Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 23
ÞriðjucTagnr 18. okt. 1960
MORCTJISBLAÐIÐ
23
I
Sinfóníuhljóm-
sveit íslands
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Islands
Ihóf vetrarstarfsemi sína með tón
leikum í Þjóðleikhúsinu 11. okt.
undir stjórn Bohdan Wodiczko
frá Varsjá. Wodiczko, sem stjórn-
aði Chopintónleikum hér í fyrra
á Chopin-hátiðinni, er nú ráðinn
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm
sveitarinnar og hljómsveitar Rík-
isútvarpsins, og er það í alla staði
mjög ákjósanlegt, þar sem sömu
hljóðfæraleikararnir skipa báðar
þessar hljómsveitir, sem er raun-
ar ein og sama hljómsveit með
tveim nöfnum.
Efnisskrá þessara tónleika var
ágætlega samansett og fjölbreytt.
Fyrst lék hljómsveitin „The
Young Person’s Guide to the
Orchestra* eftir Britten, eitt
snjallasta tónskáld Breta. Kemur
vel í Ijós hér að Britten hefur
mikið vald yfir hljómsveitinni,
enda sýnir hann í verki þessu,
sem er tilbrigði og fúga um stef
eftir Henry Purcell, flestar h!ið-
ar hljómsveitarinnar, svo að
segja má að hljómsveitin kynnti
sig hið bezta. Verkið er að öðru
— Allsherjarþingið
Frh. af bls. 1
v»ri það miður farið, þegar
Stórveldi reyndu að hindra og
trufla þetta hjálparstarf vegna
eigin pólitískra hagsmuna.
I öllum þessum erfiðleikum
kvaðst Hammarskjöld vilja
benda á það, hve starfsmenn SÞ
hefðu unnið merkilegt og óeigin-
gjarnt starf. Starfsmennirnir
yrðu oft að glíma við næstum
því óyfirstíganlega erfiðleika.
Þar væri ekki spurt um, hvað
starfsdagurinn væri langur.
Árás á Hammarskjöld
Samdægurs héldu Rússar enn-
þá uppi árásum sínum á Hamm-
arskjöld. Að þessu sinni beindu
þeir geirum sínum að honum í
fjárhagsnefnd samtakanna. Þar
var rætt um fjáraukalög vegna
aukins tilkostnaðar og útgjalda
SÞ í sambandi við Kongó-málið.
Fulltrúi Rússlands í nefndinni,
Roshim, hélt því fram að
Hammarskjöld hefði sóað fjár-
munum samtakanna alveg í
heimildarleysi. Ennfremur réð-
ist hann hatramlega að Hamm-
arskjöld vegna þess að hann
hefði „gerzt leiguþý Vesturveld-
anna“. T. d. benti hann á að
Hammarskjöld hefði í algjöru
heimildarleysi og upp á eigin
spýtur sent rannsóknarnefnd til
Laos í fyrra. Lýsti Rússinn yfir
vanþóknun með þá sendiför.
Byogingarsjóðs-
lán
í ÁGÆTRI grein Haralds Böðv-
arssonar í Morgunblaðinu 14.
október síðastliðinn um útgerð-
armál eru lánakjör nýbýla-
manna sögð vera þau, að þeir
fái 40 ára lán með 2'/2% vöxtum.
Þar sem ég veit, að Haraldur
Böðvarsson till aldrei halla réttu
máli, skal eftirfarandi upplýst:
Til nýbyggjenda á nýbýlum
eru veitt framkvæmdalán þann-
ig, áður en síðustu efnahagsráð-
staíanir voru gerðar:
Til íbúðarhúsa eru veitt Bygg-
ingarsjóðslán, vextir 3.5%. Með-
an á byggingu stendur, voru
vextir bráðabirgðalána 5%.
Lánstími er 25—42 ár.
í Ræktunarsjóði, lán til pen-
ingshúsa, hafa vaxtakjörin verið
4% og hámarkslánstími 20 ár.
Eftir núgildandi reglum hafa
þessi lánkjör breytzt þannig, að
vextir af Byggingarsjóðslánum
eru 6% og 8% af bráðabirgða-
lánum, og vextir Ræktunarsjóðs-
lána eru 6.5%.
Reykjavík, 15. október 1960
Pálmi Einarsson.
I^yti, að mér finnst, fremur veiga
jtið frá Brittens hendi, og fúgan
einkum „kúnstug" á köflum. En
hljómsveitin kynnti sig hið bezta
í þessu verki sem var vel til þess
fallið að flytja það í byrjun. Það
var nokkurskonar „Visit-kort“
frá hennar hendi. hennar hendi.
