Morgunblaðið - 17.02.1961, Side 12
12
MORGUNBLAÐ1Ð
Fðstudagur 17. febr. 1961
X
Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og afgieiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
FRAMLEIÐSLAN ER LIFÆÐIN
Tllikill meirihluti þjóðarinn-
ar fagnar því áreiðan-
lega, að róðrar eru nú al-
mennt hafnir eða að hefjast
nema í Vestmannaeyjum,
þar sem kommúnistar halda
athafnalífinu í helgreipum
sínum með verkfalli, sem
enginn bilbugur virðist enn
vera á orðinn.
Aldrei verður þjóðinni það
Ijósara en einmitt þegar
verkföll og vinnudeilur
stöðva framleiðslutæki henn-
ar, að framleiðslan er lífæð
þjóðfélagsins. Þess vegna
veltur allt á því að hún sé
rekin á heilbrigðum grund-
velli og fái. að ganga ótrufl-
uð. Höfuðtakmark allra þjóð
hollra íslendinga hlýtur að
vera það, að framleiðslustörf
in gefi sem mestan arð. Lífs-
kjör þjóðarinnar eru fyrst og
fremst undir því komin,
hvernig tekst um rekstur
framleiðslutækjanna á hverj-
um tíma. Ef framleiðslan er
mikil og vaxandi, þýðir það
bætt lífskjör, stærri skerf í
hlut hvers einstaklings. Ef
framleiðslan dregst saman,
þýðir það á sama hátt að
minna kemur til skiptanna
milli einstaklinga þjóðfélags-
ins. Niðurstaðan verður allt-
af sú sama: Að þjóðin getur
ekki eytt meiru en hún afl-
ar. Hún verður að miða lífs-
kjör sín við arðinn af fram-
leiðslutækjum sínum.
Það er vegna þessarar
grundvallarstaðreyndar, sem
öll þjóðin verður nú og jafn-
an að sameinast um, að
tryggJ3 heilbrigðan rekstur
atvinnutækja sinna og vinna
að því af hagsýni og skyn-
semi að auka arðinn af
rekstri þeirra. í því er hin
eina raunhæfa kjarabót fólg-
in. —
HVERJIR BORGA
BRÚSANN?
Ðússar láta oft liggja að því
að þeir hafi á undanförn-
um árum lagt fram ríflegan
skerf af því fé, sem Samein-
uðu þjóðimar hafa varið til
fjölþættrar mannúðarstarf-
semi og reksturs hinna ýmsu
stofnana sinna.
Hvað skyldi nú Vera hæft
í þeirri staðhæfingu?
Samkvæmt upplýsingum,
sem nýlega hafa verið birtar
um heildarrekstrarkostnað
Sameinuðu þjóðanna og stofn
ana þeirra á árinu 1960, hef-
ur heildarkostnaðurinn á
þessu ári orðið tæplega 335
milljónir dollara. Af þessu
fé hafa Bandaríkin greitt 146
<s>----------------------
millj. dollara, en Rússar að-
eins rúmar 18 millj. dollara.
Bandaríkin hafa með öðrum
orðum greitt 43,7% af heild-
arkostnaði við Sameinuðu
þjóðirnar og stofnanir þeirra
á árinu 1960 en Rússar að-
eins 5,4%.
Þetta er þá sannleikurinn
í málinu. Ef athugaðir eru
einstakir útgjaldaliðir, kem-
ur þetta m. a. í ljós: Heild-
arfjárframlög til vanþrosk-
aðra þjóða á vegum Samein-
uðu þjóðanna er rúmlega 71
millj. dollara. Af þeirri fjár-
upphæð hafa Bandaríkja-
menn greitt rúml. 29 millj.
dollara en Rússar 2,3 millj.
dollara. Af 38,5 millj. dollara
útgjöldum vegna flótta-
mannaaðstoðar hafa Banda-
ríkin greitt 25,3 millj. doll-
ara en Rússar ekki einn ein-
asta eyri. Af 9,2 millj. doll-
ara til matvæla- og land-
búnaðarstofnunarinnar hafa
Bandaríkin greitt tæpar 3
millj. dollara en Rússar ekk-
ert. Af 25 millj. króna fjár-
veitingu vegna barnahjálpar-
innar hafa Bandaríkin greitt
12 millj. dollara en Rússar
602 þúsund dollara. Af 48,5
millj. dollara, sem Samein-
uðu þjóðirnar vörðu á fyrstu
6 mánuðunum til þess að
koma á friði í jKongó, hafa
Bandaríkjamenn greitt 19,6
millj. dollara en Rússar ekki
einn eyri.
