Morgunblaðið - 06.05.1960, Side 1
24 siðuv
Sakaruppgjöfin í framkvæmd:
Brezkum togurum bannað að veiða
innan 12 mílnanna
Herskipin hafa fyrir-
mæli um að kæra
landhelgisbrjóta
EINS og skýrt var frá í Mbl. í gær, dró til tíðinda
1 fyrrakvöld út af Vestfjörðum og Hvalbak við suð-
austur ströndina, þegar brezkir togarar reyndu að
toga fyrir innan 12 mílna fiskveiðtakmörkin.
í gærmorgun gerðist sá atburður, að skipherrarnir
á brezku herskipunum þremur lásu upp boðskap frá
brezka flotamálaráðuneytinu, og er Mbl. kunnugt
um að skipherrann á Palliser, sem er út af Vestf jörð-
um, komst svo að orði:
Þar> sem íslenzka ríkisstjórnin nenr sýnt brezKum
togaramönnum þá vinsemd að gefa þeim upp allar
sakir og leyfa þeim af nýju að sigla innan landhelg-
innar og leita hafnar eða vars, hefir flotamálaráðu-
neytið ákveðið að koma til móts við íslenzku ríkis-
stjórnina að banna öllum brezkum togurum að veiða
innan 12 mílna takmarkanna. Jafnframt hefi ég
ströng fyrirmæli um að kæra hvern þann ykkar, sem
brýtur fyrirmæli stjórnarinnar. Vona ég því að þið
komið okkur til hjálpar og forðist alla árekstra.
Þegar skipherrann hafði flutt þennan boðskap
flotamálastjórnarinnar, ,,kvittuðu“ togararnir fyrir
og sögðu ekki eitt aukatekið orð í mótmælaskyni..
hafs. Virtist varðskipsmönn-
um togari þessi vera frá Ports
mouth. Togarinn var litill.
Nafn hans sást ekki, enda súld
ist hann af einhverju innanmeini
og þótti ráðlegast að rannsaka
hann. Þegar þetta gerðist, var
togarinn út af Reykjanesi, en
Palliser út af Straumnesi, og
sagði skipherrann á herskipinu
togaramönnum að gæta sín vel
næðan hann væri í burtu, því
Albert væri á næstu grösum. Þá
voiu nokkrir togarar 5 eða 6 míl-
ur fyrir utan 12 mílna mörkin, en
hurfu á brott strax og Palliser
sigldi suður á bóginn.
★
Þess má að lokum geta, að um
30 brezkir togarar hafa verið að
veiðum út af Vestfjörðum og
komu þeir þangað strax eftir
Genfar-ráðstefnuna. Þeir hafa
haldið sig mjög djúpt og aflað
vel, m. a. fengið þó nokkuð góð-
an ýsuafla. — Eins og fyrr grein-
ir er brezka herskipið Palliser
á þessum slóðum, en tvö herskip
Framh. á bls. 23.
Frá heimsókn Krúsjeffs til Bandarikjanna
Rússar afnema tekju
skatt af lágtekjum
Ekki inn fyrir 12 mílur
Þá hafa Mbl. borizt nánari
fregnir um atburðina út af Vest-
fjðrðum í fyrradag, þegar brezk-
ir togarar sigldu upp að 12 mílna
línunni, en var fyrirskipað af skip
stjóranum á Palliser að halda sig
utan línu. Aftur á móti mættu
þeir sigla fyrir innan 12 mílna
takmörkin með búlkuð veiðar-
færi og leita hafnar eða vars, ef
þeir vildu. Ennfremur tilkynntu
herskipin strax í fyrrakvöld tog-
urum bæði við austur og vestur-
ströndina um sakaruppgjöfina.
Samt kom það fyrir í fyrrakvöld,
að einn brezku togaranna hafði
samband við Palliser og sagði,
að hann ætlaði að sigla innan
lanrhelginnar við Reykjanes —
og benti herskipið honum þá á
að fara ekki inn fyrir 4 mílurn-
ar.
Í vari — en flýði
1 gærmorgun sáu skipverjar
á varðskipinu Albert, sem hef
ir verið undan Vestfjörðum,
brezkan togara sigla upp að
ströndinni, og var hann kom-
inn upp að 3 mílunum, senni-
lega í leit að vari út af Straum
nesi, þegar Albertsmenn héldu
í humátt á eftir honum til að
athuga hvaða togari þarna
væri á ferð og hvort hann væri
með búlkuð veiðarfæri. En
þegar togaraskipstjórinn sá
Albert sigla i átt til sín, hélt
hann aftur á fullri ferð til
á þessum slóðum.
