Morgunblaðið - 04.03.1961, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 4. marz 1961
TILLSÖLU
notuð Singer saumavél
með eða án mótor.
TækifærisverS.
Upplýsingar í síma 33671.
2H113
SENDIBÍLASTOÐIN
Leigjum bíla
án ökumanns.
FERÐAVAGNAR
Afgreiðsla E. B. Sími 18745.
Víðimel 19.
Barnarúm
kr. 630,00.
9 Verzl. BÚSLÓÐ
Njálsgötu 86 — Sími 18520
Stúlka — Kona
Stúlka eða kona óskast til
'heimilisstarfa hálfan —
eða allan daginn til 14.
maí Upplýsingar í síma
34655 eftir kl. 1 í dag.
Ráðskona óskast
á heimili í kaupstað úti á
landi. Gott húsnæði, mikil
þægindi. Gott kaup. Uppl.
í síma 13946 eftir kl. 8 í
kvöld og á morgun.
Kvenfólk — Keflavík
Sauma kvenkjóla, sníð einn
ig og þræði ef óskað er
ig og þræði saman ef ósk-
að er. Anna Sveinsdóttir
Bergi — Sími 1956.
Dömur athugið!
Grá dragt (ensk). Tæki-
færiskjóll nr. 16 (44). Nýtt,
vandað, ódýrt. Til sölu
Bröttugötu 6 (uppi).
2—3ja herbergja íbúð
óskast helst í Vestur- eða
Miðbæ. 2 fullorðið í heim-
ili. Upplýsingar í síma
17863 milli kl. 1—6 laugar-
dag.
Svefnsófar
Seljum sófasett, eins og
tveggja manna svefnsófa.
5 ára ábyrgð. Klæcum og
gerum við húsgögn.
Bólstrunin
Bjargarstíg 14.
Lögfræðingar —
fasteignasalar
Hefi skrifetofupláss á góð
um stað. Tilboð merkt.
„Miðborg — 1819“ sendist
Mbl. afgr.
S T Ú L K A
óskast til afgreiðslustarfa.
Uppl. í búðinni kl. 1—3
í dag.
Garðabúffin
Ásgarði 22—24.
Barnarúm og dýna
til sölu Langholtsveg 105
kjallara.
Fallegt mótorhjól
N.S.U. Fox ’54
til sölu. Fæst fyrir lágt
verð, vegna brottflutnings.
Til sýnis á Vífilsstaðabú-
inu.
Stofuskápur
mjög fallegur, poleraður
stofuskápur til sölu, einnig
innskotsborð sama stað.
Uppl. í síma 32328.
í dag er Iaugardagurinn 4. marz.
63. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 6:35.
Síðdegisflæði kl. 18:50.
Slysavarðstofan er opin allan sólar-
hringinn. — Læknavörður L.R. (fyrir
vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8.
Sími 15030.
Næturvörður vikuna 4.-11. marz er
í Reykjavíkurapóteki.
Holtsapótek og Garðsapótek eru opin
alla virka daga kl. 9—7, laugard. frá
9—4 og helgidaga frá kl. 1—4.
Ljósastofa Hvítabandsins er að Forn-
haga 8. Ljósböð fyrir börn og full-
orðna. Upplýsingar í síma 16699.
Næturlæknir í Hafnarfirði vikuna
4.-11. marz er Kristján Jóhannesson,
sími: 50056.
Næturlæknir í Keflavík er Kjartan
Olafsson, sími: 1700.
FMTTIII
Dansk kvindeklub. — Fundur I
Grófinni 1, þriðjudaginn 7. þ. m. kl.
8.30.
Kvenfélag Háteigssóknar. Skemmti
kvöld félagsins verður þriðjud. 7. þ.
m. í Sjómannaskólanum og hefst kl.
9.30. Konur mega taka með sér gesti.
KFUM og K, Hafnarfirði. — Sam-
koma verður í kvöld kl. 8,30. Kristni
boðsvikunni lýkur á sunnudagskvöld
kl. 9 með samkomu í þjóðkirkjunni.
Leiðrétting. — Heimilisfang drengs
ins, Ingva Ömars Haukssonar, sem
fórst af slysförum austur í Öræfum
á dögunum, misritaðist í frétt blaðs
ins í gær. Hann átti heima að Njáls-
götu 52B.
Messur á morgun
Reykjavíkurprófastsdæmi: — A
morgun verða æskulýðsguðsþjónustur
í kirkjum prófastsdæmisins. Æsku-
fólk aðstoðar víða við guðsþjónust-
urnar. Allir eru velkomnir, en sér-
staklega er þess vænzt, að unglingar
og ungt fólk muni æskulýðsguðs-
þjónusturnar. — Dómprófastur.
Kaþólska kirkjan. — Lágmessa kl.
8,30 f.h. — Hámessa og prédikun kl.
10 f.h.
Dómkirkjan. — Kl. 11: Æskulýðs-
þjónusta. Sr. Jón Auðuns. Kl. 5:
Messa 1 fomum stíl. Sr. Sig. Pálsson,
Hraungerði, séra Arngrímur Jónsson,
Odda, Sr. Guðmundur Öli Ölafsson,
Skálholti. Kirkjukór Selfosskirkju
og Dómkirkjukórinn flytja tón og
söng. Barnaguðsþjónusta í Tjarnar-
bíó kl. 11. Sr. Öskar J. Þorláksson.
Neskirkja. — Barnamessa kl. 10,30
f.h. — Æskulýðsmessa kl. 11,15 f.h.
