Morgunblaðið - 27.08.1960, Page 18
Danskur íjDróttamaður
fékk sólsting og lézt
Eftir keppnina i gær, er Lance Larson líklegastur til sigurs í 100 m skriðsundina. —
Hörð barátta Banda-
ríkja- og Ástralíumanna
HIN geysiharða og tvísýna
keppni Bandaríkjamanna og
Ástralíumanna í sundi á fyrsta
keppnisdegi Olympíuleikanna,
gaf til kynna, hvernig búast má
við að keppni leikanna verði.
Sundkeppnin byrjaði með 100
m frjálsri aðferð karla, en þar
náði beztum tíma Bandarikja-
maðurinn Lance Larson, er hann
vann 6. riðil á 55,7 sem er aðeins
3/10 sek. frá heimsmeti Ástralíu
mannsins John Hendricks. í>átt-
takendur í 100 m sundinu voru 51
og tímar eru látnir ráða hverjir
komast í undanúrslit.
Meðal þeirra sem komust í
undanúrslitin voru Ástralíumenn
irnir Hendricks, sem vann sinn
riðil á 56,9 sek. John Davitt, sem
einnig vann sinn riðil á 56,0 sek.
R. Hunter, Bandaríkin (56,6), R.
Pound, Kanada, (56,7), Dos Sant
os, Brazilíu (56,3), G. Dobay Ung
verjalandi (56,5), Lantos, Ung-
verjalandi (57,4), Lindberg, Sví-
þjóð (57,1), . Burer, S-Afríku
(56,3), K. Ishihara, Japan (57,5)
og Kaykko, Finnlandi (56,8).
Tímarnir í sundinu gefa glögga
mynd af framförum þeim, sem
hafa átt sér stað í sundinu frá
síðustu Olympíuleikum í Mel-
bourne, en þá náði aðeins einn
að synda undir 57 sek. í undan-
rásunum.
RÓM í GÆRKVELDI í undanúr-
sltum 100 m skriðsundsins, sem
fóru fram síðdegis í dag, háði
Lance Larson harða baráttu við
landa sinn Brunce Hunter og
kom aðeins sjónarmun á undan
honum í mark. Tími Larsons 55,5
eða 1/10 sek. betri en í undanrás
inni um morguninn, er hann
synti á 55,6 sek. Þesir tímar eru
þeir beztu, sem náðust í 100 m
sundinu í gær. Bæði Larson og
Hunter verða því í úrslitakeppn-
inni.
• Hendricks ekki 1 úrslitum.
Mesta áfall áströlsku sund-
mannanna var, er fyrrverandi Ol
ymíumeistarinn og methafi John
Hendricks féll úr keppninni, með
því að verða 4. í sínum riðli í
undanúrslitunum. Riðilinn vann
landi hans og heimsmethafinn á
vegalengdinni John Devitt, eftir
geysiharða keppni við Kanada-
manninn Dick Pound, sem varð
annar.
íþróttablaðið SPORT
Ítalía vunn
fyrsta gullið
Gestgjafalandið Italía vann
fyrsta gullið á Olympíuleik-
unum, er 4ra manna sveit
þeirra vann 100 km hjólreiðar
keppnina. Þjóðverjar urðu
aðrir og unnu þar með 1.
silfurverðlaunin ogr Rússar
þriðju og unnu þar með 1.
bronzverðlaunin.
ÁGÚSTHEFTI íþróttablaðsins
Sport er nýkomið út, óvenju fjöl-
breytt að efni og myndum og fró-
gangur allur til fyrirmyndar. Af
efni þess má nefna: Viihjálmur
jafnar heimsmetið, 4ra landa-
keppníníósló, ísl. handknattleiks
stúlkur nr. 2 á Norðurlandamóti,
Knattspyrnurabb, Landsleikir við
Norðmenn og Þjóðverja, Sund-
meistaramótið, Skauta- og Skíða-
mót íslands, Erlendar fréttir,
Stórstígar framfarir í sundinu,
Ffjálsíþróttamótin í sumar, lands
mótin í handknattleik, glímu,
golfi, körfuknattleik, badminton,
knattspyrnu og frjálsum íþrótt-
um — og síðast, en ekki sízt
20 manna afrekaskrá karla og
kvenna í sundi og frjálsum íþrótt
um fyrir sl. ár, en til samanburð-
ar er svo birt samskonar skrá yfir
beztu afrekin á þessu ári.
