Morgunblaðið - 13.09.1960, Page 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. sept. 1960
TTtg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórart Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók.: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Áskriftarg]ald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
BRÚSAST AÐA-
HREYFINGIN
t STÖÐUGRI leitun ljóss-
ins til að lífsins helgustu
skyldu“.
Þessi orð er að finna í ljóði,
sem Þóroddur Guðmundsson
frá Sandi flutti þeim Brúsa-
skeggjum á samkomu um
helgina. Hann sat þar við hlið
erindreka heimskommúnism-
ans og getur varla hjá því
farið að honum hafi verið
ljóst hver er þeirra „lífsins
helgasta skylda“. Hitt lætur
einnig að líkum, að hirðskáldi
Brúsaskeggj a-hreyf ingarinn-
ar hefur verið klappað lof í
lófa, og líklega hefur hann
fundið til þess með hrærðu
hjarta að hann væri ekki
lengur misskilinn.
„En áhrif hennar (herset-
unnar) eru djúptæk á mál,
menningu og siðferði þjóðar-
innar og má þegar sjá greini-
leg merki þess í aukinni laus-
ung, fjármálaspillingu og
málskemmdum“. Já, siðferði
og menning þeirrar þjóðar er
á lágu stigi, sem ekki hefur
hafið upp til skýjanna skáld
á borð við þau, sem á mála
hafa gengizt hjá kommúnist-
um, af þeim sökum að hin
gjörspillta íslenzka þjóð hef-
ur ekki skilið hverjir afburða
menn voru á ferð.
En hvað þá um „mál-
skemmdirnar“? Maður skyldi
ætla að hreyfing Brúsa-
skeggja legði sig fram um að
uppræta þann þátt spillingar-
innar. Svo kynlega bregður
þó við að þeir nefna göngu
frá Narðvíkum til Reykja-
víkur Keflavíkurgönguna og
fund sem á Brúsastöðum er
haldinn kalla þeir Þingvalla-
fund. Virðast þeir því hafa
komizt í hin nánustu kynni
við spillt málfar og tala í því
efni af eigin reynslu. Ákveðn-
ar grunsemdir vakna þó um
að þessar tiltektir stafi ekki
eingöngu af „málskemmd-
um“ heldur gægist þar einnig
fram angi hins spillta siðferð-
is sem mönnum þessarar
hreyfingar er hvað tíðrædd-
ast um. í þeirri menningu
ljóssins, sem þeir Brúsa-
skeggir telja helgustu skyldu
sína að innleiða á íslandi, er
því nefnilega þannig varið,
að staðreyndir skipta ekki
máli nema þær séu þóknan-
legar hinum útvöldu. Þar er
ekkert sannleikur nema það,
sem valdhöfunum er þóknan-
legt og alkunna að í sæluríkj-
um Brúsastaðamenningar
þarf að gjörbylta sagnfræði-
ritum frá ári til árs.
Örlítil snerting við þá
menningu er fólgin í nafn-
giftunum Keflavíkurganga
og Þingvallafundur. Munu
kommúnistar hafa ætlað að
þreifa sig áfram með það hve
djúpstætt siðferðið væri hjá
sakleysingjunum sínum. Og
ekki ber á öðru en að þeim
hafi geðjast ágætlega að nafn-
giftunum og þessari byrjun á
innleiðslu Brúsastaðamenn-
ingarinnar, en þeim mun þó
reynast það erfitt um það er
lýkur að fá íslendinga til að
trúa því að hvítt sé svart og
svart sé hvítt, að menning
Brúsaskeggja sé íslenzk menn
ing.
En kommúnistar virðast
ekki einungis hafa ætlað að
reyna þolrif sakleysingjanna
sinna með tilliti til máls,
menningar og siðferðis, held-
ur nefna þeir líka fjármála-
spillinguna sem prófstein,
rétt eins og Hannibal hefði
samið ályktunina. Og þeir
fundu hina ágætustu leið til
þess að gera þessa tilraun.
