Morgunblaðið - 13.01.1961, Page 23
Föstudagur 13. janúar 1961
MORrrnmr 4 fí I Ð
23
Öryggisráðið
rœðir um Kongó
NEW York, 2. jan. (NTB/ Reut-
er). — öryggisráð SÞ kom sam-
an í dag til að ræða Kongómálið,
að kröfu sovézka fulltrúans,
Zorins, sem var fyrstur á mæl-
endaskrá og sakaði Belgi um árás
araðgerðir í Kongó, m. a. með
því að leyfa sveitum Mobutu her-
stjóra í Leopoldville að fara
í gegnum verndargæzlusvæði
Ruanda-Urundi á dögunum til
árásar á Lumumbahermenn í
Kivu-héraði. Krafðizt Zorin
þcss, að Belgiumenn yrðu svipt-
c
Inniirði Djúps-
i ins nð leggjn
ÞÚFUM, N-ís., 11. jan. — Undan
farna daga hefir verið nokkuð
frost og stilla. Er þá innfjörðum
Djúpsins hætt við að leggja. Nú
er ís kominn á Mjóafjörð út að
Keldu, svo Djúpbáturinn kemst
ekkj lengra.
Reykjanesskólinn er byrjaður
aftur og eru um 70 nemendur I
héraðsskólanum og gagnfræða-
deildinni. Er hann fullsetinn og
varð að vísa mörgum umsóknum
frá. — P.P.
— Kongö
Framh. af bls. 1
við SÞ. Tshombestjórnin sagði í
kvöld, að Balubastríðsmenn
hefðu náð bænoim Lucna, um 250
km norðvestur af Elisabethville,
og misþyrmt Evrópubúum þar.
Segir í yfirlýsingunni, að liðs-
menn SÞ hafi hindrað aðgerðir
Katangahermanna gegn Baluba-
mönnum í Luena.
f f fréttum frá Leopoldville seg-
ir, að Kasavubu hafi tvisvar i
dag rætt við Dayal, fulltrúa
Hammarskjölds, um ástandið í
Katanga — og búizt sé við, að
i Hammarskjöld ræði málið við
Dayal, en framkvæmdastjórinn
kemur við í Leopoldville í kvöld.
á leið sinni til Bandaríkjanna frá
Suður-Afríku.
— Belgla
Frh. af bls. 1
af níu héruðum landsins. — Hér
uðin tvö, sem verkfallið er enn
mjög víðtækt í, eru Liege og
Ahinaut, eins og fyxr segir, en
þar eru borgirnar Chiarleroi og
Mons og kolanámasvæðið Bori-
mage — en margir hverfa þó
aftur til vinnu sinnar í nokkrum
námanna, sagði í skýrslu stjórn
arinnar.
• „Friðartákn".
Hinir daglegu blaðamanna-
fundir ríltisstjómarinnar verða
nú felldir niður, og er litið á
það sem merki þess, að horfur
séu á áframhaldandi friðvægn-
legri þróun í landinu. Eyskens
forsætisráðherra hélt annan
fund í dag með foringjum stjórn
arflokkanna og jafnaðarmanna
— og þykir það einnig tákn
I þess, að saman muni draga. —
Einn af foringjum jafnaðar-
manna lét svo um mælt í gær-
kvöldi, að enda þótt flokkur sinn
i héldi áfram að berjast gegn
spamaðarfrumvarpi stjómarinn-
ar á þingi, þyrfti það ekki að
! jafngilda því, að jafnaðrmenn
settu þð ófrávíkj anlega skilyrði
að fmmvarpið yrði dregið til
: baka í heild. Aftur á móti hædd
i ist Andre Renard að samkomu-
i lagsumleitimum ýmissa jafmað-
armannaforingja, í ræðu sem
hann hélt í Mons í gær. „Tak-
nxark baráttunnar er enn það, að
frumvarpið verði dregið til
baka“ sagði hann — og hlaut
fagnandi undirtektir hinna fjöl
mörgu áheyrenda sinna.
ir rétti tií vemdargæzlu í Ruanda
Urundi, þar sem þeir hefðu með
framferði sinu brotið í bága við
stofnskrá SÞ. Jafnframt krafðist
hann þess, að umrætt svæði
fengi sjálfstæði tafarlaust.
