Morgunblaðið - 08.12.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.12.1960, Blaðsíða 22
22 MORGVNM 4Ð1Ð Fimmtndagur 8. des. 1960 Knattspyrnumenn fái greitt fyrir vinnutap Unnið að breytingu á áhuga- * * mannareglum ISI Á ÁRSÞINGI KSÍ, sem lauk í fyrri viku, var nokkuð rætt um það hvort bæta ætti mönnum er knattspyrnu stunda upp það fjárhagslega tjón er þeir hafa af kapp- leikum. Þ. e. a. s. ef þeir þurfa að sleppa vinnu til þess að Jeika landsleiki eða eru kallaðir á æfingar fyrir landsliðið. • Isöng forsaga Umræður urðu ekki miklar því allir virtust fulltrúar á einu máli um að slíkar bætur bæri að greiða. Var samþykkt tillaga um það — í einu hljóði — að skora á sambandsráð ÍSÍ, að gera breyt ingar á áhugamannareglum íþróttasambandsins svo löglegt verði að greiða slíkar bætur. Þetta mál hefur verið lengi á döfinni og þróast stig af stigi, unz svo er nú komið að tillaga þessi, er samþykkt einróma á KSÍ-þingi. • Á bak við tjöldin Hefur þetta vandamál oft valdið miklum erfiðleikum. Forráðamenn og aðrir hafa lát ið að því liggja, að slíkar greiðslur hafi átt sér staff, en orðið hafi að fara dult meff og borga bak viff tjöldin, þar sem annað væri brot á áhuga- mannareglunum. ★ Norrænt fyrirkomulag Áreiðanlega munu margir telja að hér sé stigið stórt spor í áttina til atvinnumennsku. Og víst má með nokkrum sanni segja að svo er. En KSI tekur þessar reglur upp eftir fordæmi frá hinum Norðurlöndunum, t.d. Dönum, sem stundum eru kallaðir á knattspyrnusviðinu „einustu á- hugamennirnir sem eftir séu“. Þar er sá háttur á hafður um greiðslur fyrir vinnutap, að at- vinnuveitandi viðkomandi leik- manns verður að innheimta „vinnutapið" hjá viðkomandi knattspyrnusambandi. — Það tryggir að leikmaður geti ekki bæði fengið sín vinnulaun óskert og einnig krafið knattspyrnu- sambandið um greiðslu fyrir vinnutap. Sumir atvinnurekend- ur gefa mönnum sínum fúslega frí til landsleika og æfinga fyr- ir landslið, og ef sú verður raun in áfram, þá gefa þeir knatt- spyrnuhreyfingunni þá upphæð, sem frítíminn er verður sem maðurinn fékk. • Hætta á ferðum En með tilhliðrunum sem þessum er fariff út á hálan is. Ef fariff er út á þá braut að bæta upp vinnutap fyrir lands leiki og landsliðsæfingar — sem einkum er gert vegna þess aff mönnum er hóað sam- an úr ýmsum landshlutum — þá er skoðun vor, aff skammt verði þess aff bíða að liðs- menn einstakra félaga fari að krefja félög sín um greiðsl- ur fyrir vinnutap, effa leiki ekki aff öffrum kosti. Hér verð- ur því að hafa strangar gætur á því. tslendingar eru svo fáir aff atvinnumennska mynd gereyoncgBJa íproitalífið. — A.St. Úrslit í kvöld í KVÖLD fara fram að Há- logalandi úrslit Körfuknatt- leiksmóts Reykjavíkur. Hefur mótið borið vitni miklum framförum í þessari íþrótt og vinsældir hennar hafa stór- um aukizt. Má búast við hús- fylli í kvöld, því í meistara- flokki karla er um að ræða hreinan úrslitaieik á milli KFR, sem er núverandi Reykjavíkurmeistari, og lR, sem er núverandi fslands- meistari. Þessir flokkar hafa unnið sína leiki fram til þessa, og standa jafnir aff stigum. En hlutfallstala lR fyrir skorað- ar körfur og fengnar er nokkru betri. Af þeim sökum má ætla aff hlutur ÍR sé betri fyrir leikinn, en KFR hefur fullan hug á aff halda titlinum. Á undan þessum leik fer fram leikur í 2. flokki karla. Þar leika KR og Ármann, B- lið. Sigurvegarar í öðrum flokk um á mótinu urðu þessir: í meistaraflokki kvenna A-lið Ármanns; í 2. fl. karla A-Iið Ármanns; í 2. fl. kvenna B- liff KR; í 3. fl. karla Ármann og í 4. fl. karla A-liff ÍR. Að leikum loknum í kvöld verffa verfflaun afhent. Ensko knnttspyrnan MARKAHÆSTU leikmennirnir í ensku knattspyrnunni um þessar mundir eru: 1. deild: Greaves (Chelsea) .......... 24 mörk Hitchens (Aston Vilía) ..... 21 mark Smith (Tottenham ........... 