Morgunblaðið - 27.04.1960, Síða 11

Morgunblaðið - 27.04.1960, Síða 11
Miðvikudagur 27. apríl 1960 MORCVNBLAÐIÐ 11 & -0.f « skrifar um: KVIKMYNDIR Stjörnubió: SIGRÚN Á SUNNUHVOLI Margir hér munu kannast við hina heillandi skáldsögu „Sig- rúnu á Sunnuhvoli" eftir norska stórskáldið Björnstjerne Björns- son, en þegar ég var að alast upp var hún eftirlætissaga unglinga. — Sagan segir frá þeim Sigrúnu á Sunnuhvoli og Þorbirni í Greni hlíð, og æskuástum þeirra. Þau eru nágrannar. Sunnuhvoll stend úr uppi á hæð í miðjum dalnum — og þar er alltaf sólskin, segir sagan. En úti við hlíðina, í skugg- anum er Grenihlíð „og heima- fólkið þar er skapmikið og heift- ugt“. Sigrúnu og Þorbirni hefur litizt vel hvort á annað frá barn- áesku og þegar þau eru uppkomin, hún orðin falleg stúlka og hann gjörvulegur ungur maður, hafa þessar tilfinningar þeirra orðið að innilegri ást. Samdráttur þeirra er illa séður af hinum guð hræddu foreldrum Sigrúnar, því að Þprbjörn, sem orðið hefur fyr- ir illum áhrifum í bernsku af flækingi, Ásláki að nafni, sem dvaldi um skeið í Grenihlíð, er óstýrlátur óg á oft í áflogum, enda skapmikill svo sem hann á kyn til. Hann lofar Sigrúnu að halda sér frá öllum illindum, en Knútur á Norðurhaugi, sem hef- ur ætlað sér Sigrúnu ögrar hon- um eitt sinn í brúðkaupsveizlu og lýkur þeirri viðureign með því að Knútur særir Þorbjörn lífs- hættulega með rýtingi. Þorbjörn liggur lengi nær dauða en lífi og þá kemur óhappamaðurinn Áslákur enn til sögunnar. Hann læðist inn í híbýlin í Grenihlíð og hittir þar Xngiríði systur Þor- björns, er hann vaknar og verð- ur æfur er hann sér Áslák og sprettur á fætur. En Áslákur leit ar undan upp á fjallið og þar nær Þorbjörn honum. Mæðgurn- ar frá Sunnuhvoli hafa séð við- ureign þeirra Þorbjarnar og hraða sér á vettvang. Verða þar fagnaðarfundir með Sigrúnu og Þorbimi . . . En Áslákur held- ur einsamall leiðar sinnar. Saga þessi, sem er frábærlega vel gerð, var kvikmynduð á tím- um þöglu myndanna. Var hún þá sýnd hér við mikla aðdáun og aðsókn. Er mér sú mynd mjög minnisstæð ekki síst fyrir af- burðasnjallan léik LarS Hanssons í hlutverki Þorbjarnar. Mynd sú, sem nú er sýnd er sænsk-norsk og tekin í litum. Er hún vel gerð og prýðilega leik- in, enda fara hér margir ágætir leikarar með hlutverk, svo sem Edvin Adolphson, sem leikur Sæ- mund bónda í Grenihlíð, Ove Tjernberg, sem leikur Knút á Norðurhaugi og síðast en ekki síst Gunnar Hellström, sem fer með hlutverk Ásláks af mikilli snilld. ( Austurbæjarbíó: CASINO de PARIS Þetta er þýzk dans- ög söngva- mynd í litum. Segir þsir frá fræg- um leikritahöfundi, Alexander Gordy, sem er heimsmaður mik- ill og kvennagull. Hann sér í Casino de Paris söngleik þar sem ung og vinsæl söngkona, Cathe- rine Miller kemur fram. Honum lízt vel á stúlkuna og býður henni aðalhlutverkið í leikriti, sem hann kveðst hafa í smíðum. Hann býður henni heim til sín til Cann- es svo að hún geti æft hlutverkið undir umsjá hans. Catherine kem ur þangað, reyndar með alla fjöl- skyldu sína, föður, móður og tvo litla bræður sína og tvo rakka að auki. Leikritahöfundurinn er ekki hrifin af þessari heimsókn, en lætur það þó gott heita. Hann sér það þegar að Catherine hef- Ur ekki mikla leikgáfu, en því meiri þökka og hann verður hrif- inn af henni — en það