Morgunblaðið - 19.01.1961, Side 3
Fimmtudagur 19. Janúar 1961
MORGVNBLÁÐIÐ
3
sr
Skípsmenn á Höfrungi að búa sig undir Iöndun. Ingimundur Ingimundarson, skipstjóri, sést
í glugga stýrishússins.
Framh. af bls. 1
Verstöðvunum bárust eftirfar-
andi fréttir af síldarafla:
Yfir 400 tunnur tii Akraness
Síldarbátarnir á Akranesi reru
ellir í skyndi kl. 1—2 í fyrri-
nótt eftir að fregnir bárust af
afla Víðis. Fjögur þúsund tunn-
ur síldar höfðu borizt á land þar,
er fréttaritari blaðsins símaði í
gærkvöldi. Aflahæsta skip var
Sigurvon með 900 tunnur, annað
Sveinn Guðmundsson með 800
tunnur og fengu báðir síldina í
einu kasti. Höfrungur I hafði 650
tunnur, Víðir II. hafði landað
650 tunnum og var væntanlegur
með 1400 í viðbót, Böðvar 500
tunnur, Sæfari 400. Hafði frézt að
Sigurður hefði sprengt nótina
með gífurlega miklu síldarmagni
í.
Reynir, Ver og Olafur Magnús
eon tóku hringnæturnar um borð
aftur, en þeir voru tilbúnir á
línuveiðar á vertíðina. Og höfðu
t HÆSTARÉTTI var allan
daginn í gær haldið áfram
málflutningi varðandi áfrýj-
aðan úrskurð undirréttar um
að eigi sé ástæða til að leiða
fyrir dóm í „morðbréfamál-
inu“ svonefnda flciri vitni
en þegar hafi fyrir hann kom
ið. Fylgdust margir með mál
flutningnum, sem hófst á
mánudaginn.
Eftir að verjancfa sakbornings-
ins Magnúsar Guðmundssonar
fyrrum lögregluþjóns, Guðlaugi
Einarssyni hdl., hafði í gærmorg-
un enn verið gefin klukkustund-
arfrestur, til að leggja fram ný
gögn í málinu, hófst réttarhaldið
að nýju kl. 11, með því að for-
seti réttarins Gizur Bergsteins-
son, tilkynnt málflytjanda, að
dómararnir teldu, að sanngjarnt
væri, að honum yrði gert að ljúka
xnáli sínu á 2 klukkustundum.
• Frekarl vltnaleiðslur
Hélt Guðlaugur Einarsson síð-
an áfram ræðu sinni, sem á mánu
dag stóð í um 3% klst., og leit-
aðist einkum við að sýna fram á,
að sitthvað væri sammerkt með
„morðbréfunum“ og „bréfum,
sem ungur vistmaður á Kleppi
hefði sent ýmsum mönnum, svo
og glæpasögur, er birzt hefðu
eftir hann í „Vikunni" fyrir um
2 árum.
Lýsti hann jafnframt óskum
sínum um að geðsjúklingur þessi
fleiri bátar hug á að gera það
sama í nótt.
Síldin má öll heita söltuð eða
og nokkuð á fimmta tug lögreglu
manna yrðu yfinheyrðir um bféf-
in, byssumeðferð lögreglumanna,
áfengisneyzlu tiltekinna starfs-
manna lögreglunnar o. fl.
• Sannanir fram komnar
Um kl. 3 í gærdag tók svo full-
trúi ákæruvaldsins, Páll S. Páls-
son, hrl. til máls og gerði grein
fyrir þeim rökum, er hann taldi
hníga að því, að frekari vitna-
leiðslur væru ástæðulausar og að
eins til þess að draga málið á
langinn. Sagði hann m. a. að
fram hefðu komið sannanir, er
hann teldi að ekki yrðu hraktar,
um það, að Magnús Guðmunds-
son hefði skrifað umrædd bréf.
Og að því er snerti bréf hins geð-
sjúka, sem fráleitt væri að eigna
„morðbréfin" benti hann m. a.
á, að rannsókn hefði leitt í Ijós
að þau hefðu verið skrifuð á rit-
vél hans sjálfs — en „morðbréf-
in“ hins vegar ekki.
Þessi atriði bæru það með sér,
að alls engar líkur væru á því, að
við frekari vitnaleiðslur kæmi
nokkuð fram, sem úrslitum gæti
ráðið um það, hvort hinn ákærði
yrði sekur dæmdur eða sýknað-
ur. Sama væri að segja um þau
atriði önnur, sem óskað væri eft-
ir að vitni yrðu innt eftir, enda
væru flest þeirra óviðkomandi
ákærunni á hendur sakborningi.
