Morgunblaðið - 28.04.1960, Síða 5
Fimmtudagur 28. aprfl 1960
MORGVNLLAÐIÐ
5
Áttræð er í dag Þórlaug Bjarna
dóttir, fyrrverandi húsfreyja í
Gaulverjabæ, nú búsett að Eyr-
arvegi 10, Selfossi. Hún verður í
dag stödd hjá syni sínum Brynj-
ólfi Dagssyni, héraðslækni, Þing-
hólsbraut 21, Kópavogi.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Agnes Eiríksdótt-
ir, Selfossi og Óli Jörundsson, bíl-
stjóri, sama stað.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína, ungfrú Erla Þórisdóttir,
verzlunarmær, Grenimel 6, Rvík
og Helgi Sigurðsson, skrifstofu-
maður, Bárugötu 31, Rvík.
Á skírdag voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Sigríður Krist-
ín Þórisdóttir, Sogavegi 180 og
Þorkell Samúelsson, Lokastíg 3.
Heimili þeirra er á Lokastíg 3.
Á páskadag opinberuðu trálof-
un sína ungfrú Áslaug Hólm,
Grenimel 28 og Cyiýl E. W. Hob-
lyn, Barmahlíð 7.
Á sumardaginn fyrsta voru gef-
in saman í hjónaband af séra Ósk
ari J. Þorlákssyni ungfrú Guð-
ríður Karlsdóttir, skrifst.stúlka,
Drápuhlíð 32 og Árni Rosenkjer,
rafvirki, Suðurgötu 83, Hafnar-
firði. — Heimili þeirra er á Mosa
barði 8, Hafnarfirði.
Á skírdag voru gefin saman i
hjónaband ungfrú Guðbjörg Svan
fríður Runólfsdóttir, bankarit-
ari og Friðjón Björn Friðjóns-
son, skrifstofumaður. — Heimili
þeirra er að Hringbraut 87.
Vips
Þjónn! Viljið þér gjöra svo vel
að koma með veitingarnar —
þegar þér hafið lokið við að
dansa við konuna mína.
Vísindin í Ameríku eru svei
mér að taka framförum. Nú eru
þeir búnir að finna upp lyf sem
læknar sjúkdóma, sem penicillín
ið veldur.
Aldraður maður leitaði læknis.
Eftir þriggja tíma bið reis hann
á fætur og spurði hjúkrunarkon-
una: — Haldið þér að ég muni
ná heim héðan af til að deyja
eðlilegum dauðdaga?
Jæja sonur minn, nú mun ég
taka þið inn í fjölskyldufyrirtæk
ið. Þú færð 15 dollara á viku.
— Nei, pabbi minn, þá fer ég
nú heldur að vinna.
MENN 06
= MALEFNI=
HÖRPU-HUGLEIÐINGAR
Vikinn er vetur
úr valdasessi,
stórráður Norðri
stökk af hólmi;
gráta hann engir
gullperlum,
né heldur súrnar
sjáaldur augna.
Heilsaði Harpa
háum tindum,
ísi skygndum,
áa-jarðar;
ofan þeir tóku
til virðingar
heilagri drotning,
er horfði við landi.
Því skyldu fi synir
sinnar móður
líta hugglaðir
heillum móti,
þegar úr köldum
klakaböndum
kraftur almættis
kallar jörð.
Því skyldi ei sonurn
sæma betur
mál sinnar móður
Þessi litli íþróttagarpur
er ekkert þreytulegur á
svipinn þótt hann sé að
koma að marki í Víðavangs-
hlaupi, og margur lang-
hlauparinn gæti verið stolt
ur af að koma jafn hressi-
legur í mark eftir erfitt
hlaup.
Drengurinn heitir Magn-
ús Brynjólfsson og var
yngstiur af 32 þátttakend-
um í Víðavangshlaupi Hafn
arfjarðar á sumardaginn
fyrsta.
Kjörorð Magnúsar litla er
vafalaust: — „Aðalatriðið
er ekki að sigra, — heldur
að vera með“.
