Morgunblaðið - 18.10.1960, Page 8

Morgunblaðið - 18.10.1960, Page 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. ökt. 1960 Minkabú fyrir nœsta haust? rrumvarp Einars Sigurðssonar á ný komið íyrir Alþingi A FUNDI Neðri deildar Al- þingis í gær fylgdi Einar Sigurðsson úr hlaði að nýju frumvarpi sínu um að minka- eldi verði aftur leyft hér á landi, en frumvarp um það efni lagði þingmaðurinn fyrst fram að áliðnu síðasta þingi. Mikill gjaldeyrir fer forgöðrum 1 framsöguraeðu sinni rifjaði Einar Sigurðsson upp ýmsar þeirra röksemda, er hann í fyrra sinnið færði fram máli sínu til Ituðnings, benti henn m. a. á, hversu verðmæt vara minkaskinn in væru og góð aðstaða hér til framleiðslu þeirra, t. d. bæði loftslag og fóður. Þó að minkaeldi f æ r i vaxandi víða um lönd og skinnaframleiðsl an ykist mikið, virtist ekkert lát verða á eftirspurninni. — íslendingar hafa ekki efni á að sinna ekki þessum atvinnurekstri og láta þær tekjur, sem af honum mætti hafa, fara fyrir ofan garð og neðan hjá sér, sagði Einar Sigurðsson. Nýting fiskúrgangsins þýðingarmikil Með því að taka upp minka- eldi að nýju fengist góður mark- aður fyrir fiskúrgang okkar, sem næmi % þess fiskjar, er til vinnslu færi. Eftir verðfall það, sem orðið hefði á fiskimjöli, væri þetta atriði mjög mikilvægt. Á öðrum Norðurlöndum sagði þingmaðurinn að nú væru ár lega framleidd til útflutnings minkaskinn fyrir 500—750 millj. krónur, enda þótt þar væru lakari skilyrði en hér til minkaeldis. Auðveldara ætti að vera að fá erlend lán til skinnaframleiðslu hér en flests annars og skortur á vinnuafli, ætti ekki heldur að vera til fyrir stöðu; einn maður gæti séð um 500 minka bú, sem hins vegar gæti gefið af sér 1500—2000 skinn á ári. AIll að 200 milljón króna tekjur 1962 Að síðustu sagðist Einar Sig- urðsson vonast til þess að málið fengi svo skjótan framgang, að unnt yrði að reisa nokkur bú fyrir næsta haust; og keppa bæri að því að koma hér upp fyrir haustið 1962 minkabúum með 50 þúsund lífdýrum, en sá fjöldi mundi gefa af sér á ári 150—200 þúsund skinn að verðmæti 100— 150 eða jafnvel 200 milljónir ísl. krónur. • Er fiskaeldi jafn arðbært? Gísli Jónsson tók einnig til máls um frumvarpið og óskaði eftir að landbúnaðarnefnd deildarinn ar aflaði sem ýtarlegastra upp- lýsinga um það tjón, sem hlotizt hefði af minkum hér á landi. Bað hann E. S. að hugleiða, hvort hann væri reiðubúinn að styðja breytingu á frumvarpinu, sem fæli í sér skattalagningu á vænt- anleg minkabú til þess að standa straum af því tjóni, er villimink ar kæmu til með að valda. Þá vék G. J. einnig að því, hvort ekki mundi eins happasælt að nýta fiskúrganginn til fiska- eldis, t. d. regnbogasilungs, sem frændþjóðir okkar hefðu einnig flutt út í stórum stíl. — Frumvarpinu var síðan vis- að til 2. umræðu og landbúnaðar- nefndar. Svavar Guðnason Framh. af bls. 3 — Auðvitað. Til dæmis Legér. Ég hefi sótt skóla hans í París. — Hve lengi? — Eina viku. — Var það nóg? — Já, já! Picasso líka. Ég man eftir fyrstu bókinni um Picasso, sem mér barst í hend ur. Hún fjallaði um hið kúb- íska skeið hans. Ég tók að rannsaka þessa hluti mjög ná kvæmlega. Kúbisminn byggði á mjög ákveðnum lögmálum, já, já, — listrænum lögmálum um styttingar, fleti og hitt og þetta. Seinna meir brosir mað ur nú góðlátlega að því um líku — að uppskriLunum. — Hver keypti svo myndir