Morgunblaðið - 27.04.1960, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 27. apríl 1960
MORGUNTtT. 4 Ð1Ð
23
Ríkisreikningurinn 7957 rœddur á Alþingi;
Tekjur og gjöld ríkisins
umfram áœtlun 1957
I stað greiðsluafgangs varð nœr 7
milljón króna halli
FRUMVARP um staðfestingu
á ríkisreikningi ársins 1957,
sem lagður var fram á Al-
þingi fyrir skömmu, var til
fyrstu umræðu á fundi Eiri
deildar í gær.
Það var núverandi fjármála-
ráðherra, Gunnar Thoroddsen,
sem fylgdi frumvarpinu úr hlaði.
Farið fram úr áætlun
Skýfði hann frá því m.a., að
tekjur ríkisins hefðu í fjárlögum
fyrir umrætt ár verið áætlaðar
811,6 milljónir króna, en þær
hefðu farið 99,5 milljónum króna
fram úr áætlun og orðið 911,1
millj. króna — Um greiðslur úr
ríkissjóði sagði fjármálaráðherra,
að þær hefðu í fjárlögum verið
áætlaðar 810,3 millj. kr., en gjöld
in hefðu líka farið fram úr áætl-
un um 107,8 millj. kr. og því
orðið samtals 915 millj. kr.
I fjárlögum fyrir árið 1957
hefði verið gert ráð fyrir
greiðsluafgangi að upphæð
1,3 millj. kr., en niðurstaðan
hefði orðið greiðsluhalli, sem
nam tæpum 7 milljónum kr.
Abendingar yfirskoðunarmanna
I»á skýrði Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, frá því, að yf-
irskoðunarmenn hefðu að vanda
endurskoðað reikninginn og að
þessu sinni gert við hann 38 at-
hugasemdir. Eftir að fjármála-
ráðuneytið hafði leitað umsagna
hlutaðeigandi stofnana og starfs-
manna varðandi athugasemdirn-
I ar, gáfu yfirskoðunarmenn ýmist
Sjú En-lai eins og
„harður klettur"
Viðrœðum þeirra Nehrús lokið án árangurs
Nýju Delhi, Indlandi, og Kat-
mandu, Nepal, 26. apríl.
— (Reuter) —
SJÚ EN-LAI, forsætisráðherra
Kína, hélt frá Nýju Delhi til
Katmandu í Nepal í dag, að
loknum sex daga viðræðum við
Nehrú, forsætisráðherra Ind-
lands, um landamæradeilur rikj-
anna. — Af sameiginlegri yfir-
lýsingu þeirra má marka, áð við-
ræðurnar hafa orðið algerlega
árangurslausar — aðeins hafa
þeir orðið sammála um, að
frekari samningaumleitanir skuli
fram fara. — Ágreiningurinn er
í grundvallaratriðum hinn samí
og áður, sagði Nelirú á blaða-
mannafundi eftir viðræðurnar.
Hvað skal gera?
A þingi síðdegis rigndi
spurningum yfir Nehrú frá
stjórnarandstæðingum um, hvao
hann vildi nú taka til bragðs, úr
því að allar þessar viðræður
hefðu til einskis orðið. — For
sætisráðherrann svaraði á þá
leið, að það væri a. m. k. ekkv
/jb róttir
Framhald á bls. 22.
lögin: Fram 6, Víkingur 6, Valur
5 og K.R. 2. — Þróttur sá sér
ekki fært að benda á neinn mann
nú að þessu sinni, en Þróttur á
8 af starfandi dómurum í Reykja
vík.
Aðalkennari námskeiðsins er
Hannes Sigurðsson, en hann hef-
ir öðlazt mikla reynslu sem
knattspyrnudómari og leiðbein-
andi á dómaranámskeiðum hér í
Reykjavík og víða um land.
■Jc 37 dómarar
Alls eru 37 starfandi dómarar
innan K. D. R. — 10 landsdómar-
ar, 18 héraðsdómarar og 9 ungl-
ingadómarar.
Nýlega hefir fjórum mönnum
verið veitt landsdómararéttindi;
en þeir eru: Baldur Þórðarson,
Þrótti, Einar Hjartarson, Val,
Hreiðar Ársælsson, K.R. og Hörð
ur Óskarsson, K.R.
Formaður Dómarafélags Reykja
víkur er Einar Hjartarson, Val.
IOOF
IOOF 9 = 1414278 V* — NK.
hægt að hefja styrjöld til þess
að reka Kínverja frá hinum um-
deildu héruðum í Ladakh. —
„Við getum ekki lýst yfir styrj-
öld á landamærunum og ráðgert
frekari samningaumleitanir um
leið“, sagði Nehrú.
