Morgunblaðið - 03.03.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 03.03.1961, Síða 1
V. 24 síður með Barnalesbok Ltvarpsumræðurnar í gærkvoldi: Malatilbúnaður andstöðunnar hrundi — er aðallogfræðingur hennar treysti sér ekki til að taka undir neinar efnislegar árásir á samkomulagið ÞAB raktl mikla athygli í útvarpsumræðunum í gærkvSIói, þeg- ar Framsóknarmenn tefldu fram fremsta lögfræðingi sínum, Ólafi lóhannessyni prófessor, varaformanni Framsóknarflokksins, að bann skyldi ekki minnast á eitt einasta af árásarefnum þeim, icm flokkur hans hefur haft uppi, á samkomulagið við Breta. Prótessorinn minntist ekki einu orði á, að orðalag orðsendingar Vtanríkisráðherra jafngilti ekki fullkominni viðurkenningu Breta á 12 mílna landhelgi okkar. Hann vék heldur ekki að því, að ■amkomuiagið viki í einu eða neinu frá lögunum um visindalega verndun fiskimiða landgrunnsins frá 1948, og loks lagði hann áherzlu á, að hann stæði við fyrri ummæli sín um það, að okkur bæri hverju sinni að haga aðgerðum okkar þannig, að við gætum borið þær undir Alþjóðadómstólinn. Þegar aðallögfræðingi stjórnarandstöðunnar er teflt fram í ■mræðum, hlýtur að vera til þess ætlazt, að hann ræði þær lög- fræðilegu veilur, sem stjórnarandstaðan heldur fram, að séu á ■amkomulaginu og byggir allan sinn málatilbúnað á. Með þögn ■inn] staðfestir hann því, að allur málflutningur stjórnarandstöð- nnnar er byggður á fölsunum einum saman, en áðurtalin þrjú ■triði eru einmitt undirstaða hans. Bjaml Benediktsson, dóms- málaráðherra, talaði síðastur af hálfu ríkisstjórnarinnar og lauk máli sínu á þessa leið: Þýðingarmest er þó, að ís- land haldi áfram að verá réttarríki. Undir því er gæfa þjóðarinnar komin og á því getur sjálfstæði henn- ar oltið. Með samþykkt þeirr ar tillögu, sem hér liggur fyr ir, er allt þetta tryggt. Sleg- |n er skjaldborg um lífshags- jnuni íslenzku þjóðarinnar og íáni laga og réttar, frelsis og Farndale Philips láfinn Grimsby, 2 marz. (Frá fréttamanni Mibl., Har. J. Hamar.) ÞEGAB ég talaði við Dennis Welcli í gær, minntist hann á það, að hann myndi hvíla sig frá amstri daganna með því að fara til jarðarfarar í dag. — Hann hefir líka vafalaust ver ið viðstaddur þessa útför, því að sá, sem var jarðsettur, var enginn annar en Sir Farndale Phillips formaður félags brezkra togaraeigenda. Útför- in fór fram frá lítilli kirkju skammt utan við Grimsby, að viðstöddum helztu forystu- mönnum togaraeigenda og sjó manna. * * * Banamein Sir Farndale Phillips var krabbamein, og hafði hann Hiáðst mjög af þeim sjúkdómi í meira en ár. Hefir því J. R. Cobley, vara- forseti togaraeigendafélagsins, komið fram fyrir hönd félags- ins undanfarna mánuði, eins og lesendur blaðsins munu hafa veitt eftirtekt. fullveldis hennar dreginn að húni. ■ Alþingi Islendinga má nú allra sízt hverfa af verðinum eins og sumir háttvirtir þing- menn leggja til, þegar svo mikið er í húfi. Þess vegna kemur ekki til mála, að það samþykki að svíkjast undan þeirri ábyrgð, sem stjórnar- skrá íslands leggur því á herðar. Það mun ekki skjóta þessu máli frá sér, heldur af- greiða það lögum samkvæmt og afla sér með því virðing- ar og þakklætis þjóðarinnar í bráð og leynd. Endanleg viðurkenning Breta Guðmundur í. Guðmundsson, utanríkisráðherra, var fyrsti ræðu maður kvöldsins. Vegna fullyrð- inga stjórnarandstæðinga um undanslátt og svik af hálfu ríkis- stjórnarinnar í landhelgismálinu með því að veita Bretum tak- mörkuð veiðiréttindi innan 12 mílna línunnar rifjaði hann snemma í ræðu sinni nokkuð upp aðdraganda útfærslunnar 1958. Sagði ráðherrann, að fyrir tilhlut an Hermanns Jónassonar, þávér andi forsætisráðherra hefði vinstri stjórnin boðið þjóðum Atl