yðar? — Þeir sömu og höfðu á- huga á hinum afstrakt-mönn- um. Einkum, að sjálfsögðu, frú Fonnesbech Sandberg, sem safnaði á breiðum grund velli, en einnig listsögufræð- ingurinn Erik Fischer, Sigurd Næsgaard og margir aðrir, ó- þekktir, eins og t.d. slátrari nokkur í Viborg, Max Wörzn er. Hann keypti vist ein fimm tán stykki. — Verða þau með á sýning- unni? — Því jniður get ég ekki fundið þau. Slátrarinn er dauð ur, og ekkja hans er flutt burtu — að líkindum til Vejle. Áburðarverksmiðjan rœdd á Alþingi Frumvarp um breyfingu á lögum hennar til I. umræðu í gær NOKKRAR umræður urðu um Áburðarverksmiðjuna á fundi Neðri deildar Alþingis í gær, en þá kom til 1. um- ræðu á þessu þingi frum- varpið um að verksmiðjan annist framvegis ein alla áburðarsölu í landinu; þetta frumvarp felur einnig í sér breytingar á núgxldandi á- kvæðum um framlög áburð- arverksmiðjunnar til fastra sjóða hennar. Lagt fram að nýju. Ingólfur Jé,nsson, landbúnaðar- ráðherra, sagði fyrst nokkur orð um frv. en vísaði annars að mestu til ummæla sinna um mál ið á síðasta þingi, þegar frv. var fyrst Iagt fram. Gísli Jónsson, sem kvaðst í höfuðatriðum vera fylgjandi frv., gerði því næst grein fyrir frekari breytingum á núgildandi lögum, sem hann gerir tillögur um. Eru þær varðandi sölu hlutabréfa í verksmiðjunni o.fl. „Fégræðgin og svindlið“ Einar Olgeirsson hélt síðan all langa ræðu, sem var nær algjör endurtekning á ummælum hans á síðasta þingi um fymingaraf- skriftir á reikningum Áburðar- verksmiðjunnar fyrir siðastliðið starfsár, en þær staðhæfði hann þá og aftur nú að væru mun hærri en lög leyfðu. Með þessu væri verið að sýna afkomu verk smiðjunnar verri en hún í raun- inni væri og svo látið í veðri vaka að ekki væri hægt að greiða verkamönnum þar eða annars staðar hærri laun. Þetta væru „falsanir“ og „lögbrot“. Komst E. Olg. m.a. svo að orði í þessu sambandi, að það væru nú fyrst og fremst „fégræðgin og svindl- ið, sem leika verkalýðinn grátt". Einnig talaði E. Olg. nú á ný um það, að útkljá þyrfti fyrir fullt og allt þann ágreining, sem vegna óljósra ákvæða í áburðaj verksmiðjulögunum ríkti um það, hvern telja bæri eiganda verk- smiðjunnar, en verið væri að reyna að „stela“ verksmiðj unni frá ríkinu. Skúli Guðmundsson sagði .m.a. að úr því að leggja ætti niður Áburðarsölu rikisins, kæmi til athugunar að gefa áburðarverzl- un frjálsa. Þá taldi hann, með skírskotun til staðhæfinga E. Olg. um o-f háar afskriftir, að bændur ættu inni hjá verksmiðjunni vegna áburðarkaupa. Áburður- inn hefði verið seldur yfir raun- verulegu kostnaðarverði og því hærra verði en lög leyfðu. Fullkomlega lögum samkvæmt. Ingólfur Jcýisson vísaði enn á bug ásökunum á hendur stjórn Áburðarverksmiðjunnar varð- andi afskriftirnar s.l. ár og hvatti þá E. Olg. og Sk. G. til að fá úr málinu skorið fyrir dómstóli. Væri nú annað hljóð en í fyrra úr horni frá Sk. G., sem ekki leyndi sér að hefði nálægzt kommúnista til muna. Síendurteknar staðhæf ingar um ,,falsanir“ og „lögbrot" væru ósæmilegar. Rifjaði I. J. það m.a. upp, að verksmiðju- stjórnin hefði haft samráð við lagaprófessor og fleiri mæta lög- fræðinga þegar afskriftirnar voru ákveðnar. Hefði skoðun þeirra verið sú, að lögin heimil uðu slíkar afskriftir, sem miðað- ar væni við það að verksmiðjan, sem kostað hefði 130 millj. kr. en væri nú tvofalt dýrari, gæti end urnýjað sig. Ekki