18 mörk Robson (Burnley) ........... 17 — White (Newcastle) .......... 17 — Charnley (Blackpool) ....... 16 — Farmer (Wolverhampton) ...... 15 — Herd (Arsenal) ........... 15 — Leggat (Fulham) ............ 15 — Vernon (Everton) ........... 15 — 2. deild: Thomas (Scunthorpe) ........ 19 mörk Clough (Middlesbrough) ..... 18 — Crawford (Ipswich) ......... 17 — Paine (Southampton) ......... 17 — Lawther (Sunderland) ........ 15 — Pace (Sheffield U.) ......;.... 15 — O’Brien (Southampton) ....... 14 — 3. deild: Bedford (Q.P.R.) .......... 20 mörk Holton (Watford) ............ 17 — Northcott (Torquay) ......... 17 — Rowley (Shrewsbury) ......... 17 — Jackson (Bury) .............. 16 — Watson (Bury) ............... 16 — Wheeler (Reading) ........... 16 — 4. deild: Burridge (Millwall) ......... 20 mörk Hudson (Accrington) ......... 20 — Bly (Peterborough) .......... 19 — Byme (Crystal Palace) ....... 18 — Lord (Rochdale) ............ 18 — Terry (Gillingham) ......... 16 — Swindells (Accrington) ..... 15 — Hinn kunni knattspyrnumaður, Stan ley Matthews, skrifar um knattspyrnu í sunnudagsblaðið Sunday Express. Sl. sunnudag ritaði hann grein um þau lið, sem að hans áliti eru sigurstrang- legust í bikarkeppninni. Kemst hann, að þeirri niðurstoðu að Everton sé vænlegast til sigurs en næst Everton komi Arsenal, Burnley og West Ham. Mörgum mun þykja þetta einkenni- legt val, sérsta«lega þegar þess er gætt að lið eins og Tottenham, Wolv- erhampton og Sheffield Wednesday hafa sýnt mjög góða leiki og staðið sig mjög vel. Matthews segir að 1 bikarkeppninni séu allt önnur sjónarmið og t.d. lið eins og Tottenham eigi mjög erfiða daga fyrir höndum, sökum þess að allir andstæðingar þeirra leggi ser- staka áherslu á að sigra þá. Matthews segir einnig, eins og allir vita, að heppni og aftur heppni ráði miklu í þessari vinsælu keppni og verður gam an að sjá hvort þessi snillingur nafi á réttu að standa um væntaniegan sigurvegara. HLJÓDF ÆRAÚT FLUT NINGUR okkar frá tónlistarmiðstöðvum Klingenthal og Markneukirchen og einnig frá öðrum stöðum í Þýzka alþýðulýðveldinu, eykst með ári hverju. Mestur hluti af úrvalsvöru okkar er þegar vel þekktur og mikils metinn hjá viðskiptavinum okkar um allan heim. Við flytjum út allar tegundir hljóðfæra, svo sem: Harmonikur, Bandononsons, Munnhörpur, Strokhljóðfæri, Strengjahljóðfæri, Blásturshljóðfæri, Trommur og Rytma- hljóðfæri, Músikstrengi, Rafmagnsbúnað við hljóðfæri og öll önnur tæki varðandi tónlist. Hljóðfæri okkar eru örugg gæðavara. Tæknilega eru þau mjög fullkomin, nýtízkuleg að öllum útbúnaði, formfögur, auðveld í notkun og með óaðfinnanlegum hljómum og góðri endingu. Umboðsmaður: Páll H. Pálsson, Drápuhlíð 39, Reykjavík. Deutsche Musikinstrumenten- und Spielwaren- Aussenhandelsgesellschaft MBH. Musikinstrumentenexport, Klingenthal (Sachs) Deutsctte DeuioKradsche Repuuiik. 40 skólanemar á þingi SBS UM síðustu helgi var haldið 29. þing Sambands bindindisfélaga í skólum. Þingið sátu rúmlega 40 fulltrúar frá skólum í Reykjavík, Laugarvatni, Akranesi og víðar. Fráfarandi formaður S.B.S. Vil- hjálmur Einarsson flutti þinginu skýrslu fráfarandi stjórnar og bar skýrsla hans vott um mikið og gott starf, sem S.B.S. hefur unnið fyrir skóla landsins. Ol- ympíukvikmynd Vilhjálms er nú eign S.B.S. og hafa margir skól- ar fengið hana lánaða til sýn- ingar á skemmtikvöldum hjá sér Er hún lánuð endurgjaldslaust. Þá skýrðu fulltrúar skólanna frá störfum þeirra hvers um sig og markaðist starfsemi þeirra yfir- leitt af eflingu á heilbrigðu fél- agslífi. Formaður S.B.S. var kos- inn Ragnar Tómasson, stud. jur. Með honum í stjórn eru Ólafur Þ. Hallgrímsson, Kennaraskólan- um.varaformaður, Róbert Jóns- son Verzlunarskólanum, Gerður Ólafsdóttir Kennaraskólanum og Alda Guðmundsdóttir Kvenna- Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.