Þannig mætti halda lengi
áfram að telja. Rússar hafa
lagt sáralítið fjármagn fram
til þessarar mannúðar- og
viðreisnarstarfsemi, sem rek-
in hefur verið á undanförn-
um árum á vegum Samein-
uðu þjóðanna. Sjálfir hafa
þeir hins vegar haft í frammi
drjúgan áróður um það, hve
mikið fé þeir hafi látið af
hendi rakna í þessu skyni.
HUNGURSNEYÐIN
í KÍNA
!?■ ínverska kommúnista-
*“■ stjórnin hefur sjálf við-
urkennt það frammi fyrir
öllum heiminum, að hungurs
neyð ríki nú í landinu. Telur
stjórnin að uppskerubrestur
sé aðalorsök þessa hörmulega
ástands. Þeir, sem kunnugir
eru atvinnuháttum í Kína,
telja hinsvegar margir að ein
aðalástæðan fyrir stórminnk-
aðri kornframleiðslu sé hið
kommúníska skipulag, sem
þröngvað hefur verið upp á
kínverskan landbúnað.
Kommúnistastjórnin í Kína
hefur lýst því yfir, að árið
Eichmann mun ekki
neita staðreyndum
— E F
minn, Eichmann,
dæmdur til dauða, mun ég
strax áfrýja dómnum,
segir þýzki lögfræðingur-
inn dr. Robert Servatius,
sem hefur tekið að sér að
verja manninn með líf 6
milljóna Gyðinga á sam-
vizkunni, við réttarhöldin
í ísrael í marz.
Servatius fer ekki í graf-
götur með það hverja leið
hann ætli að velja í vörn Eich
manns. Hann mun leggja höf-
uðáherzlu á það hvort Israei
* hafði heimild til að taka Eich-
mann fastan í Argentínu og
flytja hann til Israels.
Yerjandinn segir að Eich-
mann muni tjá sig ósekan, en
1959 hafi verið framleidd 270
milljón tonna af korni í
Kína. Hafði stjórnin sett sér
það mark að árið 1960 yrðu
framleidd 297 millj. tonna af
korni. Pekingstjórnin hefur
játað að því marki hafi ekki
verið náð, en hefur ekki gef-
ið út nákvæmar tölur um
hina raunverulegu fram-
leiðslu. Sérfræðingar í Kína-
málum í Hong Kong telja
hinsvegar, að kornfram-
leiðsla ársins 1960 í Kína
hafi hrapað niður í 185 millj.
tonna. Liggur í augum uppi
að slík framleiðslurýrnun
hlýtur að hafa örlagaríkar af
leiðingar fyrir þjóð, sem lifir
í jafn ríkum mæli á korni og
raun er á um Kínverja.
Það er almenn skoðun
þeirra, sem gerzt þekkja til
í Kína, að vandræði land-
búnaðarins þar hafi fyrir
alvöru hafizt á árinu 1958.
En á því ári hófst kommún-
istastjórnin í Peking handa
um að þröngva hinu komm-
úníska skipulagi upp á bænd
urna og kínverskan landbún-
að. Mikill meirihluti bænd-
anna var þessu skipulagi and
vígur og margt bendir til
þess að allt hafi farið í handa
skolum um framkvæmd þess.
