Morgunblaðið - 18.10.1960, Page 14
14
MORGVNBLAÐIh
Þriðjudagur 18. okt. 1960
Kmipmenn — Koupfélög
Danskar tré-þvottaklemmur fyrirliggjandi
O. KORNERUP-HANSEN
nmboðs- & heildverzlun
Suðurgötu 10 — REYKJAVÍK — Sími 1-26-06
Kápu- dragta- og kjólaefni
Margskonar nýtízku snið og gerðir
úr gerfisilki í marglitum prentuðum
Fataefni
úr gerfisilki í margtium prentuðum
og ofnum mynstrum.
Bykfrakkapoplin
100% bómull í nýtizku litavali,
mjög eftirsótt sérgrein.
Vér væntum að fá aS vita um hvers þér óskið.
DEUTSCHER INNIN • UHD AUSSINHANDEl TCXTIL
BERLIN W 8 • BEHRENSTRASSE 4«
DEUTSCHE DEMOKRATISCHE REPUBLIK
skrifar um:
KVIKMYNDIR
AUSTURBÆJARBÍÓ:
ELSKHUGAR OG ÁSTMEYJAR
Þetta er frönsk mynd byggð á
skáldsögunni „Pot Bouille" eftir
Emile Zola, og fara þar margir
af beztu kvikmyndaleikurum
Frakka með veigamikil hlutverk
svo sem Danielle Darrieux og
Gérard Philipe, en hann lézt fyr-
ir nokkru í blóma lífsins.
Myndin gerist í París á þeim
gömlu og góðu dögum þegar
heimsstyrjaldir voru ekki farn-
ar að setja svip sinn á þá fögru
og glaðværu borg. Er aðalsögu-
hetjan ungur maður og óvenju
glæsilegur, Octave Mouret að
nafni, sem kemur til borgarinn-
ar utan af landi. Hann verður
brátt eftirlæti allra kvenna og
nýtur þess í ríkum mæli og hirð-
ir þá ekki um hvort þær eru
giftar eða ógiftar. Einna lengst
nýtur hann ástar Berthu, dótt-
ur Josserand-hjónanna. Bertha
er ung og fríð og ástríðumikil
og elskar Octave, en móðir
hennar, sem er mjög áfjáð í að
koma dætrum sínum í hjóna-
sængina, giftir hana Auguste
Vabre, þrautleiðinlegri mann-
rolu. En hún bætir sér það upp
með því að stunda því betur ást-
arfundina með Octave. Hann
sinnir henni einnig vel, en for-
sómar þó ekki aðrar konur. Ein
er þó sú kona sem vísar hon-
um á bug, frú Hédouin, sem
á verzlunina, sem hann starf-
ar við. En einmitt þessa konu
elskar hann. Hann kemst oft
í mikinn vanda út af hinum
flóknu ástamálum sínum i en
kemst þó jafnan klakklaust út
úr öllu „og allt fer að lokum í
bezta veg“ eins og segir í efnis-
skránni.
Mynd þessi er gerð með þeim
ágætum sem Frökkum einum er
lagið, þegar um myndir af þessu
tagi er að ræða, er hún hvergi
gróf, jafnvel ekki í heitustu ást-
aratriðunum og er full af glettni
og góðri kímni. Gérard Philipe
leikur Octave snilldarvel og hið
sama er að segja um Dany Corr-
el í hlutverki Berthe og Danielle
Darrieux í hlutverki frú Hédou-
in. Aðrir leikendur fara einnig
prýðilega með hlutverk sín.
Myndin er sem sé bráð-
skemmtileg.
STJÖRNUBÍÓ:
Ung og ástfangin
ÞAÐ fer mjög í vöxt í Banda-
ríkjunum og reyndar víðar um
heim, að ungt fólk stofni til hjú-
skapar löngu áður en það hefur
náð fullum þroska, andlegum og
líkamlegum eða geti fjárhags-
lega staðið á eigin fótum. Er
þetta orðið vandamál, sem mik-
ið er rætt, einkum í Bandaríkjun
um, enda reynast þau hjónahönd,
er þannig er til stofnað oft ærið
haldlítil.
Um þetta mál fjallar mynd sú
sem hér ræðir um. Aðalpersón-
urnar, Julie Turner og Calvin
Porter eru 17 og ára og eru enn
bæði við nám í gagnfræðaskóla.
Þau eru mjög ástfangin hvort af
öðru og eitt sinn er þau fara á-
samt félögum sínum í skemmti-
ferð til borgarinnar Reno gifta
þau sig þar án vitundar foreldra
sinna. Skömmu síðar verður
Julie þess vör að hún er með
barni og er þá ekki um annað
að ræða en segja foreldrunum
allt hið sanna. Verður þetta for-
eldrum beggja mikið reiðarslag,
en einkum verður þó faðir Juliu
æfur við. Hann verður þó að
sætta sig við orðinn hlut og því
býður hann tengdasyninum að
búa heima hjó sér. En ekki geng-
ur það árekstralaust því að
tengdafaðirinn vill ráðstafa hin-
Framh. á bls. 16.
KAUPUM
TUSKUR
Prenismidja
MORGUNBLAÐSINS
Til kaups óskast
íbúð
5—6 herbergja
Ragnar Jónsson hæstaréttarlögmaður
Vonarstræti 4 — Sími 17752
Gródrastöðin við Miklatorg
Símar: 22-8 22 — 19-7-75.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
F
N
U R
verður haldinn í FulltrrúaráÓi Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík n.k. miðvikudagskvöld hinn 19.
október kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Umræðuef ni: BÆJARMÁL
Framsogumaður: Geir Hallgrímsson, borgarstjóri
Fulltrúar sýni fulltrúaráðsskírteini sín við innganginn.
STJÓRNIN