Morgunblaðið - 27.04.1960, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.04.1960, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 27. aprfl 1960 MOrtcTJMTiT 4 niÐ 15 Útgáfa og kynnisig rímna Blómleg sfarfsemi Rimnafélagsins RÍMNAFÉLAGIÐ hélt aðalfund sinn sunnudaginn 10. þ.m. For- seti þess, Karl Kristjánsson, al- þingismaður, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Flutti hann síðan ársskýrslu fé- lagsstjórnar. Á liðnu starfsári hafði félagið getið út nýct bindi af rímum, en það er hið IX. í röðinni af ritum félagsins og nefnist Stakar rím- ur frá 16., 17, 18. og 19. öld. Bjó Finnur Sigmundsson, lands- bókavörður, rímurnar til prent- unar. Rímurnar í IX. bindinu eru: Fjósaríma, eftir Þórð Magnússon á Strjúgi. Ekkjuríma, eftir Bjarna Jónsson Borgfirðinga- skáld. Flateyjarríma, eftir, síra Magnús Ólafsson Laufási. Ým- isríma, eftir síra Eirík Hallsson í Höfða. Bekraríma, eftir sama.' Tímaríma, eftir Jón Sigurðsson sýslumann. Svaðilför, eftir Arna JónsSon — Eyjafjarðarskáld. Griðkuríma, eftir Gamalíel Hall- dórsson og Illuga Einarsson. Skákmeistari Akureyrar ’60 AKUREYRI 22. apríl: Meistara- móti Akureyrar í skák er nýlok- ið. Urðu þau úrslit að Skákmeist ari Akureyrar 1960 varð Kristinn Jónsson með 914 vinning af 11 mögulegum. Júlíus Bogason varð annar með 814 og þriðji Jóhann Snorrason með 8. — Mag. Draugsríma, eftir Sigurð Breið- fjörð. Ríma Gamlamuna og Nýja móðs, eftir Hallgrím Jónsson. Rímur þessar eru flestar létt- ari og aðgengilegri til lestrar, en ýmsar þeirra rímna, sem áður hafa komið út á vegum félagsins. Um útgáfustörf félagsins að öðru leyti er þetta að segja: Stjórn félagsins fór þess á leit við prófessor Sigurð Nordal að fá að gefa út erindi það, sem hann flutti á síðasta aðalfundi félags- ins. Varð prófessorinn goðfúslega við þeim tilmælum. Erindið, sem er bæði fróðlegt og snjallt, og nefnist: „Rímur og lausavísur". hefur nú verið prentað og er það III. aukarit Rímnafélagsins. Stjórn félagsins ákvað að senda félagsmönnum aukarit þetta ókeypis. Um sl. áramót lét stjórn félags- ins prenta greinargerð um félag- ið og útgáfustörf þess á ensku og hefur dreift henni út til erlendra bókasafna, fræðistofnana og nokkurra bóksala. Væntir stjórn- in þess, að þetta verði til nokk- urrar kynningar á ritum og starf semi félagsins meðal erlendra manna, er leggja stund á íslenzk fræði Enn hefur orðið dráttur á, að Brávallarímur Arna Böðvarsson- ar kæmu út. Valda því veikindi dr. Björns Karels Þórólfssonar, sem annast útgáfu rímnanna. Þess er þó fastlega vænzt, að rímurnar geti komið út síðari hluta þessa árs. Pontusrímur eftir Magnús Jóns ' son prúða og Pétur Einarsson á Revían „EITT LAUF" n 1 ELDHÚSI Ehsabetar Bretadrottningar eru heimsmálin rædd af miklum hita og vizku. Elísabet (Steinunn Bjarna- dóttir) stjórnar ríki sínu og eldar matinn jöfnum höndum, í hinni bráðsnjöllu revíu „Eitt lauf“, sem sýnd hefur verið í Sjálfstæðishúsinu frá páskum, ávallt fyrir fullu húsi. A myndinni hér að ofan er Elísabet að tala við Filippus mann sinn, sem er kominn á spítala á Patreksfirði. Margrét (Þóra Friðriksdóttir) fylgist spennt með samtalinu. Næsta sýning á hinni skemmtilegu revíu er í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld klukkan 8,30. Ballará í útgáfu Gríms Helgason- ar, cand. mag., eru í