Bravo! Þetta spáir góðu.
Haffner-sinfónía — Mozarts var
næst á efnisskránni. Þetta yndis
lega verk naut sín ágætlega í með
ferð stjórnanda og hljómsveitar,
þó raunar megi segja að tempóin
væru í örara lagi í bæði Menúett
og Finale. — Loks kom Tschai-
kowsky fram á sjónarsviðið með
f-moll Sinfóníunni, þeirri fjórðu.
Fjórða, fimmta og sjötta sinfónía
Tschaikowskys mættu allar heita
- NATO
Frh. af bls. 24
þeirra á milli á sviði efnahags-
og menningarmála.
Mr. de Lieven taldi það nauð-
synlegt og viðurkennt af öllum
vestrænum ríkjum, að Vestur-
Berlín yrði að vera frjáls, jafn-
vel þótt það kostaði talsverða
fyrirhöfn.
Staða fslands
Næst vék blaðafulltrúinn að
stöðu Islands meðal Atlantshafs-
ríkjanna og sagði að það væri
íslandi styrkur að vera í sam-
tökunum, þá væri samtökunum
ekki siður styrkur að því að ís-
landi væri þar. í þessu sambandi
benti hann á að ef Bandamenn
hefðu ekki í siðustu styrjöld
orðið fyrri til að hernema land-
ið, þá hefðu nazistar gert það,
og sem svar við athugasemdinni
um nauðsyn þess að við tækjum
þátt í vörnum vestrænna þjóða,
vakti hann máls á því hvernig
þá hefði farið fyrir þjóð okkar.
Þá ræddi Mr. de Lieven lík-
urnar til árásar á Island, ef til
styrjaldar kæmi og rökstuddi að
þær væru einkar litlar.
Að koma í veg fyrir styrjöld
Að síðustu lagði hann á-
herzlu á að hlutverk Nato
væri ekki að vinna styrjöld
heldur að koma í veg fyrir
FJÓRÐA umferð í tvímennings-
keppni meistaraflokks hjá Bridge
félagi Reykjavíkur var spiluð á
fimmtudagskvöldið og eru þessir
eftir að henni lokinni:
1. Kristinn — Lárus .. .. 983
2. Stefán — Jóhann .. .. 953
3. Hilmar — Rafn ........ 948
4. Gunnar — Einar ....... 916
5. Jóhann — Vil'hjálmur .. 913
6. Jakob — Jón .......... 905
Síðasta umferðin verður spil-
uð í Skátaheimilinu klukkan 8
í kvöld.
örlaga-sinfóníur. Þær lýsa allar,
hver á sinn hátt, lífi þessa mikla
meistara og óhamingjusama
manns. Sumir telja þá fjórðu
þeirra mesta, enda er hún þrótt-
mikið verk, einkum fyrsti þáttur-
inn.
Wodiczko er mjg snjall diri-
gent og blóðheitur tónlistarmað-
ur. Má vænta mikils af starfi slíks
manns í vetur og verður fróðlegt
að fylgjast með tónleikum sveit-
arinnar bæði í útvarpi og tón-
leikasal.
Eitt „aukalag" lék hljómsveit-
in: Perpetuum mobile“ eftir
Paganini, sniðúglega útsett hér
fyrir hljómsveit, þar sem allt hvíl
ir á fyrstu fiðlunum. Var þettahin
bezta ,,etyda“ fyrir hljómsveitina
og eyrnagaman fyrir hlustendur.
Það eitt vantaði að fyrstu fiðl-
urnar stæðu upp á endan er þær
léku þetta „virtuósanúmer“ það
mun eiga svo að vera, — og
helzt að leika utanað.
Húsið var þéttskipað og fögn-
uður áheyrenda geysimikill.
að styrjöld brytist út.
Hann kvað það persónulega
skoðun sína að til þess gæti
komið að hinar frjálsu þjóðir
Vesturlanda sameinuðust í
bandalagi með Rússum gegn Kín
verjum, hins vegar væri þetta á
engan hátt stefnuskráratriði
Nato en hann skyti þessu að-
eins fram sem persónulegum
hugleiðingum sínum.
Herstöðvamál Þjóðverja á
Spáni bráust í tal og kvað hann
Vestur-Þjóðverja þar í engu hafa
farið bak við bandalagsríki sin.
Það væri álit rikjanna að ekki
bæri að taka Spán inn í banda-
lagið,. á meðan stjórnarháttum
væri þar eins háttað og nú er.
Hins vegar gæti sú afstaða
breytzt, ef innanlandsstjórnmál
breyttust þar síðar.
