Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 1
24 síður 47 árgangur 238. tbl. — Þriðjudagur 18. október 1960 Prentsmiðia MorgunblaSslns Cúnuníbjörgunarbáturinn af Straumey á þilfari Sigurfara í Vestmannaeyjahöfn. Gúmmíbatur iífsnauðsyn Rætt við skipstjórann ö Straumey, sem fórst austur af Vestmannaeyjum VÉLSKIPIÐ Straumey úr Reykjavík sökk um 5 mílur austur af Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudags. Sjö manna áhöfn komst í gúmmí- bátinn og vélbátur úr Vest- mannaeyjum bjargaði henni tveimur stundum síðar. Skip- brotsmennirnir kömu til Reykjavikur í gær. — í>etta gerðist allt m.iög enögglega, sagði Magnús Einars- son, skipstjóri. Það liðu ekki nerna 40 mínútur frá þvi að við urðum fyrst varir við lekann þar til við vorum komnir í bátinn og sáum skipið siga í djúpið. — Við vorum á leið til Aust- fjarðahafna, með sement og fleira. Fórum fr-á Akranesi á laug ardagsmorgun. Það var frekar þungt í sjóinn við Eyjar þarna um kvöldið. Hann gekk á með skúrum, og það var dimmt yfir. Gott sjóskip — Laust eftir miðnættið talaði ég við Eyjar. Þá var allt í lagi hjá okkur. Straumey var liðlega 300 brúttólestir. Við vorum með um 250 tonna flutning, þar af 230 tonn af sementi. Við höfðum oft sett í hana 300 tonn — og hún bar meira. Straumey var þvi i ’ $ ekki of hlaðin, langt í frá. Og hún var mikið ágætis sjóskip, það held ég nú. •— Byggð í Skotlandi á striðsár- unum sem tundurduflaslæðari, en keypt hingað til lands eftir stríð. Ég var búinn að vera með hana í vörufiutningum hálft þriðja ár. Og það er eftirsjá í þessu góða skipi. Þyngdist að framan — Um kl. hálf eitt- þurfti að hægja á vélinni og síðan að stöðva hana alveg vegna smá lag færingar á sumrningskerfinu. Þegar við hægðum ferðina tók- um við eftir þvi, að það var eins og skipið hefði þyngzt að fram- an . — Við vorum tveir í brúnni, stýrimaðurinn og ég — og ég sendi hann fram í lúkar til að athuga málið. Matsveinninn var sofnaður þar frammi í, en aðrir voru aftur á, allir vakandi, því vaktaskipti voru á miðnætti. Sjór í kjaiiaranum — Stýrimaðurinn sá, að mikill sjór var kominn í kjallarann und ir lúkarnum og við fundum að skipið þyngdist æ meira. Lekans Framh. á bls. 2. 400 ákœrðir í SH)USTU viku hófust rétt- arhöld í Tyrklandi gegn fyrr verandi ráðamönnum lands- ins, þeim sem velt var frá völdum í byltingunni s.l. vor. Mynd þessi var tekin á fyrsta degi réttarhaldanna og sýnir hina ákærðu. Þeir eru rúm- lega 400 talsins, fyrrverandi forseti, ráðherrar og þing- menn. Mobutu sætt- ist við Katanga Leopoldville, 17. ókt. (Tteuter). MOBUTU ofursti, valdhafi í Kongó, flaug um helgina til skyndiviðræðna við Tsjombe, aðskilnaðarforseta Katanga- héraðs. Þegar Mobutu kom aftur til Leopoldville í dag, lét hann vel af viðræðunum við Tsjombe og sagði að þær gæfu góða von um samein- ingu og efnahagslega við- reisn ríkisins. Sagði Mo-butu að komið hefði í ljós að þeir væru sammála um það grundvallaratriði að nauð- synlegt væri að kalla saman al- menna ráðstefnu eða þjóðfund til að leysa vandamál ríkisins. Ekki tilgreindi Mobutu þó stað né stund slíkrar ráðstefnu. Hann sagði að Tsjombe hefði heitið sér efnahagslegum og hernaðar- legum stuðningi. Afskipti G>,neu og Ghana. Þegar blaðamenn ræddu við Mobutu kvað hann upp úr með það, hann teldi afskipti tveggja annarra Afríkurikja, Gíneu og Ghana af innanlandsmálum Kongó hafa verið óheillavænleg. Sérstaklega taldi hann að sendi- nefnd Gíneu í landinu hefðu unn ið Kongó mikið ógagn og hefði þess nú verið óskað að hún hyrfi úr landi brott, heim til sín. Væri jafnvel í athugun að slíta stjórn- málasambandi við Gíneu. Hins- vegar yrði ekki slitið stjórnmála Frh. á bls. 2. I Hnldn ófrant við íslnnd BJÖRGVIN, 17. okt. (NTB). — Enn er svo mikil eftir- spurn eftir Íslandssíld, að norsk skip halda áfram rek- netaveiðum austur af íslandi. Sérstaklega sækjast Svíar eftir síldinni og er síldin rifin út og boðið hátt verð fyrir hana jafnóðum og hún kemur á land. Nokkrir Álasundshátur komu nýlega heim af íslands- miðum og seldu svo vel, að þeir ætla tafarlaust að fara aftur út. Einnig er um það rætt, að bátar frá Björgvin og Hörðalandi, sem ætluðu að hætta veiðum fari út á nýjau leik. , Tillagan er klæði á sverð stórveldanna New York, 17. okt. — (Reuter) 1 DAG lauk hinum almennu um- ræðum á Allsherjarþingi SÞ og var síðasti ræðumaður Krishna Menon fulltrúi Indlands. Lagði hann fram ályktunartillögu frá 15 þjóðum þess efnis að skora á allar þjóðir að forðast hverjar þær aðgerðir, sem geti leitt til versnandi ástands á sviði al- þjóðamála og að hið bráðasta verði gerðar raunhæfar ráðstaf- anir til að leysa alvarlegustu heimsvandamálin. Ríkin sem bera tillöguna fram eru: Austur- ríki, Bolivía, Burma, Ekvador, Finnland, Ghana, Indland, Indó- nesía, Mcxikó, Marokkó, Pan- ama, Túnis, Arabalýðveldið, Venezúela og Júgóslavía. Litið er á tillöguna sem eins konar klæði á vopn stórveldanna. Neyð vofir yfir Kongó Fyrr um daginn hafði Hamm- arskjöld framkvæmdastjóri flutt ræðu á Allshei-jarþinginu. Hann sagði að þingfulltrúar mættu ekki láta þær deilur sem orðið hefðu á þinginu villa um fyrir sér. Margt hefði þar verið sagt órökstutt og óskynsamlegt. — Kjarni málsins væri ,sá að Kongó-búar ættu við erfiðleika að stríða og sárasta neyð vofði yfir hinni ungu Afríkuþjóð. Hann kvaðst telja að það væri verkefni SÞ að hjálpa þessari fátæku þjóð með öllum ráðum við að sigrast á neyðinni, og Frh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.