Þeir settu sem sé séra Sigur-
jón Einarsson, rúbluprestinn,
sem uppvís var að því að
stunda viðskipti með rúss-
neskan gjaldeyri fyrir Kreml-
verja, gjaldkera Brúsa-
skeggjahreyfingarinnar, og
hann lýsti því yfir að hús-
bændur sínir væru „mjög ör-
látir“. Ekki hefur síðan á því
borið að sakleysingjunum
flökraði við rúblum Sigur-
jóns og mun láta nærri að
þaðan séu runnir peningar
sem svara til hálfrar milljón-
ar íslenzkra króna. En sjálf-
sagt munu þeir, sem féð hafa
reitt af hendi ekki sjá eftir
því, enda lýsir einn af hinum
íslenzku æðstu prestum
þeirra því yfir í málgagni
kommúnista, að megin mark-
mið Brúsaskeggjahreyfingar-
innar sé að berjast gegn „ný-
lendustefnunni í nýjasta bún-
ingi sínum“.
Og þessi nýja nýlendu-
stefna sem sakleysingjarnir
berjast gegn við hlið komm-
únistanna, er hreint ekki sú,
sem sýndi ásjónuna í Búda-
pest, Berlín eða Tíbet, heldur
er það nýlendustefna hinnar
„gjörspilltu“ vestrænu menn-
ingar, og hálf milljón króna
mun ekki þykja ofríflegt
framlag til baráttunnar fyrir
þeirri „lífsins helgustu
skyldu“.
/i
Sfökk yfir Aflanfshafið
¥ BYRJUN næsta mánaðar
■“■ byrjar hin alþjóðlega út-
gáfa af bandaríska stórblað-
inu New York Times að koma
út samtímis austanhafs og
vestan. New York Times
International hefir undanfar-
in 11 ár verið gefið út í Ev-
rópu, fyrst prentað í París og
hin síðari ár í Amsterdam, —
en efni blaðsins hefir alltaf
verið eins dags gamalt. Fram-
vegis verður það sem sagt
alveg nýtt og „ferskt“.
o---O-----o
Það eru hinar svonefndu
Teletype-setningarvélar, sem
gera þessa „byltingu“ mögulega.
—• Um leið og efni blaðsins er
sett í New York eru hinar vél-
settu línur „yfirfærðar" á papp-
írsræmur með sérstöku gata-
kerfi. — Þannig er efnið símað
austur yfir Atlantshafið, þar eru
gataðar nýjar ræmur eins og
hinar fyrri, setningavélarnar í
París taka við þeim og geta
nú sett nákvæmlega sömu línurn
ar eins og vélarnar í New York
gerðu skömmu áður. Allt gengur
þetta með miklum hraða.
o--------------O-----o
Öll ritstjórn útgáfunnar mun
hafa aðsetur í New York, þar
sem komið verður á fót sérstakri
Evrópudeild, sem semur mik-
inn hluta efnisins í alþjóðlegu
útgáfuna. 1 París, þar sem að-
eins New York Herald Tribune,
aðalkeppinautur „Times“, hefur
gefið út blað með alveg nýju
efni, mun Theodore Bernstein
verða aðalfulltrúi „Times“ og
sjá algerlega um tæknilegu hlið-
ina og þá viðskiptalegu, en Bern-
stein hefur lengi notið mikils
trúnaðar í starfi. — Annar mik-
ilsvirtur starfsmaður „Times“,
Robert Garts, sem unnið hefur
hjá fyrirtækinu um 30 ára skeið,
verður aðalritstjóri Evrópu-efn-
isins í New York.
-O-
Hin nýja alþjóða-útgáfa af
New York Times, mun koma út
alla virka daga árið um kring.