á; Andstæðar fullyrðingar
Nehrú sagði m. a. á blaða-
mannafundinum, að hann gerði
ekki ráð fyrir því, að til frekari
árekstra drægi á landamærun
um.
Hann kvaðst í viðræðunum
við Sjú ávallt hafa rekið sig á
„harðan klett“ skoðunarmismun-
arins og andstæðra fullyrðinga.
— Það er til dæmis um það,
hvað á milli ber, að Kínverjar
halda því fram, að þeir hafi ver-
ið á hinum umdeildu Ladakh-
svæði um 200 ára skeið — eu
Indverjar segja, að þeir hafi ráð
izt inn á svæðið fyrir aðcins 18
mánuðum.
ir Við eigum Everest
Sjú En-lai kom til Kat-
mandu, höfuðborgar Nepals, síð-
degis, en þar mun hann einnig
ræða landamæraágreining vxð
forsætisráðherrann, Koirala. —
Kínverjar hafa nýlega sett fram
kröfur um eignarrétt sinn á
Everest, hæsta fjalli heimsins —
og þegar Sjú ók inn í Katmandu,
gat víða að líta spjöld með mynd
af fjallkónginum með fána Nep-
als á tindinum. Sumar myndanna
báru og áletrunina: „Við eigum
Everest“. — Má segja, að kin-
verska forsætisráðherranum hafi
verið fremur fálega tekið, sem
í Indlandi.
Garðyrkjufræðsla
FJÓRÐA og siðasta fræðslukvöld
Garðyrkjufélags Islands verður
haldið í kvöld, miðvikudag 27.
apríl, í Iðnskólanum á Skóla-
vörðuholti og hefst kl. 20,30.
A þessum fundi tala próf. Níels
Dungal (um orkídeur) og Seefeld
Wolf (um blóm í listaverkum).
ábendingar um heppilegar breyt-
ingar, töldu að við svo búið mætti
standa eða vísuðu málunum til
aðgerða Alþingis. 1 síðastnefnda
tilfellinu var um að ræða vanda-
mál tveggja stofnana, Ríkisút-
varpsins og Tryggingastofnunnar
ríkisins, sem yfirskoðunarmenn
töldu hæpið að unnt yrði að leysa
farsællega án atbeina þingsins.
Chessmonn
heldui í
hólmstróið
Sacramento, Kalif., 26.
apr. (NTB/Reuter).
— ÉG neita að viðurkenna,
að mér sé ekki undankomu
auðið, sagði Caryl Chess-
man, þegar hæstiréttur
Bandaríkjanna hafnaði í
gær 16. beiðni hans um að
taka mál hans upp að nýju.
— Hann sagði, að Iíkumar
væru reyndar 99 á móti 1
gegn sér — en hann tryði á
þetta eina tækifæri.
Það eina, sem nú virðist
geta bjargað honum, er að
tveir blaðamenn, sem telja
sig hafa sannanir fyrir því,
að hann sé ekki glæpamað-
urinn ,Rauði lampinn", hafi
rétt fyrir sér — því að
Brown ríkisstjóri Kaliforn-
íu hefir Iýst því yfir, að
stjórnarskráin veiti sér
enga heimild til að náða
Chcssman.
Chessman, sem var dæmd
ur fyrst fyrir 12 árum, fyr-
ir mannrán og kynferðis-
glæpi, skal líflátast í gas-
klefa San Quentinfangels-
isins nk. mánudag. —
— Syngman
Framh. af bls. 6.
opnaðir. — Rhee kvaðst hafa
sagt allt, sem hann vildi segjo
að sinni, í yfirlýsingu sinni fyrx
í dag.
Sendiherra Bandaríkjanna,
Walter McConaughy, ræddi exnn
ig við Syngman Rhee í dag. —
Síðar gaf sendiráðið út tilkynn-
ingu, þar sem segir m. a., að yfir-
völdin í Suður-Kóreu verði að
ráða hið fyrsta bót á því ástandi,
„sem fólkið kvarti yfir með
réttu“. — Eftir samtal sitt við
Rhee kvaðst sendiherrann sann-
færður um, að hann mundi efna
heit sitt og afsala sér öllum vóld-
um.
• Forsprakkar flýja
Víðar í Kóreu urðu óeirðir í
dag, sérstaklega í borginni Pus-
an, þar sem flestar opinberar
byggingar voru skemmdar mik-
ið. — Herlögunum, sem var af-
létt að nokkru í gær, var á ný
fengið gildi í Seoul, Pusan og
nokkrum fleiri borgum.
