Morgunblaðið - 27.08.1960, Page 19
Laugardagur 27. agúsi 1960
MORGVNBLAÐIh
19
Slys í Naufhólsvík
í GÆR vildi það slys til suður
í Nauthólsvík, að ungur drengur
skarst á fæti af einhverju egg-
hvössu, sem leyndist í fjörubotn
inum.
Drengurinn, sem er 10 ára og
heitir Kjartan Steinbach, til
heimilis á Birkimel 8A, var að
busla og hlaupa um í rúmlega
hnédjúpum sjó, þegar hann
steig ofan á einhverja egg of
— Landhelgin
Frh. af bls. 20.
ráðherra frá því, að eftir ráð-
stefnunina hefði verið haldinn
fundur fiskimálaráðherra Norð-
urlanda í Kristianstad.Þar hefðu
ráðherrarnir skipzt á skoðunum
um ýmis efni varðandi fiskveið-
arnar. Hefðu fiskveiðitakmörk-
in nokkuð komið þar til umræðu,
ráðherrarnir rætt þau mál og
hver gert grein fyrir afstöðu síns
lands.
Emil Jónsson sagði að lokum,
að það hefði verið samróma álit
fslendinganna, sem þessa ráð-
stefnu sóttu, að hún hefði verið
hin merkilegasta og margt mátt
af henni læra.
Næsta fiskimálaráðstefna Norð
urlanda verður haldin í Osló eft-
ir tvö ár.
} LEIKARARNIR Bessi, Herdís,
ft Bryndís og Klemenz hafa nú
| sýnt hinn vinsæla gamanleik
l „I.illy verður léttari“ 45 sinn-
um og annað kvöld verður leik
urinn sýndur í Sjálfstaeðishús-
inu kl. 8:30.
Leikurinn verður aðeins
sýndur þar í þrjú skipti ennþá
vegna þess að 1. sept. hefst
vetrarstarfið í Þjóðleikhúsinu
og leikararnir Bessi. Herdís og
Klemenz eru öil bundin við
leikstörf þar.
Myndin er af Herdísi og
Bessa í aðalhlutverkum leiks-
ins.
Vörusfeipiajöfn-
urinn
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN
var óhagstæður í júlí um 81,894
þús. kr. sámkvæmt útreikningum
Hagstofunnar. Inn voru fluttar
vörur fyrir 218,822 þús., en út
fyrir 136,928 þús. f júlí 1959 var
vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 145,471 þús. Þá voru
fluttar inn vörur fyrir 272,761
þús., en út fyrir 127,290 þús.
Mánuðina janúar til júlí 1960
hefur vöruskiptajöfnuður verið
óhagstæður um 524,643 þús. Inn
voru fluttar vörur fyrir 1.872.360
þús., þar af skip og flugvélar fyr-
ir 276,965 þús. Út voru fluttar
vörur fyrir 1.347.717 þús. kr.
Jan.-júlí 1959 var vöruskipta-
jöfnuður óhagstæður um 410.214
þús. Inn voru fluttar vörur fyrir
1.794.961 þús., þar af skip og
flugvélar fyrir 55,016 þús. Út
voru fluttar vörur fyrir 1.348.747
þús.
Verðmæti útflutnings og inn-
flutnings 1959 og í janúar-febr.
1960 er umreiknað til samræmis
við núgildandi gengi.
Námsstyrkir frá
Júgóslavíu
RÍKISSTJÓRN Júgóslavfu býður
fram styrk handa íslendingi til
náms við báskólann í Beligrad
tímabilið 1. okt. 1960 til júníloka
1961. Styrkurinn er einikum ætl-
aður kandidötum og nemiur 25
þús. dínöruim á mánuði umrætt
tímabil.
Umsóknir um sityrk þennan
skulu sendar menntamá laráðu-
neytinu fyrir 5. sept. n.k. og fylgi
Staðfest afrit af prófskírteinum,
svo og xneðmæli. Umsóknareyðu-
blöð fást í ráðuneytinu, stjórnar-
ráðshúsinu við Lækjartorg.
(Fná menntamálaráðuneytinu).
Kappreiðar HarSar
Beta Péturs Lárussonar,
Reykjavík ........... 27,7
Röðull Sigurðar Jakobsson-
ar, Reykjavík ......... 30,4
Góðhestakeppni
Venus Málfríðar á Reykjum,
Glæsir Guöjóns Hólm, Reykjav.,
Blesi Ólafs Péturssonar, Rvík.
Fjölmenni sótti mótið og fór
það vel fram og var félaginu til
sóma. Góðhestanefnd var skipuð
þeim Borgtiiðingunum Símoni
Teitssyni, Eyvindi Ásmundssyni
og Gísla Höskuldssyni. Verðláun
í góðhestakeppni er svonefndur
kunnarfagur gripur.