Hið daglega fréttaefni verður
,.kryddað“ daglega með úrvals-
greinum úr sunnudagsblöðum
New York-útgáfunnar, bók-
mennta-, leiklistar- og hvers kon
ar listgagnrýni; að sjálfsögðu
birtist áfram hið vikulega yfir-
lit' yfir heimsfréttirnar — og
margt fleira mætti nefna. — Má
segja, að New York Times verði
loks sannkallað „heimsblað",
þegar það hefur stokkið yfir
Atlantshafið — eins og starfs-
i menn þess tala nú um í gamni.
125 manns farast af
völ dum fellibyls
Tjón metið á hundruð milljóna
Puerto Rioo, Havana,
Miami, (Reuter/NTB) —
AÐ minnsta kosti 125 manns hafa
farizt og mörg hundruð manna
særzt af völidum fellibyls,
„Donna“, sem geisað hefur við
suðurströnd N-Ameríku undan-
farna þrjá daga.
Fellibylur þessi er álitinn einn
hinn mesti, sem komið hefur a
þessum slóðum síðan 1932, er 200
manns fórust af völdum slíkra
náttúruhamfara.
Fellibylurinn „Donna“ gekk
fyrst yfir Puerto Rioo og aðrar
eyjar í Karabíska hafinu með um
200 km hraða á klst. og úrhellis-
rigningu. Torveldaði regnið alla
hjálparstarfsemi með flugvélum
og þyrlum, en bandarísk skip
héldu þegar í stað á slysstað til
aðstoðar.
Fellibylurinn færðiist síðan að
strönd Kúbu og þaðan í átt til
Florida. Höfðu menn á þessum
stöð'Um dáliítinn tíma til varúð-
arráðstafana, sem þó diugðu
skammt. Var fólk flutt frá þeim
stöðum sem líklegast þótti að
yrðu harðast úti.
Hætta á drepsótt
Er fellibylurinn skall á suður-
stjjínd Florida í gærmorgun var
hraði hans um 250 km. á klst. og
í kjölfar hans fylgdi mikil flóð-
bylgja. Hjálparbeiðni berst nú
frá eyjum víða í Karabíska haf-
inu ,en þar er hætta á að drep-
sótt kunni að gjósa upp, þar sem
hræ nautgripa og annarra dýra
liggja að hálfu eða öllu leyti und-
ir vatni.
Tjón af völdum fellybylsins er
þegar metið á hundruð milljónir
króna.
Listaverk á tveim min.
f ÞANN mund, sem barátt-
an um „gullið" stóð sem hæst
á Olympíiuleikunum í Róma-
borg, fór fram afhending
annars konar gullverðlauna
í bænum Port Lligat á Spáni.
Furðufuglinn Salvador Dali,
sérvitringurinn, sem aldrei
brosir — sennilega af því að (
hann tekur list sína svo há- I
tíðlega — veitti viðtöku
heiðursmerki úr gulili fyrir
unnin afrek í málaralistinni.
★
Er hin virðulega afhending-
arathöfn hafði farið fram,
málaði Dali mynd fyrir heið-
ursmerkjanefndina. — Það
tók aðcins tvær mínútur að
mála myndina; og þér sjáið
þið meistarann með nýjasta
Dali-meistaraverkið.
Ræða stefnu
í olíumáltim
BAGHDAD, írak, 10. sept. (Reut-
er). — í dag komu hingað full-
trúar, sem þátt taka í ráðstefnu
sex ríkja, sem auðug eru af olíu
lindum.
írak hefur haft forgöngu um
að ráðstefnan sé haldin, en mark
mið hennar er að samræma
stefnu ríkjanna gegn stærstu oliu
félögum heims, sem ákveðið hafa
að lækka verð á óunninni olíu.
Ríkin, sem taka þátt í ráðstefn
unni eiga 90% af öllum olíu-
lindum heims, en þau eru Saudi
Arabía, írak, íran, Kuwait, Oat-
ar og Venezuela.