★ Gagnrýndi enn
Hammarskjöld
Zorin lagði ekki fram neina
formlega ályktunartililögu í mál-
inu, en notaði tækifærið til að
gagnrýna Hammarskjöld enn fyr-
ir stefnu hans og aðgerðir í
Kongó — og fyrir að halda hlífi-
skildi yfir Belgum, sem ekki
hefðu hlýtt fyrirmælum öryggis
ráðsins um að hverfa frá Kongó
með allt sitt. Hammarskjöld
hafði áður mótmælt því við
belgisku stjórnina, að Mobutu-
mönnum skyldi leyfð herferðin
gegnum Ruanda-Urundi. — Þá
heimtaði Zorin, að SÞ geri ráð-
stafanir til að skipa málum í
Kongó til samræmis við ályktanir
Kasablanka-ráðstefnunnar á dög
unum.
★ Fulltrúi Belgiu
mótmælti
Fulltrúi Belgíu, Walter Lori-
dan, andmælti ásökunum Zorins
og vísaði til yfirlýsingar stjórn-
ar sinnar, sem dreift hafði verið
á fundinum, en þar segir m. a.,
að yfirvöldin í Ruanda-Urundi
hafi fengið fyrirmæli um að
standa gegn því, að hermenn frá
Kongó fari yfir svæðið án leyfis
— og leyfi til slíks verði ekki
veitt framvegis. Hins vegar hafi
ekki verið um annað að ræða en
fylgja Mobutumönnum til landa-
mæranna á dögunum, eftir að
þeir höfðu lent á flugvelli höfuð
staðar Ruanda-Urundi — annað
hefði getað leitt til alvarlegra
árekstra, svo sem ef reynt hefði
verið að ofvopna sveitirnar og
taka hermennin-';a til fanga.
Fundinum var frestað án þess
nokkur samþykkt væri gerð.
13 árekstrar í gær
í GÆR var mikið um árekstra
á götum Reykj-avífcur, 13 árekstr
ar voru bókaðir hjá lögreglunni
eftir hádegið.
Hált var á götunum og dimm
viðri og um tima var snjókoma.
Var því afleitt færi fyrir bíla.
— barnadeild
Framh. af bls. 3
á landi mun fyrstur sérfræðingur
á barnalækningum, hafa verið
dr. Gunnlaugur Claessen, sem
var praktiserandi hér í Reykja-
vík kringum eða fyrir 1920. Nú
eru starfandi hér á landi 8 sér-
fræðingar í pediatri eða einn
barnalæknir á ca. 22 þús. íbúa.
Samt hefur ekki verið byggður
hér á landi barnaspítali eða
barnadeild fyrr en barnadeild
var opnuð við Landsspítalann
fyrir nokkrum árum.
Blaðamönnum var boðið að
skoða deildina og er hún í alla
staði hin vistlegasta. Óll rúm á
deildinni eru fullskipuð börnum
frá fyrsta ári upp í 13 ára. Ber
mjög að fagna því að slík deild
skuli vera tekin til starfa við
spítalann og er hún spor í áttina
til þess að unnt verði að hlúa
sem bezt að sjúkum börnum.
I
Svein B. Johansen, deildar-
stjóri innan samtafca Aðventista
á íslandi, hefir víðsvegar flutt er
indi um trúmál og önnur efni,
sem snerta nútímann. Hann kom
til íslands fyrir þrem árum að
lokinni námsdval í Bandaríkj-
unum. Síðastliðinn vetur flutti
hann erindaflokk i Keflavík. —
Mun Svein Johansen flytja röð
erinda í Reykjavík og Keflavík
í vetur. Munu erindin fjalla um
vandamál nútímans séð frá trú
arlegu sjónarmiði. Varða þau
flutt kl. 17 hvern sunnudag í
Aðventkirkjunni í Reykjavík og
kl. 20,30 í Tjarnarlundi í Kefla-
vífc, einnig á sunnudögum. —
Sjá nánar auglýsingar í blöðum.
Enn meðvit-
undarlaus
f GÆRKVÖLDI var gamli mað-
urinn, sem slasaðist er bíll ók á
hann í Keflavík í fyrrakvöld, enn
ókominn til meðvitundar. Skv.
upplýsingum sjúkrahúslæknisins
er tvísýnt um líf hans.
Bifreiðin, sem ók á manninn
og skildi hann eftir liggjandi á
götunni, er enn ófundinn, þrátt
fyrir leit lögreglunnar í Kefla-
vík. Hefur ekki hafzt upp á því
hver þarna var á ferð.
Ekkert flug
í GÆR hóf sig engin flugvél til
flugs eða lenti á Reykjavíkur-
flugvelli. Innanlandsflug lá alveg
niðri vegna óhagstæðra flugskil-
yrða um allt land. Og eina milli-
landaflugvélin, sem var á ferð-
inni, lenti á Keflavíkurflugvelli,
þar eð vindur stóð illa á braut-
ina á Reykjavíkurflugvellinum,
— Úr ýmsum áttum
Framh. af bls. 12.