Mr. Paul de Lieven er sem
fyrr segir íslenzkum blaðamönn-
um að góðu kunnur. Hinir
mörgu, er notið hafa vináttu
hans og fyrirgreiðslu í aðalstöðv
um Nato á undanförnum árum
þakka honum góð samskipti og
árna honum heilla.
Félagslíl
Knattspyrnudeild Vals
Meistara-, I. og II. fl.. Kvik-
myndasýning í kvöld kl. 8,30 í
félagsheimilinu. — Sýnd-verður
þýzk kennslumynd í knattspyrnu.
— Stjórnin.
Knattspyrnudeild Vals
4. og 5. flokkur: — Kvikmynda
sýning í dag kl. 6 í félagsheimil-
inu. Sýnd verður þýzk kennslu-
mynd í knattspyrnu.
— Stjórnin.
Knattspyrnudeild Vals
3. flokkur: — Kvikmyndasýn-
ing eftir æfinguna á morgun í
félagsheimilinu. — Sýnd verður
þýzk kennslumynd í knattspyrnu.
— Stjórnin.
Körfuknattleiksdeild KR
Aðalfundur verður haldinn
þriðjudaginn 25. október, í félags
heimili KR. Fundurinn byrjar
stundvíslega kl. 8,30. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
— Stjórnin.
Handknattleiksdeild K.R.
Æfingar í kvöld sem hér segir.
Kl. 8:35 3. fl. karla. — Kl. 9:25
Meistarafl. karla. — Kl. 10:15
Meistarafl. kvenna. — Munið að
hafa með félagsgjaldið. Nýir fé-
lagar velkomnir. — Stjórnin.
Yfirhjúkrunarkona
óskast að vistheimilinu að Arnarholti,
Kjalarnesi. — Upplýsingar um starf og
launakjör gefur borgarlæknir.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur
p. i.
Hjartanlega þakka ég öilum ættingjum og vinum, sem
glöddu mig á átt ræðisafmæli minu.
Guð blessi ykkur öll.
María Sveinsdóttir, Hveragerði.
Innilegar þakkir færi ég ættingjum og vi lum, sem
glöddu mig á sextugs afmælinu, 10. okt. sl. og gerðu mér
daginn ógleymanlegan.
Þorvaldur Á. Kristjánsson, Laufásvegi 65
Innilegar þakkir öllum sem glöddu mig á áttræðis
afmæli mínu 13. okt. 1960 með blómum, skeytum og
stórgjöfum. — Guð blessi ykkur öll.
Helgi Hjálmarsson
Konan mín
KARÓLlNÁ FRIÐRIKSDÓTTIR
frá Þórshöfn,
andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 16. þessa mánaðar.
Karl Daníclsson.
Útför móður minnar
GIJÐNÍ JAR JÓHANNESDÓTTUR
Kirkjuvegi 46
fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag þriðjudag kl. 2,30
e.h.
Fyrir hönd okkar systkinanna
Gunnar Ilávarðsson
Móðir og tengdamóðir okkar
STEFANÍA STEFANSDÖTTIR
Álfaskeiði 27, Hafnarfirði
sem andaðist 12. þ.m. verður jarðsungin frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði, fimmtudaginn 20. okt. — Athöfn-
in hefst með bæn á heimili hennar kl. 1,30.
Ágústa Einarsdóttir, Sigurbjartur Loftsson
Útför
SIGURÐAR HJÁRTARSONAR
frá Auðsholts-Hjáleigu
fer fram frá Kotstrandarkirkju, fimmtudaginn 20. okt.
kl. 2 e.h. — Kveðjuathöfn fer fram frá heimili hins
Iá,tna Miðtúni 4, Selfossi kl. L
Hjörtur Sigurðsson
Alúðar þakkir fyrir sýnda samúð við fráfall og
j£u:ðarför
JÓNlNU BJARNADÖTTUR
Bergþórugötu 25
Laufey og Öskar B. Erlendsson
Kristín Hlíf Kristjánsdóttir
Ingunn og Bjarni Haraldsson
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
móður okkar
SIGURLAUGAR HANNESDÓTTUR
Fyrir hönd vandamanna.
Hjálmar Hafliðason, Marteinn Sívertsen
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
KRISTlNAR GlSLADÓTTUR
frá Hellum, Grindavík
Börn og tengdabörn
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
GUÐMUNDAR GUÐBRANDSSONAR
frá Leiðólfsstöðum
Sigríður Einarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður
BJÖRNS JÓNASSONAR
frá Hámundarstöðum í Vopnafirði
Börn og tengdabörn