í sambandi við hungurs-
neyðina í Kína nú, rifjast
það upp, að á fyrstu árum
sovétskipulagsins í Rúss-
landi, þjarmaði hungursneyð
að milljónum Rússa. Fjöldi
fólks varð hungurmorða og
rússneskur landbúnaður
komst á hið mesta niðurlæg-
ingarstig. Þannig hefur hið
kommúníska skipulag leikið
tvær fjölmennustu landbún-
aðarþjóðir heimsins, Rússa
og Kínverja. Það hefur leitt
hungursneyð yfir hundruð
milljóna manna. En þetta
skipulag vegsama kommún-
istar um allan heim, einnig
hinir sanntrúuðu Moskvu-
dýrkendur hér á íslandi.
muni ekki reyna að neita stað í sambandi við rannsókn í
reyndum. .ná1! 1 ans“
HEPPILEG LEIB
Alþjóðlega kunnur lögfræð-
ingur, dr. Robert Kempner,
sem þbkktur er frá Niimberg-
réttarhöldunum, hefur lýst
því yfir að þessi leið Servatius
ar sé mjög heppilega valin hjá
honum. I Núrnberg gerðu
margir nazistaleiðtogarnir þá
skyssu að neita öllu, og varð
það einungis til þess að sækj-
endur áttu -auðveldara með að
sanna á þá lygarnar.
Servatius var verjandi nokk
urra stríðsglæpamannanna 1
Nurnberg og telur Kempner
að vörn hans þá hafi verið
mjög sterk. En þrátt fyrir það
voru margir af skjólstæðing-
um hans dæmdir til henging-
ar.
TVEIR MÁNUÐIR
Kempner er í Israel til að
ræða við ríkisstjórnina um lög
fræðileg atriði í sambandi við
Eichmann-málið. En hann
var lögfræðilegur ráðunautur
þýzku lögreglunnar áður en
nazistar komust til valda, og
var t. d. í því starfi þegar
Adolf Hitler var ákærður fyr-
ir uppþot og meinsæri.
Ríkissaksóknarinn í Israel,
Gideon Hausner, telur að Eich
mann-málið muni taka sex vik
ur, en Servatius álítur að það
geti tekið tvo mánuði. Hann
áætlar að unnt verði að yfir-
heyra 4—5 vitni á dag, en þar
að auki verði óhemju fjöldi af
skjölum lagður fram í málinu.
„Skjólstæðingur minn hefur
skrifað 5000 vélritaðar síður
KOSTNAÐUR
Servatius hefur enn ekki
ákveðið hvaða vitni hann mun %
leiða fram. Hann hefur þó sagt
að fjölskylda Eichmanns muni
tæplega koma til Israels til að
vera við réttarhöldin. Fjöl-
skylda Eichmanns hefur feng
ið nærri 200 þúsund kr. frá
bandaríska vikuritinu Life fyr
ir birtingarrétt á endurminn-
ingum Eichmanns. Af þessari
upphæð hefur Servatius feng
ið um 150.000,— upp í kostn-
að.
NAZISTAR AURA SAMAN
I Þýzkalandi hafa fyrrver-
andi nazistabroddar hafið fjár
söfnun í Eichmanns-sjóð. Vest
urþýzka lögreglan hefur feng-
ið vitneskju um að fyrrver-
andi nazistar, sem nú skipa
háar stöður í Ruhr-iðnaðinum
og í þýzkum fjármálum, hafi
lagt fram verulegar fjárhæðir.
Talið er að forsprakki nazist-
anna sé Hans Ulrich Rudel,
sem hlaut æðstu heiðursmerki
Þriðja ríkisins, m. a. fyrir að
hafa sjálfur skotið niður 253
rússneskar flugvélar í síðustu
heimsstyrjöld.
En þegar allt kemur til alls
geta peningar ekki stöðvað þá
keðjuhreyfingu, sem taka Eich
manns kom af stað — og sem
þegar hefur leitt til töku 10—
15 þýzkra stríðsglæpamanna
undanfarið í Þýzkalandi. En
allir voru þeir handteknir
vegna úpplýsinga sem fengizt
höfðu frá Israel í sambandi
við málsrannsóknina þar.
Dr. Robert Servatius, verjandi Elchmanns.