prentun. Má ætla, að þær komi út á þessu ári. Stærsta verkefni félagsins, sem nú er unnið að, er Rímnaskrá Finns Sigmundssonar, landsbóka- varðar. í þá skrá verða teknar allar rímur, sem kunnar eru, birt ig verða þar birt stutt æviágrip um rímnahöfunda. I Rímna- skránni verður margskonar fróð- leikur um rímur, sögur, sem rím- ur hafa verið ortar út af, og rímnaskáld. Verður þar margs- konar fróðleikur, sem hvergi er áður til í prentuðum ritum. Út- gáfa rímnaskrárinnar mun því marka tímamót í rannsóknum upphafserindi þeirra, vísað í út- gáfur og handrit og greint frá j rímnanna og rímnasögunnar. heimildum um efni þeirra. Einn- I Af Rímnaskránni er nú búið að setja um 30 arkir. Verður reynt að hraða útgáfu hennar eftir föng um, en hins vegar ekkert full- yrt um það — eins og sakir standa — hvenær hún muni koma út. Ekki er enn fyllilega ráðið, hvaða rímur verða næst valdar til útgáfu. Verkefnin eru óþrjót- andi, en fjárhagsgetan af skorn- um skammti. Auk þess er erfið- ara en ætla mætti að fá vana menn og vel hæfa til að takast á hendur útgáfustörfin. Gjaldkeri félagsins, Ragnar Jónsson, hæstaréttarlögmaður, las upp endurskoðaða reikninga félagsins sl. ár á fundinum, og voru þeir samþykktir í einu hljóði. Úr stjórn félagsins gekk eftir þriggja ára ritarastarf Baldur Steingrímsson, skrifstofustjóri, og mátti ekki eftir reglum félags- ins endurkjósa hann. I stað hans var kosinn Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri. Dr Jakob Benediktsson skýrði 1 fyrir hönd útgáfunefndar félags- ins frá því, hvaða rímur útgáfu- nefndin teldi, að til- greina gæti komið að taka til útgáfu næst á eftir þeim, er um getur í skýrslu stjórnarinnar, þó að engu hefði um verið slegið föstu um, hverj- ar yrðu fyrir valinu. Dr. Björn Sigfússon flutti á fundinum skemmtilegt erindi, sem hann nefndi: „Getur nokkuð verið sameiginlegt með rímna- gleði hinna elztu og yngstu, sem nú lifa á íslandi?* Stjórn Rímnafélagsins skipa nú: Karl Kristjánsson, alþingis- maður, forseti, Arnór Guðmunds- son, skrifstofustjóri, ritari, Ragn ar Jónsson, hæsetaréttarlögmað- ur, gjaldkeri. Útgáfunefnd félagsins skipa: Björn K. Þórólfsson, dr. phil., skjalavörður, Finnur Sigmunds- son, landsbókavörður, Jakob Benediktsson, dr. phil, orða- bókarritstjóri. 4 LESBÓK BARNANNA CRETTISSAGA 25. Grettir mælti til ber- serkja:: „Seljið mér það í hendur, sem þér viljið af le&gja, vopn o g vosklæði**. Þórir svarar: „Það lízt mér sem vér munum hafa þig að trúnaðarmanni“. Síðan lögðu þeir af flest öll vopn. Eftir það mælti Grett- ir: „Ráðlegt þykir mér, að þér farið til borðs og drekk- ið nokkuð, því að yður mun þyrsta af róðri**. Þeir kváðust þess albúnir. Grettir fer til og sækir öl, en þeir voru mjög móðir og sulgu stórum. • 26. Grettir mælti: „Göng- um út áður þér farið til svefns, og mun ég sýna yður fatabúr Þorfinns**. Þeir létu það leiðazt. Komu þeir að útibúri ákaflega stóru, þar voru á útidyr og sterkur lás fyrir. Það v?~ alisterkt hús. Þar hjá var salerni mik- ið og sterkt og eitt skjaldþil milli húsanna. Berserkir gerð ust nú umfangsmiklir og skotruðu Gretti. Hann fór undan í flæmingi, og er þeim var minnst von, hljóp hann út úr húsinu og greip í hesp- una og rekur aftur húsið og setur lás fyrir. 