væri heldur forsvaranlegt að haga málum fyr irtækisins þannig, að við einn góðan veðurdag ættum ekki á- burðarverksmiðju í reksturhæfu ástandi. Engum væri því hagur í, að komið yrði í veg fyrir að unnt væri að halda verksmiðjunni við. Verkamenn mundu t.d. áreiðan- lega ekki láta sig það minnstu skipta, hvort þeir gætu átt trygga vinnu sína við verksmiðjuna. Rangt — ef ekki sammála/ Þá kvað I. J. að ekki þyrfti að spyrja um það, að ríkið ætti meiri hluta í verksmiðjunni, hlutafé ríkisms % en einstakl- inga %. Ef E. Olg. hins vegar spyrði um það, hvort ríkið ætti verksmiðjuna alla, væri ekkert á móti því að leita lögfræðilegs úrskurðar — en þaS væri hins vegar jafnvíst, að ef hann yrði ekki á þá lund sem E. Olg. vildi, þá mundi hann áreiðanlega lýsa þvi yfir að hann væri rangur, sbr. fullyrðingar hans um að reikningar verksmiðjunnar séu falsaðir og afskriftirnar lögbrot, þar sem lögfræðingar hefðu úr- skurðað hið gagnstæða. í sam- bandi við þær staðhæfingar E. Olg. að hluthafar í Áburðarverk- smiðjunni hefðu grætt á verk- smiðjunni, benti I.J. á, að það væri fyrst á síðastliðnu starfsári, sem vextir 6%, hefðu verið greiddir af hlutafé. Ekki úrskurð dómstóla. Einar Olgeirsson tók aftur til máls og ítrekaði einkum ýmis um mæli sín. Ekki kvaðst hann mundu beita sér fyrir því að leit að yrði úrskuiðar dómstóla um meint lögbrot. Að lokum var frv. svo vísað til 2. umr. og fjárhagsn. með samþlj. atkv. TVÖ. frumvörp voru á dag- skrá Efri deildar Alþingis í gær, annað um Verkstjóra- námskeið en hitt uni Lista- safn íslands, bæði flutt af ríkisstjórninni. Iðnaðarmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, fylgdi úr hlaði frumvarpinu um verkstjóranám- skeið og gerði grein fyrir efni þess, en eins og rakið var hér í Mbl. sl. föstudag miðar frum- varpið að því, að verkstjórnar- fræðsla komist í fastara horf. Skal þriggja manna stjórn, skip- uð skv. tilnefningu frá Verk- stjórasambandi Islands, Vinnu- veitendasambandi Islands og Iðnaðarmálastofnun íslands, leggja á ráðin um sérstök verk- stjóranámskeið fyrir menn eldri en 22 ára, og síðastnefndi aðil- * HRAÐAR — IIRABAR! — Hvernig dafnar listalífið á íslandi? — Vel, þótt það sé ekki eins og á mestu velmegunarárun- um fyrst eftir styrjöldina. Sem betur fer höfum við nú mjög skilningsríkan og fram- sýnan menntamálaráðherra. — Hvað veitir yður innblást urinn — náttúran? — Ef til vill! Náttúra ís- lands er allt önnur en nátt- úra Danmerkur. Danmörk er eins og skrúðgarður í saman burði við ísland. Hjá okkur hefir landslagið hörð og af- mörkuð form. Fjöll, jöklar, veðrið — allt á þar sinn hlut að. En hvers vegna skyldi mað alltaf verða innblásinn af nátt úrunni? Hví ekki af bókmennt um, eða hugsunum — eða mannfólki? — Hafa myndir yðar breytzt? Stíllinn? — Ef til vill eru þær orðnar „konstrúktívari“ en áður — kannski er hægt að segja það. — Blæs vindurinn þannig — einnig á íslandi? — Ég veit ekki vel. Annars held ég, að ég sé nú orðinn svo gamall og hygginn . . . — Hve gamall? inn síðan annast framkvæmd þeirra í umboði stjórnarinnar. Með slíkum námskeiðum standa vonir til að verkstjórum géfist aukin tækifæri til að afla sér menntunar í starfsgrein sinni. Alfreð Gíslason tók einnig til móls og beindi til iðnaðarnefnd- ar, sem frumvarpinu var síðan vísað til, ósk um að athugað yrði rækilega, hvort ekki væri unnt að veita