Morgunblaðið - 27.04.1960, Qupperneq 24
Íþróttasíðan
er á bls. 22.
oíi’ipwíMatufo
94. tbl. — Miðvikudagur 27. apríl 1960
Svifvagn
Sjá bls. 13.
Að Genfarráðstefnunni Eokinni:
Aðstaða íslands er
sterkari en áður
Samtal við Bjarna Benedikts-
son, dómsmálaráðherra
Genf, 26. apríl.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Þorsteini Thorarensen.
EFTIR atkvæSagreiðsluna í
morgun kom ég að máli við
Bjarna Benediktsson, dóms-
málaráðherra, og bað hann
segja mér álit sitt á úrslitun-
urn. Bjarni svaraði:
Fögur orð í stað athafna
— Við höfum hagað öllum
störfum okkar á ráðstefnunni
með það fyrir augum að
greiða fyrir, að hún næði til-
ætluðum árangri, svo að
Ijúka mætti þeirri réttar-
óvissu, sem rikt hefur í þess-
um efnum, og þar með yrðu
lífshagsmunir íslands betur
tryggðir. Stefna okkar hefur
verið skýr og ákveðin frá
fyrsta degi ráðstefnunnar til
hins síðasta. Við höfum í til-
lögum okkar og öllum mál-
flutningi, bæði manna á milli
og á fundum, hiklaust og
ótvírætt látið uppi, með
hvaða skilyrðum við gætum
greitt atkvæði með þeirri
lausn, sem bersýnilega hafði
mest fylgi á ráðstefnunni. —
Þeir, sem mestu réðu hér
vildu ekki fallast á skilyrði
okkar, heldur virtust halda,
að fögur orð gætu komið í
stað athafna. Afleiðingin er
nú komin fram og taki þeir
á sig ábyrgðina á því, sem
hana raunverulega bera.
•jlr Sterkari aöstaða
Auðvitað hefðu hagsmunir
fslands verið bezt tryggðir
með þvi að fá viðurkennda
Bjarni Benediktsson.
— Myndin er frá Genf.
0 00^0^0 0.00 0000 0~\
alþjóðasamþykkt. Úr því að
það tókst ekki, er að taka þvi.
Er og enginn efi á því, að að-
staða íslands er mun sterkari
eftir ráðstefnuna en aður. Hin
mikla samúð, sem lýsti sér í
atkvæðagreiðslu nefndarinn-
ar a dögunum um tillögu okk-
ar hefði átt að nægja stórveld
unum til skilnings á því, að
öllum var hollast að viður-
kenna sérstöðu íslands.
■Jc Skefjalaus áróður
Atkvæðagreiðslur um til-
lögur íslands nú fóru að vísu
á annan veg, en þegar tekið er
tillit til hins skefjalausa áróð-
urs, sem öll stórveldin, bæði í
austri og vestri, héldu uppi
gegn tillögum okkar, gegnir
raunverulega furðu hve mörg
atkvæði þær fengu. — Jafnvel
þeir, sem greiddu atkvæði
gegn þeim, gerðu það með
skýringum þess efnis, að mál
okkar væri svo sérstaks eðlis,
að það þyrfti að leysa með sér-
stökum hætti.
Að humma vandann
fram af sér
Viðleitni ráðandi aðila
beindist öll að því, að humma
vandann hér fram af sér, en
enginn treysti sér til að neita
sérstöðu fslands. Barátta okk-
ar á ráðstefnunni hefur því
síður en svo orðið árangurs-
laus. Eftir atvikum megum við
vel við una, því að enn hefur
sannazt að hófsemi, sanngirni
og þolgæði mun að lokum
tryggja fullnaðarsigur okkar
í þessu máli.
Keillaóskir tU
Togolendinga
TOGOLAND í Afríku verður
sjáffstætt lýðveldi um þessar
mundir. Forsætisráðherra, Ölaf-
ur Thors, hefur verið boðið að.
vera viðstaddur hátíðahöld í
sambandi við lýðveldisstofnun-
ina 25. til 28. þ m., sem hann hef-
ur eigi getað komið við að þiggja.
Hann hefur sent svofelldar árn-
aðaróskir í símskeyti til forsæt-
isráðherra hins nýja lýðveldis:
„Mér er það heiður og ánægja
að senda yður, herra forsætisráð-
fcerra, og þjóð yðar alúðarkveðj-
ur og árnaðaróskir íslenzku rík-
isstjórnarinnar og þjóðarinnar
allrar í tilefni lýðveldisstofnunar
í Togolandi. Aðeins hin mikla
fjarlægð milli landa okkar og
óvenju miklar embættisannir
fcindra mig í því að sækja heim
land yðar og flytja persónulegá
heillaóskir hins unga íslenzka
lýðveldis".
Frost og
í Stykkishólmi
STYKKISHÖLMI, 26. apríl: —
Undanfarna sólarhringa hefur
verið frost á hverri nóttu. I gær
snjóaði niður á jafnsléttu og varð
jörð hér al'hvít.