• Synjað um upplýsingar
Ennfremur vakti Páll S. Páls-
son athygli á því, að hinn ákærði
fryst á Akranesi og var búizt við
að þar yrði unnið í alla nótt.
hefði sjálfur neitað fyrir rétti,
að gefa upplýsi'ngar um mörg
þeirra atriða, sem nú væri kraf-
izt af hans hálfu að einstakir lög-
reglumenn yrðu dregnir fyrir
dóm til að bera vitni um. M. a.
hefði hann synjað dómara um að
skýra frá því, hvernig hann
hefði fengið skammbyssu þá, er
hann bar í heimildarleysi en
fannst hjá honum; og ekki hefði
hann heldur orðið við tilmælum
um að finna stað ásökunum sín-
um á hendur nokkrum starfs-
bræðrum sínum um að þeir hefðu
verið undir áhrifum áfengis við
störf. Þegar sakborningur tregð-
aðist þannig við að gefa sjálfur
upplýsingar, gæti hann ekki með
nokkurri sanngirni átt kröfu á,
að dómari krefði aðra aðila sagna
um þau, umfram það sem dóm-
ari sjálfuf teldi þörf á. ^
\
• Óþarfa töfum forðað
Alit undirréttardómarans hefði
verið það, að sakarefni yrði ekki
upplýst frekar en orðið væri með
þeim vitnaleiðslum, sem verjandi
færi fram á, og hefði hann því
af brýnni nauðsyn, til þess að
afstýra óþarfa töfum á afgreiðslu
málsins, kveðið upp úrskurð um
að frekari vitnaleiðslur skyldu
ekki fara fram. — Að síðustu
skal þess getið, að lagt var fram
í réttinum í gær vottorð, byggt
á gjörðabókum lögreglunnar,
sem virðist algjörlega hnekkja
því, sem haldið hafði verið fram
í blöðum að væri „fjarverusönn-
un“ Magnúsar Guðmundssonar,
nóttina, sem fyrra hótunarbréf-
ið var talið ritað.
• Lauk um 6 leytið
Málflutningi lauk síðan með
örstuttum ræðum af beggja hálfu
um 6 leytið í gærdag og var mál-
ið að því búnu tekið til dóms.
Mbl. innti forseta hæstaréttar,
Frh. á bls. 23
><@* Sprengdi í 3000 tunnu kasti
Fréttaritari blaðsins í Hafnar-
firði sírnaði:
Það voru mikil gjeðitíðindi
þegar það spurðist snemma í gær
morgun að Eldborgin væri á leið
hingað með um 600 tunnur af
síld sem hún hafði fengið út af
Garðskaga, en það er fyrsta síld-
in, sem þar veiðist nú á síldar-
vertíðinni.
I allan gærdag fréttist svo af
bátum, sem lent höfðu í mikilli
síld á þessum slóðum — en það
sem verra var, að nokkrir þeirra
höfðu fengið svo stór köst að
nætur þeirra bókstaflega tætt-
ust í sundur og litlu sem engu
var náð. Þannig fór til dæmis
fyrir Hugrúnu og Stuðlabergi.
Vélbáturinn Auðunn varð einn
ig fyrir því óláni að sprengja
sína nót, en þó náðust um 1000
tunnur, en a. m. k. 200 tunnur
mun hann hafa misst. Kom Auð-
unn með síldina hingað í gær-
kvöldi og verður henni landað
yfir í togarann Röðul, sem siglir
með hana á erlendan markað.
Hann kom af veiðum í gær með
70—80 tonn af fiski sem landað
var, og verður Röðull nú fermd-
ur með síld.
Þá hafði Eldborgin fengið
aftur 800 tunnur í gær og Alfta-
nes 450.
Síldin, sem veiðist á þessum
slóðum, er mjög falleg og stór
og að allra dómi sú bezta, er
borizt hefir á land hér í vetur.
Ut á miðin er ekki nema um 3%
klst. stím, og einnig er síldin á
hinu ákjósanlegasta dýpi. En það
sem veldur því að margir bát-
anna rífa svo nætur sínar, er
hversu djúpar þær eru. Að því
var að sjálfsögðu mikið hagræði
þegar bátarnir voru hér um dag-
inn vestur undir Jökli, þegar sem
dýpst var á síldinni. — G.E.
>*« Unnið í frystihúsunum í nótt
1 gærmorgun kom Auður inn
til Reykjavíkur með 400 tunnur
síldar og fór strax út aftur. Frétt-
ist í gærkvöldi að hún væri aft-
ur á leiðinni með 1400 tunnur.
Guðmundur Þórðarson kom með
1400 tunnur, Hringver 1300,
Heiðrún 800, Sæljón 600—700,
Ársæll 800—900. Var í nótt ver.
ið að skipa síldinni í Þormóð
goða, sem á að sigla með 3000
tunnur til Þýzkafands.
1 gærmorgun kom Jón Garðar
tilKeflavíkur með fyrstu síldina,
á áttunda hundrað tunnur. í gær
kvöldi komu Vestmannaeyjabát-
arnir Reynir með 600 og Gjafar
800—900 tunnur og Huginn var
á leið inn með 800 tunnur.
