Morgunblaðið - 21.05.1960, Síða 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. maí 1960
Sandgerði
Oss vantar ungling eða fullorðinn mann
til að annast afgreiðslu Morgunblaðsins
í Sandgerði.
Upplýsingar hjá Axel Jónssyni, Sand-
gerði eða afgreiðslu blaðsins í Reykjavík.
Roskin siúlka
eða piltur óskast nú þegar til afgreiðslustarfa í kjöt-
verzlun. — Upplýsingar í síma 11112 milli kl. 6 og 7
næstu daga.
5 herb. íbúð til sölu
JHftrgtuililafrft
á góðum stað á Seltjarnarnesi. Sér inng., sér hiti,
sér þvottahús og geýmslur, sér ræktuð og afgirt lóð.
Mjög hagstaEíð kjör ef samið er fljótlega. Upplýsingar
í símum 19729 og 15054.
Hús til sölu í
nágrenni Borgarness
Til sölu er 56 ferm. hús í nágrenni Borgarness. 1
húsinu eru 3 herbergi, eldhús, rúmgóður inngangur
og snyrtiherbergi. Húsið stendur á fögrum stað á '
skógi-vaxinni hæð og er þaðan fagurt útsýni. Um
2000 ferm. land fylgir húsinu. Húsið er við þjóð-
veginn og ligur ágætur akvegur heim að því. Skipti
á annarri fasteign eða góðri bifreið koma til greina.
Nápari upplýsingar gefur:
Málfhitningsskrifstofa
Kinars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar
Guðmundar Péturssonar.
Aðalstræti 6, Símar: 1-2002, 1-3202 og 1-3602
TILKYNNINC
um fjölskyldubœfur
Frá 1. apríl 1960 breyttist réttur til fjölskyldu-
bóta vegna barna innan 16 ára aldurs þannig, að nú
eiga 1 og 2 barna fjölskyldur bótarétt, en áður voru
fjölskyldubætur aðeins greiddar, ef 3 börn eða fleiri
voru á fullu tramfæri fjölskyldunnar.
Eftir breytinguna eru ákvæði aimannatrygginga-
laganna um f jölskyldubætur, sem hér segir:
„Fjölskyldubætur skulu greiddar foreldrum með
hverju barni, þar með talin stjúpbörn og kjörbörn,
sem eru Á FULLU framfæri foreldranna.
Við ákvörðun f jölskyldubóta skulu ekki talin með
þau börn í fjolskyldunni, sem eiga framfærsluskyld-
an föður utau hennar.
Greiða má fósturforehlrum fjölskyldubætur með
fósturbarni, ef fullvíst er, að barnið sé á framfæri
þeirra og hafi verið talið á framfæri þeirra sam-
kvæmt skattíramtali undanfarin þrjú ár, enda ekki
verið talið jafnframt á framfæri annars. Stytta má
tímabil þetta ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi,
svo sem ef barn er tekið í fóstur 'á fyrsta aldursári.
Árlegar fjölskyldubætur með hverju barni skulu
vera eins og á 1. og 2. verðlagssvæði kr. 2,600.00“.
Fjölskyldubætur þeirra sem áttu rétt til, og nutu
fjölskytdubóta fyrir lagabreytinguna, hafa nú verið
hækkaðar sainkvæmt hinum nýju ákvæðum frá 1.
apríl sl. og nú eru einnig greiddar fjölskyldubætur
með 1 og 2 barni f jölskyldunnar.
Bætur 1 og 2 barna f jölskyldna þarf að sækja um í
Reykjavík til Lífeyrisdeildar Tryggingastofnunar
ríkisins, Laugavegi 114, en annarsstaðar til sýslu-
manna og bæjarfógeta, en þeir eru umboðsmenn
stofnunarinnar.
Umsóknareyðublöð fást á sömu stöðum. Fæðing-
arvottorð barna samkvæmt kirkjubókum á að fylgja
umsókn.
Áthygli er vakin á að bætur 1 og 2 barna
fjölskyldna verða aðeins greiddar fjórum sinnum á
ári, og verður síðar auglýst hvenær greiðslur hef jast.
Reykjavík, 20. maí 1960.
Tryggingastofnun Ríkisins
Húsið Háagerði 75
eign bæjarsjóðs Reykjavíkur er til sölu. Tilboð ósk-
ast send skrifstofu minni í Skúlatúni 2 fyrir kl. 10
föstudaginn 27. þ.m. Nánari upplýsingar eru gefnar
í skrifstofunni daglega frá kl. 11—12 fram að þeim
tíma.
Bæ jarverkf ræðin gur
Erfðafestuland
Þrír hektarar í Fossvogi til sölu ásamt íbúðarhúsi,
þrjú herbergi, eldhús, gripahús fyrir 50 fjár og tvo
hesta og 100 rúmmetra hlöðu. — Uppl. gefa:
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl.,
sími 19960 og
JARÐASALAN — Sími 11858.
