Morgunblaðið - 14.06.1960, Blaðsíða 12
12
MORGUNBT. AÐIÐ
Þriðjudagur 14. júnx 1960
wgifttMðfrifr
Útg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
STYÐJUM VIÐ-
REISNARSTARFIÐ
rORMANNARÁÐSTEFNA
* Sjálfstæðisflokksins sem
lauk sl. laugardag lýsti á-
nægju sinni yfir því, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á
örlagastundu tekið að sér
forystu um stjórn landsins og
úrlausn hinna alvarlegustu
vandamála. Jafnframt lýsti
ráðstefnan eindregnum stuðn
ingi við viðreisnarstefnu rík-
isstjórnarinnar og stuðnings-
flokka hennar. Formanna-
ráðstefnan skoraði á alla ís-
lendinga að styðja ríkis-
stjórnina í viðleitni hennar
til þess að koma efnahags-
málum þjóðarinnar á traust-
an grundvöll, því að á þann
hátt einan væri auðið að
tryggja auknar framfarir og
batnandi lífskjör í landinu.
Engum hugsandi manni
getur blandazt hugur um
það, að íslendingum ríður
lífið á því að ríkisstjórnin fái
frið til þess að framkvæma
viðreisnarstefnu sína. Ef þær
jafnvægisráðstafanir, sem nú
hafa verið gerðar yrðu brotn-
ar niður, hlyti af því að leiða
fjárhagslegt hrun og ófyrir-
sjáanlegt öngþveiti.
SORGLEG
ÖMENNING
OEYKVÍKINGAR hafa al-
mennt fagnað því, að
undanfarin ár hefur verið
gert meira til þess en nokkru
sinni fyrr að prýða og fegra
bæinn. í því skyni hefur
blóma- og trjárækt mjög ver-
ið aukin og mörg svæði, sem
áður voru girt, opnuð almenn
ingi til afnota.
Með þessu hefur tvímæla-
laust verið stefnt í rétta átt.
Fólkið á að eiga aðgang að
hinum grónu svæðum borgar
sinnar. Það er frumskilyrði
þess, að blóma- og trjárækt
verði því sá yndisauki, sem
að er stefnt.
Lítilmótleg
skemmdariðja
En því miður er til fólk í
Reykjavík, sem ekki kann að
meta viðleitnina til þess að
fegra og prýða bæinn. Þetta
fólk leggst svo lágt að vinna
skemmdarverk á trjám og
blómum. Einn af blaðamönn-
um Morgunblaðsins fór fyrir
nokkrum dögum með garð-
yrkjustjóra bæjarins og skoð-
aði bæjargarðana. í lýsingu
blaðamannsins á þessu ferða-
lagi í blaðinu sl. sunnudag er
m. a. komizt að orði á þessa
leið:
„Við komum fyrst í Tjarn-
argarðinn. Milli litlu Tjarn-
arinnar og Bjarkargötu eru
falleg, gömul tré, þar sem
fólki þykir gott að sitja í
skjóli á góðviðrisdögum. Þar
er hvert tréð af öðru dauða-
dæmt, búið að fletta berkin-
um af með hníf, hringinn í
kringum stofninn, svo vökvi
streymir ekki lengur upp
eftir trénu og það lifir ekki
annað ár. Þar teygði reynitré
sig hálfan þriðja meter upp
í loftið, en með banvænt sár
um stofninn. Einasta seljan í
garðinum er einnig búin að
vera. Ótal 15—20 ára gömul
tré hafa verið snúin niður,
önnur tálguð og í sum hefúr
verið klifrað og þau sveigð
niður, svo hægt væri að bark-
arfletta stofninn. —•
Hér verður að höggva nið-
ur hundruð eyðilagðra trjáa
næstu daga, sagði Hafliði
(garðyrkjustjórinn). Og þó
var hér hreinsað allt í vor.
Þetta eru allt nýjar skemmd-
Ljót lýsing
Þetta er vissulega ljót lýs-
ing á hörmulegu atferli. En
hverjir eru það, sem slíka
iðju stunda?
Garðyrkjustjórinn svaraði
einnig þeirri fyrirspurn blaða
manns Morgunblaðsins. Hann
komst m. a. um það að orði
á þessa leið:
„Ég held að þarna séu mest
að verki 12—14 ára strák^r og
jafnvel stelpur líka. Kannski
vita þau ekki einu sinni að
þau eru að drepa trén með
því að skera af þeim börkinn.
Eða þeim er alveg sama. Til
er líka fullorðið fólk, sem
eyðileggur trén“.
Um þetta atferli er óþarfi
að hafa mörg orð. Hér er
um sorglega ómenningu
að ræða, ómenningu, sem
verður að uppræta. Það
fólk, sem þannig hagar sér,
verður að vita að það hefur á
sér fyrirlitningu og andúð
allra góðra manna. i
UTAN IIR HEIMI
Slys
MÁNUDAGINN 30. maí sl.
fór fram í Indianapolis hinn
árlegi 500 mílna kappakst-
ur. Umhverfis brautina
höfðu verið reistir pallar úr
aluminium, sams konar og
notaðir eru af húsamálur-
um. Á einum pallinum voru
um 150 manns saman komn-
ir og þegar bifreiðunum var
ekið reynsluferð um braut-
ina, hölluðu áhorfendur sér
fram til að sjá betur. Allt i
einu tók pallurinn að hall-
ast og féll loks fram yfir sig.
Tveir menn létust úr
hálsbroti, en um 70 særð-
ust, sumir hættulega.
Stærri myndin sýnir þeg-
ar pallurinn er að falla, hin
myndin særða áhorfendur
bíða læknishjálpar.
Sigurvegari í kappakstr-
inum varð Jim Rathmann,
sem ók með að meðaltali
138,767 mílna hraða á klst.
(223,3 km.), og er það nýtt
met, en gamla metið var
135,857 mílur á klst. (218,6
km.).
Hvítir
flýja
Um 100.000 hvítra manna lifa
nú í ótta í Belgiska Kongo. Land-
ið fær sjálfstæði 1. júlí og veit
enginn hver verða viðbrögð
blökkumanna á sjálfstæðisdegin-
um, en þeir eru 15 milljónir. Kom
ið hefur verið á „loftbrú“ til að
flytaja hina hvítu burt úr land-
inu ,og hefur hún ekki undan.
Kortið sýnir landamæri ríkis-
ins og helztu borgir.