Tuttugu Keflavíkurbátar voru
á sjó með línu og fengu 6—7 tonn.
Ætluðu a. m. k. þrír að hætta
samstundis á línunni og fara á
síld í nótt.
Blaðið hafði ennfremur fregn-
ir af því að Hringver hefði verið
búinn að fá 1250 tunnur síldar
í gær, Sigurlaug frá Siglufirði
600 tunnur, Alftanes 450 og Rifs-
nes 600.
_með Háahnúk að sunnan og Geirmundartind að norðan. Berjadalur fyrir miðju.
Ljósmynd: Ólafur Árnason.
5 tíma málflutningur um
„Morðbréfamálib"
í Hæstarétti í gær
STAKSTEINAR
Gott dæmi i:m mál-
flutning kommúnista
Frétt Þjóðviljans um ráðagerS
sex lögregluþjóna í Reykjavík
um að ráðast á lögreglustjórann
og veita honum likamlega hirt.
ingu, er gott dæmi um mál-
flutning kommúnista. Kommún.
istablaðið spinnur upp rosafrétt
frá rótum um það að heill hóp-
ur lögreglumanna hafi ætlað að
ráðast á yfirmann sinn með lík.
amlegu ofbeldi .Tilgangurini*
með slíkum fréttaburði er auð-
vitað sá, sem greinilega kemur
fram í fyrrgreindri Þjóðvilja.
grein, að hnekkja áliti lögreglu-
stjóra og sýna óvinsældir hans
innan lögreglunnar.
En þessi fréttaburður hefur
orðið mikið áfall fyrir kommún-
ista sjálfa. Lögreglumenn í
Reykjavík hafa einum rómi mót.
mælt rógburði Þjóðviljans.
Kommúnistablaðið hefur orðið
að eta rosafrétt sína gersamlega
ofan í sig. Er vissulega tími til
þess kominn að það geri fleiri
fréttum sínum sömu skil.
„Hinn pólítiski blær"
í forystugrein Tímans í gær er
m. a. komizt þannig að orði um
yfirlýisingu þá, sem vinnuveit-
endur gáfu á fyrsta samnirrga-
fundinum með fulltrúum Dags-
brúnar, að á. henni hafi verið
„pólitískur hlær“. Málgagn
Framsóknarflokksins vítir mjög
þennan „pólitíska blæ“.
í því samhandi er ekki úr vegi
að minna á það, að Framsóknar-
mcnn hafa undanfarin ár haft
nána samvinnu við kommúnista
innan verkalýðshreyfingarinnar.
Þar hefur ekki hnifurinn gengið
á milli þessara tveggja flokka.
Meðan vinstri stjórrrin sat hik-
uðu Framsóknarmenn meira að
segja ekki við að styðja komm.
únista, hvar sem þeir gátu í bar-
áttunni gegn Alhýðufl akknum),
sem þó átti sæti í stjórn með
Framsóknarmönnum. Siðan nú-
verandi rikisstjórn var mynduð
hefur samvinna Framsóknlai;-
manna við konvmúnista innan
verkalýðshreyfingarinnar svo
orðið ennþá nánari. Þeir hafa
beinrlinis komið þar fram eins og
einn flokkur.
Samvinna vinnuveitenda
og verkalýðs
f fyrrgreindri forystugrein
Tímans í gær er einnig komizt
að orði á þessa leið:
„í nútíma þjóðfélagi er það
höfuðnauðsyn að góð samvinna
sé milli vinmuveitenda og verka-
lýðs. f þeim anda eiga bæði
verkalýðssamtökin og vinnuveit
endasamtökin að vinna“.
Hvernig skyldi nú Framsókn-
arflokkurinn framkvæma þessa
etefnuyfirlýsingu höifuðmál-
gagns siirs?
Þannig, að hann styður höfuð.
málsvara stéttarbaráttunnar,
kommúnista i einu og öllu. Fram
sóknarmenn reyna, ásamt komm
únistum, um þessar mundir að
spilla öllu samkomulagi milli
verkalýðs og vinwuveitenda. Þeir
reyna að kynda elda upplausnar
og niðurrifs hvar sem þeir mega
því við koma. Það er sannarlega
ekki mikið að marka yfirlýsing-
ar Tímans. Framsóknarflokkur.
inn fer ekki mikið eftir þeim.
Hann veitir kommúnistum allt
það lið, sem hann má til þess að
eitra andrúmsloftið milli verka-
lýðs og vinnuveitenda. Hann
hjálpar þeim til þess að grafa
undan efnahagsgrundvelli þjóð-
félagsins.
Sjálfur hefur Tíminn einnig
stutt harðsvíruðustu Moskvu-
kommúnista eins og Björn i
Iðju í baráttunni gegn lýðræð.
issinnum.