Þetta fagra kjörorð í-
þróttahreyfingarinnar ætti
að vera ofar í huga margra
samborgara Magnúsar litla,
því aðeins einn þátttakandi
var í elzta aldursflokknum,
en það var Páll Eiríksson,
sem hljóp vegalengdina á
5:41,2 mín. í fyrra sigraði
Steinar Erlendsson á 5:07,2
mín.
• Gengið *
Sölugengi
1 Sterlingspund ...... kr. 107.06
1 Bandaríkjadollar ........... — 38.10
1 Kanadadollar ......... — 39,52
100 Danskar krónur ........ — 552,75
100 Norskar krónur ........ — 534,70
100 Sænskar krónur ........ — 738,15
100 Finnsk mörk ...!....... — 11.93
100 Franskir Frankar ...... — 776.30
100 Belgískir frankar ..... — 76,42
100 Svissneskir frankar ....— 878,05
100 Gyllini ............... — 1010,30
100 Tékkneskar krónur ..... — 528.45
100 Vestur-þý/.k mörk ..... — 913.65
1000 1-lrur ............ — 61,38
100 Austurr. schillingar . — 146,40
100 Pesetar .............- — 63,50
úr myrkrum hefja,
veita’ henni frama
á fagran hátt,
heldur en standa
stöðugt aflvana.
Safnið kröftum sveinar,
með sumri hverju,
takið höndum saman
til hollra ráða.
Vakið æ og vakið
yfir veikri þjóð;
sigur mun fylgja.
ef sótt er rétt.
Ásmundur Jónsson
frá Skúfsstöðum.
Röskur maður
20—30 ára gamall getur fengið atvinnu
á afgreiðslu blaðsins nú þegar.
Vinnutími frá kl. 12—6 f. h.
Upplýsingar hjá framkvæmdastjóranum.
JllðriKtsttfclaMto
VerkstϚisvinna
Getum tekið að okkur alls konar trésmíðavinnu í
sambandi við húsbyggingar. Eigum nokkuð af
Brenniþröskuldum fyrirliggjandi. Sími 32773.
Sendisveinn
Röskur sendisveinn óskast nú þegar.
Friðrik Bertelsen & Co. h.f.
Mýrargötu 2 Slipphúsinu vesturenda.
Hin margeftirspurðu einlitu
Gardínuefni
eru nú loks komin í mörgum fallegum litum.
Breidd 120 cm. -— Verð aðeins 50,60 pr. m.
VEBZLUN ANNA GUNNLAUGSSON
Laugaveg 37 — Sími 16804.
Nýtízku steinhús
135 ferm. tvær hæðir við Melgerði í Kópavogskaup-
stað til sölu. Á 1. hæð er stór bifreiðageymsla (gæti
verið verkstæði), 2ja herb. íbúð með sér inngangi,
þvottahús og 2 herbergi. Á annarri hæð er nýtízku
5 herb. íbúð með sérstaklega stórri og bjartri stofu
og eldhúsi með borðkrók. Hæðin tilbúin undir máln-
ingu.
Æskileg skipti á góðu einbýlishúsi ca. 5—6 herb.
íbúð á hitaveitusvæði í bænum.
IMýja Fasteignasalan
Bankastræti 7. Sími 24300 og kl. 7,30—8,30
e.h. sími 18546.
Okkur vantar nokkra góða flatningsmenn eða neta-
menn á togara til saltfiskveiða við Vestur-Grænland.
Farið verður á veiðar um 5. maí n.k. Upplýsingar
í síma 2 43 45 og á skrifstofu Bæjarútgerðar Reykja-
víkur.
Skrifstofustúlka
Heildsölu og innflutningsfyrirtæki óskar eftir að
ráða skrifstofustúlku, sem kann vélritun og getur
tekið að sér bréfaskriftir á ensku, dönsku og helzt
þýzku. Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf
og meðmælum ef fyrir hendi eru sendist Morgun-
blaðinu merktar: „5000 — 3212“ fyrir 1. maf.