Morgunblaðið - 13.01.1961, Side 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 13. janúar 1961
Námsstyrkir fyrir ungl-
inga til Bandaríkjanna
UNDANFARIN fjögur ár hafa
alls 37 íslenzkir framhaldsskóla-
nemendur á aldrinum 16 til 18
ára hlotið styrki til náms við
bandaríska menntaskóla. Hafa
þeir farið til Bandaríkjanna fyrir
millig-öngu íslenzk-ameriska fé-
lagsins, en það hefur annazt alla
fyrirgreiðslu hér heima fyrir
stofnun þá, er styrkina veitir,
American Field Service.
Nú hefur AFS ennþá í hyggju
að gefa íslenzkum framhalds-
skólanemendum kost á eins árs
námsstyrk við bandaríska
menntaskóla á skólaárinu 1961
—62. Styrkir þessir nema ókeyp-
is skólagjöldum, húsnæði, fæði,
sjúkrakostnaði og ferðalögum
innan Bandarikjanna. Meðan
dvalið er vestra búa nemendurn
ir hjá bandarískum fjölskyld-
um í námunda við viðkomandi
skóla. Ætlazt er til að nemendur
greiði sjálfir ferðakostnað frá Is
landi til New York og heim aftur.
Ennfremur þurfa þeir að sjá sér
fyrir einhverjum vasapeningum.
Svo sem áður er getið skulu
umsækjendur um þessa styrki
vera á aldrinum 16 til 18 ára,
jafnt piltar sem stúlkur. Þeir
þurfa að hafa góða námshæfi-
leika, prúða framkomu, vera vel
hraustir og geta talað eitthvað
í ensku.
Umsóknareyðublöð fyrir áður-
greinda styrki verða afhent í
skrifstofu Islenzk-ameríska fé-
lagsins, Hafnarstræti 19, næstu
daga frá kl. 5,30 til 6,30. Þurfa
þau að hafa borizt þangað aftur
eigi síðar en 23. janúar.
Heilsuverndar-
stöð á Akranesi
AKRANESI, 9. janúar: — Heilsu
verndarstöð hefur starfsemi sína
á Akranesi í þessari viku, en um
alilangt skeið hefur verið unnið
að undirbúningi þessarar stöðvar
hér.
Starfsemi stöðvarinnar verður
einkum í tveimur þáttum, til að
byrja með. Annars vegar mæðra-
vernd, en hins vegar berklavarn-
ir. /
Stjórn Heilsuverndarstöðvar
Starfsemi Heilsuverndarstöðv-
arinnar verður í Sjúkrahúsi
Akraness. — Oddur.
■f Saga vísindaþróunarinn-
■k'"'ar í heiminum segir bæði
af sigrum og ósigrum — en á hinum síðari árum og ára-
i tugum verður sú saga þó a. m. k. að teljast saga mikilla
1 sigra, fyrst og fremst. — Þrátt fyrir þá sigra alla, býr
þó fjöldi fólks í ýmsum hlutum heims enn við hin bág-
ustu kjör. Þannig berast nú t. d. stöðugt fréttir frá hinu
hrjáða Kongó um að hundruð manna, og þá einkuxn
barna, falli þar daglega fyrir hungurvofunni. Einna mest
er neyðin í Kasai-fylkinu — og þar er þessi mynd tek-
in. Kasavubu, forseti Kongó, heimsótti Kasai fyrir
skömmu til þess að kynnast ástandinu þar af eigin raun.
— Hér sést hann á tali við einn hinna hungruðu þegna
sinna, ungan dreng, sem hungurvofan hefur snert harðri
hendi ....
HUNGUR
nMW1
Skuldabréf
Vantar handa kaupendum ríkistryggð útdráttarbréf
til 15 ára.
FYRIGREIÐSLUSKRIFSTOFAN
Fasteigna og verðbréfasala
Austurstræti 14. 3. hæð
Sími 36633 eftir kl. 5 er heimasími 12469.
Allt á sama stað
Menn vanir bifreiðaviðgerðum óskast nú
þegar á viðgerðarverkstæði og mótorverk-
stæði okkar. — Upplýsingar gefur verk-
stjórinn, Árni Stefánsson.
H.f. Egill Vilhjálmsson
Sími 22240
Dansskóli Jóns Valgeirs
Nýtt nájnskeið hefst í næstu viku. — Innritun og
uppl. í síma 36829 frá kl. 1—4 á morgun laugardag.
Einnig fyrir hjónaflokka og væntanlega nemendur
í Suður-Amerískum dönsum á sama tíma í síma
19616. — Ath.: Skírteinin verða afhent frá kl. 2—6
mánudaginn 16. jan. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Nýr bátur
til Húsavíkur
HÚSAVÍK, 11. jan. — Nýr bát-
ur kom tiil Húsavíkur í dag. Er
hann 17 tonn, keyptur frá Fá-
skrúðsfirði. Báturinn er tiltölu
lega nýr og var by-ggður á ísa-
firði.
Eigendur bátsins eru Kristján
Sigurjónsson og synir hans og
verður Sigurbjörn Kristjánsson,
formaður á honum.
Undanfarna daga hefur verið
sæmilega góður afli hér miðað
við árstíð, eða um 12 skippund
í róðri. —Silli.
Loftræstiviftur
fyrir
Samkomuhús
Vinnusali
Gripahús o. fl.
s HÉÐINN =
Vé/averzíun
simi £4260)
Öryggi á gluggum
NOTKUN hverfiglugga hefur
aukizt mjög á siðustu árum í
Reykjavík og víða úti á landi.