Lengi dags svifu þyrlur yfir
bústað Syngmans Rhees — og
komst á kreik sá orðrómur* að
hann hefði með leynd komizt á
brott með einni þeirra — ei,
opinber talsmaður neitaði alger-
lega þeim orðrómi. — Hins vegar
er vitað, að nokkrir foringjar
Frjálslynda flokksins fara nú
huldu höfði, þar á meðal vara-
forsetaefnið Lee Ki Poong.
Stúlka
óskast I sælgætisgerð í Hafnarfirði. Uppl. í síma 36195.
Nýjar jarðhrœr-
ingar í Lar
Eifurslöngur skríða í rykugum rústunum
TEHERAN, íran, 26. apríl.
(Reuter) — Þegar björgunar-
sveitir voru að grafa í rústum
Lar í dag í leit að þeim, sem
kunna að vera þar enn með lífi,
gekk nýr landskjálftakippur yf-
ir. Ekki er gott að fá áreiðanleg-
ar fréttir frá Lar, en heyrzt hef-
ir, að nokkrir björgunarmann-
anna hafi slasazt eða jafnvel beð
ið bana.
★
Fregnir af manntjóninu á
sunnudag eru mjög ósamhljóða,
og talar ein heimild um, að 400
hafi fundizt látnir, önnur segir,
að um 3000 hafi farizt — og svo
heyrast ýmsar tölur þar á milli.
— Eftirlifendur hafast flestir við
í tjaldbúðum í grennd við Lar,
en menn, sem flogið hafa yfir
nágrennið, segja að sjá megi
langar lestir fólks á leið til næstu
þorpa.
★
Björgunarmenn telja, að taka
muni um þrjár vikur að leita í
rústunum. Mikil drepsóttahætta
er talin þar — og sjá má eitur-
slöngur skríða um rykugar rúst-
imar, en þær geta auðvitað orðið
hættulegar þeim, sem enn kunna
að liggja lifandi í brakinu. —
Matvæli, fatnaður og hjúkrunar-
gögn eru flutt flugleiðis til Lar,
og hefir hjálp borizt víða er-
lendis frá.
★
Talið er, að landskjálftinn á
sunnudaginn hafi verið mun
harðari en sá, sem lagði Agadir
í Marokkó í rústir fyrir nokkru.
Hugheilar þakkir sendi ég öllum er sýndu mér vinar-
hug á 70 ára afmæli mínu 18. þ. m.
Pálína Þorfinnsdóttir,
Urðarstíg 10.
Útför móður okkar
HlDRDlSAR HANNESDÖTTUR
Tjarnargötu 34,
fer fram frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn
29. apríl kl. 2 e. h.
Þórhildur Óiafsdóttir, Guðrún Ölafsdóttir.
Jarðarför
BRAGA MARTEINS JÓNSSONAR
frá Vífilsmýrum,
fer fram fimmtudaginn 28. þ. m. kl. 1,30 frá Fossvogs-
kirkju.
Fyrir hönd vandamanna.
Indriði Jónsson.
Jarðarför konunnar minnar, móður, tengdamóður og
ömmu,
INGIBJARGAR EINARSDÓTTUR
fer fram fimmtudaginn 28. þ. m. frá Hafnarfjarðarkirkju
og hefst með bæn að heimili hennar, Vesturbraut 20,
kl. 1,30. — Blóm og kransar afbeðin, en þeim sem vildu
minnast hennar, er bent á Líknarstofnanir.
Friðrik Ágúst Hjörleifsson,
« dætur, tengdasynir og barnabörn.
Jarðarför föður okkar
GUÐJÓNS SIGURÐSSONAR
sem andaðist þann 21. þ. m. fer fram frá heimili hins
látna Voðmúlastaða-hjáleigu, laugard. 30. apríl kl. 1 e. h.
Jarðsett verður frá Voðmúlastaða-kirkjugarði.
Böm, tengdabörn og bamaböm.
(Þeir sem kynnu að óska eftir ferð héðan úr Reykja-
vík, vinsamlegast hringið í síma 2-22-43 eftir kl. 5 sem
fyrst).
Jarðarför bróður míns
GUÐMANNS ÁRNASONAR
Klömbrum,
sem andaðist miðvikud. 20. þ.m. að Elliheimilinu Grund,
fer fram föstudaginn 29. þ. m. að Breiðabólstað, Vestur-
Hópi kl. 2 e. h. — Kveðjuathöfn verður í Dómkirkjunni
fimmtudaginn 28. þ. m. kl. 10,30 f. h.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðmundur Árnason.
Alúðar þakkir öllum þeim sem vottuðu vináttu og
Isamúð við andlát og jarðarför
MARIU HALLDÖRSDÓTTUR
, Vandamenn.
^ r p f p r n f ff f ^