Morgunblaðið - 18.10.1960, Blaðsíða 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18, okt. 1960
Tólf mílna fiskilögsögu
krafizt við Skotland
NÝLEGA birti skozka blaðið'
Scotsman í Edinborg bréf frá
manni að nafni J. L. Campbell,
þar sem hann krefst þess, að
Clyde.firði og Moray firði verði
lokað fyrir útlendum togurum.
Segir bréfritari að annað sé ó-
hæfa, nú eftir að brezka stjórnin
hefur viðurkennt í verki tólf
mílna fiskveiðitakmörk við Nor
eg o.g Færeyjar og virðist fús til
að viðurkenna hana einnig við
ísland.
Bréfið er ritað í tilefni for-
ustugreinar í Scotsman í lok
september og átelur bréfritari
það, að svo virðist sem Scots-
man sé fremur á bandi togara-
manna í Grimsby og Fleetwood
en skozkra strandfiskimanna. I
Hann bendir á það í bréfi ainu, ’
að 13 mílna fiskveiðilandhelgi i
hafi verið í gildi síðan 1895, cn'
lögunum hafi ekki verið fram-1
fylgt, um langt skeið. Teiur!
hann tíma til kominn að láta,
framfylgja lögunum stranglega, j
kannski þó með þeirri breytinguj
að fiskveiðilandhelgin verði á j
kveðin tólf mílur eins og við
Noreg, Færeyjar og ísland.
Járnsmiðanám
Vil taka 1—2 unga menn í járnsmíðanám.
Vélsmiðjan Jarn
Súðavogi 26 — Sími 35555.
Adrett— — Adrett
Þessar myndir sýna, hvernig þotan rann út af skipinu og endastakkst i sjó niður, eftir að
mistök höfðu orðið við flugtak.
ADRETT-hárkrem!
H E R R A R !
ADRETT „klessir“ ekki
hárið, en heldur því þó í
réttum skorðum.
Það er drjúgt og í sérstak-
lega gerðum túbum, þar
sem ekki þarf að skrúfa
hettuna af nema til hálfs,
og er það mjög til hag-
ræðis.
Pétur Guðjónsson, rakara-
meistari, Skólavörðustíg 10
segir okkur:
„Þurrt hár er óhollt, og
stytzta leiðin í skalla.
Notkun hárkrems er því
m jög æskileg. A D R E T T
hárkremið er, að mínum
dómi það bezta, sem feng-
izt hefur hér á landi. Um-
búðirnar eru einnig sér-
staklega hentugar og
D Ó M U R !
ADRETT mýkir hár yðar
og gerir það viðráðanlegra.
Það ilmar svo dásamlega
og er undursamlega
mjúkt.
ADRETT auðveldar hár-
lagninguna og hlýtur ein-
róma lof allra er reynt
hafa gæði þess.
★
smekklegar“,
HEILDSOLUBIRGÐIR :
íslenzk-erlenda verzlunarfélagið
Ijarnargötu 18 — Sími 13333
Fór betur
— en n horfðis
FYRIR nokkru fóru fram víðtækar flota- og
flugæfingar á vegum Atlantshafsbandalags-
ins undan Skotlandsströndum og í Biskay-flóa.
Þá náði snarhentur ljósmyndari myndunum hér
að ofan, þegar hastarlegt óhapp varð á banda-
ríska flugvélamóðurskipinu „Shangri-La“, sem
er 33.100 tonn að stærð.
