Morgunblaðið - 19.05.1960, Side 12

Morgunblaðið - 19.05.1960, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. maí 1960 Utg.: H.f Arvakur Reykjavík íramkvæmdastjórí: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. HORMULEG TÍÐINDI IJEIMURINN stendur nú agndofa gagnvart þeim hörmulegu tíðindum, sem gerðust, er leiðtogar stór- veldanna loks hittust til að reyna að setja niður deilu- mál. Hin dólgslega framkoma Krúsjeffs minnir svo óþyrmi- lega á atburði, sem áður hafa hleypt af stað tveimur heims- styrjöldum, að hvarvetna rík- ir nú uggur og kvíði. Árásir Austurríkismanna á Serba 1914 fyrir fyrri heims- styrjöldina miðuðu allar að því að auðmýkja andstæðing- inn og lítillækka, en engu var sinnt um málefnalegar lausn- ir. Af sama toga voru spunn- ar athafnir Hitlers og Mussolinis árið 1938 og ’39. I báðum tilfellunum var hin hrottafengna framkoma liður í styrjaldarundirbúningi. Og nú er engu líkara en að sagan sé að endurtaka sig. Að vísu eru miklar líkur fyrir því, að Krúsjeff eigi í vök að verjast heima fyrir og aðgerðir hans séu meðfram sprottnar af ótta við að missa völdin. Ef sú skýring er rétt, virðist allt hanga á bláþræði um framvindu mála í Ráð- stjórnarríkjunum og nánast vera undir tilviljunum kom- ið, hver þróun mála verði. Svö mótsagnakennt sem það kann að virðast, þá er þess að vænta að einmitt hinn geigvænlegi vígbúnaður muni geta forðað styrjöld. — Árásaraðili veit nú, að jafn- vel þó herstyrkur hans sé meiri en gagnaðilans, þá muni hann sjálfur bíða óbæt- anlegt afhroð í styrjöld. Og sá sem fyrirskipaði að hefja hildarleikinn, getur allt eins vel gert ráð fyrir því að hann sjálfur, ættingjar hans og meginþorri þjóðar hans, láti lífið á nokkrum klukkustund- um eða dægrum. Verður því að vona að ofstopinn komist ekki á slíkt stig algjörrar geggjunar, að mannkynið þurfi að óttast tortímingu. Þegar fregnir bárust af við- brögðum Ráðstjórnarríkj- anna við njósnaflugi Banda- ríkjamanna tóku menn þau þrátt fyrir allt ekki mjög al- varlega. Nú hefur hins- vegar komið á daginn að atvikið, er bandaríska flug- vélin var skotin niður, hefur verið notað sem átylla til'að auka á spennu í alþjóða- málum. En áróðursaðferðir komm- únista eru samar við sig. — Megináherzla er nú lögð á að ófrægja Eisenhower forseta, þann mann, sem áhrifamest- ur er í hinum frjálsa heimi og vinsælastur. Ef takast mætti að eyðileggja traust það, sem til þess manns er borið víða um veröld, hefði kommúnist- um auðnazt að auka á sundr- ungu frjálsra þjóða, en jafn- framt mundi þá dvína traust manna á, að eina leiðin til að forðast geigvænlega styrjöld væri að standa traustum fótum gegn ofbeldisaðgerð- unum. Þá mundu menn fús- ari til að kaupa sér stundar- grið með því að láta undan hótunum ofbeldismannanna. Og í dag er Berlín Súdeta- héruð fyrirstríðsáranna. Hinar skipulögðu áróðurs- aðferðir kommúnista þekkj- um við íslendingar þóttísmá- um stíl sé. Hérlendis hafa ákveðnir menn, sem sérstakt orð hafa getið sér, t. d. í list- um eða vísindum, verið lagð- ir í einelti, ef þeir hafa ekki viljað ganga undir jarðarpien kommúnismans. Tilgangur- inn hefur verið að meiða menn svo rækilega, að þeir hylltust til að leita sér griða í hlutleysi eða afskiptaleysi, en á hinn bóginn að skapa nægilega andstætt almenn- ingsálit til að rýra áhrif við- komandi einstaklinga. Þessi fræði eru barnalær- dómurinn í sellum kommún- ista um víða veröld. Þau eru auðvitað ekki frumleg en geta verið mjög árangursrík. Og öll miða þau að því að leiða menn til Múnchen- samninga í sérhverju máli. Hinn opinberi hrottaskapur Krúsjeffs þessa dagana, mun vafalaust verða til þess að augu fleiri manna opnist fyr- ir nauðsyn þess að standa ætíð óhagganlega gegn kommúniskum árásum og slá skjaldborg um þá sem skeytunum hverju sinni er beint gegn, því að kommún- istar eru vissulega fundvísir á þá, sem mestu þykir varða að eyðileggja. Þó að frjálsar þjóðir hafi gagnrýnt njósnaflug Banda- ríkjamanna og áfellzt Eisen- hower forseta fyrir það, þá snúa þær nú bökum saman og þakka honum einbeitni þá og festu, sem virðist muni orka því að ofbeldisöflum verði ekki á ný gefinn byr undir