Morgunblaðið - 23.03.1960, Síða 22

Morgunblaðið - 23.03.1960, Síða 22
22 MORCTJTSBLAÐJÐ Miðvikudagur 23. marz 1960 — Við túngarðirm Frafh. af bls. 8 á landinu nær hreinræktaða ís- lenzka hunda, er hann telur vera, og hefur flutt þá með sér utan. Hann er nú með hunda sína í Eng Jandi í Hampshire. Fyrir rétt rúmum mánuði eða 6. febrúar sl. vann einn af hundum hans tvö fyrstu verðlaun og heiðursnafn- bótina „Best of elass“ á stórri hundasýningu, er haldin var í Hammersmith. Þessi hundur, er verðlaunin hlaut, nefnist Vaskur og er frá Þorvaldsstöðum. Hunda sýning þessi er mjög stór, stend- ur í tvo daga, og þar koma um 200—300 hundar fram hvorn dag. í fyrra kom annar íslezkur hund- ur fram í sjónvarpi á sýningu þessari og sama dag var mikill fjöldi fólks, sem vildi fá að skoða hann, og var Mark Watson ötull við að kynna hann og segja frá íslenzka hundinum, eðli hans og einkennum. Þá getur Páll þess einnig, að samkvæmt upplýsingum Árna G. Eylands, fyrrum stjórnarráðsfull trúa, séu til hreinræktaðir ís- lenzkir hundar í Noregi. En nú langar okkur til þess að vita, hvað fróðir menn um hunda rækt telja, að séu höfuðeinkenni íslenzka hundsins. Páll hefur látið okkur í té lýsingu á hund- inum, er að mestu byggist á at- hugunum Watsons. Lýsingin er á þessa leið: Almennt útlit: Afbrigði svo- nefndra Spits-hunda, í minna meðallagi að stærð, leikglaðir, glaðsinna. Höfuð: Fíngert, frek- ar breitt milli eyrna. Hauskúpa: Breið, hvelfd. Trýni: Frekar stutt, mót ennis og trýnis greini- leg en ekki skörp. Nef: Svart. Varir: Stuttar, þéttar. Eyru: Myndarleg, þríhyrnd, hvöss og sperrt. Augu: Lítil, kringlótt, dökk og fjörleg. Háls: Stuttur. sterklegur, dálítið hringaður, ber höfuðið hátt. Bógar: Beinir, lítið hallandi. Brjóstkassi: Stór og djúpur. Skrokkur: Sterkbyggður, frekar stuttur en léttur. Fætur: Snöggir, beinir og vöðvamiklir Hæklar frekar réttir. Lappir: Þófar vel þroskaðir, sporið ílangt. Skott: Kafloðið, hringað upp á bak, lengd hófleg. Feldur: Gróf- ur, ekki mjög loðinn, loðnastur á hálsi, lærum og neðanvert á skotti. Feldurinn liggur þétt að skrokknum, haus og lappir snöggar. Litarháttur: Hvítur og mórauður, gulleitur, ljósmórauð- ur og hárendar svartir stundum alveg svartur. Hæð á herðakamb: 36—45 cm. Þyngd: Ca. 15 kg. Þannig er þá lýsingin á hinum gamla íslenzka fjárhundi sem svo er nefndur. Við viljum að síðustu taka und ir það með yfirdýralækni, að mik il nauðsyn er á því að bjarga hinum góða og gegna íslenzka hundi frá tortímingu. Fátt mun leiðara þeim er áhuga hafa fyrir íslenzkri dýrarækt en að sjá úr- kynjaða „bastarða" svo til á hverjum isl. sveitabæ, þar sem hundur er á annað borð til. Hitt er fáheyrt hirðuleysi að ekkert skuli gert til þess að efla og auka hupdarækt hér á landi, svo SkautasveJl í íþróttahöll AÐALFUNDUR Skautafélags Reykjavíkur var haldinn 7. marz í Cafe-Höll. Formaður félagsins, Lárus Salómonsson, setti fundinn og las skýrslu stjórnarinnar. Reikning- ar voru lesnir og samþykktir. Fundarstjóri var frú Katrín Við- ar og fundarritari Björn Árna- son. Ýms mál félagsins og varðandi skautaíþróttina voru rædd. Fund- arsamþykkt var gerð um, að skora á aðila að íþrótta- og sýn- ingarhúsi því sem reisa skal í Laugardal, að hafa þar fyrsta flokks frystitæki til að búa út skautasvell. í öðru lagi, að hraðað verði viðbyggingu við hið stóra hús, sem hægt verði að gera skauta- Framh. á bls. 23. KR heiðrar nokkra félaga Enska bikarkeppnin UNDANÚRSLIT ensku bikar- keppninnar fara fram um næstu helgi og leika þessi lið saman: Aston Villa — Wolverhampton Blackburn — Sheffield W. Reiknað er með að leikirnir verði mjög tvísýnir enda eru öll liðin góð og hafa öll að undan- förnu náð góðum árangri, en Blackburn þó ekki eins góðum og hin. öll þessi félög hafa sigrað í bikarkeppninni og ber Aston Villa þar af, því liðið hefur sigrað 7 sinnum, en þó