Á ritstjórinn, Jóhann Bern-
hard, lof skilið, ekki aðeins fyrir
þetta smekklega blað, heldur
jafnfiamt fyrir þann ótvíræða
menningarsvip, sem hann hefur
sett á ísl. ílþróttabókmenntir und-
anfarin 20 ár — eða allt frá þvi
að hann hótf ritstjóraferil sinn í
þágu ísl. íþrótta. Með fullri virð-
ingu fyrir öðrum ílþróttafrömuð-
um, þá var það Jóhann Bernhard,
sem vann það ómetanlega braut-
ryðjandastarf m. a. með Árbók
íþróttamanna, að leggja raunhæf
drög að íþróttasögu íslands frá
því um aldamótin. Var það verk
hans svo vel af hendi leyst, að
fáir munu eftir leika, enda hefur
útgáfa Árbókarinnar nú alveg
lognazt útaf í höndum þeirra, sem
F) amh. á bls. 19
RÓM, 26. ágúst. — Meðan
sundmennirnir háðu harða
og tvísýna baráttu í sund-
keppni Olympíuleikanna,
háði danski hjólreiðamað-
urinn, Knut Enemark,
dauðastríð í sjúkrahúsi í
Róm. Knut Enemark var
keppandi í 100 km. hjól-
reiðakeppninni, sem fram
fór i gærmorgun í steikj-
andi hita og sólskini. Ene-
mark fékk sólsting og féll
í yfirlið og var fluttur í
sjúkrahúsið þar sem hann
lézt nokkrum klukkustund-
um síðar. Knut Enemark
var 23 ára gamall.
Hitinn í gær var geysi-
Iegur, yfir 38 gráður á
Celsius og hefir hann vald-
ið miklum veikindum með-
al íþróttafólksins, sem
leggst unnvörpum í rúmið.
76 ára stúlka setur
Olympíumet
RÓM, 26. ágúst: — Bandaríska
stúlkan Christine von Saltza setti
nýtt Olympíumet í gær í 100 m
skriðsúndi kvenna. Von Saltza
er 16 ára skólatelpa frá borginni
Santa Clara í Kaliforníu. Tími
hennar var frábær.
Hún klauf vatnið á geysi hraða
og synti vegalengdina á 61,9 sek.
og ruddi þar með Olympíumeti
áströlsku stúlkunnar Dawn Fras
er, 62,0 sek. er sett var 1956 í
Melbourne. Frazer er nú 23 ára
gömul og hafði synt vegalengd-
ina nokkrum mínútum fyrr á 62,1
sek. — Undanúrslit fara fram í
þessu sundi á morgun og munu
þá Von Salza og Frazer keppa sín
í hvorum riðlinum.
í dýfingar-keppninni hafði
þýzka stúlkan Ingrid Kramer
náð forustunni með 56,23 stigum
eftir fyrstu fjórar æfingarnar.
Önnur var bandaríska stúlkan
Paula Pope með 52,67 stig.
í dag verður keppt í þremur
af þeim sex dýfingargreinum,
sem eftir eru.
Frarn vann 3. flokk
í FYRRAKVÖLD vann 3. flokk-
ur Fram Víking í úrslitaleik
Landsmóts 3. flokks í knatt-
spyrnu 2:0. Jón Magnússon stjórn
armeðlimur KSÍ afhenti hinum
ungu Frömmurum sigurlaun, bik
ar sem Lúliabúð gaf 1954 og
unnu Fram drengirnir bikarinn
til eignar.
Fyrsta Olympíumetið
R Ó M, 26. ágúst. — Fyrsta
Olympíumetið var sett þegar i
gærmorgun, er þýzka sundkonan
Wiltrud Ursulmann bætti 200 m
bringusundsmetið í 2 mín. 52
sek. Gamla metið átti landi henn-
ar, Ursula Happe, 2 mín. 53.1
sek., sett á Olympíuleikunum í
Melbourne 1956. Tími Ursulmann
er eftirtektarverður fyrir það að
nú er ekki leyft að taka sundtök
í kafi eins og var gert á síðustu
Olympíuleikum. Heimsmetið í
þessu sundi á brezka sundkonan
A. Lonsbrough, 2.50,3 mín. —
A. Lonsbrough synti í 2. riðli
keppninnar og vann á 2.53.3 mín.