* ÓHAPPIÐ
VERIÐ var að ræsa orrustuþotur skipsins, en|
þegar kom að „Crusader“-þotu J. E. Davis,|
fór eitthvað á skjön — og þotan endasentist út
af skipinu. Þótti það mikil mildi, að flugmað-S
urinn skyldi komast lífs af — og meira að
segja svo til ómeiddur. — Vegna einhverra mis-
taka í tengingu flugvélarinnar við slöngviút-
búnaðinn, sem léttir undir í flugtakinu, fór
þotan út af braut sinni, út á yztu brún stjórn-
borðsmegin. Flugmanninum hafði þó nær því
tekizt að sveigja hana aftur inn á þilfarið, en
þó ekki nógu snemma, því að annað hjólið lenti
út af brúninni — og þá var ekki að sökum að
spyrja. Þotan endasentist, á hvolfi og með
stélið á undan, yfir byssuhreiðrin á skipshlið-
iinni — og í sjó niður, þar sem hún hélzt á
floti stundarkorn, en sökk svo í djúpið.
★ FURÐUVEL SLOPPIÐ
ISÖMU svifum og þotan lenti í sjónum, tókst
flugmanninum að opna hjálminn yfir sæti
sínu og skreiðast út. Var honum brátt bjargað
um borð í þyrlu og komið undir læknishendur
urri borð í skipinu. — Hann þurfti þó lítt á
lækni að halda, því að einu meiðsiln, sem
Það var lán í óláni, að flugmaöurinn, J. E.
Davis, slapp svo til ómeiddur. — Hér er
hann kominn heilu og höldnu um borð í
skipið eftir svaðilförina — og læknir gerir
að smáskeinu, sem hann hlaut á olnboga.
hann hlaut í þessu „heljarstökki“, voru smá-
marblettir og ofurlítill skurður á olnboga. Þótti
það ótrúlega vel sloppið. — Hér fór því miklu
betur en á horfðist — þótt þotan, sem hafið
gleypti, væri raunar 3.000.000 dollara virði.
* „ArAS“ A noreg
MIKILL fjöldi skipa og flugvéla frá aðildar-
ríkjum Atlantshafsbandalagsins tók þátt í
heræfingunum — flest þó frá Bandaríkjunum
og Bretlandi. Þar á meðal voru tveir kjarnorku-
kafbátar Bandaríkjamanna, „Triton" og
„Scorpion”. Æfingarnar hófust með því, að^
þotur búnar kjarnorkuvopnum fóru til „árása“
á skotmörk í Noregi.
Kenusinbók í staisetningu
Adrett
Adrett
NÝLEGA er komin út hjá Ríkis-
útgáfu námsboka Kennslubók I
stafsetningu eftir Arna Þórðar-
son skólastjóra og Gunnar Guð-
mundsson yfirkennara. 1 notkun
hefur verið alllengi kennslubók
í þessari grein eftir sömu höf-
unda. Var hún víða notuð jöfn-
um höndum í barna- og fram-
haldsskólum. Höfundar hafa nú
samið sérstaka bók fyrir hvort
| þessara skólastiga. Á síðasta ári
gaf ríkisútgáfan út bókina Staf-
setning fyrir barnaskóla og nú
• Kennslubók í stafsetningu fyrir
framhaldsskóla.
Efni þessarar nýju bókar og
innri gerð er að miklu leyti hið
sama og eldri bókar höfunda
með sama nafni. Allir æfinga-
kaflar hafa þó verið endursamd-
ir og ýmsu sleppt, er áður var
fremur ætlað barnaskólum, en
annað aukið, sem meir hentar
eldri nemendum. í bókinni eru
öll prófverkefni í stafsetningu,
sem notuð hafa verið við ungl-
ingapróf og miðskólapróf (lands-
próf), síðan byrjað var að þreyta
þessi próf, en þau eru landspróf
á báðum þessum stigum. Einnig
fylgja þarna einkunnastigar, sem
notaðir eru við þessi próf.
Bókin, sem er 133 bls., er
prentuð í ísafoldarprentsmiðju
h.f. Kápumynd og skreytingar I
bókina teiknaði Bjarni Jónsson
listmálari.
Jóhannes Lárusson
béraðs'dómslögmaður
lögfræðiskrifstofa-tasteignasala
Kirkjuhvoli. Sími 13842.
EGGERT CLAESiíEN og
GtJSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmen.u.
Þórshamri við Templarasund.