27. Grettir flýtlr ferðinni heim að bænum og spurði, hvort þar væru nokkur vopn. Húsfreyja svarar: „Eru vopnin, en eigi veit ég til hvers þér koma“. „Tölum síðar um það“, seg- |r hann. „Dugi nú hvers sem «ná“. Húsfreyja mælti: „Yfir sæng Þorfinns hangir króka- spjótið hið stóra, er átt hefur Kárr hinn gamli. Þar er og hjálmur og brynja og saxið góða, og munu eigi bila vopn- in, ef þér dugir hugurinn**. Grettir vopnast þá og geng- ur út skjótt. Húsfreyja bað húskarla fylgja svo góðum dreng. Þeir hlupu til vopna fjórir, en fjórir þorðu hvergi nærri að koma. 28. Nú er að segja frá berserkjunum, að þeim þótti Grettir dveljast afurkoman. Þeir brjóta nú skjaldþilið og komast svo út á riðið. Kem- ur á þá berserkgangur og grenja sem hundar. I því bili kom Grettir að. Hann tvíhenti spjótið á Þóri miðjan, er hann ætlaði ofan fyrir riðið, svo að þegar gekk í gegn um hann. Ögmundur illi gekk næst Þóri og hratt honum á lagið, svo að allt gekk upp að krókunum. Stóð þá spjótið út um herðarnar á Þóri og svo framan i brjóstið á Ögmundi. Steyptust þeir báðir dauðir af spjótinu. Tígrisdýrið LANGT inni í frumskóg- inum var búgarðurinn, þar sem Watung átti heima. Hann var verk- stjóri á stóru gúmmíekr- unum sem lágu út frá hús inu í allar áttir. Watung hafði alist upp í grennd við frumskóginn og kunni hvergi betur við sig. Fátt fannst honum jafnast á við það að halla sér í bambusstólinn sinn úti á svölunum, og hlusta á hin margvíslegu hljóð, sem bárust til hans utan úr skóginum. Það var hlýtt og kyrrt sumarkvöld og Watung sat eins og venjulega úti á svölunum hjá konu sinni, en litli drengurinn þeirra lék sér í háu gras- inu niðri í garðinum. í þetta sinn, hafði hann fengið að vera úti lengur en venjulega, af því að kyrð og friðsæld kvölds- ins var svo mikil, að þau vissu ekki, hvernig tím- inn leið. Allt í einu heyrðu þau veik köll í fjarska. Þau gátu ekki greint, hvað sagt var en báðum var þeim ljóst, að það var drengurinn þeirra, sem var að kalla. Þau hlupu af stað eftir stígnum, sem lá gegn um hávaxið gras- ið og í flýti þreif Watung riffilinn sinn með sér. Allt var hljótt. Nokkrum sinnum kallaði Watung á son sinn en fékk ekkert svár. Hann bað konu sína, að snúa við heim að hús- inu og biðja um hjálp með því að hringja yfir í verka mannabústaðina, er voru aðeins um 200 metra í burtu. Sjálfur hélt hann áfram að læðast eftir stígnum, en þegar hann kom að opnu svæði nam hann snögglega staðar. í þurrum sandinum sá hann greinilega för eftir tígris- dýr, sem nýlega hafði gengið þar um. Af dýpt sporanna og slóðinni í sandinum mátti ráða, að dýrið hafði dregið eitt- hvað með sér. Það var vandalaust að geta sér þess til hvað það hefði verið. I sandinum fyrir fótum hans lá leikfang, — lítill bíll —, sem son- ur hans hafði verið að leika sér að. Watung hraðaði sér á- fram og fylgdi slóðinni. Dimman féll á og það varð erfiðara að sjá frá sér. Watung varð gripinn vaxandi hræðslu. Gat það átt sér stað, að dýrið hefði dregið son hans alla þessa ieið, án þess hann gæfi hljóð frá sér, eða var hann kannske þegar dá- inn? Við dálítið rjóður, sem lítill lækur rann um, nam Watung staðar. Hann varð að bíta á jaxlinn til að æpa ekki svo skelfi- leg var sú sjón, sem við honum blasti. í miðju rjóðrinu mátti greinilega sjá stórt tígris- dýr, sem stóð hreyfingar- laust yfir bráð sinni. Wat-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.