— I þessu sundi komast 8 konur
í úrslitakeppnina.
Wiltrud Urselman setti fyrsta
Olympiumeiið.
KR-ingar í Skotlandsför
3. og 4. fl. fara með Gullfossi
i dag til Edinborgar
STÆRSTI hópur, sem nokkru
sinni hefir farið héðan utan í
knattspyrnu- og skemmtireisu,
fer til Skotlands með Gullfossi
í dag. Hér er um að ræða hóp
KR-inga, 41 talsins úr 3. og 4.
flokki félagsins.
Fararstjóri er Sigurgeir Guð-
mannsson, en auk hans eru í för
inni Guðbjörn Jónsson, þjálfari,
Jóhann Bogason, umsjónarmaður
KR-heimilisins og Magnús V.
Pétursson, dómari.
Frá Skota hendi hefir maðuf
að nafni Douglas Smith, búsettur
í Glasgow annast allan undirbún-
ing dvalarinnar í Skotlandi, en
þar munu drengirnir dvelja í 12
daga. Drengirnir munu búa á far
fuglaheimilum og hefir Farfugla
deild Reykjavíkur aðstoðað KR
í því sambandi.
Meðan dvalið er í Skotlandi
munu drengirnir dvelja lengstan
tíma við hið fagra Loch Lomand
vatn, sem er einn fegursti staður
Skotlands.
í förinni munu drengirnir
keppa 3 kappleiki, miðvikudag-
inn 31. ágúst við drengi á svip-
uðu reki. Leikið verður við
Drumchapel Amateurs í Dum-
barton, Dumbartonshire West
Schools í Dumbarton og gegn
Dumbarton Castie Rovers í Dum
barton.
Meðan drengirnir dveljast í
Skotlandi munu þeir "á tækifæri
til að skoða hina frægu skipa-
smíðastöð John Brown í Clyde-
bank, en þar voru risaskipin
Queen Mary og Queen Elisabeth
smíðuð. Farið verður í skemmti-
reisu um Clyde-fjörðinn og
„Kyles of Blues“ sundið umhverf
is Bute-eyjuna. Og laugardaginn
3. september horfa drengirnir á
Glasgow Rangers leika á heima-
velli, sem tekur 120.000 áhorfend
ur.
í Edenborg keppa svo drengirn
ir 3 leiki mánudaginn 5. septem-
ber. Síðan verður farið um borð
í Gullfoss og haldið heim til Rvík
ur.
Þessi för drengjanna hefir ver-
ið í undirbúningi í heilt ár. Allir
drengirnir hafa æft vel undir för
ina undir handleiðslu Guðbjörns
Jónssonar og Arnar Steinsen,
sem gat ekki farið í förina, vegna
1. deildar mótsins. Árangurinn
sýndi sig í Reykjavíkurmótinu í
ár, er flokkarnir unnu fjórfaldan
sigur (3A, 3B, 4A og 4B).
Förin er kostuð af drengjunum
sjálfum, sem hafa unnið mikið
s.l. ár og sparað vel til að geta
átt fyrir kostnaðinum.
Blaðomenn
eiga í stríði
RÓM, 26. ágúst: — Allskonar
erfiðleikar hafa þjáð erlendu
blaðamennina, sem komnir
eru til Rómar. I morgun olli
það þeim miklum erfiðleikum,
er sundkeppnin hófst að láðst
hafði að afhenda þeim sund-
skár. Þá var tími Bandaríkja
mannsins Larson fyrst gefin
upp 55,1 sek., sem hefði verið
nýtt heimsmet, en síðan leið-
réttur í 55,7 sek. Ætlaði þá
allt af göflunum að ganga og
blaðamennirnir sendu hörð
mótmæli til íorráðamanna
sundkeppninnar. — Reuter.