antshafsbandalagsins í símskeyti 23. maí ’58, að fengjust 12 mílurn ar viðurkenndar þá mættu erlend ar þjóðir veiða allt árið um kring næstu 3 árin á vissum svæðum milli 6 og 12 mílna markanna, enda fengjust einnig leiðrétting- ar á grunnlínum. Þessu tilboði hefði verið hafnað, en endurtek- ið að tilhlutan Hermanns Jónas. sonar 22. ágúst 1958. Þessu tilboði hefði einnig verið hafnað. Og við Framh á bls. 14. Háðuleg útreið Framsóknar og kommúnista á Selföss-fundinum Þorðu ekki að sýna tillogu, sem þeir voru með í vasanum KJÖRDÆMISRÁÐ Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi boðaði til almcnns fundar á Selfossi sl. miðvikudagskvöld. Fundar efni var landhelgismálið, og voru frummælendur auglýstir þeir Ágúst Þorvaldsson og Karl Guðjónsson kommúnisti úr Vestmanna eyjum. Höfðu báðir stjórnarandstöðuflokkarnir haft mikinn við- búnað undir fundinn og mættu þeir Kari og Ágúst með mótmæia- tillögu upp á vasann gegn tiilögu ríkisstjórnarinnar um Iausn fisk- veiðideilunnar við Breta. En Framsókn og kommúnistar fengu hina háðulegustu útreið á þessum fundi, sem var mjög fjöl mennur. Fluttu fulltrúar þeirra stórorðar ræður um samkomulag ið við Breta, og voru Framsóknar mennirnir engir eftirbátar kommúnista í fullyrðingum sín um og sleggjudómum. Af hálfu stjórnarflokkanna mættu á fundinum þeir Ingólfur Jónsson ráðherna, Sigurður Óli Ólafsson forseti Efri deildar og Unnar Stefánsson alþm. Fluttu þeir allir ræður, þar sem þeir skýrðu lausn landhelgisdeilunn ar og þann mikla ávinning, sem íslenzku þjóðinni væri að henni. Fékk málflutningur þeirra ágæt ar undirtektir fundarmanna. Fór svo eins og áður segir, að banda- lag Framsóknar og kommúnista áræddi ekki að flytja tillögu þá um mótmæli, sem ákveðið hafði verið fyrir fundinn að þeir legðu fram. Auk fyrrgreindra ræðumanna, töluðu á fundinum þeir Björn Björnsson alþm. og Óskar Jóns- son frá Vík. Mikil vonbrigði. Það var mál manna, er fundinn sóttu, að Framsóknarmenn og kommúnistar hefðu farið mjög halloka í umræðunum. Var auð- sætt að fylgismenn þeirra höfðu orðið fyrir miklum vonbrigðum. Stuðningsmenn ríkisstjórnarinn- ar töldu hins vegar fundinn hafa verið mikinn sigur fyrir stefnu hennar. Fundurinn stóð fram á nótt. Kl. 1.30 um nóttina voru 10 menn á mælendaskrá. Bað fundarstjóri, Matthíás Ingibergsson, formaður kjördæmaráðs Framsóknarflokks ins, um leyfi til þess að slíta fundi. — Komu engin mótmæli gegn því. Gengu Framsóknarmenn og kommúnistar þreyttir og von- sviknir af þessum fjölmenna fundi. Snæfugl SU 20 var fyrsti bát urinn, sem landaði í Vest- mannaeyjum eftir að verk- fallinu lauk og samið hafði verið við verkakonur. Hann landaði 25 lestum rétt um það leyti, sem gengið var frá samningunum við Snót í fyrra dag. Fimmtán línubátar frá Vestmannaeyjum voru á sjó í gær. Margir hugðust taka net, en urðu að hætta við að leggja þau, vegna veðurs. (Ljósm.: Sigurgeir Jónsson, Vestmannaey jum). Qrtiz dæmdur til duuðu — Lagaillarde til 10 ára hegningarvinnu PARÍS, 2. marz. (Reuter) — Það gerðist í dag í réttarhöld- unum, sem undanfarið hafa staðið yfir vegna uppreisnarinn- ar í Alsír í janúar 1960, að hinn 43 ára gamli kaffihússeigandi Joseph Ortiz, sem talinn hefur verið aðalleiðtogi uppreisnarinn- ar, var dæmdur til dauða — að honum fjarstöddum. — Ortiz hefur farið huldu höfði síðan uppreisnin var barin niður, en talið er að frétzt hafi til hans m. a. á Spáni. — ★ — Auk Ortiz, var Pierre Lagaill- arde, annar aðalleiðtogi upp- reisnarinnar og fyrrum þing- maður fyrir Alsír, dæmdur til tíu ára hegningarvinnu. Lagaill- arde dvelst nú á Spáni, en ekki er vitað nákvæmlega um dval- arstað hans. V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.