Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. okt. 196C Baldur Scheving; (sést ekki) skoraði fyrra mark Fram. Helgi gerði enga tilraun til varnar. — (Ljósm. Sv. Þormóðsson) Handknattleiksmót Reykjavíkur FIMMTÁNDA Handknattleiks- mót Reykjavíkur hófst að Há- logalandi sl. laugardag. Gísli Halldórsson, formaður íþrótta- bandalags Reykjavíkur setti mót ið með ræðu. Gísli sagði að mótið hafi verið haldið árlega síðan 1945, nema árið 1955, er það féll niður vegna mænuveikinnar. Fyrstu Reykjavíkurmeistar- arnir voru ÍR í karlaflokki og Ármann í kvennaflokki. í ræðu sinni komst Gísli Halldórsson m. a. svo að orði: A undanförnum árum hefur þátttakendum' í þessari íþrótt fjölgað stöðugt og í þessu móti taka þátt 57 flokkar frá 7 félögum, en alls eru það 570 einstaklingar, sem leika 93 leiki á tveim mánuðum. En auk þesa mun svo síðar verða keppt í sér- stöku móti fyrir 4. aldursflokk. Það er ánægjulegt að sjá hve þessi íþróttagrein er í örum vexti, þrátt fyrir erfiða aðstöðu á margan hátt. Einkum er það nú vöntun á keppnishúsi, en eins og allir vita er þetta hús fyrir löngu orðið allsendis ónógt fyrir keppni. Því var það, að allir fögnuðu því er hafnar voru framkvæmdir við hið nýja íþrótta- og sýningahús. Bikarkeppnin íslandsmeisfar- arnir sigraðir Fram í úrslit gegn KR. STAÐFESTULEYSIÐ í ís- lenzkri knattspyrnu kom enn einu sinni í Ijós á sunnudag- inn, er íslandsmeistararnir töpuðu öðrum leiknum er þeir gengu til eftir unna nafnbót. Akranes mætti Fram í undanúrslitum bikarkeppn- innar og fór Fram með sigur af hólmi, 2 mörk gegn engu og mætir KR í úrslitaleiknum um bikarinn á sunnudaginn kemur. | Haukur Morthens og i íster (larðarsdóttir í S J ( ásamt hljómsveit Arna Eliar ) i skemmta i kvöld. | Matur framreiddur frá kl. 7. \ Borðpanlanir í síma 15327. i ir Misnotuð tækifæri Skagamenn voru óvenjulega daufir og viljalausir í þessum leik. Liðið náði sárasjaldan sam- stilltum leik, en menn puðuðu hver fyrir sig. Það voru „hlaup en engin kaup“. Skagamenn léku undan sterk- um vindi í fyrri hálfleik. Leikur- inn fór að miklu leyti fram á vallarhelmingi Fram, en mark Fram komst ekki í verulega hættu nema þrívegis í fyrri hálf- leik. Gerðist það fyrst rétt í leikbyrjun — en Þórður skaut fram hjá opnu marki. Skömmu eftir miðjan hálfléikinn voru •Skagamenn enn fyrir opnu marki — en Rúnari tókst að bjarga á síðasta augnabliki. Skömmu síð- ar varði Geir, í horn, hættulegt og snöggt skot. Framarar léku betur En með þessum tækifærum sýndu Skagamenn aldrei virkan samleik, aldrei samstillt átak. — Það sem af slíku sást í fyrri hálf- leik var allt hjá Fram. Og Fram- arar náðu á köflum laglegum leik og dágóðu spili. En ekki leiddi það nema tvívegis til hættu við Akranesmarkið. Var það í byrj- un. Sköpuðu Reynir útherji og Grétar miðherji fyrra tækifærið og Reynir átti skot af stuttu færi sem Helga tókst snarlega að slá fram og hættan var liðin hjá. Skömmu síðar léku Ragnar fram- vörður, Grétar og Guðm. Óskars- son í gegnum vörn Skagamanna og Guðmundur skaut — en fram hjá marki. ★ Skagamenn sækja í fyrri hluta siðari hálfleiks höfðu Skagamenn allt frum- kvæði í leiknum og