báða vængi, með Múnchensamningum nútím- ans. — UTAN UR HEIMI Siðlegra nautaat? A SPÁNI hefur verið stofnað félag, sem hefur það m. a. að markmiði að gera hin frægu framan af hvössum hornum naut- anna — og þar er ekki heldur venja að drepa dýrin. nautaót nokkru mannuðlegri en verið hefur. Félag þetta ber hið langa nafn „Samtök gegn grimmdaræði við opin- berar sýningar" — og tak- mark þess er, að sögn forseta þess, Bailen greifa, að upp- ræta þá „sögusögn, að Spán- verjar séu sérlega grimm þjóð“. — Félagið mun fyrst snúa sér að nautaatinu, en mun einnig beita áhrifum sínum gegn öllu því, sem það telur slæma meðferð dýra. — ★ — Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti, sem reynt er á einhvern hátt að draga úr grimdaræði nautaatsins, þessa þjóðarleiks Spánverja — en yfirleitt hafa slíkar tilraunir lítinn árangur borið. Lögum, sem sett voru á sinum tíma um það, að börn inn- an 14 ára aldurs skyldu ekki fá aðgahg að nautaötum, hefir t. d. aldrei verið framfylgt að neinu láði. • ÞJÓÐARHEFÐ Ekki vill Bailen halda því fram, að nautaatið einkennist eingöngu af grimmd. Hann heldur því meira að segja fram að þetta sé að vissu leyti fögur íþrótt — eða geti a. m. k. verið það — og hér sé auk þess um að ræða slíka þjóðarhefð, að ekki komi til mála að leggja hana niður. — En hann telur, að ýmislegt megi Tæra til betri vegar — án þess að leikurinn missi aðdráttarafl sitt. Hann vill taka Portúgala til íyrirmyndar í þessum efnum, en þar eru einnig stunduð4-nautaöt, sem kunnugt er. En þeir sníða • MINNKANDI ÁHUGI Bailen greifi gerir sér fullljóst, að tilraunir hans og félaga hans til að endurbæta nautaatið munu mæta mikilli mótspyrnu — en hann væntir þess þó, að nokkur árangur muni nást, ekki sízt vegna þess, að þessi þjóðarleikur nýtur ekki lehgur jafnaimennra vinsælda og fyrrum. Unglingarn- ir á Spáni virðast nú hafa miklu meiri áhuga á knattspyrnu og sækja nautötin fremur slælega nú orðið. — Má segja, að svo sé kom- ið, að þjóðaríþrótt Spánverja sé mi aPt eins orðin beita fyrir erlenda ferðamenn, sem margir hverjir þykjast varla geta snúið heim írá Spáni, án þess að geta sagt kunningjunum frá æsandi nautaati. Tilrauna bifreið BÍLAFRAMLEIOENDUR eru sifellt að gera tilraun- ir með ýmislegar nýjungar, bæði að því er varðar bygg- ingarlag og hvers konar búnað bifreiða. Á hverju ári eru gerðar nokkrar breytingar á, helztu bif- reiðagerðunum hjá hinum stóru framleiðendum — og þótt þar sé yfirleitt ekki um neitt byltingarkennt að ræða, er ekki að vita, hvenær stökkið verður tek- ið og almenningi gefinn kostur á að eignast raun- verulega „nýja“ bifreið. Einn af nýjustu tilrauna- vögnunum er þessi Chevro- let, sem myndin er af, en hann var sýndur á alþjóð- legri bílasýningu í New York fyrir nokkru — nefnd- ur XP-700. Byggingarlag hans er talsvert nýstárlegt — en meginhlutverk hans er að reyna ýmiss konar ný öryggistæki, sem ekki þekkj ast enn í bifreiðum. í HEIMINUM öllum > _ (Sovétríkin og Kína þó f V ** C#" f f undanskilin) var fram- f f IL* * f f f f \m* f If leitt minna smjör árið 1959 en árið á undan. — Samkvæmt mánaðarriti Matvæla- og landbúnað- arstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) fram- magnið 2,54 milljónir Vestur-Þýzkaland, en leiddu 17 helztu smjör- tonna. Meðal þessara 17 samdrátturinn var mest framleiðslulönd heims- landa eru Danmörk, ur í Bandaríkjunum, ins (þau, sem hafa ár- Finnland, Noregur og Hollandi og Frakklandi. lega skýrslur yfir fram- Svíþjóð. Einu löndin, Af skýrslunni er ljóst leiðsluna) alls um 2,45 sem verulega höfðu auk- að írar eru mestu smjör milljónir tonna af ið smjörframleiðslu ætur heimsins. Smjör- smjöri, en árið 1958 var sína, voru Astralía og neyzla þeirra er árlega smjöræfurnar ,j,2 kg. á hvern íbúa að meðaltali. Næst kemur Danmörk með 12,2 kg, síðan Sví- þjóð og Belgía með 10,7 kg. hvort og Bretland með 9 kg. Næst á eftir Vestur-Þýzkalandi og Frakklandi kemur Sviss með 6,7 kg. á hvern íbúa, síðan Holland með 5,7 kg. Neyzlan í Banda- ríkjunum og Sovétríkj- unum er 3,8 kg. á íbúa, en í Ítalíu er hún aðeins 1,9 kg. á íbúa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.