Veikur sjómaður
Að öðru leyti hefir ekki margt
borið til tíðinda hjá brezkum
togurum og herskipum hér við
iand undanfarna daga. Þó var
veikur togarasjómaður fluttur úr
togara um borð í Palliser fyrir
tveimur eða þremur dögum. Þjáð
Moskvu, 5. maí — (Reuter)
FORSÆTISRÁÐHERRA
Ráðstjórnarríkjanna, Nikita
Krúsjeff, tilkynnti í dag að
tekjuskattur yrði felldur nið-
ur í Rússlandi, vinnuvikan
stytt og gengi rúblunnar
breytí.
Hann sagði Æðsta ráðinu að
tekjuskattur yrði afnuminn sam-
kvæmt nýrri fimm ára áætlun,
gengisbreyting myndi hefjast á
næsta ári, vinnuvikan styltist
í 41 klst. við iðnað en í 36 stund-
ir við erfiðisvinnu, svo sem
námugröft.
Hélt Krúsjeff því fram að
slikur niðurskurður vinnuvik-
unnar og skatta væri einungis
mögulegur í skipulögðu þjóðfé-
lagi og sýndi yfirburði sósíalism-
ans yfir auðvaldsstefnunni.
BILIÐ BRÚAÐ
Hann viðurkenndi að fram-
leiðslan væri minni en hjá
Bandaríkjunum, en sagði að bil-
ið yrði mjög bráðlega brúað.
Varðandi niðurfellingu tekju-
skattsins, sagði Krúsjeff, að byrj-
að yrði á að afnema skatta lág-
tekjumanna, en síðan smám
saman bætt við öðrum stéttum.
Tekjuskattur nemur aðeins
10% ríkistekna samkvæmt fjár-
hagsáætlun Rússa. Aðaltekjurn-
ar eru hagnaður á iðnaðinum og
óbeinn söluskattur.
Krúsjeff sagði að vissir aðilar
Óvíst oð togarayfirmenn sam
fjykki stefnu ríkisstjórnarinnar
segir Dennis Welch i einkasamtali
v/ð Morgunbladid
F R E T TA MAÐU R Morgun-
blaðsins í Hull og Grimsby,
Haraldur J. Hamar, símaði
eftirfarandi fréttir þaðan á
miðvikudag.Vegna seinagangs
í afgreiðslu skeyta í Bretlandi
sem mun stafa af flutningum
ritsimans þar, barst fréttin
ekki fyrr en á miðvikudags-
morgun.
„FUNDURINN í morgun var
sá fjölsóttasti, sem ég hefi
haft“, sagði Denis Welch,
formaður félags yfirmanna á
togurum í Grimsby, þegar ég
átti viðtal við hann í dag, en
í morgun boðaði hann yfir-
menn togaranna til mikil-
vægs fundar um landanir Is-
lendinga.
Welch hefur aðsetur í
þröngri skrifstofu í gömlu
húsi nálægt höfninni. Hann
er eldri maður með veik-
indalegt útlit, enda sagður
þjást af magasári, sem hleyp-
ur mjög í skapið í honum
stundum, og gefur hann
mönnum það þá óþvegið. Á
skrifborðinu fyrir framan
Framhald á bls. 3.
hafi gagnrýnt afnám tekjuskatts
ins, en ríkisstjórnin hafi að at-
huðu máli álitið þetta rétta ráð-
stöfun.
Kaupmáttur launanna hefði
auktót um 100% síðan árið 1940,
sagði Krúsjeff, og vöruúrval fer
vaxandi þótt enn væri biðröð
eftir píanóum!!
LAUSNIN
Forsætisráhðerrann sagði að
mesta vandamálið sem rætt yrði
á „topp“-fundinum í París 16.
maí n. k., væri afvopnun — „rót-
tækasta leiðin til að tryggja frið
og útiloka stríð“. Annað vanda-
málið væri friðarsamningur við
Þýzkaland og spurningin um
Vestur-Berlín. Kvaðst Krúsjeff
hafa rætt þessi mál við forystu-
menn Vesturveldanna og sagði
að ef unnt væri að leysa þessi
tvö vandamál, mundi sambúð
Austurs og Vesturs lagast af
sjálfu sér.
MÓTI NIXON
Þá minntist Krúsjeff á það
að Eisenhower forseti hefur til-
kynnt að hann geti aðeins verið
í eina viku í París á „topp“-
fundinum ,og sagði að nauðsyn
á að ná árangri ætti að ákveða
hve lengi fundurinn stendv .
þá mótmælti Krúsjeff því að
Nixon varaforseti Bandaríkjanna
taki sæti Eisenhowers á „topp“
fundunum, og sagði að Nixon
hefði ekki áhuga á að koma á
varanlegum friði, heldur vildi
hann viðhalda kalda stríðinu.
Hann sagði ennfremur að Vest-
urveldin skyldu ekki halda að
gætu skelft Sovétríkin á „topp"
fundinum. Sömu möguleikar
væru á því og að einhver feng
séð sín eigin eyru.