náðu á köfl- um laglegum leik og komust hvað eftir annað í færi. Það virtist þeim betra að leika móti vindinum en undan. Hægri arm- ur sóknarinnar var nú virkasti hluti liðsins og Þórður Þórðar- son miðherji og Jóhannes útherji komust í dauðafæri — en tókst ekki að nýta. Eitt sinn náði Rún- ar skoti Þórðar á marklínu. ir Fram nær forystu En Fram tókst að standa af sér þessa sókn — og breyta vörn í sókn. Á 26. mín. síð. hálfleiks ná Framarar góðu upphlaupi frá miðjum velli og því lýkur með hnitmiðuðu skoti frá Baldri Scheving, sem Helgi gerði enga tilraun tíl að verja. Eftir þetta nær Fram öllu frumkvæði í leiknum og 5 mín fyrir leikslok leika þeir Bald- ur, Hýirik útherji og Grétar í gegnum vörn Skagamanna og Grétar skorar með lausu skoti en hnitmiðuðu — og enn gerði Helgi enga tilraun til varnar, stóð aðeins og horfði á. — Þar með var sigur Fram yfir íslandsmeisturunum orðinn stað reynd — kærkominn sigur fyrir lið sem ekki hefur náð upp úr öldudal síðustu tvo mánuðina eða meir. ★ Liðin Framarar voru mun ákveðnari en Skagamenn. Þeir höfðu löng- un til að sigra. Þeir sýndu og góð ar tilraunir til jákvæðs leiks og tókst allvel í þeim efnum á stund um. Það var þó aldrei um neinn glæsileik að ræða. Bezti maður liðsins er Rúnar miðvörður. Ragn ar og Guðjón eru og traustir liðs menn og tengdu vel vörn og sókn. Framherjarnir eru mistæk- ir en þeir vildu berjast og það réð baggamuninn. Skagamenn voru óvenju dauf- ir — sér í "lagi aftari hluti liðs- ins. Framherjarnir börðust ein- staklingsbaráttu og var ieikur Jóhannesar útherja jákvæðastur. — A. St. Úr leik 2 fl. milli KR og Þórður Ásgeirsson lokar vel. ber þátttakan í þessu móti gleggstan vott um það. I fyrsta mótinu tóku þátt 25 flokkar, en Karl Jóhannsson er kominn gegnum vörn Ármanns og skorar failega. Karl sýndi mjög góðan leik þetta kvöld. — (Ljósm. Sv. Þormóðsson) Þróttar. Markvörður Þróttar, er rísa á í Laugardalnum. Þar er lokið við að grafa, en því miður hefur enn ekki tekizt að tryggja fjármagn til framkvæmdanna þrátt fyrir góðan vilja bygging- arnefndarinnar. Vonir standa þó til að hægt verði að hefja framkvæmdir að nýju upp úr áramótum við að steypa húsið upp, en eins og kunnugt er, verður þar 'salur með 20x40 metra velli og rými fyrir 2000 áhorfendur í sætum. Þegar þessi salur verður ris- inn af grunni, getum við fyrst fengið tækifæri til þess að sjá hér heima handknattleik eins og hann er bezt leikinn innanhúss. Eftir ræðu Gísla hófst keppn- in og urðu úrslit eftirfarandi: t meistaraflokki kvenna vann Ár- mann Þrótt 11:3, eftir'3:l í hálf- leik. í meistaraflokki karla vann Þróttur Val 6:5, KR vann Ármann 14:5 og Fram vann Vík- ing 16:7. Leikirnir voru yfirleitt skemmtilegir, en mest á óvart kom sigur Þróttar yfir Val. Mótið hélt áfram á sunnudag- inn og urðu úrslit þá sem hér segir: ÍR vann Þrótt í 2. flokki kvenna 10:0 og Fram vann Val 6:0. KR vann Víking í meistara- flokki kvenna 9:1. I 3. flokki karla vann Valur Armann 10:4 og Víkingur ÍR 5:1. I 2. flokki karla vann Fram Val 6:4 og KR vann Þrótt 12:4. , Mótið heldur áfram nk. laug- ardag og sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.