Afli hefur verið með tregara
móti og í gær var hann frá 2 til
9 léstir. — Fréttaritari.
Akranesbátar
AKRANESI, 26. apríl. — Flestir
bátar héðan eru á sjó í dag. Nú,
kl. 10.30, er aðeins einn, Reynir,
kominn að með 5,5 lestir. í gær
var aflinn 260 lestir á 18 báta.
Hæstir voru Sigrún 25 1. Böðv-
ar 24 1. og Höfrungur 20 1. Vél-
báturinn Ásbjörn er hættur á
þoskanetjum og á að fara á rek-
net.
í dag reru 18 trillubátar. Sá
hæsti fiskaði 500 kg. — Oddur.
Rannsóknarlögreglumennirnir Ragnar Vignir (t. v.) og Jón E.
Halldórsson athuga skápinn sem logskorinn var.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Kafari fann báda peninga-
skápana út af Ægisgarði
KAFARI, í froskmannabún-
ingi, var í óvenjulegum leið-
angri í gærdag í vesturhöfn-
inni. Skyldi hann vita hvort
hann fyndi ekki tvo peninga-
skápa vestur við Ægisgarð.
Hér var um að ræða lið í
rannsókn þjófnaðarmála
Annar skápanna dreginn
höfninni.
þeirra, sem nú hefur tekizt að
upplýsa. Höfðu innbrotsþjóf-
arnir, sem nú sitja í varðhaldi,
sagt rannsóknarlögreglunni,
að þeir hefðu varpað út af
Ægisgarði báðum þessum pen
ingaskápum. Tóku þeir annan
þeirra, þungan og traustan
skáp í smiðju Sindra við Borg-
artún, en hinn námu þeir á
brott með sér er þeir brutust
inn í trésmiðju Birgis Ágústs-
sonar í Brautarholti 6. Kafar-
anum tókst að finna skápana
báða. Tók þessi leiðangur og
„björgun“ skápanna alls um
hálfa klukkustund.
• Kafarinn stingur sér
Það var Andri Heiðberg, sem
kafaði fyrir rannsóknarlögregl-
una. Kom hann á bát Hamars hf
ásamt aðstoðarmönnum um kl.
1,30 að enda Ægisgarðs. Þar
skýrðu rannsóknarlögreglumenn-
irnir Jón Halldórsson og Ragnar
Vignir forstöðumaður tæknideild
ar, Andra frá því hvar líklegast
væri að finna skápana. Stakk
Andri sér léttilega niður í djúp-
ið.
• Brotnir og sundurskornir
Fljótlega fann kafarinn annan
skápanna. Hafði sá borizt nokkuð
frá garðinum. Kom Andri á hann
böndum og var skápurinn dreg-
inn upp. Var það skápurinn sem
stolið var í smiðju Sindra aðfara
nótt 18. febrúar. Voru þá í honum
5000 kr. í peningum ásamt miklu
af verðmætum skjölum fyrir-
tækisins.
Skápurinn bar þess merki
að reynt hafði verið að
sprengja upp hurð hans, en
horfið frá. Allstórt gat var á
annari hlið skápsins og hafði
það verið gert með logskurð-
artækjum. Nokkuð var af
skjölum I skápnum og sjávar-
gróður tekinn að myndast ut-
an á honum.
Eftir skamma leit fann Andri
kafari hinn skápinn nokkru nær.
Hurð hans var brotin af hjörum
og lá hurðin inni í skápnum.
Þessum skáp hafði verið stolið í
Trésmiðju Birgis Ágústssonar
hipn 11. janúar sl.
Þá voru í skápnum 17000—
18000 krónur í peningum, en auk
þess margar peningaávísanir og
bankabækur alls að upphæð
35.000. Var þetta fé ásamt ávís-
unum fryst þá þegar. Innbrots-
þjófarnir munu hafa gert sér
grein fyrir þvi að þeir gætu ekki
náð þessum peningum, og höfðu
þeir eyðilagt bankabækurnar og
önnur skjöl úr þessum peninga-
skáp.
• 25 eyringar
Lögreglubílum var nú ekið
að skápunum og er skáp
Sindra var lyft kom í ljós 25
eyringur. Vakti það hlátur við
staddra. „Þeir hafa þá ekki
stolið öllu“, sagði einhver og
annar svaraði: „Þeir hafa ekki
verið að hugsa um skiptimynt-
ina, kavaleramir“. Og er skáp
urinn var tekinn upp kom í
ljós handfylli af 25 eyring-
um.
Skápunum var ekið í bæki-
stöðvar rannsóknarlögreglunn
SpiÍakvöld
HAFNARFIRÐI. — í kvöld kl.
8,30 verðtur síðasta spilakvöld-
ið hjá Sjálfstæðisfélögunum
að þessu sinni. Verður þá eins
og alltaf áður úthlutað sérstök
um verðlaunum og svo heildar
verðlaununum fyrir spila-
kvöldin í vetur.