,,Skæringsbikar“. sem er for-
kunnar fagur gripur.
Danir flyl ja inn
ffrænlenzk fínfeol
4 f
DANIR gera ráð fyrir því að geta
flutt inn fínkel frá Qutdigssat
með góðum hagnaði.
Fyrir skömmu kom til Kaup-
mannahafnar skip með 1448 tonn
af fínkolum eða nokkurs konar
mylsnu frá Qutdligssat. Græn-
lendingar geta ekki notað þessi
kol sjálfir.
Þess er vænzt, að framleiðslan
I Qutdligssat nái um það bil 30
þúsund tonnum í ár.
KAPPREIÐAR Harðar, hesta-
mannafélagsins í Mosfellssveit,
voru háðar hinn 14. þ. m. og
voru helztu úrslit þessi:
259 m skeið Sek.
Blesi Guðm. Þorsteinssonar,
Reykjavík .............. 25,8
Logi Jóns í Varmadal .... 27,5
Venus Málfriðar á Reykjum 29,0
250 m stökk
Skutla Sigvalda Jóhannsson
ar, Reykjavík .......... 19,5
Adam Guðm í Laxanesi .. 19,5
Molda Hauks á Helgafelli .. 19,6
300 m stökk
Hringur Guðm. ólafssonar,
Reykjavík .............. 23,0
Grani Einars Halldórssorvar,
Reykjavík ..:........• • • • 23.1
Blesi Jóns Axels, Rvík .... 23,5
350 m stökk
Garpur Jóns 1 Dalsgarði .. 26,5
Tass segir:
Bandarikin
undirfoúa
sýklahernað
MOSKVU, 26. ágúst. (Reuter
AFP) — SovétveldiS hefir
sakað Bandaríkin um, að þau
iéu nú aS fera vítækar til-
raunir til þess að undirbúa
sig undir „efnafræðilegan“
hernað og sýkla-hernað. Þessi
ásökun kom fram í frétta-
skeyti frá Washington-frétta-
ritara Tassfréttastofunnar.
Segir fréttaritarinn, að
Bandaríkjastjórn vilji nú
sannfæra bandariskan almenn
ing um, að sýklahernaður sé
áhrifamesta aðferðin tii að
„eyðileggja" óvininn í styrj-
öld. Fréttaritarinn vitnaði i
bandaríska fréttastofu og
hafði eftir henni, að yfirstjórn
varnarmála í Bandaríkjunum
undirbúi nú heimsókn blaða-
manna, sem hafa vísindarann-
sóknir sem sérgrein, til leyni-
legra tiiraunastöðva fyrir
„kemisk“ vopn og „sýkla-
vopn“ í ríkinu Utha.
Styrjaldarrekstur með slík-
um vopnura er talinn mun ó-
dýrari en kjarnorkuhernaður,
að því er segir í Tass-fréttinni.
skarst alldjúpum skurði í ilina.
Hann var fluttur í Slysavarðstof-
una, þar sem skurðurinn var
saumaður saman, en síðan fluttur
heim til sín, þar sem hann á að
liggja í vikutíma.
Þetta mun ekki í fyrsta sinni,
sem menn hafa skorizt þarna suð
ur frá, og þyrfti að hreinsa fjöru
botninn vandlega af skaðvöld-
unum, hvort heldur er um að
ræða hvassar jám-, gler- eða
grjóteggjar.
Gamla fólkið
á Akranesi
í skemmtiferð
AKRANESI, 23. ágúst. — Þriðju-
daginn 16. þ. m. bauð Rotary-
félag Akrar.ess gamalmennum
bæjarins í rkemmtiferð. Mörg
undanfarin ár hefur þetta verið
föst venja njá félaginu og vel
þakkað.
Þátttakendor voru 70 og ekið
í tveimur nýtízku langferðabíl-
um, eign bílstöðva hér. Lagt var
af stað kl. 3.30, ekið um fagrar
og grózkumiklar sveitir Borgar-
fjarðar og gaf þar mörgum að
líta minningalönd sín frá æsku-
dögunum. Gengið var til stofu
í Bifröst og þar keypti bæjar-
sjóður Akraness ilmandi kaffi og
krásir handa öldnum borgurum
sínum. Síðan var haldið um
Þverárhliðina fram í Þverárrétt.
Ekki er að synja fyrir það að
sumir hafi í andanum, þar sem
þeir studdust við réttarvegginn
og sögðu rögur, séð fjársafn
renna út hliðina. Þaðan var ekið
að Reykholti og staðurinn skoð-
aður. Heim var komið kl. 8.30.
Fararstjórar voru fjórir.
— Oddur.
