Morgunblaðið - 28.06.1960, Blaðsíða 12
12
MORGVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 28. júní 1960
Útg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
HVAÐ HEFÐI
ORÐIÐ ?
E G A R menn hugleiða
efnahagsmálin, er eðli-
legt, að þeir geri sér grein
fyrir því, hvað hér hefði orð-
ið, ef áfram hefði sigið á ó-
gæfuhlið vinstri stefnu. —
í fyrsta lagi verður þá
ljóst, að þróun sú, sem há-
marki sínu náði við fall
vinstri stjórnarinnar, hefði
leitt til þess, að hér hefði orð-
ið óðaverðbólga og vísitalan
farið upp í a. m. k. 270 stig,
þegar á síðasta ári. í öðru
lagi hefðu skuldir erlendis
aukizt stórkostlega, ef lán
hefðu þá nokkurs staðar ver-
ið fáanleg. En þegar lántökur
þraut hefði skapazt mjög al-
varlegur gjaldeyrisskortur,
samdráttur og atvinnuleysi.
Jafnframt var svo uppbóta-
kerfinu þannig háttað, að út-
flutningssjóður hefði orðið
gjaldþrota þegar er draga
þurfti verulega úr innflutn-
ingi, ef honum hefði ekki
verið séð fyrir nýjum tekj-
um. í þriðja lagi hefði því
orðið að taka upp nýja og
stórkostlega skattaálagningu
til þess annars vegar að greiða
auknar uppbætur vegna verð-
bólgunnar og hins vegar að
bæta útflutningssjóði það
tjón, sem hann liði af því að
innflutningur minnkaði. —
Mundu þessar skattabyrðar
hafa numið mörgum hundr-
uðum milljóna króna.
HVAÐ ER?
AUÐVITAÐ eru menn ekki
ánægðir með þá erfið-
leika, sem þessa mánuðina
eru samfara hinni nýju efna-
hagsstefnu. En þegar núver-
andi ástand í þjóðmálunum
er borið saman við þessa
óhugnanlegu mynd, sem við
blasti, þá sjá allir heilskyggn-
ir menn, að vel var ráðið að
hverfa að nýjum stjórnar-
háttum í efnahagsmálunum.
Með efnahagsráðstöfunun-
um hefur tekizt að koma í
veg fyrir áframhaldandi halla
búskap. Þær hafa leitt til
stóraukinnar sparifjársöfnun-
ar, til hagstæðari verzlunar-
jöfnuðar og þær hafa tryggt
fullan rekstur atvinnutækj-
anna og næga atvinnu. Allt
hefur þetta tekizt, án þess að
verulegar byrðar væru lagð-
ar á landslýð. Og til að létta
þær byrðar, sem óhjákvæmi-
legar voru, hafa verið teknar
upp fjölskyldubætur, sem
mjög hjálpa þeim, sem erfið-
ast eiga í lífsbaráttunni. Eru
menn þegar farnir að njóta
þeirra. Jafnframt léttir svo
hin mikla skattalækkun von
bráðar verulegum byrðum af
almenningi.
Þannig eru menn nú þegar
farnir að finna, að átak það,
sem þurfti til að koma efna-
hagslífinu á heilbrigðan
grundvöll, var ekki eins til-
finnanlegt og stjórnarand-
stæðingar vildu vera láta. En
meginatriðið er þó að efna-
hagsráðstafanir voru ekki
miðaðar við þessa fáu mán-
uði heldur framtíðina.
HVAÐ VERÐUR?
ivAXTANNA af erfiði því,
sem borgararnir í heild
leggja nú á sig, munu þeir
von bráðar fá að njóta. Horf-
ið hefur verið frá hallabú-
skap, höftum, uppbótum og
nefndaskipulagi og til svip-
aðra stjórnarhátta og tíðkast
í nágrannalöndum okkar, sem
háþróuðust eru og tryggja
þegnum sínum bezt lífskjör
samfara fullkomnustum lýð-
réttindum. Slíkt heilbrigt
þjóðlíf er nú einnig að verða
að veruleika hér á íslandi.
Fram að þessu hafa efna-
hagsráðstafanirnar í öllu til-
liti svarað til björtustu vona
þeirra, sem að þeim hafa
staðið. Ef eyðileggingaröflum
tekst ekki að torvelda sókn
þjóðarinnar til betri lífskjara,
þá má telja öruggt, að innan
skamms fari menn að njóta
gæða hins nýja framfaratíma-
bils, sem markar spor í efna-
hagssögu þjóðarinnar.
Hin nýja sparnaðarvið-
leitni, traustið á gjaldmiðlin-
um og frjálsræði það, sem
leysir úr læðingi afl borgar-
anna, mun von bráðar leiða til
stórstígra framkvæmda og
efnahagslegs öryggis alls
almennings.
Þegar þessar staðreyndir
eru hafðar í huga, þá þarf
engrar afsökunar að biðja á
því þó að stjórnarstefnan
kunni að þrengja hag manna
eitthvað um nokkurra mán-
aða skeið. Þvert á móti geta
stjórnarflokkarnir verið stolt-
ir af djörfung þeirri, sem þeir
hafa sýnt.
ROT-
höggið
Myndirnar her á síðunni
eru frá viðureign þeirra
Floyd Patterson og Inge-
mars Johansson. — Syna
þær þegar Patterson sló
Johansson rothoggið í 5.
lotu. — Ekki verður sagt að
íþróttin sé fögur!