verður einkaritari hans Jacques lika. Og þá er spurningin hver verði hinn hamingjUsami sigurvegari. Hér verður þeirri spurningu ekki svar að, enda bezt að menn sæki það í sjálft kvikmyndahúsið. Mynd þessi er nokkuð laus í reipunum, mest sundurlaus „show“ og að því er mér finnst, ekki eins skemmtileg og við hefði mátt búast, þar sem svo snjallir leikarar eru að verki eins og Vittorio de Sica, sem leikur Gordy, Caterina Valente sem fer með hlutverk Catherine Millers og Gilber Becaud sem leikur Jacques. Afgreiðslustúlka vön afgreiðslustörfum getur fengið atvinnu frá 1. maí í búð í miðbænum. Tilboð merkt: „Vön — 3098“ ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf. H úsgagnasmiður Óskum eftir að ráða húsgagnasmið nú þegar. Kristján Siggeirsson hf. Laugavegi 13. Vélbátar til sölu 18 lesta vélbátur, byggður í Danmörku 1943, Elac- mælir, góð spil, dragnótaveiðarfæri og ný humar- veiðarfæri fylgja, hagkvæmt verð. 18 lesta vélbátur, smíðaár 1955, dieselvél, Elaemælir. Bátur og vélbúnaður í ágætu standi. 25 lesta vélbátur, smíðaár 1958 sérstaklega vand- aður og fullkominn að öllum útbúnaði. Línu og netaútbúnaður fylgir svo og ufsanót. Allt í mjög góðu ástandi. 38 lesta vélbátur með nýrri GM dieselvél og nýjum dýptarmæli, hagkvæmt verð. 40 lesta vélbátur smíðaár 1956 með GM diesel Simrad mæli með asdic útfærslu. Bátur og vélbúnaður í góðu ástandi. 50 lesta vélbátur með nýlegri dieselvél í ágætu standi. Vélbátar af ýmsum stærðum frá 12 til 95 lesta. TRY6GIH6AS FASTEI6HIR Austurstræti 10. 5. hæð, sími 24850 og eftir kl. 7 simi 33983. Samninganefnd V-R. boðar til fundar með skrifstofu- og afgreiðslufólki nk. fimmtudag í Vonarstræti 4. Skrifstofufólk mæti kl. 6 e. h. Afgreiðslufólk mæti kl 8,30 e .h. Fundarefni: KJARAMÁLIN Samninganefnd V. R. Vanir skiúðgorðamenn óskast. Gróðrastöðin við Miklatorg sími 19775 og 23598. Verzlunarstörf Stúlka og karlmaður óskast í kjörbúð strax. Upp- lýsingar um aldur og fyrri störf sendist á afgr. blaðs ins fyrir fimmtudagskvöld merkt: „Kjörbúð — 3100“, Innheimfnmnður Stórt fyrirtæki vantar strax ábyggilegan innheimtu- mann sem er vel kunnugur í bænum. Tilboð sendist afgreiðslu Morgunbl. fyrir föstudagskvöld merkt: „Hálfan daginn 3097“. Lögregluþjónsstarf í Keflavík er laust til umsóknar. Laun samkvæmt launasamþykkt Keflavíkurkaupstaðar. Umsóknum sé skilað á skrifstofu mína fyrir 8. maí 1960. Bæjarfógetinn í Keflavík. Afgreiðslustúlka óskast í sérverzlun (Ekki yngri en 20 ára). Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir sunnudag merkt: ,,Sölu- maður — 4307“. Verzlun til sölu Af sérstökum ástæðum er til sölu ein þekktasta kjöt og nýlenduvöruverzlun í bænum. Sérstakt tækifæri fyrir unga menn sem hafa áhuga að reka stóra og umfangsmikla verzlun. Verðið mjög hagkvæmt. Útb. samkomulag. Allar nánari uppl. veitir Fasteignasala Áka Jakobssonar Laugaveg 27. Uppl. ekki veittar í síma. íbúðir til sölu Tvær 3ja herb. íbúðir tilbúnar undir málningu, enn- fremur iðnaðar eða Iagerpláss í kjallara um 100 ferm. Til mála getur komið skipti á gömlu húsi og lóð í gamla bænum. Fljótlega vcrða til sölu 3ja og 4ra herb. íbúðir sem seljast í fokheldu ástandi. Allaf upplýsingar gefur Byggingafélagið M. Oddsson h.f., Hverfisgötu 32 sími 15605.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.