þeim, sem prófi lykju frá námskeiðunum, einhvern forgangsrétt til starfa. ★ Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, mælti fyrir frum- varpinu um Listasafn íslands. Safnið, sem lúta skal yfirstjórn menntamálaráðuneytisins, skal skv. frumvarpinu fá 500 þús. kr. á ári úr Menningarsjóði — og fyrir það leitast við að „afla svo Albingi i gær: Verkstjóranámskeið og listasatn rœdd í E.d. — Fimmtíu og fimm . .. — Að . . . — Að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af stíltegundum — tachisma, eða öðrum tízku- stefnum. Ég hefi ekkert á móti því að vera kallaður „konstrúktívur“ — en ég vil gjarna túlka eitthvað í nútím anum með myndum mínum. Sjáið þessa hérna. Er ekki æðisgengin hreyfing í henni? — Hvað á sú hreyfing að tákna? — Ja, eitthvað í sambandi við geimför, eldflaugar, þot- xn: og allt það. Þessa ofboðs- legu kollsteypu gegnum tíma og rúm, sem við lifum. Hvað á ég að kalla hana? — Heitir hún ekkert? — Jú, á íslenzku, en það er óþýðanlegt. Á ég kannski að kalla hana „Geimför?“ — Hvers vegna ekki „Accel- eration?“ — Hvað þýðir það? — Hraðar, hraðar! — Jú, það er ágætt. — Þér viljið kannski gjarna vera alheims-málari? — Það er rangt að segja, að maður, eða listamaður, vilji vera eitt eða annað. Um mig er það að segja, að ég finn að eitthvað rekur mig til að tjá mig eins og ég geri. — Maður getur ekki flúið það, sem er að gerast. Fyrir hundruðum ára gat listamaður e.t.v. dreg ið sig út úr hversdagslífinu og málað tré eða rómantískt landslag. Nú getur hann það ekki. Nú er listtmaðurinn þátt takandi í þróuninni. Hann get ur ekki einangrað sig — ekki einu sinni á íslandi. ★ „HÖFUM EKKI ANNAÐ . . “ — Hvernig er samband Dana og íslendinga nú? — Við höfum alltaf fremur litið á okkur sem Skandinava almennt heldur en sem Dani — en það getur vel verið, að okkur finnist við' nú tengdari Danmörku en áður. Nú getum við verið þekktir fyrir að játa, að hér sé um náin tengsl að ræða. Það er nú orðið meira samræmi í þessu öllu. — Og hvað ef togarastríðið endar með því, að Englending ar fái leyfi til að veiða inn að sex sjómílum frá íslandi næstu tíu ár, eins og samið hefir verið um við Noreg? — Það mundi áreiðanlega hafa eyðileggjandi áhrif á fisk veiðar okkar. Gotstöðvarnar yrðu eyðilagðar með þeim ný- tízkulegu og mikilvirku veiði tækjum, sem hinir stóru tog- arar margra þjóða nota. Og gotstöðvarnar eru allar innan tólf mílna markanna. — Slíkt gæti orðið örlagarikt. Við höf um sem sagt ekki annað en fiskinn . . . fullkomins safns íslenzkrar myndlistar sem unnt er, vaið- veita það og sýna“, en fyrir 1/10 hluta upphæðarinnar skal þó „afla viðurkenndra erlendra listaverka." Þar að auki skal safnið svo annast margháttaða fræðslustarfsemi um myndlist bæði hérlendis og erlendis. — „Reisa skal sérstakt hús fyrir listasafnið, þegar nægilegt fé er veitt til þess í fjárlögum eða á annan hátt.“ Auk ráðherrans talaði Alfreð Gíslason nokkuð um málefni listasafnsins og ræddi einkum nauðsyn þess, að byggt yrði yfir það svo fljótt sem kostur væri. — Frumvarpinu var að umræð- unni lokinni vísað til mennta- Frumvörp um bæði þessi efni málanefndar deildarinnar. hafa legið fyrir Alþingi áður. FILMUR FRAMKÖLLUN KOPERING FÓTÓFIX, Vesturveri. Málflutningsskrifstofa JÓN N. SIGURÐSSON hæstaréttarlögmaður Laugavegi 10. — Sími: 14934.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.