- //>róttir
Framh. af bls. 18.
töldu sig geta tekið við af Jó-
hanni. — Á svipaðan hátt fór um
„íþróttablað ÍSÍ“, sem Jóhann rit
stýrði með miklum myndarbrag
á sínum tíma, en síðan hefur það
blað verið á hálfgerðum vergangi
og virðist hafa horfið með öllu
af sjónarsviðinu nokkru eftir að
Jóhann endurvakti Sport.
Vikuferð
til Edinborgar
MIKIL aðsókn er að vikuferð
ferðaskrifstoíunnar Sunnu til
Edinborgar, sem hefst n. k.
þriðjudag, og hefur þegar verið
leigð ein fiugvél (Viscount) til
ferðarinnar.
Ferðin hefst 30. ágúst, og verð-
ur dvalizt á fyrsta flokks gisti-
húsum í Edinborg í eina viku,
en farnar stuttar ferðir um há-
iendi Skotlands, og borgin og
nágrenni hennar skoðað eftir því
sem óskað er. Edinborgarhátíðin
svonefnda stendur einmitt þá
sem hæst, og gefst fólki kostur
á að hlýða á heimsfræga tónlist-
armenn auk þess em að skemmt-
analíf borgarinnar er með mest-
um blóma þessa daga.
Fargjaldið er kr. 5400,00 og er
þar innifalið fæði og gisting —
að undanskildum hádegisverði.
. Ferðaskrifstofan Sunna er ný-
flutt í önnur núsakynni, og er nú
til húsa að Hverfisgötu 4, húsi
Garðars Gislasonar, og er opin
daglega kl. 5—7.
Fæm ingarnir
keppa í Ilafnar-
irði í dair
t BAG kl. 4 e. h. fara fram
handknattleikskappleikir milli
meistaraflokks F. H. og Færey-
inganna, sem dvelja hér á landi
í boði Víkings.
í meistaraflokki karla keppa
Færeyingarnir við íslandsmeist-
ara F. H. og í kvennaflokki keppa
færeysku stúlkumar við meist-
araflokk F. H.
Auk þessara leika munu Vík-
ingar og F. H.-ingar keppa í 2.
fl. karla.
Wúrenlingen, Sviss, 26. ág. —
Max Petitpierre, forseti Sviss,
opnaði í dag formlega fyrsta
kjarnakljúf Svisslands.
Jóhann Bernhard,
íþróttaritstjóri í 30 ár.
Meðan Jóhann gegndi ritstjóra-
og útgáfustarfi á vegum ÍSÍ komu
út nauðsynlegar leikreglur í flest
um greinum, handbækur, kynn-
ingarbæklingar o. fl. svo tugum
skipti. Var það allt hið vandað-
asta að efni og frágangi og salan
góð og vel skipulögð. Síðan hefur
því miður farið lítið fyrir þessari
starfsemi (bókaútgáfu ÍSÍ); nýj-
ar reglur næsta sjaldséðar og
lítið sem ekkert gert til að kynna
þær og útbreiða. Er það illa farið
og kemur sér jafnilla fyrir ÍSÍ og
íþróttamennina sjálfa.
Til fróðleiks má geta þess, að
Jóhann mun hafa verið fyrsti ís-
lendingurinn, sem skrásetti og gaf
út afrekaskrár í frjálsíþróttum
(og síðar sundi) á árunum
1938—1939 — og hefur haldið því
við síðan. Hefur hann verið full-
trúi íslands í Aiþjóðasambandi
afrekasérfræðinga allt frá stofn-
un þess (1950) og lengst af samið
kafla íslands í árbók sambands-
ins. Er lítill vafi á því að afreka-
skrár J. B., sem hafa m. a. birzt
í Mbl. ( og fieiri dagblöðum), Ár-
bókinni, íþróttablaðinu og Sport,
hafa haft uppörvandi áhrif á iðk-
endur sunds og frjálíþrótts og
verða seint metnar að verðleik
um.
Hér eru engin tök á því að telja
upp öll þau íþróttablöð og bækur,
sem J. B. hefur ritstýrt, ritað eða
gefið út sl. 2 áratugi, en eitt er
víst, að miklum og dýrmætum
fi'óðleik hefur hann bjargaS frá
glötun með þessari starfsemi. Hér
hefur, að gefnu tilefni, verið
vikið lauslega að 20 ára ritstjóra
ferli Jóhanns, sem er þó aðeins
einn þáttur í hans fjölþætta starfi
fyrir ísl. íþróttalíf, en sennilega
sá merkasti.
Útför
RUNÓLFS STEFÁNSSONAR
frá Litla-Holti
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudag. 29.
ágúst kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeim
sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélagið.
Vandanienn
Þökkum hjartanlega auðsýnda samú^) við andlát og
jarðarför
KARÓLlNU JÓNSDÓTTUR
Melbrún, Fáskrúðsfirði
Börn, tengdaböm og barnaböm
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
föður okkar
MAGNÚSAR ÞÓRARINSSONAR
frá Hrútsholti
Börn hins Iátea