Frá upphafi til vorra daga.
Verki þessu er ætlað að
fjalla á sem víðtækastan hátt,
um þróunarsögu mannkynsins
á sviði menningar og vísinda,
allt frá upphafi vega og fram
á okkar daga — eða nánar til-
tekið, þar til um fjórðungur er
af tuttugustu öldinni. — Ekki
er enn ljóst, hve verkið skipt-
ist í mörg bindi, en handrit
hvers bindis verður lagt fyr-
ir allar þátttökuþjóðir í UN-
ESCO til athugunar áður en
það verður gefið út.
★
Útgefendur í Bretland eru
George Allen and Unwin í
Lundúnum, en Harper and
Brothers í New York gefa rit
ið út vestanhafs. — Talið er,
að fyrsta bindið muni kosta
sem svarar 250—260 krónur í
íslenzkum peningum.
Hjartanlega þökkum við öllum ættingjum og öðrum
vinum, sem glöddu okkur með nærveru sinni^ gjöfum og
heillaskeytum á gullbrúðkaupsdegi okkar 29. fyrra mán.
Guð blessi ykkur öll.
Þorkelína og Finnbogi, Tjarnarkoti
Lmilega þakka ég öllum þeim, er auðsýndu mér vin-
semd á níræðis afmæli mínu.
Vigfús Gunnarsson, Flögu
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að maðurinn
minn og faðir okkar
CARL AI.FRF.D NIELSEN
verkstjóri, Bárugötu 18
andaðist síðdegis á miðvikudag
Guðrún Nielsen og böm
Móðir okkar
ÞJÓÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Hrauni, Kringlumýrarvegi,
andaðist í St. Jósepsspítala, miðvikudag. 11. þ.m.
Guðmundur Sigurþórsson, Jón Sigurþórsson
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
KRISTÍN HJÁLMARSDÓTTIR
Bólstaðarhlíð 13,
verður jarðsungin í dag .föstudaginn 13. janúar kl. 2,30
frá Dómkirkjunni. Jarðað verður frá Gamla kirkjugarð-
inum. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á
Kristniboöið í Konsó. Minningarspjöldin fást á Þórs-
götu 4.
Ásta Hansdóttir, Hans P. Christiansen,
Guðríður Hansdóttir, Júlíus Jónsson,
Óskar Hansson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Jón Hansson og barnabörn.
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma
KRISTlN VILHJÁLMSDÓTTIR
frá Blómsturvöllum, Eyrarbakka
verður jarðsett frá Eeyrarbakkakirkju laugardaginn 14.
janúar. — Athöfnin hefst kl. 1,30 frá heimili sonar
hennar, Vatnagarði, Eyrarbakka.
Þorbjörn Guðmundsson, börn, tengdaböra, barnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall
og jarðarför,
JÓNS ÞORFINSSONAR
Freyjugötu 5, Sauðárkróki
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Árnadóttir og börn
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför föður
okkar, tengdaföður og afa,
KRISTMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
prentara
Sigríður Kjartansdóttir, Björa Kristmundsson
Þóra Viktorsdóttir Ulafar Kristmuudsson
5
og barnaböm
Hjartans þakkir færum við öllum, fjær og nær er sýndu
okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför eigin-
manns míns, föður okkar bróður, tengdaföður og afa,
G. SIGURÐAR JÓHANNESSONAR
húsvarðar
Sér í lagi viljum við þakka læknum og hjúkrunarkon-
um Hvítabandsins fyrir frábæra hjúkrun og hjartahlýju
er honum var sýnd í langri og erfiðri sjúkdómslegu.
Skólastjóra og kennurum Gagnfræðaskólans þökkum við
einnig samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll
Kristín Jónsdóttir, Guðrún Ebeneserdóttir
Ingimar Jóhannesson,
Jóhannes S. Sigurðsson, Halldóra Ólafsdóttir,
Ingimar Sigurðsson, Hulda Alexandersdóttir
Sigurður Sigurðsson, Ása Leósdóttir,
Þórketill Sigurðsson og barnabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
ERNZT CHR. WENDEL
Fyrir hönd systkina.
Andrés Wendel
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og
vináttu vegna andláts og jarðarfarar mannsins míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS JÓNSSONAR
Grettisgötu 31.
Fyrir hönd vandamanna.
Kristín Jónsdóttir.