stúk-
an íþaka kemur í heimsókn. —
Ýms atriði. — Kaffi eftir fund.
Félagar, mætið vel og stund-
víslega. — Æ.t.
R
K \ Ð y R
LAUGAVEGI 89
Ég kveð hann einnijg fyrir munn
allra þeirra ástvina, vina, frænda
og gamalla sveitunga, sem unnu
honum og muna, hinn fyrrum
glaða hrausta dreng, Hermann á
Borgareyri.
2. febr.
Gísli Kristjánsson, fyrrv. útgm.
★
VtÐ ANDI.ÁT VTNAR
A ljósvakans öldum berst
andlátsfregn,
sem einnig borizt gat fyrr.
Minn vin loks dauðinn lagði
í gegn,
svo lauk þeim grimma styr.
Hann vegur óvægt oft og títt
og ógnar lífsins hlyn.
Hann vegur hal og fjóðið
frítt.
nú frænda og æskuvin.
Þann vin gat snemma sári sært
og sárið, það var djúpt.
Oft lífið síðan lítf var bært,
en lamað, snautt og hrjúft.
Þó leitazt var við að lina
hans þraut,
hin löngu sjúkdómsár,
þar konu og dætra
kærleiks naut,
1 kyrrþei er felldu sín tát.
En dæmum samt ei dauðans verk,
því deyja sérhver skal.
Og eilífs lífs er o "ka sterk
úr dáins lyftir vai.
Nú lítil kirkja er Ijósum prýdd
— við lygnan, þröngan fjörð —
í hugarsýn og helgiskrýdd,
er hverfur einn úr hjörð.
Hún syrgir hvert barn
er burtu fór
og barn við altarið stóð
En veröldin kvaddi, víð
og stór,
til verka á fjarlægri slóð.
Nú ljúfsár minning leitar heim,
hvar leiddust drengir tveir
og leiðast munu guðs um geina
að gleðjast aftur þeir.
G. K.
Iðnskólinn í Reykjavík
Námskeið í uppsetningu og meðferð olíukynditækja
hefst mánudaginn 4. april n.k. — Kl. 8 síðdegis.
Innritun fer fram frá 22. marz til 2. apríl í skrifstofu
skólans á venjulegum skrifstofutíma.
Námskeiðsgjöld kr. 200.— greiðist við innritun.
Skólastjóri
Framleiðendur
Vér erum einkaumboðsmenn fyrir eftirtalin fyrirtæki:
Nebiolo
Smyth Horne
I M A
Toledo
Sada og Standard
Olivetti
Dutst
Hersey
Prentvélar af mörgum gerðum þ. á. m.
Offset.
Bókbandsvélar
Trésmíðavélar
Vogir og kjötvinnsluvélar
Fjölritara
Rit-, reikni- og bókhaldsvélar
Stækkara og litgreiningartæki
Hitavatnsmælar og vatnsmælar
Allar nánari upplýsingar um verð, afgreiðslutíma o.s. frv.
v e i t a
G. HELGASON & MELSTEÐ HF.
Hafnarstræti 19 — Sími 11644
Vornámskeið
Vornámskeiðin hefjast þ. 8. apríl og lýkur þ. 3. Jénl.
f hverjum flokki verða tuttugu og fjórar kennslustundir,
þrjár á viku.
Á vornámskeiðunum verða kennd öll þau tungumál,
sem kennd hafa verið í vetur. Verður megináherzla lög6
á þann þátt námsins, sem kemur nemendum mest að
gagni við ferðalög erlendis. Litskuggamyndir verða sýnd-
ar frá þeim löndum, sem nemendur hyggjast heimsækja,
og talað um þær á viðkomandi tungumáli.
Skrifstofa skólans er opin kl. 5,20—7,20 daglega og
verða nemendur innritaðir til 5. apríl.
Gjald fyrir þá sem verið hafa tvö námskeið í skólan-
um er kr. 250.00 (rúmar tíu krónur á tímann) og fyrir
aðra nemendur kr. 350.00 (um kr. 14.50 á tímann). Nýir
nemendur greiða eitt hundrað krónur í innritunargjald.
Málaskólinn Mimir
Hafnarstræti 15 (sími 22865 kl. 5.20—7.20)
SÍ-SLÉTT P0PLIN
(N0-IR0N)
MIHERVAc/£^«fts>*
STRAUNING
ÓÞÖRF