Til leigu 3 herbergi
í húsi við Bankastræti. — Hentugt fyrir
skrifstofur, lækningastofur eða snyrti-
stofur.
Magnús Helgason, sími 13630.
Opnum í dag
Járn- og málningavöruverzíun
að Laugaveg 178
Munum kappkosta að hafa á boðstólum
BYGGINGAVÖRUR
BLIKKSMÍÐAVÖRUR
VERKFÆRI
RAFKNÚIN HANDVERKFÆRI
MÁLNINGAVÖRUR
í fjölbreyttu úrvali og á hagstæðu verði
_b yggingavörur h.f.
Laugaveg 178 — Sími 35697
— Alyktanir
í'iamhald af bls. 9.
sinni yfir því, að hinn alræmdi
9% söluskattur og útfiutnings-
sjóðsgjald skuli nú hafa verið af-
numinn, en sú skattheimta or-
sakaði margvíslegt misræmi og
óréttlæti í framkvæmd eins og
komið hefur fram á fyrri aðal-
fundum.
I. M. S. í.
Fundurinn ítrekaði fyrri sam-
þykktir sambandsins um að beina
þeim eindregnu tilmælum til iðn
aðarmálaráðherra, að Vinnuveit
endasamband íslands fái aðild að
stjórn Iðnaðarmálastofnunar ís-
lands. Taldi fundurinn að reýnsl
an hafi sýnt að um mikið nauð-
synjamál sé að ræða.
Tilboð og útboð
Fundurinn lýsti ánægju sínni,
yfir nefndarskipun viðskipta-
málaráðherra til þess að «thuga
þann hátt, sem á er um tilboð í
verk samkvæmt útboðum og gera
tillögur um leiðir til úrbóta, með
það fyrir augum að reglur verði
settar um þau mál.
Sérstaklega lýsti fundurinn á-
nægju sinni yfir því að fallist
var á tillögur Vinnuveitenda-
sambandsins við undirbúning
málsins.
Þá skoraði fundurinn á nefnd-
ina að hraða störfum eftir föng-
um.
Efnahagsráðstafanirnar
Fundurinn metur mikils við-
leitni ríkisstjórnarinnar um auk-
ið athafna- og við skiptafrelsi og
telur, að efnahagsráðstafanir
hennar, verði þeim ekki spillt,
eða þær eyðilagðar af óábyrgum
öflum, geti í framtíðinni orðið
undirstaða sjálfstæðs og heil-
brigðs eínahagslífs þjóðarinnar.
Fundinum er Ijóst, að eitt meg-
in skilyrði fyrir því er, að al-
mennt kaupgjald í landinu verði
óbreytt fyrst um sinn. Þung á-
byrgð hvílir því á herðum vinnu
veitenda og launþega á að halda
þannig á málum þessum, að þjóð
in geti komist yfir erfiðleikana.
Skorar 'fundurinn á alla vinnu-
veitendur í landinu að gera sitt
ýtrasta til að svo megi verða,
enda þótt efnahagsráðstafanirnar
komi hart niður á öllum atvinnu-
rekstri.
Vinnulöggjöf
Fundurinn skorar á ríkisstjóm
ina að láta nú þegar fara fram
endurskoðun á lögum um stéttar-
félög og vinnudeilur.
Fundurinn bendir á, að al-
mennur skilningur á nauðsyn
breytinga á vinnulöggjöfinni hef
ur farið vaxandi undanfarin ár,
enda yfirlýst af forustumönnum
hagsmunasamtaka bæði launþega
og vinnuveitenda.
Fundurinn taldi að hin öra
framþróun í atvinnuháttum og
félagsmálum, sem átt hefur sér
stað hér á landi síðan vinnulög-
gjöfin var sett fyrir 22 árum geri
endurskoðun vinnulöggjafarinn-
ar mjög aðkallandi.
V eikindadagar
Fundurinn skoraði á rikis-
stjórnina að beita sér fyrir þvi,
að nú þegar verði lögum nr.
16/1958 breytt í það horf að þeir
launþegar, sem lög þessi taka til
eigi rétt til kaupgreiðsla í allt að
14 dögum samtals á ári og þá ein-
ungis kaup fyrir venjulegan dag-
vinnutíma í starfsgreininni.
Þá skoraði fundurinn á ríkis-
stjórnina að láta fara fram endur
skoðun á öðrum ákvæðum lag-
anna, svo breytingar, að því leyti,
verði lagðar fyrir næsta reglu-
iegt Alþingi, enda verði Vinnu-
veitendasambandinu gefinn kost-
ur á að koma þar fram sínum
sjónarmiðum.
★
Loks samþykkti fundurinn að
fela framkvæmdanefnidnni að
láta fara fram endurskoðun á
lögum sambandsins og leggja til-
lögur sínar þar um fyrir næsta
aðaLfund.