er Blackburn ekki langt á eftir með 6 sigra. Wolverhampton og Sheffield W. hafa sigrað þrisvar hvort í þess- ari vinsælu keppni. Athyglisvert þarf og að kenna rétta hunda- tamningu, sem hér er á lágu stigi. Notkun hunda, er að sjálfsögðu mun minni nú en var hér áður fyrr, þegar fráfærur voru algeng ar og vetrarbait stunduð al- mennt. Hitt er jafnvíst að enn er svo mikil nauðsyn á hundum til að létta og auðvelda, einkum fjárbændum, störf þeirra, að full ástæða er til þess að beita sér fyrir ræktun góðra fjárhunda. Og eins og frá hefur hefur verið skýrt af fróðum mönnum í þessu efni, henta okkur ekki hér á landi, erlendir fjárhundar, og þá fyrst og fremst vegna þess, hve verkefni fyrir þá er takmarkað. Það er því ekki einasta um að ræða að bjarga fornum þjóðlífs- og menningarverðmætum, þar sem er hinn gamli, góði íslenzki fjárhundur, heldur er hér um hagsmunamál íslenzkrar bænda- stéttar að ræða. vig. er að þetta er í 17. skipti sem Aston Villa kemst í undanúrslit, en liðið hefur leikið 9 úrslita- leiki og aðeins tapað tveimur. Af þessum 4 liðum, sem nú eru í undanúrslitum er lengst um lið- ið síðan Blackburn hreppti bik- arinn eða 1928. Sheffield W. sigr- aði síðast 1935, Wolverhampton árið 1949 en Aston Villa síðast árið 1957. Leiðin til úrslitaleiksins, sem fram fer á Wembley-leikvangin- um í London 7. maí n.k., er mjög erfið eins og allir vita og komast þangað nær eingöngu góð lið, sem hafa á að skipa mörgum góðum leikmönnum. Samt sem áður vita allir, að liðum, sem þangað kom- ast, þarf ætíð að fylgja heppni bæði á leikvelli sem utan hans t.d. þegar dregið er hvaða lið skuli leika saman. Hér mun nú getið hvaða lið fyrrnefndir þátttakendur í und- anúrslitum hafa orðið að sigra til þess að komast þangað: Aston Villa 3. umferð Leeds 2:1 4. — Chelsea 2:1 5. — Port Vale .... 2:1 6. — Preston 2:0 Sheffield Wednesday 3. umferð Middlesbrough 2:1 4. — Peterborough . 2:0 5. — Manchester U. 1:0 6. — Sheffield U. .. 2:0 Wolverhampton 3. umferð Newcastle .... 2:2 3. .... 4:2 4. Charlton 2:1 5. Luton 4:1 6. — Leicester .... 2:1 Blackburn 3. umferð Sunderland .. 1:1 3. 3:1 4. — Blackpool .... 3:0 5. — Tottenham . ... 3:1 6. — Burnley 3:3 6. 2:0 Körfuknattleiks- mótið í kvöld MEISTARAMÓT íslands í körfu- knattleik heldur áfram í kvöld og hefst kl. 8,15. Keppa þá íþrótta- félag stúdentp og IKF og ÍR og KFR (B) í meistaraflokki. Á sunnudaginn fóru leikar þannig í meistaraflokki, að Ár- mann vann Akureyri með 58:44 og í II flokki vann ÍR KR með 52:22. ÁRSHÁTÍÐ Knattspyrnufélags Reykjavíkur var haldin í Sjálf- stæðishúsinu sunnudaginn 6. marz s.l. Eins og venja er á árs- hátíðum félagsins voru þar af- hentar heiðurviðurkenningar fyr ir störf og keppni fyrir K.R. Að þessu sinni voru 3 menn sæmdir stjörnu K.R., þeir Har- aldur Gíslason, Haraldur Guð- rnundsson og Björgvin Schram. Fyrir 20 ára starf og keppni var Harardur Björnsson sæmdur gulipeningi. Þórður B. Sigurðsson, Birgir Þorvaldsson og Helgi Helgason voru sæmdir gullmerki K.R. fyr- ir 15 ára starf og keppni. Fyrir 10 ára starf og keppni hlutu eftirtaldir menn silfurpen- ing K.R.: Þorbjörn Friðriksson, Reynir Ölafsson, Guðmundur Georgsson, Jón Ingi Rósantsson, Ágúst Hafberg og Þórir Þorsteins on. ---« Þessir voru sæmdir stjörnu KR fyrir frábær störf í þágu félagsins. — Talið frá vinstri: Haraldur Gíslason, Haraldur Guðmundsson og Björgvin Srhram. — Fer vel með hendur Þér getið verið öruggar með beztu ullar- peysuna yðar, ef þér þvoið hana úr ÞVOL, því ÞVOL inniheldur nýtt efni sem jafn- framt því að þvo vel, er algjörlega skað- laust ullartaui, næloni og silki. ÞVOL hefur einnig þann eiginleika að skýra liti í ullartaui, þvo jafnt í heitu sem köldu vatni, og er mjög létt í skolun. ÞVOL er því ákjósanlegt til þvotta á barnataui. ÞVOL er ótrúlega drjúgt. ! r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.