Nokkrar gerðir þessara glugga
eru þannig, að hægt er að snúa
þeim við án nokkurrar fyrirstöðu
og hafa menn látið í ljósi áhyggj-
ur vegna þessa öryggisleysis, því
hætta gæti skapazt af þessu þar
sem stálpuð böm eru í heimili.
Gissur Símonarson, trésmíða-
meistari, hefur komið að máli
við blaðið og skýrt frá því, að í
trésmiðju hans við Miklatorg
væru framleiddir hverfigluggar
með öryggisútbúnaði — þannig,
að 130 sm. háan glugga er ekki
hægt að opna meira en 13 sm.
Þetta öryggi er innbyggt í lamir
gluggans og þarf sérsfcakan lykil
til að taka það af. Lamirnar eru
v-þýzkar og mikið notaðar þar
í landi, segir Gissur.
Málflutninesskrifstofa
JÓN N SIGURÐSSON
hæstaréttarlögmaður
T<augavegi 10. — Sími: 1493^
Lögfræðiskrifstofa
(Skipa og bátasala) Laugavegi
19. Tómas Árnason, Vilhjálmur
Árnason. — Símar 24635 — 16307
EGGERT CLAESSliN og
GUSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmen/j.
Þórshamri við Templarasund.
Keimsla
Landspróf:
Kenni tungumál, stærðfræði,
eðlisfræði og fl. og bý undir
stúdentspróf, landspróf, verzlun.
arpróf og önnur skólapróf.
Dr. Ottó Arnaldur Magnússon
(áður Weg), Grettisgötu 44 A,
Sírni 15082.
Mýsnar átu
Tímann
— enginn áramóta-
fagnaður
GJÖGRI, 9. janúar: — Eg veit
ekki annað en allir hafi haft
gleðileg jól hér í hreppi. Aftur
á móti kom fyrir atvik, sem
skyggði nokkuð á áramótagleði
hjá nokkrum mönnum, sem
eru talsvert ráðandi hér í
byggðarlaginu.
Rétt yrir áramótin átti að
taka fram nokkra árganga af
Tímanum og send-a til Reykja
víkur og láta binda inn. En
þá komust menn að þeirri
leiðu staðreynd, að mýsnar
voru búnar að éta og eyði-
leggja Tímann. Fannst þess-
um heiðursmönnum það vita
á eitthvað illt, og gripu þá
leiðindi mikil.
Ekki einungis vegna þess,
að þeir gætu ekki fengið Tím-
ann aftur, því eftir því sem
ég bezt veit geta þeir fengið
Tímann sl. fimm ár aftur, en
þessum miklu Tímamönnum
finnst þetta ábyrgðarleysi sitt
muni boða mikil móðuharð-
indi hjá Framsóknarflokkn-
um. Það var því ekki að
ástæðulausu, að enginn ára-
mótafagnaður var haldinn að
þessu sinni í samkomuhúsinu
í Trékyllisvík. — Regína.
Aðalfundur
SjáKstæðisfélags
Akureyrar
AÐALFUNDUR SjálfstæðisféL
Akureyrar var haldinn hér s.L
mánudagskvöld. Fyrir fundinum
lágu venjuleg aða-lfundai’störf,
en að þeim loknum flutti Jónaa
G. Rafnar alþingiemaður fróð-
legt erindi um stjórnmálaviðhorf
ið og tók einkum til umræðu
fjármálin.
Að erindi Jónasar lokn-u svar
aði þingmaðurinn nokkrum fyr-
irspurn-um. Fjölmenrii var á fund
inum. Stjóm félagsins* skipa nú:
Árni Jónsson, tilraunarstjóri,
formaður; — meðstjórnendur:
Bjarni Sveinsson, Baldvin Ás-
geirsson og Jóhannes Kristjána
son. — St. E. Sig.
TEHERAN, íran, 11. jan, (Reut
er) — I gær hófst í Iran kosning
200 þingm-anna neðri deildar
þingsins. Síðast var kosið í ágúst
mánuði s.-l. en þá bar svo mikið
á kosningasvikum að keisarinn
fyrirskipaði að nýjar kosningar
yrðu látnar fara fram.
Saurbæjarkirkja
afhent Þjóðminja-
safninu
AKUREYRI. 11. jan. — Sunnu-
daginn 22. j-anúar n.k. mun Saur
bæjarkirkja í Saurbæjarhreppi
varði afihent Þjóðminjasafninu
til varðveizlu. Þetta er önnur
af tveimur torfkirkj-um á norð-
urlandi, sem enn standa. Sama
dag og kirkjan verður afhent
Þjóðminjasafninu verður minnzt
100 ára afmælis hexmar. Undan-
farin tvö ár hefur staðið yfir
gagnger viðgerð á kirkjunni og
er hún nú orðin hin visfclegasta,
tekur hún 100 mann-s í sætL
Kristján Eldj-árn, þjóðminjavörð
ur mun veita kirkjunni viðtöku
fyrir hönd þjóðminjasafnsins.
—Stefán.
BONN, 10. jan. (Reuter) —
Wil’ly Brandt, borgarstjóri V-
Berlínar hefur borið fram þá
uppástungu, að hann og Aden-
auer, kanzlari, hafi kappræðu-
fundi í sjónvarpi fyrir kosning-
ar.