Séra Jón Isfeld. Messa kl. 2 e.h. —
Séra Jón Thorarensen.
Hallgrímskirkja. — Barnaguðsþjón
usta kl. 10 f.h. Æskulýðsmessa kl. 11
f.h. Séra Sigurjón Þ. Ámason. Messa
kl. 2 e.h. Ungt fólk les pistil og guðs
spjall, ræðuefni „Einkunnarorð dags
ins",
Laugarneskirkja. — Æskulýðsguðs
þjónusta kl. 2 e.h. Barnaguðsþjónusta
kl. 10,15 f.h. Sr. Garðar Svavarsson.
Háteigsprestakall. — Barnasam-
koma í hátíðasal Sjómannaskólans
kl. 10,30. Æskulýðsguðsþjónusta kl.
2 e.h. Séra Jón Þorvarðsson.
Bústaðaprestakall. — Messa í Háa-
gerðisskóla kl. 2 e.h. (Æskulýðs-
messa). Sr. Ölafur Skúlason.
Langholtsprestakall. — Barnasam-
koma í safnaðarheimilinu við Sól-
heima kl. 10,30 f.h. f h. Messa kl.
2 e. h. Sr. Arelíus Níelsson
Elliheimilið. — Messa kl. 10 f.h. —
Sr. Bragi Friðriksson. — Heimilis-
presturinn.
Fríkirkjan. — Æskulýðsguðgþjón-
usta kl. 2 e.h. Sr. Þorst. Björnsson.
Aðventkirkjan: — Sunndaginn 5.
marz kl. 5 síðd. talar Svein B. Jo-
hansen um efnið: Að baki dauðans.
Allir velkomnir.
Kópavogur« — Æskulýðsmessa í
Kópavogsskóla kl. 2. Séra Gunnar
Ámason
Hafnarf jarðarkirkja. Æukulýðsqguð
þjónusta kl. 5 e.h. Skátar aðstoða við
messuna og skátakór syngur. Sam-
koma á vegum kristniboðssambands-
ins kl. 8,30. Lokasamkoma kristni-
boðsvikunnar. Sr. Garðar Þorsteins-
son.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. — Æsku-
lýðsmessa kl. 2 e.h. Sr. Kristinn
Stefánsson.
Æskulýðsdagurinn f Keflavíkur-
prestakalli. — Messa í Keflavík kl.
2 e.h. Barnaguðsþjónusta i Innri-
Njarðvík kl. 11 f.h. Séra Björn Jóns-
son.
Reynivallaprestakall. *— Messa að
Reynivöllum kl. 2 e.h. — Séra Krist
ján Bjarnason.
Bessastaðakirkja. Æskulýðsguðþjón
usta kl. 2 eh. Skátar úr Hafnarfirði
og söngflokkur barnaskóla Garða*
hrepps aðstoða við messuna.
Akranesklrkja. — Messa kl. 2 e.h*
Almennur safnaðarfundur að lokinnl
messu. — Sóknamefndin.
Grindavílt. — Æakulýðsiguðsþjón-
usta kl. 2 e.h. — Reidar G. Alberts-
son, kennari, talar. — Sóknarprest-
ur.
Útdkálaprestakall. *— Messað
(æskulýðsmessa) að Hvalsnesi kl. 2
e.h. — Sóknarprestur.
Fíladelfía: Guðsþjónusta kl. 8,30.
Asmundur Eiríksson.
Tjarnarlundur, Keflavík: Svein B.
Johansen talar um efnið: Sköpun eða
þróun? sunnudaginn 5. marz kl. 20,30
Myndin, sem hér birtist er
af 9 drengjum úr gagnfræða
skóla Akraness. Þeir eru tal-
iff frá vinstri Trausti Finns-
son, Gunnar Jónsson, Sigur-
steinn Hákonarson, Magnús
Oddson, Már Karlsson, Hilm-
ar Sigvaldason, Rögnvaldur
Einarsson, Daníel Lárusson
og Björn Þorleifsson. Drengir
þessir leika í leikþættinum
„Kvenskörungar", en hann
er eitt af 10 skemmtiatriffum
á árshátið gagnfræðaskólans,
sem haldin er í kvöid.
JÚMBÓ í KÍNA
+ + +
Teiknari J. Mora
1) — Hvern fjárann eruð þið eig-
inlega að gera? spurði Júmbp með
írafári, þegar neyðaróp Ping Pongs
kölluðu hann á vettvang. — Sleppið
honum strax! hrópaði hann. — Já,
en við getum það ekki. Vindan situr
föst! var svarið.
2) Skipstjórinn kom nú líka hlaup
andi. — Ég hef nú aldrei á ævi minni
séð annað eins! hrópaði hann. — Nei,
nú er ég aldeilis grallaralaus, sagði
hann, um leið og hann hljóp að vind-
unni. — Ping Pong skall aftur niður
á þilfarið með þungum dynk.
3) — Þér megið til með að fyrir-
gefa vinum mínum klaufaskapinn,
sagði Júmbó vandræðalegur, þegar
Wang-Pú kom og hjálpaði hinum
dauðskelkaða þjóni sínum til baka
til káetunnar.
Jakob blaðamaðtir.
Eítix Peter Hoffman
— Ó, Monty! Það rifjar upp gaml-
ar minningar að vera aftur í örmum
— Ég vissi að þú gætir ekki
gleymt, ástin! Og ég veit að þú munt
hjálpa mér eins og þú gerðir fyrlr
fimm árum!
þínum!